Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 4
Fréttir MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993 DV Halldóri Blöndal ætlað að skera útgjöldin niður um 700 miHjónir: Deilt um túlkun á búvörusamningnum - gæti kostað ríkið á annað hundrað miiljónir, segir Sighvatur Björgvinsson „Ágreiningurinn snýst um það hvemig beri að túlka undanþágu- ákvæði í búvörusamningnum. Með- an samningnum er ekki sagt upp eða honum breytt, þá verður aö með- höndla hann eins og hann gefur til- efni til,“ segir Sighvatur Björgvins- son, iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Eins og DV greindi frá í gær hefur risið upp ágreiningur milli stjórnar- liða um framkvæmd búvörusamn- ings í tengslum við fjárlagagerðina, en að sögn Sighvats ættu beingreiösl- ur til sauöfjárbænda að lækka um á annað hundrað milljónir á næsta ári vegna minnkandi sölu á kindakjöti. Af hálfu landbúnaðarráðherra er hins vegar vilji til að nýta undan- þáguákvæði í samningnum sem fresta myndi hluta lækkunarinnar í tvö ár. í fjármálaráðuneytinu er stuðningur við þetta en í viðskipta- ráðuneytinu eru menn andvígir hug- myndinni. Að sögn Sighvats hefur hann lýst andstöðu sinni yfir við fiármálaráð- herra en ekki rætt málið beint við landbúnaðarráðherra. Sighvatur segist leggja mikla áherslu á að stað- ið verði við búvörusamninginn þannig að allir fái notið þess ávinn- ings sem hann gefi. Sighvatur segjr ekki ágreining milli sín og landbúnaðarráðherra varðandi niðurskurð í tengslum við ramma fjárlaga næsta árs. Þannig hafi landbúnaðarráðherra gert til- lögu um aö skera niður landbúnaðar- útgjöld næsta árs um 700 miUjónir eins og honum hafi verið falið. „Menn eru hins vegar að tala um hvort rétt sé að gera meira. Um það eru skiptar skoðanir. Búvörusamn- ingurinn gefur okkur mikinn spam- að þegar á næsta ári en það er spum- ing hversu mikill hann á að vera. Menn em að skoða það hvemig eigi að skoða búvörusamninginn.“ -kaa Þegar veðrið er sem best á Seyðisfirði er ekki óvanalegt að ungir menn bæjarins finni hjá sér löngun til þess að stunda útivist. Einn nýliðinn ágústdag fóru nokkrir ungir menn aö stunda seyðfirskt brúarstökk með ýmsum tilfæringum. Þessi fþrótt er mun eldri en teygjustökkið enda menn frjálsir ferða sinna eftir stökkið og þurfa að sjálfsögöu að taka sundsprett til þess að komast i mark. DV-mynd Pétur Kristjánsson, Seyðisfirði Trilla sökk á Höfn Trilla sökk í höfninni á Höfh í Homafirði í fyrrinótt. Vatn rann úr slöngu í bátinn og eftir einhvem tíma fylltist hann af vatni og sökk. Eigandi bátsins kom að honum á kafi í gærmorgun þegar hann hugð- ist fara á sjó og var slökkvilið fengið til að dæla sjónum úr bátnum þar sem hann hékk á landfestunum í bryggjunni og í öðrum báti. Töluverðar skemmdir urðu á tækjabúnaði í bátnum. -pp Brotist inn í Ríkið Brotist var inn í verslun ÁTVR í Ólafsvík og stolið þaðan 15 flöskum af vodka. Nokkrar skemmdir voru unnar á húsnæðinu. Innbrotið uppgötvaðist á mánu- dagsmorgun og vom nokkrir aðilar granaðir um innbrotið en sá granur reyndist ekki á rökum reistur og er málið enn í rannsókn. Bamafataverslun er í sama hús- næði og áfengisverslunin en engu var stolið þaðan. -pp Fiskleysi mánuðum saman Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Þaö fæst varla branda úr sjó hér í Árneshreppi og þannig hefiir það verið í nær allt sumar - fiskleysi mánuðum saman. Sjómenn róa þó þegar gefur og mánudaginn 23. ágúst var hæsta trillan, Ingólfur Pétursson ST 75, með 700 kíló af blönduðum fiski. Eig- endur hennar era Finnbogastaöa- frændur en skipstjóri Eggert Melsted. H venær segja þeir satt? Tveir af virtustu og áhrifamestu stjómmálamönnum landsins hafa á undanfómum dögum skipst á skoðunum í ritdeilu í Morgunblað- inu. Ágreiningsefni þeirra er ekki um hallann á ríkissjóði, ekki um veiðamar í Barentshafi, ekki