Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Page 12
12
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993
Erlendbóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Joanna Trollope:
The Choir.
2. Dick Francis:
Comeback.
3. Stophon Fry:
The Liar.
4. Danieile Steei:
No Greater Love.
5. Joanna Trollope:
The Rector's Wife.
6. Colin Forbes:
Cross of Fire.
7. Terry Pratchett:
Witches abroad.
8. Catherine Cookson;
The Rag Nymph.
9. John Grisham:
A Time to Kitl.
10. Stephen King:
Needful Things.
Rit almenns eðlis:
1. Andrew Morton:
Diana: Her True Story.
3. Peter Mayle:
A Year in Provence.
4. Peter Mayle:
Toujours Provence.
5. Michael Palin:
Around the World in
80 DayS.
6. Bill Bryson:
Neither here nor there.
7. H. Beard & C. Cerf;
The Offlcial Polltically
Correct Dictionary and
Handbook.
8. Gary Larson:
Cows of Our Planet.
9. Robert M. Pirsíg:
Lila: An Inguiry into Morals.
10. Ranulph Fiennes:
The Feather Men.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Herbjorg Wassmo:
Vejen at gð.
2. Hans Scherfig:
Det forsomte forár.
3. Leif Davidsen:
Den russiske sangerinde.
4. Betty Mahmoody:
For mit barns skyld.
5. Francesco Alberoni:
Venskab.
6. Betty Mahmoody:
Ikke uden min datter.
7. Bret Easton Eliis;
American Psycho.
8. Jean M. Auel:
Hestenes dal.
(Byggt á Politikon Sondag)
Veröldin ekki ein
Á þessari öld hafa sumir snjöllustu
vísindamenn heimsins glímt við þá
þungu þraut að smíöa allherjarkenn-
ingu um eðli alheimsins - eins konar
„kenningu um allt“ eins og hún er
gjaman nefnd. Markmiðið er að
finna stærðfræðiformúlu sem sam-
eini í einni heild fjóra frumkrafta
náttúrunnar - þyngdarkraft, rafseg-
ulkraft og sterka og veika kjama-
kraftinn.
Sjálfur Albert Einstein, höfundur
afstæðiskenningarinnar, reyndi ára-
tugum saman að leysa þetta verkefni
en varð að játa sig sigraðan. Samein-
aða svæðakenningin hans gat að vísu
skýrt hegðan þrigggja áöurgreindra
náttúrukrafta en hún féll á þeim
fjórða, þyngdarlögmáhnu. Nema
reyndar á einum fræðilegum stað,
þ.e. í svonefndu svartholi.
Hugarórar?
Svipmynd úr kvikmyndinni Aftur til framtíðar. Hugmyndirnar, sem raktar eru
í Parallel Universes, gera ráð fyrir að tímaflakk sé mögulegt.
Vandinn er einfaldlega sá að ekki
hefur tekist að tengja saman tvær
grundvallarhugmyndir eðlisfræð-
innar - afstæðiskenninguna og
skammtafræðina. Þær örsmáu eind-
ir, sem skammtafræðin fjallar um,
hegða sér einfaldlega ekki í neinu
samræmi við lögmál afstæðiskenn-
ingarinnar. Nema menn gefi sér
óvenjulegar forsendur sem sumir
telja heiUandi möguleika en aðrir
fáránlega hugaróra.
Eðlisfræöingurinn Fred Alan Wolf
fjallar um eina slíka hugmynd í for-
vitnilegri bók sinni, Parallel Univer-
ses. Eins og nafn bókarinnar gefur
til kynna er meginatriði þessarar til-
gátu, sem ýmsir vísindamenn hcifa
velt fyrir sér í fullri alvöru hin síðari
ár, að veröldin sé alls ekki ein. Þvert
á móti séu í alheiminum margar ver-
aldir, hlið við hlið og á vissan hátt
samtengdar, þótt við sjáum aðeins
eina þeirra.
Wolf er vel að sér í þessum fræðum
og reynir að útskýra á alþýðlegan
hátt þá hugsun sem að baki liggur
og þá gjörbreyttu heimsmynd sem
tilgátan felur í sér. Hann rekur þann
vanda sem nýjar uppgötvanir
skammtafræðinnar á þessari öld
vörpuöu í fang vísindamanna sem
leituðu algildra kenninga um eðh
alheimsins, en hugmyndin um
_ marga samhhða heima er í reynd til
komin sem ein hugsanleg lausn þess
vanda.
