Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
Utlönd
Rodney King
skipaðaðfaraí
afvötnun
Dómari í Los
Angeles hefur
skipað blökku-
manninum
Rodney King
að fara í af-
vötnun. King
hefur viö iðinn
við pyttluna á
undanfómum mánuðum og var
um síðustu helgi tekinn fullur á
bíl sínum eftir að hafa ekið á
steinvegg.
Mikil og fræg málaferli hófust
þegar King var tekinn fullur á bíl
sínum vorið 1991 og barinn til
óbóta af fjórum hvítum lögreglu-
þjónum.
Geðsjúkur
morðingislapp
öðrusinni
Norska lögreglan hefur nú í
sinni vörslu geðsjúkan morðingja
sem slapp af geösjúkrahúsi á
Þelamörk um helgina og komst
úr landi. Lýst var eftir honum í
Noregi, Danmörku og Svíþjóð.
Morðinginn komst til Dan-
merkur og þar handtók lögreglan
í Friðrikshöfh hann. Maðurinn
afplánar sjö ára dóm fyrir morð.
Hann hefur áöur sloppið úr gæslu
og er ætlunin aö hafa betri gát á
honum í framtíðinni.
Danirfáofnæmi
fyrirrafmagni
Læknar í Danraörku eru að
rannsaka um fimmtíu menn sem
allir eiga það sameiginlegt að þola
ekki við í nágrenni við rafmagns-
tæki. Mennimir hafa sýnilega
ofnæmi fyrir rafmagni og koma
einkennin fram í svima, örum
hjartslætti og útbrotum á húð.
Ofnæmi af þessari gerð er taliö
mjög sjaldgæft en þó kvarta si-
feUt fleiri undan því. Sumir eru
svo langt leiddir að þeir þola ekki
að horfa á sjónvarp.
Fyrirmyndar-
drengurinn John
Denverísvaðið
Gamli popp-
söngvarinn
John Denver
hefurveriðtek-
inn fyrir ölv-
unarakstur og
sviptur öku-
leyfinu i
heimabæ sín-
um í Colorado. ffljótt hefur verið
um hann á síðari árum en áður
var hann með dáðari ungmenn-
um og almennt talinn fyrir-
myndadrengur á tímum eitur-
lyíjaneyslu og hippamennsku.
Ellidauðiverður
úr sögunni eftir
aldamótin
Gizur Helgason, DV, Kauprnarttiahöfn:
„Eg held að eftir 5 til 10 ár
munum við geta sagt með vissu
hvenær hægt veröi að hefta elli-
hrörnunsegír Richard G. Cutl-
er, ellikönnuður frá Ameríku,
sem er hér 1 Danmörku að kynna
bók um aðferðir tdl að ráða erfða-
eiginleikum manna. Bókin nefn-
ist Endurbætti Daninn og hefur
vakið mikla athygli.
Cutler segir aö sárafá gen, eða
um 200, ráði því að fólki fer aftur
með aldrinum. Fljótleg verði
hægt að föndra svo viö nokkur
þessara gena aö líf manna lengist
um 10 tíl 20 ár.
Nýjar vendingar í rannsókn á málum Michaels Jackson:
Ungur drengur
var misnotaður
- poppgoðiö Jackson neitar ásökunum um kynferðisafbrot
„Eg er viss um aö lögreglan mun
rannsaka málið ítarlega og að niður-
staðan veröur sú að ég hafl ekkert
rangt gert,“ segir í yfirlýsingu frá
poppgoðinu Michael Jackson þar
sem hann er á tónleikaferðalagi í
Taílandi á meðan lögreglan í Los
Angeles rannsakar hvort sögur um
að hann hann hafi brotið kynferðis-
lega gegn 13 ára dreng séu réttar.
I Bandaríkjunum fylgjast menn
grannt með öllum vendingum í mál-
um Jacksons og nú er upplýst aö
reynt var að hafa af honum fé vegna
þessa máls. Allt er þó á reiki um
hvað er verið aö rannsaka og því er
jafnvel haldið fram að á undanforn-
um árum hafi Jackson orðið að sjá á
bak háum fjárhæðum vegna svika
starfsmanna sinna.
Nú hafa menn hins vegar mestan
áhuga á að vita hvort Jackson hafi
haft samræði við drenginn sem síð-
ustu misseri hefur verið í föruneyti
popparans á tónleikaferðum.
Drengurinn á að hafa sagt sálfræð-
ingi sínum frá öllu sem þeim hafi
farið í milli og í framhaldi af því
ákvað sálfræðingurinn að kæra mál-
ið til lögreglunnar. Lögreglan hefur
leitað á heimili Jacksons aö sönnun-
argögnum en ekkert gefið upp um
árangurinn. Reuter
Kínverjar hafa ákveðið að ráðast í framleiðslu á úrum sem væntanlega
munu tifa yfir heimsbyggðina á næstu mánuðum. Hér eru fyrirsætur í Pek-
ing að kynna nýju framleiðsluna. Simamynd Reuter
Munnur við
rana
Iff i f ílsins
Þjóðgarðsverðir í Suður-Afríku
björguðu lífi sjúks fílsunga með því
að nota blástursaðferðina á hann,
eða munn við rana.
Fimm garðverðir skiptust á að halda
lífi í unganum, sem heitir Pie, með því
að blása til skiptis upp í rana hans.
Aö sögn var Pie allur að hressast
í gær en hann þjáðist af niðurgangs-
pest. Reuter
Norðmennfara
til Danmerkur
Dananna vegna
Norðmenn og Svíar fara í frí til
Danmerkur vegna þess að þeim
finnst Danir svo indælir og þykir
mikið til lífsstíls þeirra koma, ekki
síst góðs matar og drykkjar.