um nýtt sjúkratryggingargjald eða at- vinnuleysi eða minnkandi þjóðar- tekjur eða önnur slík smámál sem herja á þjóðina um þessar mundir. Nei, ágreiningur þeirra snýst um miklu alvarlegri og nærtækari vandamál. Hann snýst um það hvor þeirra segi satt, eða þá yfir- leitt hvort annar hvor eða báðir geti yfirleitt sagt satt. Ólafur Ragn- ar hefur haldiö því fram að Sig- hvatur geti aldrei sagt satt. Sig- hvatur bætir um betur í síðustu grein sinni með því að halda því fram íjórum sinnum á einni síðu að Ólafur Ragnar geti ekki sagt satt. Almenningur fylgist að sjálf- sögðu spenntur með þessum skylmingum kappanna enda mikið í húfi. Það er auðvitað nauðsynlegt aö fá úr því skorið hvort annar hvor eða báðir geti sagt satt, þó ekki væri nema stundum, og engir era færari um það en þeir sjálfir að segja til um það. Fyrir utan það hvað þeir báöir þekkja sjálfan sig og heiðarleika sinn út í hörgul, era þeir nauöakunnugir, Sighvatur og Ólafur Ragnar. Báðir eru fæddir fyrir vestan og hafa báðir starfað náið saman í stjómmálum, þannig að þeir eru manna hæfastir til að dæma um það hvort hinn geti sagt satt. Þetta deiluefni er af litlum og frekar ómerkilegum toga, vegna þess að deilt er um það hvort Sig- hvatur hafi ráðið Þorkel Helgason sem ráðuneytisstjóra í blóra við lög og þvert gegn almennri og viður- kenndri reglu. Þær deilur hafa aft- ur snúist upp í það hvort Þorkell sé vinur Sighvats eða nógu mikill vinur Sighvats og hvort skipa megi hann sem ráðuneytisstjóra með hliðsjón af því hvort Þorkell sé vin- ur Sighvats eða ekki. í framhaldi af þessari lærðu deilu hafa þeir Ólafur Ragnar og Sig- hvatur síðan þráttað um það hvort Ólafur hafi gegnt störfum í Háskó- lanum og hvort hann hafi veriö í launalausu leyfi frá prófessorstöðu sinni í fimm ár eöa níu ár. Þetta er alls ekki komið á hreint sem er skiljanlegt ef hvoragur get- ur sagt satt og svo virðist sem Sig- hvatur viti betur um það en Ólafur sjálfur, hversu lengi sá síðamefndi hafi verið í launalausu leyfi. Eða þá Ólafur talar gegn sinni betri vit- und sem sannar að hann kunni ekki að segja satt. Hitt er annað að Ólafur hefur sýnt fram á að Sig- hvatur eigi í erfiðleikum með sann- leikann og ef um það er að ræða fyrir Sighvat að segja satt eða segja ekki satt taki hann þann kostinn að segja ekki satt. Það sannar hins vegar ekkert um það hvort Ólafur segi satt, þótt Sighvatur segi ekki satt, því Sighvatur segir aö Ólafur segi ekki satt um það að hann geti ekki sagt satt, meðan Ólafur ber það upp á Sighvat að hann segi ekki satt um það að hann geti ekki sagt satt sem þýðir að Sighvatur segir ekki satt um það að Ólafur geti ekki sagt satt, vegna þess að Sighvatur getur ekki sagt satt og Ólafur getur ekki sagt satt til um það hvort hann segi satt. Þessi deila er orðin svo hörð að aðrir aðilar úti í bæ era fengnir til að votta um það að málsaðilar segi satt og þannig gaf félagsvísinda- deild út yfirlýsingu um daginn að Ólafur hefði farið að réttum regl- um, sem bendir til að utanaðakom- andi aðilar telji það frásagnarvert að annar hvor þeirra Sighvats eða Ólafs fari að reglum! Þá má og geta þess að Bjöm Bjamason alþingismaður hefur jáfnframt sent frá sér yfirlýsingu um að hans nafn hafi að ósekju verið dregið inn í þessa umræðu. Þetta er fífldirfska fijá Birni, vegna þess að nú mun sama umræða hefj- ast um það hvort Bjöm segi satt um það sem þeir Sighvatur og Ólaf- ur segja ósatt. Eftir síðustu grein Sighvats bíður maður spenntm- eftir því aö Ólafur svari ásökununum og hverjum á maður að trúa, ef hvoragur getur sagt satt? Málið er nefnilega það að ef hvoragur getur sagt satt til um það hvort hinn segi satt eða ekki, getur maður heldur ekki tek- iö það trúanlegt að sá sem segir að hinn geti ekki sagt satt, sé að segja satt. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.