Dagblaðið Vísir - DV - 04.02.1993, Síða 8
8
FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR1993
Neytendur
DV kannar verð á matvöru:
Mikill verðmunur á
agúrkum og sveppum
Það getur munað allt að 180 krón-
um á sveppakílóinu og nærri 150
krónum á hverju kílói af agúrkum
ef mið er tekið af verðkönnun DV í
gær. Farið var í Fjarðarkaup í Hafn-
arfirði, Kaupstað í Garðabæ, Bónus
í Skútuvogi, Miklagarð við Sund og
Hagkaup í Kringluxmi. Kannað var
verð á níu tegundum af matvöru og
í þrem tilfellum er það borið saman
við eldra verð eins og súluritin gefa
til kynna.
Agúrkur og appelsínur
Fyrir nokkrum dögum barst neyt-
endasíðunni ábending um hátt verð
á agúrkum og þótti vert að kanna
það. í ljós kom mikill verðmunur
milb verslana og mikil hækkun síðan
í septemberlok. Munur á hæsta og
lægsta verði er nú 53% sem er tölu-
vert.
Appelsínumar em ódýrastar í
Bónusi á 69 krónur en dýrastar í
Kaupstað og Hagkaup á 98 krónur.
Munur á hæsta og lægsta verði er
42%. Þetta verð er á appelsínum í
lausri vigt en Hagkaup selur pakkað-
ar appelsínur á 89 krónur hvert kíló.
Kornmatur á misjöfnu verði
Uncle Ben’s hrísgrjón í 907 g pakka
voru ekki til í Bónusi og Miklagarði.
Ódýrust vom þau í Fjarðarkaupum,
kr. 117, en dýmst í Kaupstað, kr. 155.
Munur á hæsta og lægsta verði er
32%.
Cheerios í 425 gramma pökkum
fékkst ekki í Miklagarði. Ódýrast var
þaö í Bónusi, kr. 193, en dýrast í
Kaupstað á 219 krónur. Munur á
hæsta og lægsta verði er 13%.
Egg hafa ekki hækkað í Bón-
usi
Áður er síðasta verðhækkun á bú-
vöm kom til framkvæmda um miðj-
an janúar var kannað verð á eggjum
meðal annars. Þá var Bónus með
lægsta verðið, 340 krónur, og er svo
enn því þar hafa eggin ekki hækkað.
Veröið var hæst í janúar, 353 krónur,
en nú er það hæst 369 krónur. Verð-
hækkunin nemur tæpum 5 prósent-
um.
í Bónusi hefur sykurinn hækkað
um krónu hvert kíló síðan í desemb-
erbyrjun en í Kaupstað hefur hvert
kíló lækkað um fjórar krónur og inn
tíu krónur í Fjarðarkaupum. Sykur-
verð hefur staðið í stað í Miklagarði
og Hagkaupi.
Sveppir, tómatar og popp
Kílóverð á tómötum er ódýrast í
Bónusi, kr. 219, en dýrast í Kaupstað,
kr. 289. Munur á hæsta og lægsta
verði er 32%.
Sláandi verðmunur er á sveppum
milh verslana. Bónus er með ódýrstu
Cheerios - 425 g
sveppina en þar kostar hvert kíló 389
krónur. Dýrustu sveppimir fást í
Fjarðarkaupum en þar er kílóverðið
584 krónur. Munurinn er 50%.
Newman’s örbylgjupopp fékkst
ekki í Miklagarði og Kaupstað. Bestu
kaupin í poppinu em í Bónusi, kr.
123 kassinn, en Hagkaup er með
hæsta verðið, 154 krónur. Munurinn
er 25%.
-JJ
Agúrkur
426 kr.
135fkr.
30. sjpt. nú
Lægsta
verð
30.!
s|pt.
nu
Hæsta verð
193 kr.
iækr.
s.
n j
'9 kr.
5. i óv. r j
19 kr.
Lægsta
verð
Verðmunur á hverju kilói af ferskum sveppum er ríflega 50 prósent.
Gabriel
Hæsta verð
=^EŒtíl
Agúrkur
340 kr. 340 kr.
7. js i. nú
3í 3 kr.
7. ja í.
3§9 kr.
Lægsta
verð
Hæsta verð
HÖGGDEYFAR
STERKIR, ORUGGIR
ÓDÝRIR!
Sértilboð og afsláttur
Sokkar, pitsur og tannburstar
SKEIFUNNI 5A, SÍMI: 91-81 47 88
Að venju bjóöa verslanir sérstök
tilboð í vikunni. í verslunum Kaup-
staðar em ekki sameiginleg tilboð
þessa vikuna en í Kaupstað í
Garðabæ, þar sem verðkönnun var
framkvæmd í gær, er á tilboði
Hornbeck sulta, 900 g, á kr. 169. Ma-
arudskrúfutilboðið heldur áfram en
þá kostar pokinn 99 krónur, heildós
af jarðarberjum er á 79 krónur,
HyTop örbylgjupopp er á 99 krónur
og í tilefni af þorra er tilboð á lamba-
sviðum, kr. 179 hvert kíló, og rófu-
kílóið er á 119 krónur.
í verslunum Hagkaups eru á tilboði
fiskbollur frá Humli, 390 g, á 129
krónur, rautt og hvítt greip á kr. 69
hvert kíló, Grönbrauð, 3 tegundir,
em á 115 krónur stykkiö, pakki með
tveim tannburstum kostar aðeins 199
krónur, pakki með 2 túpum af
tannkremi er á 169 krónur og Gott
Granóla morgunkom er á 279 krónur
kilópakkinn.
JonJan tannbursti
TAKN UM BETRI
TANNHIRÐU
i Evrópu
Talsvert er um sértilboð í Mikla-
garði og ekki síst á útsölunni sem
lýkur um helgina. Verðið hefur
lækkað enn og eru dæmi af dömu-
peysu sem lækkað hefur úr 3495
krónum í 1000 krónur, barnabuxum
sem kostuðu 1385 krónur en nú 500
krónur og herraúlpu sem kostaði
áður 7.995 en er nú á 2.000 krónur. í
matvöru er tilboð á KitKat súkkulaði
sem kostar 29 kr/stk. Better Valu
cola kostar 39 krónur dósin, heildós
af niðursoðnum tómötum er á 59
krónur og Coop bakaðar baunir á 38
krónur.
í Fjarðarkaupum era pitsur frá
Pizzalandi á tilboði á krónur 299 hver
600 g, 2 litrar af Diet-kóki kosta 144
krónur, 3 pör af frotté-íþróttasokkum
kosta 317 krónur, maltabitar 139
krónur og Samsöluheilhveitibrauð
89 krónur.
í Bónusi em -samlokubrauð frá
Samsölunni á tilboðsverði, kr. 67. Ný
pakkning af Emmess rjómaís á krón-
ur 198, tveir lítrar, 4 SS hamborgarar
með brauði og kryddstauk á kr. 287
og SS-matur fyrir fjóra á kr. 494 en
í pakkanum er hakk, hrísgijón og
chilisósa frá Uncle Ben’s.
-JJ