Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1993, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 6. FEBRÚAR1993
„Maðurinn á sendiferðabílnum gat ekki lagað sig að breyttum aðstæðum i umferðinni. Fyrir honum voru
götur bæjarins einungis ætiaðar fyrir vélknúin farartæki."
Að laga sig
að lífinu
Fyrir nokkru hlupu saman í mik-
illi ófærð á götum borgarinnar ætt-
fróður verðbréfasali og dapureygur
læknir. Sakir skafla og hálku voru
gangstéttir engum færar nema fugl-
inum fljugandi svo að þeir vinimir
hlupu varfærnislega við fót á göt-
unni. Skyndilega renndi upp að hlið
þeirra gráleitur sendiferðabíli. Und-
ir stýri sat snaggaralegur, ungur
maður á hvítum bol. Hann opnaði
gluggann og æpti til þeirra: „Þið
megið ekki hlaupa á götunum." Þeir
svöruðu að bragði: „Hvar eigum við
þá að hlaupa?“ „Þið verðiö bara að
vera heima," sagði maðurinn og gaf
í svo að drundi í vélinni. Verðbréfa-
saiinn glotti við tönn og hljóp áfram
með jafnaðargeði en læknirinn
steytti blákaldan hnefann á eftir
bílnum og æpti ókvæðisorð að þess-
um hrokafuÚa ökuþór.
Maður nokkur leitaði til læknis
fyrir skemmstu og sagði mikla
raunasögu. Stúlkan hans hafði upp
úr þurru slitið ágætu ástasambandi
og bundið trúss sitt við annan mann.
Maðurinn grúfði andlitið í höndum
sér og sagðist ekki vilja lifa lengur.
„Það er ekki til neins! Best væri ég
kominn dauður. Ég get ekki hugsað
mér lífið án hennar."
Aðlögunarhæfnin
Maðurinn hefur einstaka hæfi-
leika til aðlögunar. Hann virðist
geta vanist öllu og lifað við furðuleg-
ar og framandi aðstæðm- án þess að
bíða tjón á sálu sinni. Gott sjálfs-
traust, trú á lífið og sjálfan sig,
stuðningm- umhverfisins og
raunsæjar hugmyndir um tilveruna
eru forsenda þessa. Maðurinn á
sendiferðabílnum gat ekki lagað sig
aö breyttum aðstæöum í umferð-
inni. Fyrir honum voru götur bæj-
arins eimmgis ætlaðar fyrir vélknú-
in farartæki. Hlaupandi eða gang-
andi fólk átti heima á gangstéttun-
um. Ef þær voru ófærar skyldi þetta
fólk vera heima í fletum sínrnn þar
til snjóa leysti. Hann gat ekki lagað
sig að breyttum aðstæðum og valdi
því þann kostinn að hreyta ónotrnn
í hlauparana tvo sem röskuðu
heimsmynd hans þennan dag. Hinn
maðurinn átti líka í erfiðleikum
með breyttar forsendur í tilverunni.
Helst vildi hann binda enda á ævi
sína og hverfa af vettvangi lífsbar-
áttunnar. Hann gat ekki hugsað sér
að laga sig að breyttum aðstæðum,
nýjum forsendum og annars konar
lífi. Báðum þessum mönnum er
mikil vorkunn. Þeir eru ofurseldir
Á læknavaktinni
Óttar
Guðmundsson
læknir
eigin ósveigjanleika eins og risaeðl-
ur fortíðarinnar voru (blessuð sé
minning þeirra). Breytileiki og lit-
brigði daglegs lífs geta riðið þeim
að fullu. Veðrabrigði, leikur árstíð-
anna, vonbrigði og mótlæti getur
orðið þeim tilefni vanlíðunar, kvíða
ogreiðikasta.
Neikvæð aðlögun
Aðlögun getur verið á marga vegu.
Maöur nokkur sat hjá lækni sínrnn
eitt sinn og sagðist vera búinn á
taugum. „Sennilega hef ég fengið
taugaáfall. Ég er gjörsamlega niður-
brotinn!" Læknirinn velti því fyrir
sér skamma stund hvaða taugar
hefðu brotnað eða orðið fyrir áfalli.
Sjálfur hafði hann lengi ætlað sér
að fá taugaáfall og flýja þannig frá
amstri og erfiðleikum daglegs lífs.
Sakir anna hafði honum þó ekki
unnist tími til þess ennþá.
