Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1993, Page 56
Veðrið á sunnudag
ogmánudag:
Bjartviðri
sunnan-
lands og
vestan
Hæg noröaustanátt, að mestu
skýjað norðanlands og austan en
bjartviðri sunnanlands og vestan.
Veðrið í dag er á bls. 61
LOKI
Ef Jón Baldvin er heilinn
og Jóhanna hjartað
hvaða líffæri er þá Rannveig?
íslenskt bergvatn:
Seltzer leggur
framfjármagn
Munnlegt samkomulag náðist í
fyrrakvöld milli forráðamanna Seltz-
ers í Englandi og íslensks bergvatns
um að Seltzer leggi fjármagn í rekst-
urinn svo starfsemin geti haldið
áfram. Forráðamenn Seltzers voru
hér á landi á flmmtudaginn.
Að sögn Davíðs Schevings Thor-
steinssonar er framhald starfsem-
innar nú tryggt. Seltzer-menn hafi
lofað að leggja til það fjármagn sem
til þurfi svo reksturinn geti haldið
áfram. -Ari
85 hafa fengið bætur {
vegna sjúkrahússlysa *
Vvrnfi 1 ov' o í o-H-o Iri^Ái^o o Kooon ov«
- bætumar stefna 1 átta mllljónlr króna á þessu ári
Mjög mikil aukning hefur orðið á
því að sjúklingar fái greiddar bætur
hjá Tryggingastofnun ríkisins vegna
ýmissa ófyrirséðra atvika sem verða
á opinberum sjúkrastofnunum.
Sjúklingar sem eru til meðferðar á
þessum stofnunum eru nú tryggðir á
svipaðan hátt og vinnandi fólk er
tryggt gagnvart vinnuslysum.
Um þetta tóku nú lög gildi árið 1989.
Frá þeim tíma hefur aukningin orðið
mjög hröð og hafa 85 einstaklingar
fengið greiddar bætur. Árið 1991
greiddi Tryggingastofnun út 1,7 mill-
ónir króna vegna slíkra atvika, 4,5
milljónir á síðasta ári. Miðað við
greiðslur sem þegar hafa verið
greiddar út í ár stefnir í að stofmmin
verði búin að greiða sjúklingum hátt
í 8 milljónir í árslok.
„Varðandi sjúklingatrygginguna er
Smiiljónirkróna
7 Á þessum árum
hafa alls 85 mál
verið afgreidd.
Spa fyrir þaö
sem eftir er
ársins
ekki spurt um hvort eitthvað sé
ákveðnum aðila að kenna - skaða-
bótaskylda þarf ekki að vera fyrir
hendi,“ sagði Kristján Guðjónsson,
deildarstjóri hjá Tryggingastofnun.
„Þetta gengur út á að greiða fólki
bætur sem hefur verið til meðferðar
á opinberum stofnunum og með-
höndlunin hefur farið mikið úrskeið-
is miðað við það sem fólk gat átt von
á. Dæmi um þetta geta verið veruleg-
ir samgróningar beina eftir aðgerðir
og miklar sýkingar. Einnig eru alls
kyns dæmi sem líka eru bótaskyld,
eins og þegar fólk deyr á skurðar-
borði þar sem ef til vill er verið að
gera tiltölulega meinlausa aðgerð.
Skaðabótaskylda er væntanlega fyrir
hendi líka ef einhver dettur fram af
skurðarborði eða um handvömm er
að ræða,“ sagði Kristján.
Hér tínir Þorleifur Jóhannesson, garðyrkjubóndi á Hverabakka II á Flúðum, rauðar paprikur en Þorleifur er að
rækta það grænmeti í fyrsta sinn. Paprika er einær planta og veröur rauð ef hún hangir 3 vikum lengur á trjánum
en þær grænu. Síðan er hægt að vera með mismunandi litaafbrigði. Auk papriku ræktar Þorleifur, ásamt eigin-
konu sinni, Sjöfn Sigurðardóttur, og 4 starfsmönnum, blómkál, kínakál, hvítkál, rófur, gulrætur, sellerí, tómata,
púrrulauk, spergilkál og agúrkur í 300 fermetra gróðurhúsum og á 4 hekturum lands. Að sögn Þorleifs er ís-
ienskt grænmeti að streyma á markaðinn en Flúðir eru eitt mesta grænmetissvæði landsins og stærsta blómkáls-
og kínakálssvæðið. -bjb/DV-mynd GVA
Kristján segir að ef einhver telurl
sig hafa lent í hliðstæðum atvikumf
tilkynni viðkomandi það hjá Trygg-
ingastofnun með því að fylla út eyðu-
blað með sem gleggstum upplýsing-
um - sjúkrahús eða heilsugæslustöð,
lækna o.s.frv. „Síðan öflum við
gagna og þar er úrskurðað í fyrstas
lági hvort þetta er bótaskylt. Ef þetta;
hefur leitt til örorku metur trygg-1
ingalæknir hana,“ sagði Kristján.
