Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 46
58 LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR 1993. Sjonvarpið a manudagskvöld: Iif Katrínar miklu í nýrri þáttaröö - fokdýr fjögurra þátta minisería sem tekin var í Rússlandi Ævi Katrínar miklu, keisaraynju 1 Rússlandi, hefur nokkrum sinn- um verið kvikmynduð í Hollywood og hafa stórstjömur á borð við Marlene Dietrich, Bette Davis og Jeanne Moreau leikið hana á hvíta tjaidinu. Árið 1990 sameinuðust þrjár sjónvarpsstöðvar um að gera miniþáttasyrpu um þessa stór- brotnu konu. Það voru kanadísk sjónvarpsstöð, bresk og í fyrsta skipti rússneskir aðilar. Þættimir kostuðu 760 milljónir íslenskra króna í vinnslu en upptökur fóra að mestu fram í Leningrad í Rúss- landi þar sem keisarafjölskyldan hafði aðsetur en þá hét borgin St. Pétursborg. Mikið var lagt í að hafa þættina sem vandaðasta og vora leikarar valdir með það í huga. Það kom hins vegar mörgum á óvart að ung og óþekkt 24 ára leik- kona, Julia Ormond, var fengin til að leika aðaihlutverkið en margir höfðu búist við að Meryl Streep eða Greta Scacchi yrðu fyrir valinu. Með önnur stór hlutverk fara Van- essa Redgrave, Christopher Plum- mer, Marthe Keller, Maximihan Schell og leikstjórinn er einnig mjög þekktur, Michael Anderson sem er Breti. Katrín mikla var uppi á árunum frá 1729-96. Hún var af þýskum aðalsættum en giftist verðandi keisara Rússlands, Pétri, árið 1745, þá aðeins sextán ára. Eftir að mað- ur hennar komst til valda gerði hún allt til að ræna hann völdum. Talið var aö hún hefði myrt mann sinn árið 1762. Katrín átti þrjú böm en ekkert með eiginmanninum enda átti hún sér marga ástmenn, meðal annarra konung Póllands, en hún lagði einmitt hluta þess lands undir sína stjórn. Katrín stjórnaði land- inu með harðri hendi. Á meðan maður hennar lifði var hann ævin- lega í skugga eiginkonunnar og var Ung leikkona, Julia Ormond, fékk hlutverk Katrínar miklu í fjögurra mynda þáttaröð en Sjónvarpið mun hefja sýningar á þáttum þess- um á mánudagskvöld. undir lokin illa haldinn alkóhólisti. Katrín mikla réð ríkjum í þijátíu ár og ástarsambönd hennar hneyksluðu fólk um alla Evrópu. Sjónvarpið mun byija að sýna þættina á mánudagskvöld en þeir hafa fengið góða dóma þar sem þeir iiafa veriö sýndir. í viðtali við blaðið The Sunday Express sagði Julia að hún ætti aldrei eftir að gleyma þessum tíma og því að leika hlutverk sem fræg- ustu leikkonur kvikmyndanna höfðu áöur verið í. „Margar þekkt- ar leikkonun hefðu vafalaust viljað vera í mínum sporum," sagði hún. Juha hafði áður leikið í vinsælum sjónvarpsmyndaflokki, Traffic, og henni stóð gott hlutverk til boða er henni bauðst að leika Katrínu miklu. Leikarar, sem starfað hafa með Juliu, gefa henni gott orð og telja hana mjög góða leikkonu. Ekki virðist það heldur saka að hún Vanessa Redgrave er meðal þeirra stórstjarna sem koma fram í myndaröðinni um Katrínu miklu. Þættirnir kostuðu í framleiðslu 760 milljónir íslenskra króna. er há, grönn og falleg. Meðan hún sat á skólabekk var hún frekar til vandræða enda víst ófeimin við tjá skoðanir sínar. „Ég er víst lík Katr- ínu að því leyti,“ segir leikkonan. Vanessu Redgrave er nær