Ferðast í tímanum
Þessi tilgáta felur meðal annars í
sér breytta sýn á tímanum. Nútíð,
fortíð og framtíð verður samtengd
með alveg nýjum hætti og ferðalög
fram eða aftur í tímanum því mögu-
leg. í slíkum heimi er fortíð í einni
veröld einfaldlega framtíð í annarri.
Samkvæmt kenningunni liggur leið-
in milii þessara mörgu heima meöal
annars í gegnum svartholin.
Þetta er bráðskemmtileg bók þar
sem settar eru fram hugmyndir sem
margar virðast harla lygilegar. Höf-
undurinn er mjög vel ritfær og á
auðvelt með að útskýra flókin fyrir-
bæri á einfaldan hátt. Og víst er að
vísindamenn, sem reyna að ráöa í
gátima miklu um eðli alheimsins,
liafa verið og eru að velta fyrir sér
ýmsum lausnum sem eru jafnvel enn
lygiiegri.
En þrátt fyrir framlag hinna fær-
ustu vísindamanna lætur kenningin
eförsótta, sem sameinar í eitt þau
lögmál sem ráða frumkröftum nátt-
úrunnar, enn bíða efdr sér.
PARALLEL UNIVERSES.
Höfundur: Fred Alan Wolf.
Paladin, GraHon Books.
Umsjón: Elías Snæland Jónsson
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Michael Críchton:
Rising Sun.
2. John Grisham:
The Firm.
3. Lawrence Sanders:
McNally's Secret.
4 John Grisham:
A Tíme to Kill.
5. Mary Higgins Clark:
All around the Town.
6. Norman Maclean:
A River Runs
Through It.
7. Sidney Sheldon:
The Doomsday
Conspiracy.
8. Catherine Coulter:
Beyond Eden.
9. Michael Crichton:
Jurasstc Park.
10. Jane Smiley:
A Thousand Acres.
11. Steve Martini:
Compelling
Evidence.
12. Joseph Wambaugh:
Fugitive Nights.
13. Robert Ludlum:
The Road to
Omaha.
14. Dean Koontz:
Hideaway.
15. W.E.B. Grlffin:
Line of Fire.
Rit almenns eölis:
1. Malcolm X 8t Alex Haley:
The Autobiography of
Malcolm X.
2 Al Gore:
Earth in the Balance.
3. M. Scott Peck:
The Road Less
Travelled.
4. Susan Faludi:
Backlash.
5. Andrew Morton:
Diana: Her True
Story.
6. Deborah Tannen:
You just Don't
Understand.
7. Gloria Steinem:
Revolution from within.
8. Peter Mayle:
A Year in Provence.
9. Moliy tvins:
Molly Ivins Can't
Say That,
Can She?
10. Camille Paglia:
Sex, Art and
American Culture.
(Byggt á New York Times Book Review)
Vísindi
Rafhlödurnar
endasttíu
sinnum lengur
__ FyrirtækiðSLMIntemationalí
Bandaríkjunum segist hafa fundið
upp búnað til að hlaða gamlar raf-
hlöður að nýju. Til þessa hefur þótt
varhugavert að hlaða aðrar rafhlöð-
ur en þær sem sérstaklega em til
þess gerðar. Þær geta farið að leka
sýru og jafiivel sprungið.
Nýja hleðslutækið á að kosta um
50 daii eða um 3.000 íslenskar krón-
ur. Framleiðandinn segir að unnt
verði að láta venjulegar rafhlöður'
endast tíu sinnum lengur en áður.
Ekki má enn gefa upp hvaða aðferð
er notuð enda segjast þeir hjá SLM
ekki vilja fá keppinautunum leynd-
armálsittíhendur.
Evrópska
breiðtjalds-
sjónvarpið
þegarúrelt
Mikið vafamál er hvort evrópska
útgáfan af breiðtjaldssjónvarpi, svo-
kallað HDTV, komi nokkm sinni
fyrir augu almennings.
Ástæðan er að ýmsum aðstand-
endum áætlunarinnar finnst sem
það byggi á úreltum hugmyndum.
Bæði Bandaríkjamenn og Japanir
hafi fundið betri lausnir en evr-
ópsku fyrirtækin vinna að. Til-
raunaútsendingar em hafnar í Jap-
an.
Evrópubandalagið styrkir evr-
ópsku framleiðsluna og hafa fyrir-
tæki eins og Philips í Hollandi notið
góðs af ríkulegum framiögum en
ekki skilað árangri í samræmi við
kostnað. Bretar vilja nú taka fyrir
styrkina.
