Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1993, Side 10
10
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1993.
AÐLAÐANDI Á
ÁRSHÁTÍÐINNI
ERT ÞÚ
ÍNÆGÐ!
Utlönd
Stj ómarmyndunarviðræður í Danmörku ganga vel:
Jaf naðarmenn nær
öruggir með forsætið
Poul Nyrup Rasmussen, formaður
danska jafnaðarmannaflokksins, er
nú nær öruggur um að verða næsti
forsætisráðherra Danmerkur. Það
VERÐHRUN A
DÚNÚLPUM
ICEBEAR
Verð nú kr. 8.990,-
Áðurkr. 11.750,-
Litir: Dökkblátt og kremhvítt.
Stærðir: S-XL
SNOWFOX
Verð nú kr. 9.490,-
Áðurkr. 12.490,-
Litir: Hvítt og svart.
Stærðir: S-XL
SNOWLIVE
Verð nú kr. 9.490,-
Áðurkr. 12.490,-
Litir: Ljósblátt, grænt og rautt.
Stærðir: M-XXL
ARTIC
Verð nú kr. 7.490,-
Áðurkr. 10.750,-
Litir: Rautt og grænt.
Stærðir: S-XXL
DODY
Verð nú kr. 5.990,-
Áðurkr. 7.990,-
Litir: Dökkblátt, rautt og grænt.
Stærðir: S-XXL
DODY barna
Verð nú kr. 4.990,
áðurkr. 6.490,-
Litir: Rautt og blátt.
Stærðir: 140-176
FIELD
Verð nú kr. 6.990,-
Áður kr. 9.900,-
Litir: Dökkblátt, grænt og
Ijósblátt.
Stærðir: S-XXL
Sendum í
póstkröfu
Nýtt korta-
tímabil hafið
whummél^
SPORTBÚÐIN
ÁRMÚLA40,
SÍMAR 813555 og 813655.
liggur ljóst fyrir eftir að miðflokkur-
inn Radikale Vestre lagði blessun
sína yfir tilraunir hans til að finna
grundvöll fyrir nýrri ríkisstjóm.
„Við erum nú að einbeita okkur að
því að semja bestu mögulegu stefnu-
skrána fyrir nýja ríkisstjóm og ef það
gengur vel væri eðlilegt að Rasmus-
sen yrði forsætisráðherra," sagði
Marianne Jelved, formaður Radikale
Venstre, eftir fund flokksins í bæn-
um Nyborg í gær.
Fundurinn í Nyborg var ekki afger-
andi um hvort Radikale Venstre ætl-
aöi að taka þátt í ríkisstjórn með jafn-
aðarmönnum. Helmingur flokks-
stjómarinnar var þeirrar skoðunar
að flokkurinn ætti aö halda sig utan
stjómar. Þaö veröur hins vegar þing-
flokksins að taka endanlega ákvörð-
un.
Nymp Rasmussen er ánægður með
ákvörðun flokksstjómar Radikaie.
Hann sagöi að flokkarnir ættu þaö
Allt bendir til þess að Poul Nyrup
Rasmussen, formaður jafnaðar-
mannaflokksins, verði næsti forsæt-
isráðherra Danmerkur.
Símamynd Reuter
m.a. sameiginlegt að líta á lausn at-
vinnuleysisins sem einn af grund-
vallarþáttunum í stefnu nýrrar ríkis-
stjómar.
Uffe Ellemann-Jensen, utanríkis-
ráðherra og formaður Frjálslynda
flokksins, bauð Radikale Venstre for-
sætisráðherraembættið í gær ef
flokkurinn styddi hugmynd hans um
breiða samsteypustjórn vinstri- og
hægriflokkanna. Radikale gekk hins
vegar ekki að boðinu.
Utanríkisráðherrann sagði í
danska sjónvarpinu að slík stjóm
væri skynsamlegust á því sex mán-
aða tímabili sem Danir fæm með
forsæti í Evrópubandalaginu.
Danskir fjölmiðlar spá því að stjórn
jafnaðarmanna geti tekið við um
miðja vikuna. Poul Schluter forsæt-
isráðherra sagði af sér á fostudag
eftir að hann var sakaður um að
hafa farið með rangt mál í þinginu
um meðferð á tamílskum flótta-
mönnum. Ritzau og Reuter
Svona var umhorfs á þjóðvegi á japönsku eyjunni Hokkaido eftir jarðskjálftann þar á föstudag.
Símamynd Reuter
Tveir fórast í öflugasta jarðskjálfta í Japan í 11 ár:
Þjóðvegir rif nuðu og
hús runnu af grunni
Tveir fórast og rúmlega fimm
hundrað manns slösuðust á föstudag
í versta jarðskjálfta sem hefur orðiö
í Japan í ellefu ár. Skjálftínn mældist
7,5 stig á Richterskalanum. Upptök
hans vora í Kyrrahafinu, undan
strönd norðureyjarinnar Hokkaido,
á 120 kílómetra dýpi.
Borgin Kushiro varð einna verst
útí og er talið að skemmdir þar séu
metnar á milljarða króna. Skemmd-
imar era engu að síður sagðar mjög
takmarkaðar þar sem upptök skjálft-
ans vora á svo miklu dýpi.
Eldri hjón vora hætt komin þegar
hús þeirra rann tuttugu metra niður
hæðina sem þaö var byggt á og tók
baðherbergi nágrannans með. Húsið
er lítið skemmt en er hætt komið á
barmi hengiflugs.
Reuter
Bill Clinton hringir vonarklukkum
Tugþúsundir manna fögnuðu Bill
Clinton, verðandi forseta Bandaríkj-
anna, í gærkvöldi þegar hann, A1
Gore, verðandi varaforseti, og eigin-
konur þeirra hringdu eftirlíkingu af
Frelsisbjöllunni í Washington á
köldu og stjömubjörtu vetrarkvöldi.
Klukkur hringdu samtímis í tugum
annarra borga um allt land.
Clinton kaUaði þetta „klukkur von-
arinnar" og sagði að þær mörkuðu
„upphafendumýjunarþjóðarinnar".
Athöfnin við Lincoln minnismerk-
iö var upphaf fjögurra daga hátíöa-
halda vegna innsetningar Clintons í
forsetaembættið á miðvikudag.
Reuter