Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 19
18 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 23 Iþróttir Iþróttir Revinefer til nýliða KR Alexander Revive, rússneski markvörðurinn sem leikið hefur hér á landi síðustu tvö árin, mun standa á milli stanganna hjá nýl- iðum KR í vetur. Revine lék með Víkingum í fyrra en þeir hafa fengið Magnús Inga Stefánsson markvörð frá HK. Metþátttaka áArt-Hún mótinu Art-Hún kvennagolfmótið fór fram á dögunum á velli Golf- klúbbs Reykjavíkur. Metþátttaka var í mótinu en í því tóku þátt 65 konur. Vegleg verðlaun voru í boði eða Ustaverk frá Art-Hún konum. í keppni með forgjöf sigr- aði Vigdís Sverrisdóttir, GR, á 68. í 2. sæti varð Margrét Jónsdóttir, GR, einnig á 68 og þriðja varð Margrét St. Nielsen á 69. í keppni án forgjafar varð Sigríður Th. Mathiesen í fyrsta sæti á 86 högg- um. Önnur varð Guðrún Eiríks- dóttir á 90 höggum og þriðja Hjör- dís Ingvarsdóttir á 91 höggi. Aukaverðlaun hlaut Fríða Ósk- arsdóttir. Verðlaun fyrir að vera næst holu á 6. braut hlaut Guð- rún F. Júlíusdóttir. Art-Hún kon- ur stefna á að halda annað mót aðáriáGrindavíkurvelli. .rr Kvennabolti íkvöld Tveir leikir fara fram í 1. deild kvenna í kvöld. ÍBA tekur á móti toppUði KR á Akureyri og ný- krýndir bikarmeistarar ÍA fá Stjömuna í heimsókn en þessi lið mættust einmitt í úrsUtaleik bik- arkeppninnar á dögunum. Báðir leikirnir hefjast klukkan 18.30. -RR Barton látinn Tony Barton, fyrrum fram- kvæmdastjóri Aston ViUa, varð bráðkvaddur um helgina, 57 ára aö aldri. Barton náöi góðum ár- angri með Villa og gerði þá m.a. að Evrópumeisturum. Hann haföi átt við veikindi að stríða undanfama mánuði. .rr MutchtilSwindon Andy Mutch, sem leikið hefur undafarin ár með Úlfunum gekk í fyrradag til Uðs við úrvalsdeild- arlið Swindon. Mutch var þekkt- astur fyrir það að leika í framlínu Úlfanna með markaskoraranum Steve Bull og var oft taUnn mað- urinn á hak við velgengni BuU, en þeir tveir náðu mjög vel saman og komu Wolves úr 4. deild upp í 2. deild. Úlfarnir hafa keypt marga leikmenn að undanfómu og því var ekki lengur þörf á Mutch. Kaupverðið er áUtið vera um 700 þúsund pund. Úlfarnir keyptu í staðinn Peter Shirtliff frá Sheffield Wednesday. .rr Gucci mótið íGrafarholti Opna Gucci mótið í golfi verður haldið hjá Golfklúbbi Reykjavík- ur í Grafarholti á laugardaginn. Leiknar verða 18 holur í kvenna- og karlaflokki með forgjöf. Verð- laun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin með forgjöf og fyrir besta skor. Skráning er í golfverslun Sigurðar Péturssonar í síma 682215. Skráningu lýkur á föstu- daginn klukkan 16. _gh Stofnf undur hjá HK Stofnfundur stuðningsmanna- klúbbs HK í knattspyrnu verður haldinn í kvöld. Hann hefst í HK-heimilinu í Digranesi klukk- an átta. _SK Enska knattspyman í gærkvöldi: Enn þrengist á toppnum Arsenal og Blackburn Rovers styrktu stöðu sína í gærkvöldi í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Arsenal