Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Side 8
8
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1993.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embætbsins að Skógarhlíð 6,
Reykjavík, 3. hæð, sem hér segir
á eftirfarandi eignum:
Álfheimar 6, hl. 2. hæð, þingl. eig.
Skyndibitar hf., matvælavinnsla,
gerðarbeiðendur Hlutabréfasjóðurinn
hf., Lífeyrissj. málm- og skipasmiða
og Lífeyrissj. rafiðnaðarmanna, 22.
janúar 1993 kl. 10.00.
Lágamýri 6, Mosfefisbæ, þingl. eig.
Agnar Loftsson, gerðarbeiðandi Jöt
unn hf., 22. janúar 1993 kl. 10.00.
Vatnsstígur 11, þingl. eig. Vatnsstígur
11, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í
Reykjavík, 22. janúar 1993 kl. 10.00.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtalinni
eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Kleppsvegur 86, þingl. eig. Jörundur
Pálsson, gerðarbeiðandi Lífeyrissj.
lækna, 22. janúar 1993 kl. 16.00.
SÝSLUMAÐURINN {REYKJAVÍK
Uppboð Uppboð munu byrja á skrifstofu embætdsins að Auðbrekku 10, Kópavogi, 22. janúar 1993 kl. 10.00 á eftirfarandi eignum: Nýbýlavegur 14,1. hæð vestur, þingl. eig. Olafur Garðar Þórðarson, gerðar- beiðendur Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar og Verðbréfamarkað- ur íslandsbanka hf.
Nýbýlavegur 60, efri hæð, þingl. eig. Guðmundur I. Magnússon, gerðar- beiðandi Lífeyrissjóður FÍSK. Skjólbraut 4, 1. hæð, þingl. eig. Her- dís Haraldsdóttfi, Jón Þorkelsson og Ágústa Linda Ágústsdóttfi, gerðar- beiðendur Byggingasjóður ríkisins, Bæjarsjóður Kópavogs, húsbréfadeild Húsnæðisstofhunar ríkisins, Lorelei Haraldsdóttfi og íslandsbanki hf. Skólagerði 9, þingl. eig. Elfsabet Magnúsdóttfi og Jens Ragnar Lind- berg Gústafsson, gerðarbeiðandi Raf- magnsveita ríkisins.
Hhðarhjalli 53, 01-02, þingl. eig. Margrét M. Bjömsdóttir, gerðarbeið- andi íslandsbanki hf.
Huldubraut 17, þingl. eig. Ásta Sig- tryggsdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfa- deild Húsnæðisstofiiunar ríkisins. Huldubraut 21, þingl. eig. Bjöm Ein- arsson og Margrét Ámadóttir, gerðar- beiðandi Bæjarsjóður Kópavogs. Kársnesþraut 13, efii hæð, þingl. eig. Sigríður Alda Hrólfsdóttir, gerðar- beiðendur Bæjarsjóður Kópavogs, Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna, Líf- eyrissjóður verslunaimanna, Samein- aði lífeyrissjóðurinn og Sparisjóður vélstjóra.
Smiðjuvegur 9, kjaUari með útbygg- ingu í miðhúsi, þingl. eig. Þórður Axelsson, gerðarbeiðendur Iðnþróun- arsjóður, Lífeyrissjóður Dagsbrúnar og Framsóknar og Lífeyrissjóður byggingamanna.
Kjarrhólmi 18, 3. hæð B, þingl. eig. Hildur Leifsdóttir, gerðarbeiðandi ís- landsbanki hf. Vatnsendablettur 331, 1/6 hluti hest- húss og lóðar, þingl. eig. Ómar Kjart- ansson, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna.
Melgérði 40, þingl. eig. Gísli Halldórs- son, gerðarbeiðendur Bæjarsjóður Kópavogs og húsbréfadeild Hús- næðisstofiiunar ríkisins. Víðigrund 53, þingl. eig. Guðjón Þór Guðjónsson og Halla Hjaltested, gerð- arbeiðendur Skúfi Waldorff og Vigfus Helgason.
SÝSLUMAÐURINN í KÓPAV0GI
Aukablað um
tölvur
Miðvikudaginn 27. janúar nk. mun aukablað um tölvur
fylgja DV. Blaðið verður Qölbreytt og efhismikið en í þvi
verður fjallað um flest það er viðkemur tölvum og tölvu-
notkun.
í blaðinu verða upplýsingar um bæði hugbúnað og vél-
búnað, þróun og markaðsmál. Má hér nefha verðkönnun
á einkatölvum, greinar um viðskiptahugbúnað, notkun
tölva við auglýsingagerð, tölvunotkun um borð i fiskiskip-
um, nýja og einfaldari gerð forritunarmála ásamt smáfrétt-
unum vinsælu.
Þeim sem vilja koma á framfæri nýjungum og efni i blað-
ið er bent á að senda upplýsingar til ritstjómar DV, ísaks
Sigurðssonar, fyrir 19. janúar nk.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu
aukabiaði, vinsamlega hafi samband við Sonju Magnús-
dóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta i sima 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er
fimmtudagurinn 21. janúar.