í mörgum tilvikum er taugaáfallið
neikvæð aðlögun að mótlæti líðandi
stundar. Aðrir kvarta undan alls
konar verkjum sem eiga sér enga
líkamlega orsök. Fólk talar um höf-
uðverki, magaverki, hjartsláttar-
óreglu og þreytu. Allur sá kvíði, sem
býr í manneskjunni, breytist þá í
verk; óttinn við að lifa, deyja eða
mistakast, hræðslan við að verða
gamall, veikur, einmana eða hrum-
ur, kvíði gagnvart framtíðinni. Þessi
skelfing tekm: sér bólfestu í maga,
hjarta eða höfði, hengir nafnspjaldið
sitt á hurðina og kallar sig verk.
Slíkur sársauki er ákveðin aölögun
eða flótti frá vandamálunum á sama
hátt og taugaófallið en leysir þó ekki
neitt. (Fiskur nokkur á flótta undan
grimmmn örlögum sínum hoppaði
glaður upp úr sjóðandi potti en lenti
ofan á glóðheitri steikarpönnu).
Að lokum
Það er nauðsynlegt að laga sig að
breyttum aðstæðum. Hver einasti
dagur ber í skauti sér óvænta at-
burði, gleði og mótiæti, erfiðleika
og sigra. Hver manneskja verður að
trúa á eigin möguleika og hæfni til
að komast leiðar sinnar í lífinu þrátt
fyrir ágjöf og ýmsa stórsjói sem
blása upp á lifssundinu. Þeim mun
skemmtilegra sem lífið er, íjöl-
breyttara og litskrúðugra, þeim
mun auðveldara er að laga sig að
breyttum forsendum og kringmn-
stæðum hveiju sinni. Einmanaleiki
og hroki geta gert lífið að fangelsi
þar sem múramir eru hlaðnir úr
þröngsýni og ósveigjanleika. Aðlög-
un byggist á raunhæfu mati á að-
stæðum og eigin getu hveiju sinni.
„Kóngur vill sigla en byr hlýtur að
ráða,“ segir gamalt, íslenskt mál-
tæki. Jafnvel kóngar verða að hlíta
duttlungmn veðráttunnar og örlag-
anna. Gamansemi guðanna veit sér
oft engin takmörk. Gamall bóndi
stóð eitt sinn í flekknum í hellirign-
ingu og skók hrífuna til himna og
sagði: „Þú nýtur þess, guð, að ég næ
ekki til þín!“ Þeir sem ekki geta tek-
ið því sem lífið ber í skauti sér verða
sárir út í almættið og láta reiðina
spilla fyrir sér allri lífsnautn og
ánægju.
N
TIL LEIGU
nýlegt, mjög gott skrifstofuhúsnæði í Knarrar-
vogi 2,167 fm, sem skiptast í góðan afgreiðslu-
sal og 5 herbergi. Til greina kemur að leigja
húsnæðið í minni einingum.
Nánari upplýsingar
í síma 685000.
V J
JM.V.B.
Skrifstofa meistara- og verktakasambands bygginga-
manna hefur verið flutt að Hallveigarstíg 1,
101 Reykjavík.
Sími: 91-626426 Fax: 91-13802.
Útboð
Vestfjarðavegur um
Suðurá á Bröttubrekku
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu
1,0 km kafla á Vestfjarðavegi um Suðurá á
Bröttubrekku.
Helstu magntölur: Fylling og burðarlag 27.500
m3 og skeringar 16.000 m3. Þar af bergskeringar
2.000 m3.
Verki skal lokið 10. ágúst 1993.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins
í Borgarnesi og í Borgartúni 5, Reykjavík (aðal-
gjaldkera), frá og með 8. þ.m. Skila skal tilboðum
á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 22. febrúar
1993.
Vegamálastjóri
TILBOÐ
Gildir út febrúar
bls. 59 mynd 3
peysubolir £ 16,99
um 2311 ísl. kr.
PANTIÐ:
BI0829-GULUR
BI0830-FERSKJU
BI0831-LJÓSBLÁR
BI0832-LILLA
BI0833-SVARTUR
BI0834-HVÍTUR
Pöntunar-
sími
52866
Sumarlistinn er yfir
1000 síður, verð kr. 400 án bgj.
B. MAGNÚSSON HF.
•i
frá kl. 10.00-16.00