sigraði Leeds á heimavelli síunum og Blackbum vann góðan útisigur gegn Man. City. Arsenal og Blackburn em nú ásamt Everton og Ipswich með 9 stig en Manchester United efst með 10 stig. Arsenal fékk góða aðstoð frá Leeds á 20. mínútu leiksins er Jon Newman skoraði sjálfsmark. Paul Merrson skoraði annað mark Arsenal á 57. mínútu en Gordon Strachan minnk- aði muninn fyrir Leeds á 70. mínútu. Lengra komst Leeds ekki og liðiö hefur ekki unnið leik á útivelli í deildinni síðustu 17 mánuðina sem verður að teljast óvenjuslakt gengi að heiman. Blackbum sigraði Manchester City í Manchester, 0-2. Mike Newell og Kevin Gallacher skoruðu mörkin en þau heföu hæglega getað orðið fleiri því Newell misnotaði vítaspymu í leiknum. Lið Blackbum var mun betra allan leikinn og Man City á í miklum vandræðum í upphafi tíma- bilsins og hefur aðeins hlotið eitt stig af 12 mögulegum í fyrstu fjórum umferðunum. Coventry virðist vera að missa flugiö og lið sem ætla sér aö berjast af alvöm fyrir enska meistaratitlin- um hafa ekki efni á því að missa stig gegn liðum eins og Oldham. Það gerði Coventry þó í gærkvöldi og leiknum lauk með 3-3 jafntefh á heimavelli Oldham. Paul Bertnard, Ian Olney og Andy Ritchie (víta- spyrna) skoruðh fyrir Oldham sem komst í 3-1 eftir að John Wilhams hafði skorað fyrst fyrir Coventry. Hin tvö mörkin skoraðu Peter Ndlovu og Roy Wegerle (vítaspyma). Norðmaðurinn Jostein Flo skoraði fyrsta mark sitt fyrir Sheffield Un- ited í fyrsta leik sínum. Falconer skoraði síöara markið áður en Clarke minnkaði muninn. Úrsht í 1. deild í gær urðu þessi: Barnsley-Middlesboro.........1-i Charlton-Tranmere............3-1 Crystal Palace-Nott Forest....2-0 Grimsby-Portsmouth...........1-1 -SK Fundur handboltadómara: Tekið harðar á mótmælum þjálfara og leikmanna Um helgina fór fram ráðstefna handknattleiksdómara sem undirbúa sig nú óðum undir komandi keppnistímabil. Alls sóttu 40 landsdómararar ráð- stefnuna auk 5 héraðsdómara. Farið var yfir ný áhersluatriði og gengist var undir þolpróf. Samhliða því var handknattleiksmót í Austurbergi þar sem 4 1. deildar lið tóku þátt. Ný áhersluatriði verða tekin fyrir í vetur og ber þar hæst að nefna að dómar- ar ætla sér að fá meiri vinnufrið inni á leikvelhnum. Verður nú harðar tekið á mótmælum þjálfara og leikmanna og geta viðkomandi átt von á hörðum refsingum fyrir shk brot. Handknattleiksdómarar hafa æft vel undanfarið og ættu að vera í góðu formi þegar handknattleiksvertíðin hefst fyrir alvöru í byrjun október. -RR Stórmót Fjölnis ítennis Opið stórmót Fjölnis, Wilson tennismótið, fer fram í íþrótta- miðstöðinni Dalhúsum 2, Grafar- vogi, dagana 24.