Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 30
42 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993 Sviðsljós Hjartaknúsarinn Robert Redford: Skildi við Siungur töffari. eiginkon- heimsækir hana samt um hver jól - og heldur góðu samband i við dætur þeirra þrjár Leikarinn Robert Redford, sem nú er oröinn 55 ára, er kominn á fullt skriö í kvikmyndaheiminum á nýjan leik. Hann tók sér frí í áratug frá kvikmyndabransanmn og sinnti ýmsum öðrum verkefnum. 1990 sneri hann aftur og í dag rignir yfir hann tilboðum. Redford má nú sjá í einu kvik- myndahúsa borgarinnar í myndinni Sneakers og margir bíða með óþreyju eftir A River Runs through It sem hann leikstýrir. Endurkoma hans er ekki síst gleðiefni fyrir kvenþjóðina sem hefur löngum haft dálæti á þess- um leikara. Redford hefur einu sinni gengið í hjónaband. Sú lukkulega var Lola Van Wagenen en þau létu pússa sig saman 1958. Samband þeirra var talið mjög traust á mælikvarðann í Hollywood, sem er að vísu ekkert til að hrópa húrra fyrir, en svo fór um síðir að upp úr slitnaði. Þau eiga þijár dætur og samband þeirra allra er svo gott að leikarinn eyöir með þeim jólunum. Nokkuð er um liðið síðan Redford og Van Wagenen slitu samvistum og frá þeim tíma hefur hann verið orð- aður við leikkonur eins og Debru Winger, Soniu Braga og Lenu Olin. Engin þeirra náði þó að krækja í leik- arann en það gerði hins vegar bún- ingahönnuðurinn Kathy O’Rear. Hún vann viö A River Runs through It og með þeim tókust svo góð kynni að vinir þeirra beggja telja að gifting sé á næsta leiti. A frumsýningunni á A River Runs through It. Redford og O’Rear ásamt dóttur hennar, Amy. unaen Díönu prinsessu langar til að eignast fleiri böra. Hún á tvo syni meö Karli prinsi en þau eru skilin að skiptum og Díana verður þvi að finna einhvem annan til að taka að sér hlutverkið. Vafalaust yrði enginn hörgull á umsækjendum ef „staðan” væriauglýst en prins- essan hefur bara augastað á Jam- es nokkrum Gilbey. Díana hefur impraö á þessu í eldheitum ástar- bréfum til James en ekki er vitað um viðbrögö hans. BurtReynolds er ansi hnugginn þessa dagana. Ástæðan er sú að uppáhalds- gæludýrinu hans, græneðlunni Iggy, var stolið. Leikarinn hefur heitið 10 þúsund dollurum hveij- um þeim sem getur komið á end- urfundum hans og Iggy. Eðlan haföi aðsetur á búgarði Burts í Flórída og þeim varð mjög vel vina. T.a.m. fóru Burt og Iggy iðulega saman í kvöldgöngur og síðan fékk eðlan að sofna á maga leikarans. á erfitt með skapið á sér og fær ófá reiðisköst á hveijum degi. Hún hefur reyndar góða ástæðu því aðrar konur eru sífellt að reyna að kra;kja í kærastann hennar, John Kennedy yngri. Það sem fer líka i taugamar á leik- konunni er að makinn fær meiri athygli hvar sem þau koma en það er nokkuð sem Hannah hefur ekki átt að venjast hingað til. Með sama áframhaldi er búist við að sambandið taki enda mjög fijót- lega. Sérfræðingar felja að Sara Ferguson eigi eftir að fara yfir strikið. Stormasamthjá stórstjömunum Að mati helstu sérfræðinga vest- anhafs, sem sjá betur en aðrir hvað framtíöin ber í skauti sér, verður þetta ár ansi stormasamt hjá stór- sljömunum. Niðurstöður þeirra vom kynntar fyrir skömmu en lítum á það helsta. Hæst ber aö forsetahjónin, Bill og Hillary, munu skilja. Hún fær for- ræðið yfir dótturinni, Chelsea, en hann fær köttinn Sokka. Hjónaband Emilio Estevez og Paulu Abdul fer einnig út um þúfur en söngkonan verður ekki lengi ein og yfirgefin því að hún mun skömmu síðar ganga að eiga sjónvarpsmanninn Arsenio Hall. Sjónvarpskonan Oprah Win- frey er líka í giftingarhugleiðingum og giftist kærastanum sínum í beinni útsendingu. Stjömumar hafa ekki mikinn tíma til bameigna og aðeins John McEnroe þykir líklegur til að fiölga mannkyninu. Þó ekki með eiginkonu sinni heldur Martinu Navratilovu. Uppátæki Madonnu eiga eftir að koma henni í koll og hún verður handtekin fyrir að renna sér á skíð- um kviknakin. Whitney Houston leggur sönginn á hilluna og snýr sér alfarið að dansi og eins verða breyt- ingar hjá Söm Ferguson. Sérfræð- ingamir spá því að Sara sitji fyrir á nektarmyndum í Playboy og fari í kjölfarið að leika í klámmyndum. leið á heimilisstörfunum og vill fara að komast út á vinnumark- aðinn. Eins og kunnugt er eignaö- ist hún bam á síðasta ári en nú hefur Stefanía fengiö nóg af bleiu- þvotti. Prinsessan hyggst setja á fót raðgjöf fyrir ungmenni þar sem svarað verður spurningum þeirra um vímuefhi og kynlíf svo eitthvað sé nefiit. Stefanía ætlar sjálf að miðla af reynslu sinni en í þeim efhum hefur hún af nógu aö taka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.