Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 13 Neytendur Verðkönnun Neytendasamtakanna á matvöru: Allt að 479% verð- munur á milli verslana - mestur verðmunur á grænmeti og ávöxtum 479% verðmunur reyndist vera á grænni papriku. Hún fæst i einni verslun á 171 kr. kg en í annarri á 990 kr. kg. 139 kr. \ ||K III _ \ 65 kr. 114% Hæst Lægst 107 kr. \ ngur \ 53 kr. 102% Hæst Lægst bmnep 198 kr. \ . \ 91 kr. 118% Hæst Lægst IfSrral- 623 kr. 246 kr. Hæst Lægst Græn papríka 990 kr. 171 kr. Hæst Lægst Gluggahreinsir 199 kr. 94 kr. Hæst Lægst 682 kr. 290 kr. Hæst Lægst Neytendasamtökin sendu nýlega frá sér ítarlega verðkönnun á mat- vörum sem nær til alls landsins. Kannað var verð á 147 vörutegund- um, einkum algengum dósa- og pakkavörum, en einnig nokkrum tegundum kjöt-, fisk- og mjólkurvara, ávaxta og grænmetis. Þar kom m.a. í ljós að umtalsverður verðmunur reyndist vera milli versl- ana. Mestur var munurinn á græn- meti og ávöxtum, eða á bilinu 152-479%. Þannig var hægt að fá kíló af grænni papriku á 171 kr. í einni verslun en á 990 kr. í annarri. Bónus í Hafnarfirði reyndist hafa lægsta meðalverðið en Kaupfélag ís- firðinga á Súðavík það hæsta. Af 147 vörum var verðmunur í 19 tilvikum 100% eða meira og í 90 tilvika var verðmunurinn á bilinu 50-100%. 3% meðaltals- hækkun á vöruverði Ef þessi verðkönnun er borin sam- an við verðkönnun sem Neytenda- samtökin stóðu fyrir þann 5. júh hef- ur vöruverð að meðaltali hækkað um u.þ.b. 3%. Mest varð hækkunin hjá Vöruhúsi KÁ á Selfossi (6,1%), hjá Eyjakaupi í Vestmannaeyjum (5,6%) og hjá Eyjakjöri í Vestmannaeyjum (5,2%). Mest hækkaði verðið að meðaltali á tómötum (51%) og agúrkum (39%), en þessar tegundir voru seldar á mjög lágu. verði fyrri hluta sumars. Verð á jacob’s tekexi hækkaði að meðaltali um rúmlega 10% en mest um 38% í einni verslun. Silkience sjampó hækkaði einnig að meðaltali um rúmlega 10% en mest um 49% í einni verslun. Mismunandi þjónusta Tekið skal fram að þessar verslanir bjóða mjög mismunandi þjónustu sem ekki er lagt mat á í könnuninni. Afgreiðslutími og vöruúrval er mis- munandi, sumar veita staðgreiðslu- afslátt og aðrar taka ekki við kredit- kortum. Meðfylgjandi tafla gefur lesendum upplýsingar um hlutfallslegan verð- samanburð nokkurra þeirra versl- ana sem könnunin náði til. Þannig er verslun með töluna 100 í meðal- lagi hvað vöruverð snertir en hinar ýmist dýrari eða ódýrari. -ingo Verslun Hlutfallsl. Verslun Hlutfallsl. samanb. samanb. Bónus, Hafnarf. 72,1 Betri bónus, Vestm. 99,4 KEA Netto, Akureyri 81,3 Höfn, Selfossi 107,3 Fjarðarkaup, Hafn. 85,1 Ártún, Egilsst. 109,2 10-11 Glæsibae, Rvík 86,5 EinarGuðfinnsson, Bol. 109,8 Hagkaup, Kringlunni 88,6 Eyjakjör, Vestm. 110,5 KEA Hrísalundi, Ak. 89,3 Kaupfélag Isfirð., Isaf. 111,1 Nóatúnvesturíbæ 92,9 Kaupfélag ísfirð., 114,1 Súðav. Sértilboð og afsláttur: Garðakaup Garðakaup hefur lækkað verð á u.þ.b. hundrað vörutegundum og verður með þær á tiiboðspöllum næstu vikuna. Dæmi um verð er: pasta- og pitsusósur frá 69 kr„ pasta og spaghetti frá 69 kr., niðursoðnir ávextir frá 62 kr. og niöursoðið grænmeti frá 32 kr. Einnig verða bleiur frá 375 kr., matarolia frá 96 kr., eidhúsrúllur frá 69 kr. og súpur í dósum frá 41 kr. Fjarðarkaup THboðin í Éjarðarkaupum gilda frá miðvikudegi til föstudags. Þar fæst Sun Quick með brúsa á 329 kr„ 18 fernur kókómjólk á 644 kr., óhreinsuð svið á 196 kr. kg, hreins- uö svíð á 296 kr. kg og lambalifur á 199 kr. kg. Einnig eru lambahjörtu á 199 kr. kg, hálft úrbeinað hvítvínslegið lambalæri á 845 kr. kg, hálft úr- beinað rósavínslegið lambalæri á 845 kr. kg, grillsagaðh* lambafram- partar á 398 kr. kg, niöurskorin bónda- og heilhveitibrauö á 98 kr„ perur á 79 kr. kg og græn vínber á 149 kr. kg. Hagkaup Tilboðm í Hagkaupi gilda einung- is í dag, ný koma á morgun. Þar fást 375 g af Kellogg’s Corn Pops á 179 kr„ Jacob's pítubrauö á 109 kr., ýsusteiktur humall í raspi, 720 g, á 269 kr„ íslenskai* gulrætur á 199 kr. kg, íslenskt hvítkál á 49 kr. kg og íslenskar rófur á 49 kr. kg. Kjöt og fiskur Kjöttilboðin hjá Kjöti og fiski gfida frá fimmtudegi til mánudags en lún tilboðin frá miðvikudegi til miðvikudags. Þar fæst rauðvínslegið lambalæri á 699 kr. kg, kindabjúgu á 390 kr, kg og svikinn héri á 298 kr. kg. Einnig býöst þar kíló af Super hafragrjónum á 59 kr„ 8 rúllur af Super salermspappír á 149 kr„ 4 tegundir af Super marmelaði á 88 kr. og 500 g af Super kaffi á 179 kr. Verslunin minnir einnig á græn- metistilboðin á fimmtudögum. Bónus Tilboðin í Bónusi gilda fró fimmtudegi til laugardags. Þar fást kökubotnar á 49 kr„ Emmess Egils ísnálar á 267 kr„ Frón Café noir á 69 kr. og Ali lifrarkæfa, gróf og fín, á 497 kr. Einnig B&K ferskj ur á 79 kr., 500 g Gull kafii á 159 kr. og 9" pitsa frá Pizzalandi á 165 kr. Einnig mirnúr Bónus á 5% afslátt við kassann af öllum vigtuðum ostum. -ingo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.