-29. ágúst. Spilað er á þremur innitennis- völlum klukkan 9-23 daglega. Keppendur eru 108 í barna- ungl- inga- og fulloröinsflokkum. Und- anúrslit í kvennaflokki verða á fimmtudag klukkan 19 og í karla- flokki klukkan 15 á föstudag og úrslitaleikir eru síðan á dagskrá eftir hádegi á sunnudag. -GH Ingölfurvar endurkjörinn Á þriðju ráðstefnu nemenda- samtaka Alþjóða óiympíuaka- demíunnar í Grikklandi, sem haldin var í bænum Olympíu í byrjun þessa mánaðar, var Ing- ólfur Hannesson, iþróttastjóri Ríkisútvarpsins, einróma endur- kjöriim forseti samtakanna. Ingólfur hafði gegnt starfmu síðustu tvöárin, en í kjölfarþrótt- mikils starfs og breytinga fram- undan var meirihluti sitjandi stjórnar endurkjörin. Nemenda- samtök ólympíuakademíunnar vora stofnuð árið 1989. Meðhmir samtakanna eru nú 300 frá 62 löndum. -GH Afmælisgotfmót íólafsvík Á sunnudag verður opna af- mælisraótið í golfi haldið á Fróð- árvelli í tilefni af 20 ára afmæli goiklúbbsins Jökuls í Ólafsvík. Leiknar verða 18 holur með og án forgjafar og hefst mótið klukk- an 10. Keppendur geta pantað rástíma í golfskálanum i síma 93-61666 og einnig í síma 93-66604 og 66812. Vegleg verðlaun verða veitt og aukaverðlaun fyrir að vera næst holu á 6. og 9. braut og fyrir að fara holu í höggi á 2. braut verður úttekt að verðmæti krónur 10.000. -GH Islenskar körf uboltamyndir Landsliðsmaóurinn Guðni Guðnason úr KR sést hér með myndir ur 1. útgáiu íslensku körfuboltamyndanna sem komu á markaðinn á dögunum. Það eru KKÍ og Samskiptatækni, f samvinnu við VISA ísland og PEPSI, sem standa að útgáfu myndanna. Gert er ráð fyrlr að 2. útgáfa komi á markað í byrjun október, þegar keppni hefst í úrvalsdeiidinni. Mest geta orðið þrjár myndir af hverjum leikmanni. Á bakhlið myndanna eru itarlegar upplýsingar um viðkomandi leikmann og keppnisferii hans og hans félag. Uppiag myndanna í 1. útgáfu eru 40 þúsund pakkar en 8 myndir eru í hverjum pakka og kostar hann um 100 kr. út úr búð. DV-mynd Brynjar Gauti Staðan í Getraunadeildinni í knattspyrnu eftir leik Fram og Vais í gærkvöldi er þannig: Akranes.....13 11 1 1 46-12 34 FH..........13 8 3 2 25-17 27 Fram........14 8 1 5 36-24 25 Keflavík....14 6 2 6 21-23 20 KR..........14 6 1 7 29-27 19 Valur.......14 6 1 7 22-19 19 Þór.........14 5 3 6 15-19 18 Fylkír......14 5 1 8 17-28 16 ÍBV.........13 3 3 7 17-30 12 Vikingur....13 1 2 9 14-43 5 Markahæstir: Helgi Sigurðsson, Fram Þórður Guðjónsson, ÍA Óli Þór Magnússon, ÍBK Haraldur Ingólfsson, ÍA. MihajloBihercic.ÍA Anthony Karl Gregory, Val HörðurMagnússon, FH._.... Tryggvi Guðmundsson, ÍBV ÓmarBendtsen.KR 14 12 .11 .9 ..9 .8 .8 .8 .7 Ómar Sigtryggsson í Fram fagnar hér marki sinu sem hann skoraði með glæsilegum skalia og það var jafnframt fyrsta mark hans í 1. deild. Getraunadeildin í knattspymu: DV-mynd Kristinn Fjör í f lóðljósunum - þegar Fram sigraði Val, 3-2, á Laugardalsvelli „Ég er auðvitað ánægður með þennan sigur. Þetta var örugglega hin besta skemmtun fyrir áhorfendur, fullt af mörkum og mörg marktækifæri. Það versta var að við slepptum þeim inn í leikinn algjörlega að óþörfu. Menn sváfu á verðinum í upphafi síðari hálf- leiks en sem betur fer náðum við að gera út um leikinn. Ég var sáttur við