óþarft að kynna. Hún hefur verið í hópi frægustu leikkvenna um árabil enda hefur hún leikið í fjölda kvik- mynda. Fyrsta hlutverk hennar var á sviði árið 1957 í Cambridge. Fyrsta hlutverkið í London fékk hún ári síöar þegar hún lék meö fóður sínum, Michael Redgrave. Hún var ung er hún hóf kvik- myndaleik og situr enn á stjömu- himninum. Systir hennar, Lynn, er einnig þekkt leikkona. Væntanlega munu margir hafa gaman af þáttum þessum næstu mánudagskvöld enda er saga Katr- ínar miklu afar óvenjuleg. -ELA Merming Nashyrningur í blokkinni Leikfélag Kópavogs framsýndi fyrir skömmu bama- leikrit gert upp úr sögu Ole Lund Kirkegaard um Ottó nashyrning og vini hans. Eins og í fyrri sýningum félagsins á verkum byggð- um á bókum hans er þessi uppfærsla fjörug og litrík og margt gert í leikrænni úrvinnslu til aö halda at- hygh lítilla áhorfenda vakandi. Söguþráðurinn er hæfilega ævintýralegur. Krakk- amir í salnum finna strax til samkenndar með Toppi og Viggó sem búa í blokk og taka upp á ýmsu skemmti- legu eins og stráka er siður. Dag einn teiknar Toppur stóran nashyming með töfrablýanti og það er ekki að sökum að spyija: Nas- hymingurinn lifnar við. Þetta veldur ýmsum skringi- legum uppákomum, sérstaklega af því að venjulegar blokkir era ekki byggðar sem híbýli fyrir nashyrninga. Leiklist Auður Eydal Leikmyndin er hönnuð af Emi Alexanderssyni sem líka sá um htskrúðuga búninga. Verk hans lumar á skemmtílegum lausnum og er í góðu samræmi við þann ævintýrablæ sem er á sögunni. Þetta gerist jú aht í ofur venjulegu umhverfi þar sem alhr bardúsa við sín hversdagslegu störf en aht í einu gerist eitt- hvað: Hókus pókus og það er kominn heih nashymingur upp á fjórðu hæð. Söguþráðurinn skhar sér vel en það hefði mátt vinna textann aðeins meira, þjappa efninu betur saman og jafnvel bæta við efnisþáttum th að fá meiri fyllingu 1 sýninguna. Leikhópurinn stendur sig vel og Þórunn Magnea leikstjóri nýtir sér möguleika leikhússins th að krydda atburðarásina ýmsum skemmthegum uppákomum. Strákana Topp og Viggó leika þeir Leifur Öm Gunn- arsson og ívar Guðmundsson. Þeir era skýrmæltir, Tveir leikaranna í einu atriðinu í Ottó nashyrningi. ná greiðlega th áhorfenda. Af öðram leikendum má nefna Jóhönnu Pálsdóttur, sem er létt og kímin og skilar sínu vel að vanda, Sylvíu B. Gústafsdóttur í hlutverki frú Flóra, Einar Þór Samúelsson og Skúla Rúnar Hhmarsson en þau sýna öll góða takta í hlut- verkum sínum. Söngurinn var hjns vegar upp og ofan þannig að söngatriðin skhuðu sér ekki nógu vel. Það vantaði hka flör og snerpu í flutninginn. En í heild er þetta htrík og skemmtheg sýning fyrir krakka. Ole Lund Kirkegaard svíkur engan með vina- legum frásögnum sínum af ævintýram sem allir geta lent í sé hugmyndaflugið í lagi. Leikfélag Kópavogs hefur með sóma sinnt þörfum yngstu leikhúsgestanna í gegnum árin og bregst þeim heldur ekki aö þessu sinni. Leiklélag Kópavogs sýnir: Ottó nashyrning eftir sögu Ole Lund Kirkegaard Leikgerð og söngtextar: Hörður Sigurðarson Leikstjórn: Þórunn Magnea Leikmynd og búningar: örn Alexanderson Tónlist: Jósep Gfslason Afmæli Til hamingju með afmælið 6. febrúar ------------------- RunólfurElentínusson, »0 ára Tröö, Reykdælahreppi. IngimarGuðmundsson, -------------- ---------- Dalbraut3,Reykjavík. 