Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1993, Qupperneq 3
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR1993
3
VANTAR ÞIG FATASKÁP?
Fréttir
Framtalsbónus
stadgreidsluafsláttur af
öllum kæli- og frystiskápum
frá AEC til 10. febrúar.
Umboðsmenn um land allt.
„Hverfastöðvar eru fraratíöar-
skipulag löggæslu á höfuöborgar-
svæðinu. Þetta skipulag lögreglu-
stöðva, svipaðar aö uppbyggingu
og Breiðholts- og Grafarvogsstöðv-
amar, er það sem við horfum til
og aetlum okkur aö framkvæma í
smáskömmtum eftir þvi sem við
fáum tækifæri til,“ segir Ómar
Smári Ármannsson, aðstoðaryör-
lögregluþjónn og yfirmaöur for-
varnardeildar lögreglunnar.
Hann segir aö Norðurlönd og ír-
land hafi tekið upp hugmyndafræöi
shkra grenndarlögreglu með góð-
um árangri.
„Bandaríkjamenn eru líka að
hverfa frá stórum raiðstýrðum ein-
ingum til frumiöggæsluimar þegar
lögreglumaðiuinn þekkti svo til
alla á sínu svæði. Hér hjá okkur
er hugmyndin sú að vinna að því
að skapa þessa nánd. Við erum
búnir aö óska eftír því við ráöu-
neytiö að fá að opna lögreglustöð í
Árbænum sem yrði byggð upp á
svipaðan hátt og stöðvarnar i
Breiðholti og Grafarvogi. Ef við
fáum hentugt husnæöi munum við
væntaniega opna á næstunni," seg-
ir Ómar Smári.
Hann segir að þaö sé þó ekki nóg
aö lögreglan sýni fi-umkvæði og
áhuga þvd áhugi íbúa þurfi lika að
vera fyrir hendi. Hverfastöðvar
gefi ekki góða raun nema íbúar séu
vakandi og veiti þvi athygli semá
sérstaðínágrenninu. -ból
BRÆÐURNIR
ORMSSON HF
Lágmúla 8, sími 38820.
Lögreglustöðin í Breiðholti:
Mun fleiri upplýst saka-
mál en annars staðar
NÚ BÝÐST EINSTAKT TÆKIFÆRI
TDL AÐ FJÁRFESTA í NÝJUM SKÁP.
VEGNA BREYTINGA Á FRAMLEIÐSLIJ
GETUM VIÐ BOÐIÐ 20% AFSLÁTT AF
FATASKÁPUM MEÐ HURÐUM Á HJÓLA-
BRAUTUM.
ALLIR SKÁPAR ERU FRAMLEIDDIR
FFTIR MÁLI.
í BOÐI ERU ÝMISS KONAR ÚTLIT
EITTHVAÐ FYRIR ALLA
20% AFSLÁTTUR
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST
Nýbýlavegi 12 200-Kópavogur Island
Sími 44011. Pósthólf 167.
„Breiðholtsmönnum hefur orðið
mjög vel ágengt með að upplýsa mál
sem hafa átt sér stað á þeirra svæði
og hlutfallið af upplýstum málum hjá
þeim er miklum mun hærra en víð-
ast hvar annars staðar í Reykjavik,"
segir Ómar Smári Armannsson að-
stoðaryfirlögregluþjónn.
Hann segir ýmislegt valda því að
Breiðholtslögreglunni gangi svona
vel. í fyrsta iagi sé áhuga lögreglu-
mannanna og frumkvæði við að
vinna í málum að þakka og í öðru
lagi sé það sú nánd sem þeir hafi
skapað við fólkið á svæðinu.
Pétur Sveinsson, rannsóknarlög-
regluþjónn og yfirmaður Breiðholts-
stöðvarinnar, tekur undir þetta.
,;Við höfum starfað hér síðan 1989
og komist í mjög góð tengsl við íbú-
ana í Breiðholtinu þannig að við
þekkjum orðið okkar fólk mjög vel.
Við aðstoðum imglingana þegar þeir
lenda í hremmingum og fáum ýmis-
legt til baka. Einnig erum við í mjög
- nálægö við íbúa skiptir öllu, segja lögreglumenn
góðu samstarfi við skólana og alia
sem þar stjórna, svo sem skólastjóra,
kennara, sálfræðinga og félagsfræð-
inga. Við hjálpum unglingum í sam-
ráði við Félagsmálastofnun og köli-
um foreldra til okkar og skýrum
þeim frá því ef við teljum að ungling-
urinn þeirra sé kominn á óæskiiega
braut,“ segir Pétur.
Breiðholtslögregian er sjálfsagt
þekktust af ölium þeim fjölda brugg-
mála sem hún hefur upplýst að und-
aníomu. Hún vinnur hins vegar ekki
eingöngu í bmggmálum og hefur
veriö iðin við að upplýsa sakamál,
svo sem innbrot og flkniefnamál.
Pétur segist viss um að hverfa-
stöðvar líkt og Breiðholtsstöðin séu
það sem koma skal.
„Það er gaman að vinna héma og
við höfum gaman af því sem við emm
að fást við, sérstaklega þegar við
sjáum árangur."
-ból
Afbrotamenn i Breiðhoitinu taka mikla áhættu þar sem lögreglumennirnir í hverfinu, þeir Einar Ásbjörnsson, Am-
þór Heimir Bjarnason og Pétur Sveinsson, eru sérlega duglegir við að upplýsa sakamál. DV-mynd GVA