Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Síða 51
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993
59
Sviðsljós
Madonna
ófrísk?
Sögusagnir hafa gengið um að
söngkonan Madonna sé ófrísk
en hún hefur lengi talað um að
hana langi í fjölskyldu. Mörgum
þykir þó ótrúlegt að svo sé þar
sem söngkonan er að undirbúa
tónleikaferðalag á næstunni.
Henni væri þó vel trúandi til að
ferðast þó barnshafandi sé,
henni Madonnu...
100 bolir og miðar
DREKINN
Saga Bruce Lee
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11
Ölum upp og
búum til kapítalista
- segir Snorri Styrkársson, formaður átaksverkefnisins
„Til að sporna við atvinnu-
leysi unglinga ákváðum við að
ala þá upp og búa til kapítalista
framtíðarinnar. Á námskeiöi
voru þeim kennd undirstööuatr-
iði fyrirtækjarekstrar og síðan
var fyrirtækið Kolkrabbinn sf.
stofnað. Það sérhæfir sig í bíla-
þvotti, garðhirðingu, innkaup-
um og fleiru þess háttar. Ungl-_
ingamir reka þetta fyrirtæki
sjálfir og hirða jafnframt ágóð-
ann. Þetta er mjög spennandi
verkefni," segir Snorri Styrkárs-
son, formaður átaksverkefnisins
Norðfirðingar í sókn.
Síðastliðinn vetur var átaks-
verkefni hrundið af stað í Nes-
kaupstað til að byggja upp at-
vinnulif staðarins. Um 80 manns
mættu á undirbúningsráðstefnu
og í kjölfarið voru 9 starfshópar
myndaðir til að hrinda í fram-
kvæmd hugmyndum sem þóttu
áhugaverðar. Átaksverkefniö
stendur yfir í tvö ár og er kostað
að jöfnu af bæjarsjóði og
Byggða-
stofnun.
Nú nýverið stofnaði einn hóp-
urinn fyrirtæki um rekstur
mjólkurstöðvarinnar og hefur
hann keypt stöðina af kaupfélag-
inu. Hópur sem kannaði mögu-
leika á laxeldi hefur lagt sig nið-
ur en aðrir hópar starfa enn,
meðal annars að lagningu stíga,
merkingu gönguleiða, úrvinnslu
á sjávarfangi og heilsuræktar-
stöð. Þá er starfandi ferðamála-
hópur sem undirbýr gerð vörðu
utan við bæinn.
„Á vörðuna verður ritað að
það sé einn kOómetri til litlu
Moskvu en 2.903 kílómetrar til
stóru Moskvu. Hugmyndir voru
einnig uppi um að hafa hamar
og sigð ofan á vörðunni en við
það hefur verið hætt til að sætta
ólík sjónarmið.“
í tengslum við átaksverkefnið
er nú í undirbúningi að hefja
þorskeldi á Norðfirði og segir
Snorri að fyrir því sé mikill
áhugi meðal triilukarla á staðn-
um. Reynsla af slíku eldi á
Stöðvarfirði lofi góðu. Þar hafi
þorskurinn tvöfaldað þyngd sína
á einungis fjórum mánuðum. Að
sögn Snorra er nú búið að fá leyfi
sjávarútvegsráðuneytisins fyrir 10
tonnum af þorski utan kvóta.
„Ataksverkefnið byggist á þeirri
hugmyndafræði að virkja fólkið
sjálft til átaka. Þannig er reynt að
fá sem flesta til þátttöku og um-
hugsunar um atvinnumálin í víðu
samhengi. í því sambandi eru fé-
lagsmál og menning ekki undan-
skihn. Jarðvegurinn hér er frjór
og við erum.því bjartsýn á að já-
kvæður árangur náist.“
-kaa
Neskaupstaður hefur oft verið nefndur litla Moskva enda verið stjórnað Snorri Styrkársson hagfræðingur hefur tekið að sér að ala upp kapital-
af félagshyggjumönnum í áratugi. Á vörðu, sem verið er að reisa fyrir ista í Neskaupstað. Hann væntir þess að í framtíðinni muni það skila sér
utan bæinn, verður bent á þá staðreynd að stóra Moskva sé einungis iöflugra atvinnulifi ástaðnum. DV-myndkaa
í 2.903 kilómetra fjarlægð.
cíóeci^l GÍéccEtA nVnifll gíógci^Ri
SlMI 11384 - SN0RRABRAUT 37 SÍMI 11384 - SN0RRABRAUT 37* SlMI 11384 - SN0RRABRAUT 37 SÍMI 11384 - SN0RRABRAUT 37
Svaraðu spurningunum,
klipptu út miðann.
Fyrstu 100, sem koma
með úrklippuna í Bíó-
borgina í dag, fá bol og
miða á myndina.
1. Hvar fæddist Bruce
Lee?
2. Hvað átti Bruce Lee
mörg börn?
3. Hvaða stíl æfði Bruce
Lee þegar hann var
ungur?