50 BTB _______________________________ Anna Vilhjálmsdóttir, -n , Árkvörn2a,Reykjavík. /U ara GiselaRabe-Stephan, Kambagerðí 7, Akureyri. Ragnar Þorsteinsson, Ásólfur Geir Guðlaugsson, Engjaseh 70, Reykjavík. Öldugötu 6, Árskógshreppi. Guðný Guðjónsdóttir, __________ Hrauntúni 7, Vestmannaeyjum. Oddgeir S. Júlíusson, Þórufelh 10, Reykjavík. Oddgeirtekurá móti gestum á heimih dóttur sinnar, Álakvísl 16, Reykjavik,frákl. 16idag. Rósa Hermannsdóttir, Hjallalandi 32, Reykjavík. Ingileíf Guðmundsdóttir, Miötúni 43, Isafirði. Karl Júlíusson, Vesturbraut 10, Grindavík. Guðmundur Guðmundsson, Bjarmastíg 2, Akureyri. Þórir Andrés Laustsen, Drafnarstíg 7, Reykjavík. Sígurbjörg Þorsteinsdóttir, Tryggvagötu20, Selfossi. Rut Ingvarsdóttir, Dalbraut 56, Bhdudal. ÁrniÁskelsson, Sólvallagötu 50, Reykjavík. Hannes ÞrösturHjartarson, Jöklafold 18, Reykjavík. Hafdís Hafsteinsdóttir, Furagrund 62, Kópavogi. Þórarinn H. Sigvaldason, Túngötu 4, Grindavík. Þórarinn varð fertugur þann 2. febrúar síðasthöinn. Siguröur Karl Júlíusson Sigurður Karl Júhusson, fisk- vinnslumaður hjá Þorbirni í Grindavík, th heimihs að Vestur- braut 10, Grindavík, er sextugur í dag. Starfsferill Siguröur Karl fæddist á Karlsstöð- um í Amarfirði, ólst þar upp við sjómennsku og almenn sveitastörf og átti þar heima til þrítugs. Þá flutti hann th Njarðvíkur,þar sem hann stundaði fiskvinnslu í nokkur ár og síðan í Sandgerði th 1980. Sig- urður Karl flutti þá að Leirulæk í Álftaneshreppi þar sem hann stund- aði landbúnaðarstörf í fimm ár en hefur síðan 1985 búið í Grindavík og stundað fiskvinnslustörf hjá Þor- bimihf. Fjölskylda Kona Sigurðar Karls er Sigrún Guðmundsdóttir, f. 29.6.1943, hús- móðir. Hún er dóttir Guðmundar Helgasonar, b. í Hólmakoti í Hraun- hreppi, og Grétu Sigurðardóttur húsfreyju. Börn Sigurðar Karls og Sigrúnar eru Páll Tryggvi Karlsson, f. 16.1. 1968, verkamaður í Reykjavík; Guð- mundur Grétar Karlsson, f. 30.10. 1980, nemi í foreldrahúsum; Sigurð- ur Rúnar Karlsson, f. 10.11.1985; Jón Sigurður Karl Júlíusson. Júhus Karlsson, f. 31.8.1987. Systkini Sigurðar Karls eru Vil- hjálmur Einar, búsettur í Reykja- vík; Jón Guðmundur, netamaður hjá Miðnesi, búsettur í Hafnarfirði; Ragnar, dvelur á Kumbaravogi; Anna, húsmóðir og ekkja í Reykja- vík; Ásthildur, húsmóðir í Reykja- vík; Olga, húsmóöir og ekkja í Hveragerði; Dagmar, húsmóðir í Reykjavík; Borghhdur, húsmóöir í Reykjavík. Foreldrar Sigurðar Karls vom Júhus Pálsson, b. á Karlsstöðum og víðar í Arnarfirði, og Ragnhhdur Jónsdóttir húsfreyja. VERKAKVENNAFÉLAGIÐ FRAMSÓKN Allsherjar atkvæðagreiðsla Ákveðiö hefur verið að viðhafa allsherjar atkvæða- greiðslu við kjör stjórnar og í önnur trúnaðarstörf félagsins fyrir árið 1993 og er hér með auglýst eftir tillögum um félagsmenn í þessi störf. Frestur til að skila listum er til kl. 12.00 á hádegi þriðjudaginn 16. febrúar 1993. Hverjum lista þurfa að fylgja með- mæli 100 fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á skrifstofu félagsins, Skipholti 50A. Stjórnin

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.