Þetta kemur fram í nýrri könnun
sem dönsk ferðamálayfirvöld hafa
látið gera um hvað það sé sem dragi
ferðamenn til landsins.
Samkvæmt könnuninni koma
Þjóðverjar til Danmerkur af því að
þar eru baðstrendur með góðu vatni
og því gott að baða sig. Þá eygja þeir
einnig möguleika á að stunda þar
íþróttir.
Japanir koma helst í hópum og
þeir eyða meira fé en aðrir ferða-
menn.
ítalir eru veikir fyrir hinni friðsælu
ímynd. Auk þess hefur sá orðrómur
veriö á kreiki meðal ítalskra karl-
manna að danskar stúlkur væru
frjálslyndar. Ritzau
Hálft lík fundið af manni sem lifði tvöföldu ffi:
Ljúf ur heimilisf aðir sem
framleiddi klámmyndir
Fjölskylda Eriks Hojer Christian-
sen vissi ekki betur en hann væri
vammlaus fjölskyldufaðir. Hann
hafði auðgast á að framleiða verk-
færi í Danmörku og fært út kvíarnar
til Englands þar sem honum vegnaöi
vel eftir því sem best var vitað.
í sumar ákvað hann að taka sér frí
frá verksmiðjurekstri og setjast um
stundarsakir að í Portúgal. Þar ætl-
aði hann aö skrifa bók um sérgrein
sína, verkfærasmíði.
Það næsta sem fréttist af iðjuhöld-
inum var að lögreglan í Portó í Port-
úgal fann á dögunum hálft lík af
manni og hjá því skjalatösku merkta
Erik Hojer Christiansen. Líkiö haföi
verið sagað í sundur og neðri hlutan-
Erik Hejer Christiansen lifði tvöföldu
lífi. Nú er hálft lík hans fundið.
um hent út í skóg. Efri hlutinn er
ófundinn.
Nú var farið að grennslast fyrir um
feril Eriks í Englandi og þá kom í
ljós að hann var ekki eins sómakær
og allir heima í Danmörku héldu.
Hann var löngu hættur að framleiða
verkfæri og hafði þess í stað snúið
sér að klámmyndum. Þá var hann
kunnur saurlífisseggur hvarvetna
sem hann kom. Hann átti þrjá dýra
bíla, bjó jafnan í vönduðum villum
en flutti með reglulegu millibili.
Danska lögreglan telur víst að hálfa
líkið í Portúgal sé af Erik en illa geng-
ur að finna ástæöu fyrir morðinu og
sömuleiðis hugsanlega morðingja.
Vísindamenn
hissaáþrifleg-
um mörgæsum
Vísindamenn ætla að koma há-
þróuðum vogum fyrir á Suður-
skautslandinu til að rannsaka
mörgæsir sem bæði fjölgar mikið
og verða bústnari með hverju
árinu. Talið er hugsanlegt að
gróðurhúsaálirifin eigi þar ein-
hverja sök.
Peter Wilson sjávarlíffræðíng-
ur sagði að vísindamenn ffá
Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum
væru að leita fiármagns til að
koma vogunum fyrir.
Grunur leikur á að tengsl séu
milli ástands mörgæsanna og
vatnsmagns og þar með fiölda
fiska í Vönduvatni á suðurskaut-
inu. Vatn þetta frýs á vetrum en
þiðnar á sumrin.
Sfjórn Kohlsvill
þýska hermenn
ísveitirSÞ
Kristilegir
demókratar,
flokkur Helm-
uts Kohls
Þýskalands-
kanslara, ítrek-
aði þá skoðun
sína í gær að
ekkert í
stjómarskrá. landsins bannaði
þýskum hersveitum að taka þátt
í bardagasveitum SÞ utan land-
svæðis NATO.
Jafnaðarmannaflokkurinn dró
sig hins vegar út úr málamiðlun-
arsamkomulagi við stjórnina um
hernaðarhlutverk Þýskalands.
Leiðtogar jafnaöarmanna sögðu í
Bonn að þeir heföu samþykkt aö
þýskar hersveitir mættu aldrei
taka þátt í alþjóðlegum bardaga-
ferðum. Sú samþykkt er tahn
mikill sigur fyrir fiiðarsinna inn-
an flokksins.
Frakkargefa
langa brauðinu
smu uppruna-
vottorð
Frönsk yfirvöld munu næsta
daga gef út tilskipun þar sem seg-
ir að þau brauð ein megi kallast
„baguette" sem bökuð era á
staðnum samkvæmt ákveðinni
forskrift. En baguettan er langa
brauöið sem er jafn ótvírætt tákn
frönsku þjóðarinnar og það sem
hér er kallað alpahúfa.
„Nýju lögin munu gefa baguett-
unni uppranavottorð,“ sagði tals-
kona bakaraiðnarinnar í samtali
viö Reuters-fréttastofuna. Hún
sagöi að með þeim væri ætlunin
að vernda litlu bakaríin sem selja
hina einu sönnu vöru gegn
brauðhleifum sem bakaðir væru
úr frosnu deigi sem í væru ýmis
víðbótarefni.
Samkvæmt lögum frá 1912 má
aðeins hveiti, vatn, salt og ger
fara í baguettuna.
Frakkarsýnafrá
réttarhöldum
yfirBarbie
Franska ríkissjónvarpið ætlar
að sýna í næsta mánuöi hluta af
réttarhöldun-
um yfir Klaus
sáluga Barbie,
stríðsglæpa-
manni nasista,
sem fram fóru
árið 1987.
Barbie var
kallaður „slátr-
arinn frá Lyon“ og var dæmdur
til lífstíðarfangavistar. Frakkar
hafa ekki áöur fengið að sjá
hvernig svona réttarhöld fóru
fram. Reuter