Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 9
pnrt- } ~o CTTTr\> n"r‘*"'.T7‘rr#Tý>ír MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 Utlönd hafahittPLO- manníSvíþjóð Shimon Per- es, utanríkis- ráðherra ísra- els, vísaði í gær á bug fréttum um að hann helði hitt full- trúa Frelsis- samtaka Pal- est- ínu, PLO, í heimsókn sinni til Svíþjóðar á dögunum. „Eg hitti aðeins Svía,“ sagði Peres í Kaupmannahöín þar sem hann lauk ferðalagi sínu um Norðurlöndin. ísraelska blaðið Yediot Aharo- nots sagði i gær að Peres heföi hitt ónafngreindan útsendara PLO í Stokkhólmi i síðustu viku. Ódýrtnorskt kjötáferjum vekurgremju Samtök atvinnurekenda í feiju- bænum Hirtshals í Danmörku kreijast þess að norsk stjórnvöld stöðvi nýja tegund stuðnings við landbúnaðinn sem gerir norsk- um feröamönnum í einsdagsferö- um til Danmerkur og Svíþjóðar kleift að kaupa norskar kjötvörur um borð í ferjunum fyrir hálf- virði. Blaðið Jyllands-Posten segir að Hirtshalsmenn hafi skrifað land- búnaðarráðherra Danmerkur bréf vegna þessa og beðið hann aö íhuga til hvaða refsiaögerða sé hægt að grípa. Dönsku atvinnurekendurnir vilja að norsku ferðamennirnir kaupi kjöt í stórmörkuðum I Hirtshals en ekki um borð í skip- unum. bremtuvarg á innflytjendurna íbúamir í þýska hænum Dolg- enbrodt voru svo óhressir meö aö þurfa að veita um eitt hundrað erlendum ílóttamönnum húsa- skjól um tíma að maður var feng- inn til að ráða öfgasinnaðan hægrimann og brennuvarg til aö kveikja í fióttamannaheimih bæj- arins. Þetta kom fram í Berlínarblað- inu Tageszeítung í gær og segir þar að þurft hafi að greiða um áttatíu þúsund krónur fyrir íkveikjuna. Lögreglan í Potsdamfylki rann- sakar nú máhð og í tengslum við það hefur nítján ára öfgamaður setið inni síðan í maí. Clintonferísigl- ingumed Jacqu- elineOnassis Bih Clinton Bandaríkjafor- seti og fjöl- skylda hans fóru í skemmti- siglingu á snekkju með Jacqueline Kennedy On- assis undan eyjunni Martha’s Vineyard í gær. Um tvö hundruö manns fylgdust með siglingunni og fögnuðu forseta slnum. Fólk úr Kennedy ættinni kom til hádegisverðar í skútuna Relemar sem er í eigu Maurice Temples- mans, félaga Jacqueline til margra ára. Það voru þeir Templesman og Edward Kenned öldungadeildar- þingmaöur sem tóku á móti Chnt- on, Hillary konu hans og dóttur- inni Chelsea þegar þau mættu til hádegissighngarinnar. Ritzau, Reuter Vaxtarræktarmenn 1 Noregi varaðir við hættunni af smygluðum hormónum: Eyðniveiran fannst í rússneskum sterum - lyflunum var smyglað til Noregs frá Rússlandi 1 gegnum Svíþjóð Gunuar Blandal, DV, Ósló: Vaxtarræktarmen í Noregi eru í morgun varaðir sterklega við að neyta smyglaðra stera sem borist hafa th landsins frá Rússlandi í gegn- um Svíþjóð. Rannsókn á lyfjunum hefur leitt í ljós að eyðniveiran HIV hefur slæðst í framleiðsluna hjá Rússum en lyfin eru eftirsótt meðal vaxtarræktarmanna í Noregi og víð- ar. Lögreglan i Svíþjóð hefur þegar gert upptæka 237 skammta af um- ræddum sterum sem á máh lyfja- fræðinnar kahast somatotropin. Norðmenn segja að eyðni berist til landsins með smygluðum sterum. Rússneskir athafnamenn eru grun- aðir um að framleiða lyfin við erfiðar aðstæður og htið hreinlæti til sölu á Vesturlöndum. Sömu sögu er að segja af hhðstæðri framleiðslu í öðr- um löndum Austur-Evrópu. Sviar segja að auk eyðninnar hafi fleiri veirur slæðst í lyfin þannig að þau geti verið stórhættuleg hehsu manna vegna