þennan leik hjá strákunum nema að einu leyti, við erum að fá á okkur of mörg mörk í leikjumnn og það ódýr,“ sagði Ásgeir Sigurvinsson, þjálfari Fram, við DV, eftir sigur sinna manna gegn Val, 3-2, í fjöragum leik á Laugar- dalsvelh í gærkvöldi. Með þessum sigri era Framarar enn með í baráttunni um 2. sætið í deild- inni, sem jafnframt gefur sæti í Evrópu- keppninni, en þar eru þeir í hörðum slag við FH-inga sem hafa tveggja stiga forskot og eiga að auki leik inni gegn ÍBV á föstudagskvöldið. Slagurinn stendur á milli Fram og FH „Við verðum nánast að vinna alla leik- ina sem eftir eru til að eiga möguleika á að ná Evrópusætinu. Mér sýnist sem svo að slagurinn komi til með að standa milh okkar og FH-inga en maður veit samt aldrei hvað getur gerst, við gætum lent í bash og þeir sömuleiðis," sagöi Ásgeir ennfremur. Fyrsta mark leiksins kom á 17. mín- útu. Jón S. Helgason, aftasti vamar- maður Vals, tapaði þá knettinum á miðjuhringnum th Ríkharðs Daðasonar sem brunaði einn gegn Bjarna Sigurðs- syni og skoraði framhjá honum með laglegu skoti. Framarar vora mun sterkari í fyrri hálfleik og á 37. mínútu skoraðu þeir glæsilegt mark. Valdimar Kristófersson renndi knettinum upp í hægra homiö á Guðmund Gíslason sem sendi við- stöðulaust inn í markteiginn þar sem Ómar Sigtryggsson skallaði glæsilega í netið, fyrsta mark hans í 1. dehd. Vel að verki staðið hjá þeim Guðmundi og Ómari sem komu inn í hðið í stað Pét- urs Arnþórssonar og Ingólfs Ingólfsson- ar sem tóku út leikbann. Tvö mörk Vals á 25 sekúndum Við þetta mark færðust Valsmenn í aukana og á 39. mínútu átti Anthony Karl skot í þverslá Frammarksins. Valsmenn byrjuðu síðari hálfleikinn af sama krafti og eftir 6 mínútna leik voru þeir búnir að jafna með tveimur mörk- um gamla Framarans Ágústs Gylfason- ar. A 50. mínútu skoraði hann af stuttu færi eftir góða fyrirgjöf Kristins Láras- sonar og 25 sekúndmn síðar var hann aftur á ferðinni þegar hann skoraði með lúmsku skoti rétt innan vítateigs eftir mikla rispu frá Kristni. Ágúst Ólafsson skoraði síðan sigurmarkið af stuttu færi þremur mínútum síðar eftir send- ingu frá Atla Einarssyni. Eftir þetta mark áttu bæði hð snarpar sóknir en Framarar vora öhu beinskeyttari í sín- um sóknaraðgerðum og þegar upp var staðið var sigur þeirra sanngjam. „Við komum alveg brjálaðir út í síð- ari hálfleik. Það virtist ætla að ganga upp en því miður náðum við ekki að fylgja mörkunum eftir þrátt fyrir að vera betri aöilinn. Þetta voru fyrstu mörkin mín í sumar en því miður dugðu þau ekki til en ég vona bara að þetta haldi áfram í næstu leikjum," sagði Ágúst Gylfason, við DV eftir leikinn. Góður sóknarbolti hjá Frömurum Eins og oft áður í sumar léku Framarar oft mjög skemmtilegan sóknarholta þar sem þeir Helgi Sigurðsson, Ríkharður Daðason og Valdimar Kristófersson léku stórt hlutverk. Ríkharður átti best- an leik þeirra og ungu mennirnir Ómar og Guðmundur skhuðu sínu vel. Vam- arleikurinn