Ný isöld er hafin á norðurhveli,
segja norskir veðurfræðingar.
Þegar hitastig hefur lækkað um
(imm gráður enn veröur ísöldin í
hámarki.
Næsta ísöld er
löngu hafin
Norskir veðurfræðingar segja að
fáránlegt sé að spyija hvort ísöld sé
í vændum. Svarið við spumingunni
sé einfaldlega að næsta ísöld sé fyrir
lönguhafin.
Þessi niðurstaða er byggð á mæl-
ingum á jöklum á Svalbarða á ýms-
um tímum frá lokum síðustu ísald-
ar. Veðurfræðingamir segja að hiti
milli ísaldanna tveggja hafi náð há-
marki fyrir um fimm þúsund árum.
Þá var Svalbarði íslaus. Upp frá
því hafi tekið að kólna og enn lækki
hitastig á norðurhveh jarðar. Eftir
svo sem flmm þúsund ár í viðbót
verði næsta ísöld í hámarki.
Drullusokkar
bjarga
mannslífum
Tilviljun varð þess valdandi að
konu í San Francisco í Bandaríkjun-
um tókst aö fá hjarta manns síns til
að slá eftir hjartastopp. Konunni
tókst meira að segja að lífga mann
sinn viö þrívegis í röð.
Tilviljunin var aö fyrsta verkfær-
ið, sem hún sá, var dmllusokkurinn
í eldhússkápnum. Hún notaði hann
við einhvers konar hjartahnoð og
nú hafa læknar við sjúkrahús í San
Francisco látið hanna sérstaka sog-
skál sem þykir virðulegra verkfæri
en drullusokkurinn er gerir sama
gagn.
Læknarnir segja aö hjartahnoðið
verði tvöfalt áhrifaríkara ef bæði er
hægt að draga brjóstkassann út og
þrýsta honum saman.
Uppfylla jörðina
á 63 dögum
Ein flugnahjón geta eignast svo
marga afkomendur að þeir þeki allt
yfirborð jarðar á 63 dögum. Þá er
gert ráð fyrir að allir einstaklingar
lifi og hitastig sé hagstætt.
Marie Smith, 72 ára, er seinasta
manneskjan í heiminum sem talar
ayak.
5800 tungumál
eru í útrýming-
arhættu
Marie Smith heitir 72 ára gömul
kona í Anchorage í Alaska. Hún
getur ekki talað við nokkum mann
á móðurmáii sínu. Ástæðan er að
hún er ein mannsekjan í heiminum
semtalarmálið.
Marie er indíáni að uppruna og
tilheyrir ættflokki ayaka. Þeir glata
endanlega máli sínu þegar Marie
deyr. Böm hennar kunna aðeins
ensku.
Hundmö indíánamála em nú þeg-
ar gleymd eða í þann mund að
gleymast. í sumum tilvikum eru fá-
ein gcunalmenni sem tala málin og
enginnlærirþau.
Sömu sögu er aö segja úr öllum
álfum heims og telja málfræðingar
aö um 5800 tungumál verði öllum
gleymd snemma á næstu öld. Þá
verði um 200 mál við lýði og af þeim
gnæfi fimm til sex yfir önnur.
Hárlitur veldur
krabbameini
Ný víötæk rannsókn í Bandaríkj-
unum hefur leitt í ljós að efni til
hárlitunar geta valdi krabbameini í
sogæðakerfinu. Krabbamein þetta
er fátítt meðal karlmanna og
kvenna sem áldrei Uta hár sitt.
Krabbameinið er sjaldgæft og kem-
ur nær eingöngu fýrir hjá konum
semlitahárið.
Meinsemdin byijar með bólgum á
hálsi og greinist yfirleitt ekki fyrr
en hún er komin á hátt stig. Lækn-
ing er möguleg en gengur þó oft illa.
Læknar segja að einhver efni í hár-
lit hljóti að valda sjúkdómnum.
Kaffi eykur
hraða hlaupara
Norsk rannsókn sýnir að menn
hlaupa hraöar eftir að hafa drukkið
tvo þrjá bollaafkaffi. Átján hlaup-
arar tóku þátt í tilraun sem leiddi í
ljós að þeir vora að jafnaði 4,2 sek-
úndum fljótari að fara 1500 metra
með koffin í blóðinu en án þess.
Umsjón: Gísli Kristján^on