Ef ágreiningur rís og ekki tekst að I
semja um greiðslur með hliðsjón afi'
örorku endar slíkt gjaman með‘
málshöfðun. Þá er spurningin um
skaðabótaskyldu og hver beri ábyrgð
á viðkomandi „slysi“. Sjúklinga- i
tryggingin nær ekki yfir mistök
einkastofum lækna eða tannlækna.
Hins vegar hafa ílestir slíkir læknar ■
sjálfirtekiðtryggingar. -Ótt'
i
*
i
i
'í
i
Jóhann vann
fyrstu skákina
Jóhann Hjartarson stórmeisari
sigraði í gær Armeníumanninn
Nalbadanjan í fyrstu umferð milli-
svæöamótsins í Biel í Sviss þar sem
teflt er um 11 sæti í áskorendakeppni
til heimsmeistara FIDE. Jóhann
hafði svart og stóð skákin í um fjórar
klukkustundir. Armeninn hefur
2.430 ELO-stig en Jóhann hefur 2.605.
Á mótinu eru flestir sterkustu
skákmeistararnir í heiminum, 30
keppendur með yfir 2.600 stig.
Ovæntustu úrslitin í gær urðu þeg-
ar rússneski unglingurinn og undra-
barnið Kramnik, sem hefur 2.710
ELO-stig, tapaði fyrir Hollendingn-
um Van Welli. Jafnt varð í skákum
Salovs og Nogueiras, Anands og
Portisch, Sirovs og Gurevitsj og
ívantsjúks og Wolff.
Jóhann teflir bæði í dag og á morg-
un en þegar DV fór í prentun í gær-
kvöldi var ekki Ijóst hverjir andstæð-
ingar hans yrðu. Jóhann var einn af
þremur sem fékk þátttökurétt á mót-
inu eftir svæðamót Norðurlandanna
á síðasta ári. Að sögn Áskels Ö. Kára-
sonar hjá Skáksambandi íslands er
Jóhann vel undirbúinn fyrir mótið
og líklegur til að verða i hópi þeirra
25-30 skákmeistara sem öðrum frem-
ur eru taldir munu berjast um áskor-
endasætinellefu. -Ótt
í
í
í
í
í
í
LAUGARDAGUR 17. JÚLÍ 1993.
SophiaHansen:
Faðir Halims
sagðist vera
búinnaðéta
stelpurnar
„Þegar við vorum að gefa
skýrslu birtist faðir Hahms. Þeg-
ar hann sá okkur trylltist hann
og hvítnaði í framan. Hann opn-
aði munninn, sagði mér að horfa
vel upp í sig og sagði hvað eftir
annað: „Ég er búinn að éta stelp-
urnar". Hann sagði mig vera
gleðikonu, ráfandi villihund á
götum Istanbul og þræl djöfuls-
ins,“ sagði Sophia Hansen við DV
í gær eftir að hafa farið í fylgd
lögreglu til að fá að sjá dætur sín-
ar viö heimílí Halims AÍ.
„Maðurinn spurði hvernig ég
vogaði mér að koma krístinni trú
yfir á stelpurnar. Hann kvaðst
vera bamabarn Ataturks og ég
hefði ekkert með að koma þama
- hann myndi drepa mig og
myndi koma mér til helvítis.
Hvað eftir annað varð hann svo
æstur að hann ætlaði í mig. Guð-
mundur bróðir stóð uppi í miðj-
um tröppum og náði öllu upp á
videotökuvél. Hann ætlaði að ná
vélinni af Guðmundi en lögreglan
stöðvaöi hann.“
Mikil geöshræring
Sophia og Rósa systir hennar
komust i mikla geðshræringu við
hótanir föður Halims og ákvað
Hasip Kaplan, lögmaður Sophiu,
aö ekkert yrði aðhafst fyrr en á
mánudag þegar áfrýjunardóm-
stóll mun taka íjölmörg um-
gengnisbrot Halims fyrir.
Sophia sagði að framangreind
myndspóla yrði lögð fram í rétt-
inum. Hún fékk í gær dómsúr-
skurð í hendur sem heimilar
henni um næstu helgi að fara
hvenær sem er sólarhrings heim
tiIHalimsAI. -Ótt
T
F R E T
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Sími 632700
ÞREFALDUR1. vinningur r
í
í
í
í
LtTTO
.. alltaf á ímövikudöginii
-4