Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
3
Fréttir
Samráð um byggingu húsnæðis fyrir aldraða:
Eðlilegt miðað
viðástand
markaðsins
- segir framkvæmdastjóri Verktakasambandsins
„Þaö er ósköp eðlilegt aö bygging-
arfélög hafi samráö viö ákveöna
verktaka um húsbyggingar af þessu
tagi til að tryggja hagsmuni félags-
manna sinna. Á undanfornum árum
hefur verið tilhneiging í þá átt að
byggingarfélög semji beint viö verk-
taka sem þeir treysta og þekkja, í
stað þess að haldin séu opin útboð.
Þetta kemur til vegna slæms ástands
sem ríkir á þessum markaði, sem
meðal annars má rekja til þess að
lagaramminn á þessu réttarsviði er
óljós og komið hefur fyrir að verk-
takar hafi ekki getað lokið verki
vegna fjárhagslegra erfiðleika. Á
móti kemur hins vegar að byggingar-
féfögin missa möguleikann á
ákveðnu hagræði sem hlýst af opnu
útboði," segir Þórður Þórðarson,
framkvæmdastjóri Verktakasam-
bandsins.
Nokkrar umræöur hafa spunnist
undanfariö í fjölmiðlum um bygging-
ar íbúða fyrir aldraða. Því hefur ver-
ið haldið fram að Reykjavíkurborg
hafi sett byggingarfélögum þau skil-
yrði að þau væru í samstarfi við
ákveðna verktaka og hafa nöfn Ár-
mannsfells og GG-verktaka verið
nefnd í þessu sambandi. Nýverið
kom út skýrsla á vegum starfshóps
félagsmálaráðuneytisins, þar sem
fram kom að byggingarkostnaður við
íbúðir aldraða væri hærri en skýra
mætti með eðlilegum hætti og ein af
ástæðum þess væri sú að opið útboð
færi ekki fram. í skýrslunni er því
einnig haldið fram að Reykjavíkur-
borg setji byggingarfélögum framan-
greind skifyrði fyrir lóöaúthlutun.
Markús Örn Antonsson borgarstjóri
neitar því að þessi skilyrði hafi verið
sett. „Það eru byggingarfélögin sem
hafa vahö sér þessa verktaka og sótt
um með þeim,“ sagði Markús í sam-
tafi við DV í gær.
Magnús Magnússon, fyrrverandi
formaður Samtaka aldraðra, segir að
Reykjavíkurborg hafi ekki sett sam-
tökunum nein skilyrði hvað verktök-
um viðkemur. „Fyrsta samvinnu-
verkefni samtakanna og Ármanns-
fefls tókst mjög vel og eftir þaö höfum
við sótt saman um lóðir, því okkur
hefur líkað vel að vinna með þessu
fyrirtæki," segir Magnús. Hann segir
að vissufega sé byggingarkostnaður
þessara íbúða hár. „Það kemur aðal-
lega tif af tvennu, nefnilega því að
íbúðirnar eru vandaðri en íbúðir í
félagslega kerfmu og því að vaxta-
kostnaður á byggingartíma er hár,“
sagðiMagnús. -bm
Kvótabátur keyptur
til Hellissands
Apple kynnti nýja fartölvu, PowerBook 145B, þann 7. júní síðastliðinn.
Og nú bjóðum við þessa tölvu á hreint frábæru verði eða 139.900,-
ef staðgreitt, en 147.263,- kr. sé greiðslunni clreift.
Tækniýsing:
• 25 MHz 68030 örgjörvi
• SuperTwist 640 x 400
• 4 Mb vinnsluminni
• 40 Mb harðdiskur
• 3,5”, FDHD drif
• Les og skrifaf Macintosh-,
MS-DOS- og OS/2-diska
• AppleTalk-nettengi
Stækkunarmögulelkar:
• Auka má vinnsluminni í 8 Mb
• Innbyggt módern
• Hefur sex tengi fyrir jaðarbúnað
Umboösmenn: Haftækni, Akureyri og Póllinn, ísafirói
Apple-umboðið
Skipholti 21, sími: (9D 624800 1
Ægir Þórðaison, DV, Hellissandi:
Nýr bátur bættist í flota Neshrepps
utan Ennis þegar Vestri BA 63 kom
til Rifshafnar á dögunum. Báturinn,
200 brúttólestir að stærð, var keyptur
frá Patreksfirði af Hraðfrystihúsi
Hellissands og fleirum.
Vestri var smíðaður 1964 og er í
góðu ásigkomulagi. Honum fylgir 400
tonna kvóti í þorskígildum talið. Bát-
urinn verður gerður út aflt árið og
er stefnt að því að hann byrji á línu
í næsta mánuði. í vetur fer hann á
net og síðan á rækju. Hraðfrystihúsið
á einn bát fyrir, Rifsnes sem um ára-
bil hefur verið aflahæsti bátur á Rifi.
Kaupin á Vestra efla atvinnufíf á
Ragnar Konráösson skipstjóri viö
Vestra BA sem keyptur var nýlega
til Hellissands. DV-mynd Ægir
SVR-málifrestað
Samþykkt var á fundi borgarráðs
Reykjavíkur í gær að fresta tilfögu
meirihluta sjálfstæöismanna um að
breyta rekstrarformi Strætisvagna
Reykjavíkur í hlutafélag. Guðrún
Ögmundsdóttir, fulltrúi Kvennalist-
ans í borgarráði, segir að ákveðið
hafi verið að boða til aukafundar í
borgarstjóm á fimmtudag og verði
þá tekin ákvörðun um einkavæðing-
una. -GHS
Hellissandi og Rifi og veröur lyfti-
stöng fyrir byggðina í Neshreppi.
Vegna mikillar eftir-
spurnar veröur þraut-
reyndur íslenskur
fararstjóri, Anna
Þorgrímsdóttir,
farþegum Flugleióa , . ,
a manmnn i tvibyLi
tii aöstoðar og /3 nœtur og 4 daga d Marriott Hotel. *
leiðsagnar í Glasgow , G|asgow bjóðum 16 gistiaga á
strax frá og meö eftirtöldum gæöahótelum: Hospitality Inn,
18. sept. til 4. des. Marriott, Stakis Grosvenor og Copthome.
Innifalið er flug, gisting, morgunverður og flugvallarskartar. Á tímabilinu 18. sept. til 4. des.
er innifalið í verði akstur til og frá flugvelli í Glasgow og íslensk fararstjórn. Akstur þarf að
bóka sérstaklega. Börn, 2ja - 11 ára, fí 9.500 kr. í afslátt. Börn að 2ja ára aldri greiða 3.000 kr.
Enginn bókunarfyrirvari.
Forfallagjald, 1.200 kr., er ekki innifalið í verði. Forfallagjald er valfrjálst en Flugleiðir
Tilboð fyrir hópa:
2.000 kr. afsláttur
á mann ef í hópnum
eru 15 manns eða
fieiri. 40.000 kr.
spamaöur fyrir
20 manna hóp.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmenn
um allt land, ferðaskrifstofurnar eða í síma 690300
(svarað alla 7 daga vikunnar frá kl. 8-18.)
hvetja farþega til aö greiða það til að fírra sig óþarfa áhættu.
*Verð miðast við gengi 6. ágúst 1993.
OATXASi*
EUROCARD.
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi