Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1993. 11 Vísnaþáttur Sláttu- vísur II „Vísur, sem ganga árum saman meðal manna, taka oft einhverjum breytingum, og getur þá svo farið, að ólíkar gerðir eða mismunandi séu á kreiki samtímis. Á svipaðan hátt fymist yfir tildrög slíkra vísna, höfunda þeirra og annað fleira. Fyrir nokkru voru birtar hér í blaðinu svokallaðar Sláttuvísur sem ýmsir menn í Mosfellssveit og á Kjalamesi (menn í Reykjavík lögðu líka orð í belg) ortu hér á árunum. Sumir kunna þær á ann- an veg en þær birtast þar, eins og við mátti búast, og um sjálf tildrög- in, sem raunar var ekkert um sagt, vill Helgi Ásgeirsson frá Knarrar- nesi, bróðir Bjama á Reykjum gera svofelldan formála: „í suimudagsblaði Tímans 7. september er meðal annars efnis í blaðinu svonefndar „Sláttuvísur". í formála fyrir vísunum stendur svo: „Það var upphaf þessara vísna, að Bjami (þ.e. Bjami Ásgeirsson) lýsti túninu í Brautarholti og bónd- anum þar með svofelldum orð- um . Kemur þar á eftir vísan: Brautar- holtstúnið grær og grær, síðan all- ar hinar vísumar, í réttri röð, er út af henni spunnust. Þar eð þessi formálsorð em fjar- stæða, alveg út í hött, er óhjá- kvæmilegt að leiðrétta þessa firrn, áður en hún festir frekari rætur, því það er erfiðara að laga en af- laga. Tilefni vísunnar virðist hafa farið fram hjá þeim, er formálann ritar, eða fallið honum úr huga, og ekki sízt, vegna hinna, sem ekki hafa um það vitað, fyrr en þeir lásu skýringu þá, er vísunum fylgdi, verður það að koma fram, eins og þegar hefur verið drepið á. Tilefni: Blaðamaður við Morgun- blaðið var að lýsa grassprettu í fréttum blaðsins þetta sumar. Komst hann svo að orði, að túnið á Brautarholti á Kíalarnesi væri svo vel sprottið, að grasið væri far- ið að leggjast á svig. Þetta fáheyrða orðatiltæki þótti Bjama, og reyndar fleirum, all- frumlegt, því að málvenja var í slíkum tilvikum að segja, að grasið legðist í legu. Þessi „fjóla“, sem blaðamaður Morgunblaðsins fann, þetta eftir- minnilega sumar, í hlaðvarpanum í Brautarholti, var upphaf vísunn- ar og ekkert annað. Samkvæmt formálsklausunni hggm- beinast við að skilja vísuna sem skæting í garð Ólafs. í kveðlingum Bjama var aldrei broddur, en þeir einkenndust af góðlátlegri fyndni og léttu spaugi. Auk þess vom þeir, Ólafur og Bjarni, góðvinir, og hefði hvomgan getað hent að htilsvirða hinn. Hér er því aðeins um fjóluslátt að ræða, enda þótt arfakló hafi slæðst með í heyskapinn." Um sjálfar vísumar segir Jónas Magnússon í Stardal, maður ná- kunnugur: „Með sumar vísurnar er ekki með öhu rétt farið, og vh ég leyfa mér að leiðrétta þær í sömu röð og þær vom kveðnar. Bjami á Reykjum kveður: Brautarholtstúnið grænkar og grær, grösin þar leggjast á svig. Ólafur slær, Ólafur slær, Ólafur slær um sig. (Hér á sem sagt að faha úr „og“ í tveim seinni hendingunum). Kolheinn svarar: Ólafi þarf ekki að lá, aðra menn ég þekki. Þeir em að slá, og þeir em að slá, þótt þeir slái ekki. (Hér ætti „en“ að hafa verið ofauk- ið í upphafi annarrar hendingar). Þriðja vísan, eignuð Magnúsi í Leirvogstungu, er svona: Ólafi háir hefðarþrá, hann í bláinn etur. Litlu stráin leggst hann á, svo lýðurinn sjái betur. (Hér hefur Jónas etur í stað „set- ur“ í enda annarrar hendingar). Fimmta vísan „Þegar örbirgð hæla hjó“, í upphafi eignuð Lárusi Vísnaþáttur Torfi Jónsson á Brúarlandi, er eftir Jósep S. Hún- fjörð. Síðasta vísa Kolheins, svar við vísum Sigurðar póstmeistara, er ekki heldur alveg rétt: Sumir dengja launaljá, landsjóðsengi í múga flá. Kreppan engin þjáir þá - þar er lengi hægt að slá“ (Hér munar lokaorði annarrar hendingar: flá í stað ,,slá“). Þetta segir Jónas. En ekki em öh kurl komin th grafar. Um vísu þá, sem eignuð er Magnúsi í Leirvogs- tungu, er þess að geta, að hann mun aldrei hafa gengizt við henrn. Þar að auki hafa sumir hana í annarri og að sumu leyti betri gerð: Ólafi háir hefðarþrá, hann því ljáinn hvetur, htlu stráin fellir frá, svo fólkið sjái betur. Þannig mun oft fara um lausavís- ur, að einn hefur þetta og annar hitt, og er hágt við að eltast. En í öhum vísunum, þeim sem Jónas nefnir, munar þó ákaflega litlu. Miklu frábmgðnari er sú gerð ví- sunnar, sem birt er hér síðast." Vonandi þarf enginn að velkjast í vafa um hvað rétt er um framan- greindan kveðskap, eftir að hafa lesið þessar skýringar. Norðlenzkar gamanvísur ortar um það leyti sem síðari heimsstyij- öldinni lauk, um hrap hljóðanna niður í „ko-gið“ Avi minn hann átti tíg, eingri skeppnu var hún hg, aldrei heyrðust ópin shg í údvarbinu í Reygjavig. Laungum var min lundin gljúh, landið vavið þoguhjúb, ógurlegt er undirdjúb udan vert við Lómagnúh. Einu sinni úd ég leid, átti heima í ljódri sveid sá ég bída gamla geid, grasið upp með ródum sleid. Heyrarst mér stundum hljóðin völd hraha niöur í kogið: í údvarbinu var auglýst í kvöld að Evróbustyijöld sé logið. Þörf áminning th okkar hér sunn- an fjalla um að tala skýrt og með réttum áherzlum. Torfi Jónsson RENAULT 19 RTi Vlö kynnum frískan og fallegan fólksbíl á ffnu veröl Hinn nýi Renault 19 endurspeglar þá fersku vinda sem hafa blásið hjá Renault síðustu árin. Áhersla er lögð á gæði, langan endingartíma og fallegt útlit. Um helgina kynnum við nýjan-Renault 19 RTi, frískan, fallegan og vel búinn fólksbíl í millistærðarflokki. Hann er fimm gíra, beinskiptur með 113 hestafla vél og búinn lúxus innréttingu, vindskeiðasetti, tvívirkri rafdrifinni sóllúgu, 14" felgum, rafdrifnum rúðum, fjarstýrðum samlæsingum og mörgu fleiru. Renault 19 er á fínu verði eða frá kr. 1.119.000,- og í boði eru greiðslukjör til allt að 36 mánaða. OPIÐ: LAUGARDAG OG SUNNUDAG KL. 13.00 - 17.00 Formulal WILLIAMS -RENAULT HEIMSMEISTARI 1992 RENAULT ..fer á kostum RENAULT Gullna stýriö 1991 1992 1993 Bflaumboöið hf. Krókhálsi 1-110 Reykjavík - Sími 686633

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.