Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
Fréttir
DV
Fyrrum framkvæmdastjóri skiptinemasamtaka á Islandi:
Akærður fyrir að draga
sér milljónir f rá AFS
reyndi einnig að ná á þriðju milljón króna frá Dansk AFS í Kaupmannahöfn
Kona, sem er fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri hjá skiptinemasam-
tökunum AFS á íslandi, hefur verið
ákærð fyrir að hafa dregið sér 3,6
milljónir króna af innstæðum á
tékkareikningi samtakanna á árun-
um 1990-91. Henni er jafnframt gefin
að sök tilraun til íjárdráttar með því
að hafa ætlað að nota 2,1 milljón
króna af reikningum Dansk AFS í
Kaupmannahöfn til eigin nota.
Konan hefur verið búsett í Kaup-
mannahöfn frá því að hún hætti
störfum hjá AFS á íslandi. í febrúar
1991 tók nýr framkvæmdastjóri við
og fóru þá grunsemdir að vakna um
að ekki væri allt með felldu. Mikil
óreiða kom fram í bókhaldi og ýmis
fylgiskjöl fundust ekki.
Máhð var tekið fyrir hjá stjórn fé-
lagsins og ákveðið að löggiltur end-
urskoðandi færi yfir máhð. Eftir það
var ákveðið að kæra til RLR.
Á því tveggja ára timabih, sem kon-
an starfaði hjá AFS, var hún ein pró-
kúruhafi fyrir bankareikninga fé-
lagsins. Henni er nú gefið að sök að
hafa gefið út 14 tékka með nöfnum
nafngreindra viðtakenda og 7 hand-
hafatékka af reikningi AFS sem hún
framseldi síðan sjálf til að greiða eig-
in útgjöld. Andvirði þessa 21 tékka
nam 3,6 milljónum króna. Sá lægsti
var á rúmar 8 þúsund krónur en sá
hæsti, sem stílaður var á Bílaskipti
hf., nam 730 þúsund krónum.
Konan er einnig ákærð fyrir til-
raun til fjárdráttar. Henni er gefiö
að sök að hafa óskað eftir að Lands-
bankinn og SPRON millifærðu sam-
tals 2,1 mihjón króna til Den Danske
Bank í Kaupmannahöfn. Bankinn
átti síðan að greiða féð th Dansk AFS
í Kaupmannahöfn - þaðan hugðist
konan fá fjármuni samtakanna út-
borgaða og nota til eigin þarfa. Þess-
ar útborganir voru stöðvaðar í Kaup-
mannahöfn áður en konan fékk þær
greiddar.
Skiptinemasamtökin American Fi-
eld Service (AFS) hafa krafist þess
að konan greiði th baka þær 3,6 mUlj-
ónir króna sem hún er ákærð fyrir
að hafa náð að draga sér.
-Ótt
Stuttarfréttir
Umferðarsamtök
aJmennings
Samtök um bættar almennings-
samgöngur hafa verið stofnuö i
Reykjavík. Markmið samtak-
anna er aö efla vistvænar sam-
göngur og bæta aðstöðu fyrir
gangandi vegfarendur og hjól-
reiðafólk.
<
Skuldbreytingalán
Á fundi ríkisstjórnarinnar í
gær var ákveðið að verja 350
mUljónum króna til aö aðstoða
húseigendur í greiðsluerfiðleik-
um vegna atvinnuleysis og veik-
inda. Taiið er að á annað þúsund
fjölskyldur eigi nú á hættu aö
missa húsnæði sitt vegna
greiösluerfiöleika.
Dráttavextir hækka
Seðlabankinn hefur ákveðið að
dráttavextir hækki um mánaða-
mótin um 4,5 prósentustig, eöa
úr 17% í 21,5%. Hækkunin kemur
í kjölfar vaxtahækkunar banka-
og sparisjóða fyrr i mánuðin-
um.
Deilt um gjaidtöku
Innan ríkisstjómarinnar er
deUt um það hvort fyrirhugað
sjúkratryggingagjald eigi að vera
valfijálst. Samkvæmt Mbl. er
rætt um aö gjaldiö veröi 0,25%
eöa 0,5% af launum yfir skatt-
leysismörkum.