hefiu- hins vegar ekki verið góður hjá Framhðinu í sumar og í þess- um leik var engin breyting á. Valsmenn hafa verið mjög óheppnir með meiðsli í sumar og th að mynda voru sex leikmenn ekki með í þessum leik sem léku gegn Fram í fyrri umferð- inni þegar Valur vann, 4-1. Eins og oft áður í sumar var Ágúst Gylfason drif- tjöðrin í leik Valsmanna og þeir Krist- inn Lárusson og Bjarki Stefánsson gerðu góða hluti. -GH Fram Valur (2) 3 (0) 2 1-0 Ríkharður Daðason á 17. mín. 2-0 Ómar Sigtryggsson á 37. mín. 2-1 Ágúst Gylfason á 51. mín. 2- 2 Ágúst Gylfason á 51. mín. 3- 2 Ágúst Ólafsson á 54. mín. Lið Fram: Birkir (1), Kristinn R. (1) (Sævar 77. mín) (1), Kristján (1) , Atli (1), Ágúst (2), Ómar (2) (Rúnar 83. mín) (1), Guðmundur (2) , Steinar (1), Ríkharður (2), Helgi (2), Valdimar (1). Lið Vals: Bjami (1), Jón S. (1), Bjarki (2), Sævar P (1), Jón Grétar (1), Sigurbjörn (1) (Ólafur 83. mín.) (1), Steinar (1), (Guðmundur 46. mín.) (1), Hörður (1), Ágúst (2), Kristinn (2), Anthony (1). Gul spjöld: Guðmundur (Val). Rauð spjöld: Enginn. Dómari: Þorvarður Bjömsson, slappur. Áhorfendur: 1284. Aðstæður: hægur andvari og milt, völlur góður. • Þeir Sævar Pétursson og Ólafur Brynjólfsson úr Val voru að leika slna fyrstu leiki í 1. dehd. A-r Fjölnir 14 Aftureldíng .14 iðil 11 10 1: 2 2 5 58-12 35 63-22 32 VíkingurO. ..14 9 2 2 46-22 29 Árvákur 14 ma 0 38-37 21 Hamar 14 5 1 f 27 49 16 HB 14 5 1 26-50 16 Léttir 14 3 0 11 28-62 9 Snæfell 14 B-r 2 iðil 0 u I: 21-41 6 Ægir 12 10 2 C 61-11 32 Njarðvik 12 8 2 S , 49-16 26 Leiknir R 12 7 2 2 70-15 23 Ármann 12 7 1 ' 35-21 23 Ernír 12 4; 1 32 37 13 Hafnir 12 1 o i: 7-65 3 Hvatberar 12 C-r 1 iðil 0 11 1: 10-4)9 3 Hvöt 12 10 M 55-9 32 KS 12 6 3 ; 32 15 21 HSÞ-b 12 6 2 :!5 31 20 Neisti H... 12 m 6 29-19 18 SM 12 : 4 1 44-25 13 Þrymur 12 3 4 23-27 13 6-99 0 Dagsbrún 12 0 0 11 D-r Höttur 12 iðil 9 1: 2 41-15 29 KBS 12 8 1 ‘ 49-1/ 25 Einherji 12 7 2 39-16 23 Sindri 12 7 1 35 28 22 ValurRf 12 3 2 l 18 36 10 Austri 12 .2 1 18-52 7 Huginn 12 1 1 1( 16-52 4 Úrslitakeppnin hefst á laugar- dagínn og er leikið heima og að heiman. Fjölnir-Njarðvik eigast við í Grafai'vogi, Ægir og KS í Þor- lákshöfn, HvötogKBSá Blönduósi og Höttur tekur á móti Aftureld- ingu á Egilsstöðum. Á miðvikudag eigast svo liðin víð öðru sinni og sigúrvegarar þessara leikja kom- ast í undanúrslit. Þá mætast ann- ars vegar sigurvegararnir í leikj- um Ægis-KS og Hattar og Aftur- eldingar og hins vegar sigurvegar- ar fir leikjum, Hvatar-KBS og Fjölnis og Njarövíkur. Tvö lið fara uppi3.deíld. -RR Gassi skoraði ■ Enski landsliðsmaðurinn Paul Gascoigne var í sviðsljósinu á ít- alíu í gærkvöldi í vináttuleik Lazio og Inter Milan. Lazio vann leikinn, 3-0, og Gassi skoraði þriðja markiö meö skaha. Áður misnotaðihaimvíti. -SK Sjötta Reykjalundarhlaupið Reykjalundarhlaupið verður haldið á laugardaginn og er það sjötta árið í röð sem það er haldið. í fyrra tóku um 1000 manns