Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1993, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. ÁGÚST 1993
13
I>V
Neytendur
Her sest greinileg mygluskán á kæfu sem ekki var runnin út dagsetningin á þegar myndin var tekin.
DV-mynd K. Maack
Hagkaup við Eiðistorg:
Úldin egg og mygluð kæfa
- orð á móti orði, segir verslunarstjórinn
„Eg keypti eggjabakka á fóstudegi en
fór svo út úr bænum um helgina og
opnaði ísskápinn ekkert fyrr en á
mánudagsmorgun. Þá gaus upp þessi
líka ótrúlega lykt og ég komst að því
að eggin voru úldin þótt dagsetningin
væri enn í lagi,” sagði karlmaður
sem hringdi og vildi ekki láta nafns
síns getið en hann sagðist ekki hafa
reynt að skila eggjabakkanum.
Með stuttu millibili hafa tveir neyt-
endur haft samband við DV og borið
fram kvartanir vegna Hagkaups-
verslunarinnar við Eiðistorg á Sel-
tjarnarnesi þar sem þeir segjast hafa
fengið skemmdar vörur.
Annar karlmaður, Jón Sigurðsson,
eigandi Gisti-Inn á Sóleyjargötunni,
segist þrívegis hafa fengið skemmda
vöru í þessari sömu verslun.
„Ég keypti jarðarber þar fyrir
u.þ.b. hálfum mánuði og þegar ég
opnaði kassann voru þau mygluð.
Þegar ég kvartaði við eina afgreiðslu-
stúlkuna fékk ég þau svör að jarðar-
berin væru oft svona, hvort ég vildi
ekki skipta. Hún sagði ekki einu
sinni afsakið.
Svo keypti ég fyrir nokkru gróíbak-
aða lifrarkæfu frá Ah með síðasta
söludag 31.7.1993 og notaði helming-
inn af henni á fimmtudegi. Þegar ég
ætlaði að nota afganginn á mánudegi
var á henni græn mygluskán,” sagði
Jón og fullyrti að hann hefði geymt
kæfuna í kæh ahan tímann.
Jón fór ekki með kæfuna en bar
fram kvörtun símleiðis og var vísað
á framleiðandann, Þorvald í Síld og
fiski. Þorvaldur taldi ástæðuna hins-
vegar vera lélega kæla í Hagkaup.
Þriðja tilfelhð vár svo í síðustu viku
þegar Jón keypti tíu egg í bakka og
fyrstu 4-5 eggin sem hann prófaði
voru úldin.
„Ég hafði hvorki tíma til að fara
með eggin og skila þeim né voru við-
brögðin þannig í hin skiptin að ég
hefði áhuga á því. Það var eins og
þetta væri bara röfl í mér. Ef þetta
er svona algengt, eins og t.d. með
jarðarberin, af hverju vara þeir
mann þá ekki við?” sagði Jón.
Orð á móti orði
„Ég þekki þetta í sambandi við egg-
in. Það kom hingaö manneskja sem
hafði notað tvö egg úr eggjabakka
og sagði að þau hefðu verið skemmd.
Ég er ekki að efast um það en restin
af eggjumun í bakkanum reyndist
heil,” sagði Þórhaha Þórhahsdóttir,
verslunarstjóri Hagkaups við Eiðis-
torg, í samtah við DV.
„Eg þekki ekki dæmið með jarðar-
berin en þau eru ákaflega viðkvæm
vara og koma með flugi einu sinni í
viku th landsins og við fáum þau í
sölu daginn eftir. Auðvitað getur
komið upp mygla en við stöflum
kössunum upp og getum ekki farið í
gegnum ahan staflann.”
Þórhaha sagðist einnig hafa fengið
inn kæfu sem ekki var útrannin og
að hún hefði verið súr.
„Ég bað kjötiðnaðarmanninn okk-
ar að hafa samband við framleiðand-
ann en veit ekki enn hvað kom út
úr því.”
Aðspurð hvort það væri þá mikið
um thfehi sem þessi þar sem hvorag-
ur mannanna, sem hafði samband
við DV, sagðist hafa skhaði inn eggj-
unum eða kæfunni, neitaði Þórhalla
því.
„Orð eru á móti orði. Maðurinn
segir að hann hafi ekki skhað eggjun-
um hingað og ég þekki því e.t.v. ekki
hans mál. Ef hann lendir í svona leið-
indum er langbest fyrir hann að
koma á staðinn og ræða við mig því
við eram ekki bara að bæta eitt egg
á móti einu eggi heldur bætum fólki
líka óþægindin,” sagði Þórhalla.
Hún fuhyrti að kælamir í verslun-
inni væru í fullkomnu lagi því að
þeir væru undir ströngu mánaðar-
legu eftirliti gæðaeftirhtsmanns.
-ingo
Sértilboð og afsláttur:
Unghænur og fleira góðgæti
Sértílboðin era heldur færfi nú en
venjulega því að Verslunarmanna-
helgin er rétt um garð gengin og
kaupmenn ekki komnir í fuhan gang
á ný. Þannig voru ekki komin ný tíl-
boð í Garðakaupum né Kjötí og fiski.