beinna sýkinga auk þeirra áhrifa sem þau hafa á líkam- ann. Hér í Noregi hafa umræddir sterar fundist á nokkrum Ukamsræktar- stöðvmn. Búið er að gera þá upp- tæka. Ekki er vitað til að nokkur hafi sýkst af neyslu þeirra en því er haldið fram í morgun að langur tími geti liðið áður en uppvíst verður hvort þessi smyglvarningur hefur valdiö fólki varanlegu hehsutjóni. í yfirlýsingu í blöðunum í morgun er sagt að þeir hörðustu í líkams- ræktinni hafi hingað til látið viðvar- anir um hættuna af steranotkun sem vind um eyru þjóta. Nú sé hins vegar ríkari ástæða en nokkru sinni áður til að láta lyfin vera því þau geti orð- ið til að útbreiða eyöni enn meira en orðið er. Fyrrum yfirmaður á þýska kafbátnum við Danmörku: Enginn fjársjóður um borð Björgunarmenn reyndu árangurslaust að lyfta kafbátnum upp á pramma svo hægt væri að rannsaka innihald hans. Simamynd Reuter WUham Brinkman, fyrrum hðsfor- ingi í þýska kafbátnum, sem var hífð- ur upp af hafsbotni við Danmörku á mánudag, sagöi í gær aö hvorki guh né málverk heföu verið um borð í bátnum þegar honum var sökkt á lokadögum heimsstyijaldarinnar síðari. „Það voru engir fjársjóðir. Þetta var bara venjuleg ferð,“ sagði Brink- man í sjónvarpsviðtali í Kanada. „Þeir höföu fyrirskipun um að fara frá Kiel til Ósló til að gefast upp fyr- ir Englendingum." Brinkman var næstæðsti maður kafbátsins en hann var þó ekki með í hinstu ferðinni. Hann vísaði á bug að báturinn heíði verið að flytja hátt- setta embættismenn á flótta undan hruni Þýskalands nasista. Hann sagðist hafa hitt 35 menn úr áhöfninni árið 1978 og hann hefði spurt þá um sögur um síðustu ferð- ina. Tilraunir til að koma kafbátnum upp á flotpramma í gær misheppnuð- ust þar sem of mikhl leir var í hátn- um. Ekki var því hægt að opna bát- inn eins og til stóð. Reutcr Mistókst að ræna Peter Wallenberg Sænska lögreglan hefur haft hend- ur í hári þriggja Rússa og eins Svía sem grunaðir eru um að hafa lagt á ráðin um að ætla að ræna iðnjöfrin- um Peter Wahenberg frá heimhi hans nærri Stokkhólmi. Wahenberg er 67 ára og er skyldur Raoul Wahenberg, sænsku hetjunni sem lést í fangelsi í Moskvu árið 1947. Fjölskylda hans á hlutabréf í mörg- um sænskum stórfyrirtækjum, svo sem Electrolux, Ericsson og Saab- Scania. Blaðið Expressen skýrði frá því að hinir grunuðu hefðu verið vopnaðir handsprengju og skammbyssum þegar þeir voru teknir á mánudags- kvöld. Wahenberg haíði séð tíl þeirra og gert lögreglu viðvart. „Það er ástæða til að ætla að fjór- menningamir hafi haft uppi áform um aö ræna einhveijum. Peter Wah- enberg var fómarlamb þeirra," sagði Rolf Hansson lögreglufuhtrúi. Saksóknari sagði að mennimir hefðu ætlað að krefiast lausnar- gjalds. Reuter Útlitshönnuðir prentgagna Einstakt tækifæri! Eins dags námstefna með Jan V. White, einum eftir- sóttasta fyrirlesara um hönnun prentgagna í heim- inum í dag. White hefur skrifað fjölda bóka, haldið yfir 900 fyrirlestra og námstefnur um efnið, og unnið að útgáfumálum fyrir mörg stærstu og virtustu fyrirtæki heims. Námstefnan verður haldin að Holiday Inn, föstudaginn 3. september kl. 09:00-17:00. Vönduðum námsgögnum eftir White, í íslenskri þýðingu, verður dreift á staðnum. Nánari upplýsingar og skráning þátttöku í símum 91-687000 og 91-680740. Þátttökugjald er kr. 12.000. Iðntæknistofnun 1 Prenttæknistofnun Eftirmenntun / útgáfu og prentiðnaði m

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.