Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 Stuttar fréttir Yfirmenn hersveita mús- * jtíL líma sem halda uppi vömum í bænum Mostar og yfirmenn w V V ata sem sitja um bœinn féllust í gær á að sklptast á líkum fallinna hermanna. Maturtil Mostar Bandarískar herflugvélar hafa kastað mat niður til sveltandi íbúa Mostar. EBerfiður biti Thomas Klestil, forseti Aust- urræikis, segir að það gæti reynst stjórnum Austurríkis og Svíþjóð- ar erfitt að sannfæra kjósendur ura ágæti Evrópubandalagsins. Sendimenn flýja írak Tveir íraskir sendiherrar sem leituöu hælis í Bretlandi hétu því að starfa með utlægum stjórnar- andstæðingum aö því að steypa Saddam Hussein af stóli. Sambandslaust geimfar Bandansk geimflaug sem á að rannsaka reikistjörnuna Mars hafði ekki samband við jörðu eins og hún átti að gera eftir aö hún fór á braut umhverfis rauðu plánetuna. Kína refsað Bandarísk stjórnvöld eru aö undirbúa refsiaðgerðir gegn Kína fyrir meintan útflutning á háþró- aöri tækni til tlugskeytagerðar til Pakistans í trássi við bann Bandaríkjaþings. KosiðíKanada Kim Carapbell, forsætisráð- herra Kanada, mun að öllum iík- indum boöa tii kosninga í októb- er. Afléttið refsiaðgerðum Robert Malval, nýstaöfestur forsætisráðherra Haiti, sagði að þjóðir henns ættu að aflétta við- skiptabanni á Haiti um leið og stjóm hans tekur viö völdum. Ekkiúr böndunum Litháar og Rússar ætla ekkí að láta deilu um brottflutning rúss- neskra hersveita trá Eystrasalts- löndunum veröa að neinu stór- máli. JeHsíníPðllandi Boris Jeltsín Rússlandsforseti ræddi við Lech Walesa Póllands- forseta í gær og reyndu þeír að grafa gömul deilumál. Hydrofær verðlaun Norska stór- fyrirtækið Hydro hefur fengið um- hverfisverð- laun Noregs í árfyrirfrágang á álbræðslu fyrirtækisins í Karmöy. Var sjómendum Norsk Hydro veitt stytta til varðveislu af þessu tilefni. Hæðstaðkrötunum Kaci Kulman Five, formaður noreka hægritlokksíns, segir að kratar reki kosningabaráttuna i landinu eins og glæpaforinginn Olsen í frægum dönskum kvik- myndum. „Eg hef skipulagt allt. Treystið mér strákar,“ sagði Ols- en áður en allt fór í vaskinn og Five segir að kratar fari eins aö. Reuter, NTB Utlönd íslendingar í mót- sögn við sjálfa sig - sagði Johan Jörgen Holst, utanríkisráðherra Noregs, eftir fundinn í gær Gunnar Blandal, DV, Ósló: „íslendingar eru komnir í mótsögn við sjálfa sig. Þeir fallast ekki lengur á grundvallaratriðin um veiðar á úthöfunum sem þeir hafa barist fyrir á vettvangi Sameinuðu þjóðanna," sagði Johan Jörgen Holst, utanríkis- ráðherra Noregs, í samtali við Aften- posten eftir að slitnaði upp úr við- ræðum íslendinga og Norðmanna um veiðar í Smugunni margfrægu. Holst sagði að sér þætti leitt hvern- ig fór með viðræðurnar en ekkert sé við því að gera því íslendingar hafi Johan Jörgen Holst utanríkisráð- herra Noregs. alls engan rétt til veiða í Barentshafi og því sé engin ástæða til að semja við þá. Holst sagðist vona að náttúr- an sjálf leysti þetta mál. Veiði væri svo lítil í Smugunni að sókn á miðin væri sjálíhætt. Viðræðunum, sem haldnar voru í norska sendiráðinu í Stokkhólmi, lauk síðdegis í gær. Niðurstaðan var að hafna kröfum íslendinga um kvóta með þeim orðum að þeir ættu engan hefðbundinn rétt á svæðinu. Af hálfu íslands voru á fundinum Jón Baldvin Hannibalsson utanríkis- ráðherra og Þorsteinn Pálsson sjáv- arútvegsráðherra auk embættis- manna. Frá Noregi komu