Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993 21 Bridge Flugleiðabridgehátíð 1993: Bridgehátíð '93 hefst nk. föstudag Tólfta bridgehátíð Bridgesam- bands íslands, Flugleiða og Bridgefé- lags Reykjavíkur verður spiluð á Hótel Loftleiðum dagana 12.-15. fe- brúar. Hátíðin hefst á föstudagskvöld með tvímenningskeppni 48 para. Eins og undanfarin ár ssekja hátíðina margar af bestu bridgestjörnum heimsins. Frægastar þeirra eru vafa- laust gömlu ítölsku meistaramir Georgio Belladonna og Pietro For- quet sem hafa fengið fleiri heims- og Evrópumótstitla en nokkrir aðrir. Zia Mahmood kemur að venju með blandaða sveit. Spilafélagi hans er einn sigursæl- asti spilari Bandaríkjamanna, Larry Cohen, en í sveit með þeim verða breski meistarinn ungi, Andy Rob- son, og spilafélagi hans, atvinnumað- urinn Munir Ata-Ullah frá Pakistan. Marietta Ivanova frá Búlgaríu verður fimmti spilari sveitarinnar. Hollendingar munu eiga verðuga fulltrúa þar sem eru Enri Leufkens og Barry Westra, Wubbo de Bauer og Bauke Muller, bronssveit síðasta ólympíumóts. Að auki koma þrjú pör frá Noregi, Trollvik-Marstrander, Hoeyland-Ulfen, Dag og Alf Jensen. Bridgeblaðamaðurinn Ib Lundby og Inge K. Hansen frá Danmörku eru einnig meðal þátttakenda eins og oft áður. Tvímenningskeppninni lýkur á laugardag og daginn eftir hefst sveitakeppni með þátttöku 66 sveita en erfitt mun að hýsa fleiri sveitir í spilasölum Loftleiðamanna. Hátíð- inni lýkur síðan með verðlauna- afhendingu á mánudagskvöld. Glæsileg verðlaun eru í boði að venju, eða samtals 15.000 dollarar. Eins og ég gat um áður munu ítal- irnir Belladonna og Forquet vera frægastir núlifandi bridgemeistara og því ekki úr vegi að skoða eitt spil ffá mörgum úrslitaleikjum þeirra og helstu keppinauta þeirra, Banda- ríkjamanna. Spihð er frá úrslitaleik um Bermúdaskálina (geymd í Ráðhúsi Reykjavíkur um þessar mundir) árið 1976. A/Allir * G10976 ¥ DG962 ♦ 53 + 10 * 3 V 5 * ÁD7 * ÁKDG8652 N V A S * ÁKD542 V 84 * 864 * 94 * 8 V ÁK1073 ♦ KG1092 + 73 Tveir af frægustu spilurum heims verða gestir á bridgehátíð, italinn Giorgio Belladonna, sem er margfaldur heimsmeistari í greininni, og Pakistaninn Zia Mahmood sem sumir telja besta bridgespilara heims í dag. í lokaða salnum sátu n-s Paulsen og Ross en a-v Garozzo og Franco: Austur Suður Vestur Norður 2 spaðar 3 hjörtu 4 spaðar 6 lauf pass pass pass Bridge Stefán Guöjohnsen Þar eð Franco hafði stokkið í fjóra spaða hleypti Garozzo sex laufum til hans. Honum leist ekki á að fóma að n-s færu í sjö lauf og þá þyrfti því hann gat allt eins átt von á því hann sjálfsagt að fóma í sjö spaða. Garozzo hirti spaðaásinn og Paul- sen lagði upp. í lokaða salnum sátu n-s Belladonna og Forquet en a-v Eisenberg og Hamilton. Nú var meira fjör í sögnunum: Austur Suður Vestur Norður 2spaðar dobl 4spaðar 7lauP pass pass 7spaðar pass pass dobl pass pass pass Það er gaman að sjá hvemig Bella- donna með þrettán Bermudaskálar undir beltinu, þegar þama var komið sögu, teymir sjálfsalann í vestur í fómina. Staða leiksins var þannig, að það var næstum öruggt að Banda- ríkjamaðurinn tæki fómina. Vörnin tók síðan sína upplögðu fimm slagi og 1400. Það var eins impa gróði því sex lauf á hinu borðinu gáfu 1370. Bikarúrslitaleikur HSÍ Visa-bikarinn Valur - Selfoss Sunnudag 7. febrúar kl. 20.00 í Laugardalshöll IBESTAI DALVEGI16-KÓP. SÍMI641988 POIAR 618401 HEILSUDAGAR - ÞREK- OG ÆFINGATÆKI Ótrúlegt verð á lyftingabekkjum með lóðum. Bekkur með fótaæfingum, arm- æfingum og 50 kg lóðasetti, kr. 16.900. stgr. 16.055. Bekkur með fóta- og flugu- æfingum og 50 kg lóðasetti, kr. 18.900, stgr. 17.955. Takmarkað magn. Æfingastöðvar á frábæru verði, Y0RK 1001 með yfir 30 æfingum, verð aðeins kr. 29.900, stgr. 28.405, verð áður kr. 37.100. Nettler Multitrainer, verð nú kr. 68.000, stgr. 64.600, verð áður kr. 85.000. Lærabani, verð aðeins kr. 950. Margvíslegar æfingar fyrir læri, fætur, brjóst, handleggi, bak og maga. (Selt I póstverslun hjá öðrum á kr. 2.260.) Þrekhjól, verð aðeins kr. 11.680, stgr. 11.096. Þrek- hjól með púlsmæli kr. 13.200, stgr. 12.540. Bæði hjólin eru með tölvumæli með klukku, hraða og vega- lengd, stillanlegu sæti og stýri og þægilegri þyngdar- stillingu. , svo sem æfingastöðvum, fjölnotatækjum, mörgum gerðum þrekhjúla, handlóðum, trimmsettum, dýnumogfl. VARAHLUTIR 0G VIÐGERÐIR, VANDIÐ VALIÐ 0G VERSLIÐ Í MARKINU Sendum i póstkröfu Ministepper, verð aðeins kr. 4.900. Litli þrekstiginn gerir sama gagn og stór en er miklu minni og nettari og kostar auðvitað miklu minna. Opið laugardaga lcl. 10-15 rjjs, Símar 35320 ^ 688860 Ármúla 40 AtARKKy

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.