ATH.i Bréfasími okkar er 63 27 27.
Uflönd
TOMAHAWK STYRIFLAUG
Lengd: 6,13 m Hraði: 1000 km/klst
Þyngd: 1600 kg Skotsvið: 1300 km
Leiðintil Bagdad
e^notaðvið'1' Þotuhreyfill / Loftinntak
flugtak
Siglingatæki E/dsneyf'
Vængir Sprengjubyrgðir Tercom tölvukerfi
þenjast út 500 kg lercom tolvuKerri
eftir flugtak Innbyggð leiðsögutæki
Skömmu áður en flaugin kemur inn
yfir landið lækkar hún flugið niður í 30
metra hæð og ber landslagið saman
við staðfræðilegar upplýsingar sem
geymdar eru á segulbandi í stafrænu
formi í flauginni sjálfri og leiðréttir
stefnu sína.
Flaugin styðst síðan við fleiri staði á
leið sinni og leiðréttir stefnu sína,
bæði hvað varðar staðsetningu sína
og vamarvopn andstæðinganna.
Skömmu áður en flaugin kemur á
ákvörðunarstað sinn reiknar hún ná-
kvæmlega út staðsetningu sína, stillir
vídeótökuvél og beinir stefnu sinni að
stað þeim sem henni er ætlað að
granda. Nákvæmninni skakkar ekki
nema sem svarar 50-100 sm. ^
Tveggja ára afmælis Flóabardaga minnst með árás á Bagdad:
Lokauppgjörið
bíður Clintons
Tvær konur létu lífið á Rasheed-hótelinu í Bagdad þegar ein af stýriflaugum
Bandaríkjamanna lenti þar. Brak úr flauginni hefur fundist við hótelið.
Bill Clinton, sem sest í stól Banda-
ríkjaforseta á miðvikudaginn, hefur
lýst yfir stuðningi við nýjustu að-
gerðir George Bush gegn írökum og
hefur lýst sig reiðubúinn til aö halda
baráttunni áfram. Lokauppgjörið við
Saddam Hussein bíður því að öllum
líkindum þess að hann taki við.
Deilan við íraka hefur nú magnast
óvænt með fyrirvaralausri árás á
verksmiðju í úthverfi Bagdad í gær.
Bandaríkjamenn segja að 40 stýri-
flaugum hafi verið skotið að verk-
smiðjunni og hún eyðilögð. Þeir segja
að írakar hafi framleitt efni og búnað
í kjarnavopn í verksmiðjunni og nú
hafi þessi starfsemi verið lömuð.
íraka segja á móti að vinnan í
versksmiðjunni hafi á engan hátt
tengst hergagnaiðnaði heldur hafi
þar verið unnið að því að koma orku-
vinnslu í landinu á réttan kjöl eftir
eyðilegginguna sem varð í Flóabar-
daga fyrir tveimur árum.
Brakúrflaug
við hótelið í Bagdad
írakar fullyrða að ein af flaugum
Bandaríkjamanna hafi hæft Rasheed
hótelið í Bagdad en þar búa margir
útlendingar, blaðamenn og erlendir
sendimenn. Bandaríkjamenn draga
þetta í efa. Blaðamenn á staðnmn
segja að þeir hafi fundið hlut í flaug,
merktan framleiðslulandinu Banda-
íkjunum.
Tvær konur létu lifið á hótelinu og
allt að þrír tugir manna slösuðust,
þar á meðal þýskur blaðamaður. Ein
kona lést annars staðar í borginni.
Saddam heilsaði upp á hina særðu í
gærkvöldi og sagði að slíkt væri
framferði Bandaríkjamanna jafnan;
þeir hikuðu ekki við aö skjóta á
óbreytta borgara.
Greinilegt er af öllu að Bush for-
seti ætlar að kveðja með látum. Ýms-
um getum er að því leitt hvað valdi
uppnáminu nú og telja' stjómmála-
skýrendur jafnvel aö Saddam hafi
undanfamar vikur ögrað banda-
mönnum beinlínis í þeim tilgangi aö
beina athyglinni frá bágu ástandi
heima fyrir.
Saddam hvetur sitt fólk enn sem
fyrr til að ráöast á Bandaríkjamenn
hvar sem færi gefst en ekkert hefur
orðið úr aðgerðum.
Simamynd Reuter
Talsmaður Bandaríkjastjómar
segir að ekki verði lát á aðgerðum
gegn írökum fyrr en þeir fafiist í einu
og öllu á skilyrði í vopnahlésskilmál-
unum frá því í lok stríðsins 1991. ír-
aksstjóm hefur þráast við síðustu
vikur, viljað selja ný skilyrði og ít-
rekað hótað að ráðast gegn eftirlits-
flugvéliun Sameinuðu þjóðanna yfir
flugbannsvæðunum nyrst og syðst í
landinu. Reuter