Jan Henry T. Olsen sjávarútvegsráðherra og Holst utanríkisráðherra. Talsmenn útgerðarmanna og sjó- manna hér í Noregi hafa tekið í sama streng og Holst og segja að vissulega sé leitt að íslendingar og Norðmenn geti ekki lengur talað saman en við því sé ekkert að gera. íslendingar hafi ætlað sér að fá kvóta við Noreg með frekju. Sjálfsagt sé að standa fast gegn því, sérstaklega þegar haft er í huga að um viðkvæmar uppeldis- stöðvar þorsks er að ræða. Leikarinn Burt Reynolds hefur skorað á eiginkonu sina, Loni Anderson, að fara í lygapróf og svara þá spurningum um hvort þeirra hafi byrjað á framhjáhaldi. Þau hjón eru nú að skilja eftir að ósætti kom upp milli þeirra. Loni segir að Burt hafi verið einum of fjöllyndur en hann sakar hana um að hafa byrjað á framhjáhaldinu. Simamynd Reuter JónBaldvin: Þorskastríð hentar Norð- mönnumvel fyrir kosningar Gunnar Blöndal, DV, Ósló: Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra segir að þorska- stríð henti Norðmönnum vel nú þegar tvær vikur eru til kosn- inga. í viðtali við Aftenposten í morgun segir hann að komandi þingkosningar í Noregi hafi vald- ið mestu um að upp úr viðræðum um veiðar í Smugunni slitnaði í gær. Hér í Noregi hafamennekk- ert viljað segja um þessa skýr- ingu og blöðin hafa ekki tekið hana upp. Kosningarnar eru yfirleitt ekki nefndar í sambandi við deil- una við íslendinga um veiðarnar í Smugunni. Jón Baldvin er hins vegar sannfærður um að ósemj- andi hafi verið vegna kosning- anna, sem haldnar verða þann 13. september. Jón Baldvin sagði að næsta skref hjá íslendingum væri að kanna réttarstöðu sína í málinu. Hann sagði að Norðmenn hefðu aðeins stuðning Finna viö stefnu sína í hafréttarmálum. Aðrar þjóðir viðurkenndu ekki yfirráð þeirra á opnu hafi úti fyrir ströndum landsins. Gíslatökumálin í Nicaragua: Kontraliðar slepptu 11 föngum Hægrisinnaðir kontraskæruliðar, sem höfðu sextán embættismenn rík- isstjórnar Nicaragua og stjórnmála- menn í haldi nærri bænum Quilali í norðurhluta landsins, létu ellefu gísla sína lausa snemma í morgun, að sögn fulltrúa Samtaka Ameríku- ríkja, OAS. „Þeir eru lausir," sagði Marco Tulio Boassa, sendimaður OAS. Vinstrisinnaðir byssumenn, sem halda varaforseta Nicaragua og fjórt- án öðrum íhaldssömum stjórnmála- mönnum í gíslingu, hafa fallist á að láta ellefu af gíslum sínum lausa, að því er útvarpsstöðin Ya í Nicaragua Vinstrimenn slepptu Eliseo Munez Úr haldi í gær. Simamynd Reuter sagði í morgun. Fréttamaður útvarpsstöðvarinnar, sem er inni í byggingunni þar sem gíslarnir eru í haldi, hafði það eftir leiðtoga vígamannanna aö þeir myndu gera eins og fyrrum kontra- liðamir sem höfðu tilkynnt um ætl- un sína að láta eilefu menn lausa. Vinstrisinnuðu byssumennirnir tóku þrjá fréttamenn til fanga í gær á sama tíma og erkibiskupinn í Managua, höfuðborg Nicaragua, settist niður með kontraskæruliðun- um til að reyna að binda enda á gísla- tökurnar sem hafa staðið yfir í fjóra daga. Þrír fréttamenn sögðu að þeim hefði verið meinað að yfirgefa bygg- inguna í Managua þar sem byssu- mennirnir hafa haldið varaforsetan- um og hinum stjómmálamönnunum frá því á föstudag. Þeir höföu farið inn í höfuðstöðvar stjómarandstöðubandalagsins, UNO, fyrr um daginn með leyfi byssumannanna. Leiðtogi byssumannanna sagði fréttamönnunum síðar að hver sem vildi mætti yfirgefa bygginguna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.