Að þessu sinni ber þó helst að nefna
vok-pönnu á afsláttarverðinu 1.087
kr„ tíu unghænur í kassa á 185 kr.
kg og lakkrískonfekt, 400 g, fyrir 139
kr.
Fjarðarkaup
Tilboðin í Fjarðarkaupum ghda út
þessa viku. Þar kostar kilóið af svína-
kótelettum 889 kr„ 10 stk. xmghænur
í kassa 185 kr. kg og austurlensk
hrísgrjón 97 kr. kg.
Einnig er hægt að fá danska
ávaxtagrauta á 125 kr. htrann, niður-
skorið heilhveitibrauð á 99 kr„
Pripps bjór, 0,51, á 56 kr. og McVites
hafrakex, 500 g, á 112 kr. Royal Tea
súkkulaðikex kostar 131 kr. og 11 af
Kulana djús fæst fyrir 78 kr.
Bónus
Tilboðin í Bónusi ghda frá fimmtu-
degi th laugardags. Þar fæst vok-
panna með áhöldum fyrir 1.087 krón-
Sértilboðin eru nú heldur færri en
venjulega en þar má m.a. finna 10
unghænur á 185 kr. kg.
ur, þijú pör af hvítum sokkum á 159
kr. og St. Ives sjampó og næring fyr-
ir 269 kr.
Einnig býður Bónus upp á khó af
gulrótum á 67 kr„ pakkaðar appel-
sínur á 56 kr. kg og Bónus appelsínu-
þykkni, 1 1, á 179 kr. Nú býðst ný
vara sem framleidd er fyrir Bónus á
Húsavík; maður blandar 11 af þykkni
á móti 5 1 af vatni og fær frábæran
drykk.
Bónus minnir á 5% afslátt af vigt-
uðum ostum og 10% afslátt af öhu
kjöti, pylsum og áleggi.
Hagkaup
Thboðin í Hagkaupi ghda einungis
í dag því að ný koma á morgun.
„Bestu kaup” Hagkaups era hálfur
lambaskrokkur í gæðaflokki Dla
sem kostar 398 kr. kg. Einnig býður
Hagkaup khóið af rauðum plómum
frá Spáni á 89 krónur, pakka með
fjóram bökunarkartöflum í álpappír
á 89 kr. og Frón súkkulaði, Marie, á
69 kr. pakkann.
Einnig fæst Bassets lakkrískon-
fekt, 400 g, fyrir 139 kr„ KB þurr-
kryddaðar grillsneiðar á 649 kr. kg
og tvöfaldur pakki af vínarpylsum
frá Goða á 449 kr. Kippa af hálfs htra
Coca Cola og Fanta appelsín/lemon
flöskum kostar 396 kr. og pakkinn
af McVites Fourre Royal, 2 teg„ kost-
ar89kr. -ingo
t
Eiginmaður minn, faðir og afi
Gissur Jörundur Kristinsson
framkvæmdastjóri,
Hjaliabrekku 13, Kópavogi,
er lést miðvikudaginn 28. júli 1993, verður
jarðsunginn frá Kópavogskirkju
fimmtudaginn 5. ágúst kl. 15.00.
Ásta Hannesdóttir
Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Salvör Kristjana Gissurardóttir
Kristinn Dagur Gissurarson
Guðrún Stella Gissurardóttir
Ásta Lilja, Ásta Björg og Kristín Helga
HÓTEL
SÆLUDAGAR
Gisting í tveggja manna herbergi með sturtu í tvær
nætur. Kvöldverðurogmorgunverðurbáða dagana.
Verð kr. 8.800 pr. mann.
Aukagjald fyrir eins manns herbergi kr. 1.400.
Hægt er að bæta við einni nótt og þá bætast við kr. 4.500.
0 ÞAÐ SEM í BOÐIER:
0 Hjólalciga á hótelinu.
0 Bókasafn á hótelinu.
0 Koníaksstofa með arineldi.
0 Nudd, líkamsrækt og solarium.
0 Hestaleiga, farið frá hótelinu.
0 Ferðir í Drangey og Málmey.
0 Bílaleigubílar.
0 Hægt er að fá gistingu í svítu.
0 Dansleikir og sveitaböll í næsta nágrenni.
0 Gönguferðir (styttri og lengri ferðir).
0 Veiði í fjörunni, vötnum og ám.
0 Sjónvarpsaðstaða með gervihnattamóttakara.
0 9 hola golfvöllur (hægt að leigja golfsett).
0 Leikherbergi fyrir börn
og barnagæsla sé þess óskað.
Sauðárkróki - sími 95-36717
i
Aukablað
Tómstundir
og útivist
Miðvikudaginn 18. ágúst nk. mun aukablað
um tómstundir og útivist fylgja DV.
í þessu blaði verður fjallað um Reykjavikur-
maraþon sem haldið verður þann 21. ágúst
nk„ viðtöl við keppendur, kort af hlaupaleið,
upplýsingatöflur o.fl. Einnig verður fjallað um
veiðar og veiðimenn, tómstundir bama, ungl-
inga og fullorðinna.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhgua á að aug-
lýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi sam-
band við Jensinu Böðvarsdóttur, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma 632722.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 12. ágúst.
ATH.! Bréfasími okkar er 63 27 27.