þátt í hlaupinu en hér er um að ræða almenningshlaup sem Reykjalundur gengst fyrir í samvinnu við SÍBS, Búnaðar- bankann og íslandsbankann í Mosfehsbæ. Að Reykjalundi er rekin umfangsmesta endurhæfingastarfsemi hér á landi og það er því við hæfi að sem flestir geti tekið þátt í hlaupinu. Það verður reyndar ekki bara hlaupið heldur er einnig boðið upp á gönguleiðir og fólk í hjólastólum og með önnur hjálpartæki er boðið velkomið. Fjórar vegalengdir era í boði fyrir væntan- lega þátttakendur. Sú lengsta er 14 km. Einnig er hægt að skokka 6 km langan hring og aðrir geta vahð að fara 3 km. Loks er að nefna einu leiðina sem öh er á malbiki. Það er 500 m th 4 km leið sem gæti hentað fólki í hjólastólum og með önn- ur hjálpartæki. Hlaupið hefst klukkan 11 nema hjá 14 km hlaupuranum sem verða ræstir örlítið fyrr eða klukkan 10.40. Ekki þarf að skrá sig í hlaupið en þátttakend- ur þurfa að mæta tímanlega upp að Reykjsdundi í Mosfellshæ á hlaupadaginn sjálf- an. Þar greiðir fólk krónur 400 í þátttökugjald en innifahð í því eru hlaupahanskar merktir hlaupinu eða húfa fyrir yngri þátttakendur. -GH Breiðabhk vann dýrmætan útisig- ur I gærkvöldi á Þrótti frá Nes- kaupstað í leik liðanna í l. dehd kvenna í knattspyrnu. Blikastúlk- ur sigraðu 0-2 eftir markalausan fyrri hálfleik. Fyrri hálfleikur var tiðindalítill en í honum fór liin efnilega Jónína Guðjónsdóttir úr olnbogahð og varð að yfirgefa völhnn. Fyrra mark Blika kom á 5. mín síöari hálfleiks en það skoraði Ásta B. Gunnlaugsdóttir með glæshegu langskoti. Síðara markið kom fimm mín. fyrir leikslok og var Kristrún Lilja Daöadóttir þar að verki. Stað- an í 1. deild kvenna er nú þannig: KR............. 9 7 2 0 25-8 23 ‘UBK.,.........10 6 2 2 23-13 20 Stjarnan.......10 4 3 3 25-20 15 Valur..........10 4 1 5 15-15 13 ÍA,»......... 9 2 3 4 12-20 9 ÞrótturN.......10 2 2 6 11-26 8 ÍBA............10 2 1 7 12-21 7 -SK/-ih Fjórir úr Getrauna- deild í leikbann Á fundi aganefndar KSÍ í gær voru margir knattspyrnumenn úrskurðaðir í leikbann. I Getraunadehdinni fengu eftirtaldir leikmenn eins leUís bann: Baldur Bjarnason og Salih Heimir Porca úr Fylki og Stefán Ómarsson, Vík- ingi, allir vegna fjögurra gulra spjalda og Þórsarinn Lárus Orri Sigurðsson vegna sex gulra spjalda. Hreiðar Omarsson úr ÍR var eini leikmaðurinn úr 2. deild sem var úrskurð- aður í bann og fékk hann eins leiks bann vegna sex áminninga. Eftirtaldir leikmenn úr 3. deild fengu eins leiks bann: Garðar Níelsson og Sverrir Björg- vinsson úr Dalvík, Kristján Pálsson, Gróttu, Haraldur Haraldsson, Haukum, Zoran Ljubicic, HK, Ævar Finsson, Reyni S, og Víðismennirnir Garðar Newman, Gísli Hreiðarsson, VUhjálmur Einarsson og Ólafur Gylfason. Tveir leikmenn 4. deildar liðs Fjölnis missa af leik liðsins gegn Njarðvík í úrslita- keppninni sem hefst um næstu helgi. Það eru Júgóslavamir Zoran Couc- oricogMiroslavNicolic. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.