Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 11
MinViKUDAGUR 25. ÁUÚST 1993
11
Sigurður Gislason og Halldór
Halldórsson lylgjast með félaga
sínum Sigþóri Halldórssyni
reyna við eina brautina sem
hann náöi ekki aö klára.
DV-myndir Ása Jóa
Svip-
brigði í
torfær-
unni
Torfærukeppni nýtur sívax-
andi vinsælda hér á landi og
áhorfendur þyrpast aö til að sjá
hvernig ökumönnunum gengur
aö koma bílunum upp hinar
ýmsu torfærur.
Ökumennimir sjálflr íylgjast
vel með hvernig keppinautunum
gengur og eins og meöfylgjandi
myndir sýna þá er þaö ekki síöur
gaman aö fylgjast meö svipbrigö-
um þeirra.
HMR
Gunnar Guðjónsson fylgdist ein-
betttur með Guöbirni Grímssyni
sem fékk biiinn hans Gunnars
lánaðan í þessari keppni.
Guðbjörn Grímsson, fyrrverandi
íslandsmeistari, keppti þarna
aftur eftir nokkurra ára hlé og
skemmti sér konunglega.
Sviðsljós
• Liðin eftir að seinni leiknum lauk á velli þeirra ungmennafélagsmanna í Kjósinni. Keppt var um bikar sem Hvammsvík í Kjós gaf.
DV-mvnd Þórunn
Ungmennafélagið
vann Hvammsvíkina
„Þaö er gaman aö þessu og þessir
leikir veröa vonandi á hverju ári,“
sagði Steinar Gíslason á Meöalfelli
eftir leik ungmennafélagsins Drengs
í Kjósinni og starfsmanna Hvamms-
víkur í Kjós fyrir fáum dögum.
Leiknir voru tveir leikir og vann
ungmennafélagið Drengur báöa leik-
ina, naumlega. En aflir höföu gaman
af og Hvammsvík í Kjós gaf bikarinn
sem keppt var um.
Undir lokin var svitinn farinn að renna af þátttakendum sem er ekki furða
eftir þriggja tima áreynslu.
Púlað 13 tíma
Þolfimi hefur fyrir löngu fest sig í
sessi hér á landi og áætlað er að þeir
skipti þúsundum sem æfa það aö
jafnaði í hinum ýmsu líkamsræktar-
stöðvum víös vegar um landið.
í Stúdíói Ágústu og Hrafns var um
helgina haldinn þolfimidagur fjóröa
áriö í röð. Þá er stööug keyrsla í 3
tíma og skiptust 7 kennarar á að leið-
beina þeim sem tóku þátt. Það voru
margir sem héldu út allan tímann
en enn fleiri sem litu inn í styttri
tíma. Um kvöldið var svo haldin
grillveisla þar sem hægt var að vinna
upp hitaeiningatap dagsins.
HMR
Kristín Magnússon, Ólöf Örvarsdótt-
ir, Arndis Ásgeirsdóttir, Margrét
Guðmundsdóttir og Nína Sólveig
Jónsdóttir voru atlan tímann en voru
ekkert þreyttari heldur en eftir
venjulegan tíma.
Unglingastarf
á Sandi styrkt
Félagsheimili fyrir
unglinga á Hellissandi
var opnað á síðasta ári
og sáu unglingar á
Sandi og Rifi um inn-
réttingu og málningu á
því. Skírðu þeir það
Afdrep og var tekiö til
þess hve unglingar
létu hugarflugið ráða
við innréttingarnar og
í litadýrð. Til aö auö-
velda skemmtanahald
unghnganna ákvað Li-
onsklúbbur Nesþinga,
Helhssandi, að færa
Afdrepinu að gjöf 100
þúsund krónur til
tækjakaupa.
Forstöðukona Afdreps, Gunnhildur Þórisdóttir,
tekur við gjöfinni frá Stefáni Þór Sigurðssyni, form-
anni lionsklúbbsins, og með honum er gjaldker-
inn, Reynir Rúnar Reynisson.
DV-mynd Ægir Þórðarson
DV
Aukablað
Tómstundir
og heilsurækt
Miðvikudaginn 8. september mun aukablað
um tómstundir og heilsurækt fylgja DV.
Meðal efnis verður umQöllun um líkamsrækt,
dans og ýmiss konar tómstundanámskeið. í
því sambandi verður athugað hvað dans-,
mála-, tölvu- og tómstundaskólarnir hafa upp
á að bjóða í vetur.
Þeir auglýsendur, sem hafa hug á að auglýsa
i þessu aukablaði um tómstundir og heilsu-
rækt, vinsamlega hafi samband við Sonju
Magnúsdóttur, auglýsingadeild DV, hið fýrsta
í síma 63 27 22.
Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur aug-
lýsinga er fimmtudagurinn 2. september.
ATH.! Bréfasimi okkar er 63 27 27.
NEWCASTLE
Nú er Newcastle á toppnum
Frábærar haustferðir til Mewcastle hefjast
13. október.
Brottför á miðvikudögum og sunnudögum
í beinu ieiguflugi.
Fyrsta flokks ferðir til þessa ffábæra staðar
sem er íslendingum að svo góðu kunnur.
Verslunarborg - menningarborg
Einstakir matsölustaðir, biómlegt menn-
ingarlíf, leikhús, söfn og firábærir golfvellir.
Allt þetta og miklu meira á einstöku verði
ef þú bókar og greiðir ferðina fyrir 10. sept-
ember.
4 daga ferð kr. 25.300
5daga ferð kr. 29.900
8 daga ferð kr. 37.900
Innifalið er: flug, gisting á hótelunum County eða Crest í mið-
borg Mewcastle, morgunverður, flutningur til og frá flugvelli, is-
lensk fararstjórn, forfallagjald og flugvallaskattar. Staðgreiðslu-
verð.
FERÐASKRIFSTOFAN
Sími 652266