-kaa
Aðalsumarstarf barna og unglinga um allt land er og hefur verið barnagæsla siðustu áratugi og er algengt enn
þann dag í dag að stelpukrakkar séu fengnir til að gæta yngri systkina sinna, frændsystkina eða nágranna. Ljós-
myndari DV rakst á þennan fríða hóp á verslunargötunni á ísafirði nýlega en þarna eru Hugrún löunn með Kjartan
í fanginu, Hrafnhildur, sem heldur á Kolfinnu, Kristrún, Dóra og Judith. Tvíburarnir litlu, Kjartan og Kolfinna, eru
systkini Kristrúnar. DV-mynd GHS
Stuttarfréttir
Forma nnsslagur 1 L"IR
Hörð barátt formannsemb. bandalaginu á a gæri orðið um nttið í Alþýðu- iandsfundi þess í
Sigfússon og 1 arrson íhuga Ólafi Ragnar ■íristinn H. Gunn- mótframboð gegn i Grímssyni. Al-
pyöuDiaoio ne núverandi f lut eiur ivrisxni ao orysta flokksins
KappKOSu ao um frösum. Vígaleg Lirlandnemi
Töluvert hei og vígalegum landiogertaii byrjaðar bús Samkvæmt W ur borið á stórum trjávespum hér á ölíklegtaðþærséu kap hér á landi. orgunbiaðinu geta
flugurnarbitic kvenflugan s langan og stei fast. Að auki getur tungið enda méð •kan brodd.
Aukinkennsla Bæjarstjóm Garðabæjar hefur ákveið að greiða 5 milljónir fyrir eina viðbótarkennslustund á dag
fyrir sjö til átta ára nemendur í vetur. Tíminn greindi frá þessu. Aukafundur um starætó Aukafundur verður haldinn í borgarstjóra í desember um aö
breyta SVR í hlutafélag. Hlutafé nýja félagsins verður 200 milljón- ir, þar af 198 milljónir í eigu Reykjavíkurborgar og 2 milljónir
i eigu Aíivak; i Reylyavikur hf. -kaa
Hagfræðistofnun Háskólans um framkomna gagnrýni:
Utúrsnúningar landbúnaðarf oryst-
unnar hagga ekki niðurstöðunni
- Sighvatur segir Halldór Blöndal vera í stríði við Guðmund Magnússon
Hagfræðistofnun HÍ og Sighvatur
Björgvinsson, samstarfsráðherra
Norðurlanda, boðuðu í gær tíl fundar
vegna gagnrýni sem komið hefur
fram á skýrslu um landúnaöarstefnu
Noröurlandanna og hag heimUanna.
Skýrslan hefur veriö gagnrýnd af
ýmsum forystumönnum íslensks
landbúnaðar og Halldóri Blöndai
landbúnaðarráðherra.
Gagnrýnin hefur meðal annars fal-
ist í því að ýmsar talnalegar upplýs-
ingar væru úreltar. Véfengt hefur
verið að heUdarstuðningur íslenskra
stjómvalda við landbúnaðinn sé jafn
hár og Hagfræöistofnun hefur reikn-
að út. Samkvæmt skýrslunni er
stuðningurinn hæstur á íslandi mið-
að við hin Norðurlöndin.
Að mati Hagfræðistofnunar breytir
litlu þó stuðst sé við nýjustu tölur.
Þannig hafi stuðningurinn sem hlut-
fall af framleiðsluverömæti verið
111% árið 1988, 107% 1990 og 115%
1992. Sambærilegt hlutfaU í Dan-
mörku í fyrra var 47%, Finnlandi
68%, Noregi 77% og Svíþjóö 57%.
AUs hafi verið varið um 17,8 mUljörð-
um í stuðning við islenskan landbún-
að. Á fóstu verðlagi var stuöningur-
inn um 16,5 milljarðar árið 1990 og
16,7 miUjarðar 1988.
Á fundinum í gær kom fram hjá
talsmönnum Hagfræðistofnunar að
framkomin gagnrýni hafi ekki verið
efnisleg heldur einkennst af útúr-
snúningum. Staðreyndin sé að meg-
inatriöi skýrslunnar standi óhögguð
- kostnaöur neytenda af stuðningi
við landbúnað sé hæstur á Islandi
af Norðurlöndunum.
Eftir fundinn sagði Sighvatur
Björgvinsson það ljóst að landbúnað-
arráðherra og hann væra ósammála
um stefnuna í landbúnaðarmálum.
Þó væri ekki hægt að tala um slíkan
grundvaUarágreining að stjórnar-
samstarfið væri í hættu. Umræðan
um vanda landbúnaðarins og þar
með neytenda væri af hinu góða og
hlyti að leiða til breytinga.
„Ég er ekki að skUa af mér neinni
vinnu. Hagfræðistofnun Háskóla Is-
lands er aö skUa af sér vinnu. Hún
lýtur forystu prófessors Guðmundar
Magnússonar. Ég veit ekki betur en
hann hafi verið formaður efnahags-
nefndar Sjálfstæöisflokksins um
margra ára skeið og er einn helsti
trúnaðarmaöur flokksins í efnahags-
málum. Landbúnaðarráðherra er í
deilum við hann en ekki mig.“
-kaa