Dagblaðið Vísir - DV - 25.08.1993, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 25. ÁGÚST 1993
33
Afmæli
>
Lára Böðvarsdóttir húsmóðir,
Barmahlíð 54 í Reykjavík, er áttræð
ídag.
Starfsferill
Lára er fædd að Laugarvatni í Laug-
ardal og ólst þar upp. Hún stundaði
nám í Héraðsskólanum að Laugar-
vatni og Kvennaskólanum á
Blönduósi. Hefur átt heima í
Reykjavík frá 1937 og vann þar
lengst af hjá Mjólkursamsölunni til
ársins 1940. Lára hefur tekið þátt í
starfi Kvenfélags Háteigssóknar um
margra ára skeið og var í stjórn
þess í 15 ár, þar af formaður í 4 ár.
Á 30 ára afmæh félagsins var hún
kosin heiðursfélagi þess.
Fjölskylda
Lára giftist 19.10.1940 Hauki Egg-
ertssyni, f. 8.11.1913, útvarpsvirkja-
meistara og fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra Plastprents hf., en
hann var annar af stofnendum þess
fyrirtækis. Foreldrar hans voru
Eggert K. Konráðsson, bóndi og
hreppstjóri að Haukagih í Vatnsdal,
og kona hans, Ágústína G. Gríms-
dóttir frá Syðri-Reykjum í Bisk-
upsstungum.
Lára og Haukur eiga 3 börn: Egg-
ert, f. 19.4.1942, viðskiptafræðingur,
kvæntur Sigríði Teitsdóttur, kenn-
ara frá Brún í Reykjadal, og eiga þau
3 börn; Ágústa, f. 29.6.1945, tónhst-
arkennari, gift Jónasi Ingimundar-
syni píanóleikara og þau eiga 3 böm
og eitt barnabarn; Böðvar Láms, f.
11.10.1946, d. 19.4.1987, viðskipta-
fræðingur, var kvæntur Ásu Guð-
mundsdóttur skrifstofumanni. Þau
eiga eitt barn. Barnabörn Láru eru
7 og eitt barnabarnabarn.
Af systkinum Láru komust til fuh-
orðinsára tíu systur og einn bróðir
en ein systir dó í frumbernsku. Af
þeim sem upp komust eru 6 systkini
hennar látin en fimm systur hennar
eruálífi.
Foreldrar Lám voru Böðvar
Magnússon, bóndi og hreppstjóri að
Laugarvatni, og kona hans, Ingunn
Ólafsdóttir húsfreyja.
Ætt
Föðursystir Lám var Guðrún, móð-
ir Ragnheiðar Jónsdóttur rithöf-
undar, móður Sigrúnar Guðjóns-
dóttur myndhstarmanns.
Böðvar var sonur Magnúsar, b. í
Holtsmúla á Landi, Magnússonar,
Lára Böðvarsdóttir.
b. á Stokkalæk, bróður Guðrúnar,
langömmu Hrafnkels Helgasonar
yfirlæknis.
Móðir Böðvars var Arnheiður
Böðvarsdóttir, b. á Reyðarvatni,
Tómassonar og konu hans, Guörún-
ar Hahdórsdóttur, b. í Þorlákshöfn,
Jónssonar.
Móðurbróðir Láru var Brynjólfur,
langafi Víglundar Þorsteinssonar,
formanns Félags íslenskra iðnrek-
enda.
Ingólfur Kristjánsson,
Sólvöhum 4, Akureyri.
Klinborg Sigurðardóttir,
Háengi 3, Selfossi.
Elínborg verður utanlands á af-
mæhsdaginn.
Júliana Guðrún Ragnarsdóttir,
Keilufelli 14, Reykjavík.
Hún og maöur hennar, Guðni Þor-
steinsson, taka á raóti gestum á
Naustinu laugard. 28.8. á mhli kl.
14 Og 17.
Minna Christensen,
Hvanneyrarbraut 19, Siglufirði.
Geir Sævar Guðgeirsson,
Tungubakka 14, Reykjavík.
Lúðvík Magnússon,
Holtsgötu 29, Njarðvík.
Jóhann Hlíðar,
Bakkaseli 14, Roykjavík.
Sigrún Sigurpálsdóttir,
Hjaltabakka 32, Reykjavík.
Guðmundur I. Ágústsson,
Heiðargerði 17, Vogum.
Kjartan T. Ingimundarson,
Flúðaseh 88, Reykjavik.
Sveinbjörn Eiríksson,
Garðavegi 6, Keflavík.
Ingólfur Arnarson,
Fífuhvammi 39, Kópavogi.
Hann og kona hans taka á móti
gestum á heimili sínu fóstud. 27.8.
ámillikl. 18og21.
Jóhann Friðrik Kárason,
Kleppsvegi 130, Reykjavík.
Guðmundur Sveinsson,
Bakka, Borgarfiarðarhreppi.
Hrafnhiidur Þórarinsdóttir,
Skólatúni, Vogum.
Gestur Jónsson,
Ljóshehnum 18, Reykjavík.
Elín Magnfreðsdóttir,
Sundstræti 27, ísafirði.
Auður Trygggvadóttir,
Hæðargarði 4, Reykjavík.
Helgi Walter Ágústsson,
Fífuseli 30, Reykjavík.
Páh Rúnar Elísson,
Maríubakkal2, Reykjavík.
Sveinn Georg Davíðsson,
Birkimel 10, Reykjavik.
Sigfús Indriði Bragason,
Iöufelli 10, Reykjavík.
HilmarSæbergÁsgeirsson,
Austurbergi 36, Reykjavík.
Erla Guðjónsdóttir,
Reykjanesvegi 42, Njarðvík.
Sigurveig Gunnarsdóttir,
Hafraholti 32, ísafirði.
Svanhvít Jóhanna Jónsdóttir,
Tjaldanesi I, Saurbæjarhreppi.
Pétur Árnmarsson,
Kirkj ubæj arbrau 111, Vestmanna-
eyjum.
Kristíu J. Siguij ónsdóttir,
Hverfisgötu 39, Reykjavík.
Ingveldur Gestsdoi i ir.
Brunnum 20, Patreksfirði.
Guðsteinn Frosti Hermundsson,
Egilsstöðum, Vfilingaholtshreppi.
Svidsljós
Þessir krakkar voru á námskeiði hjá Tónabæ en skemmtiatriði þeirra á karnivalhátíðinni voru Grease-dansar sem
þeir lærðu á námskeiðinu.
Kamivalhátíð
Sumarnámskeið fyrir böm voru upp á það var slegið upp karnival- inga. Hver hópur hafði æft skemmti-
haldin í öllum félagsmiðstöðvum í hátíð í Hljómskálagarðinum. atriði á námskeiðinu og var því
Reykjavík í sumar. Þeim lauk um Þangað mættu allir hóparnir og margt skemmthegt að sjá í Hljóm-
miðjan ágústmánuð og th að halda voru ahir klæddir í skrautlega bún- skálagarðinumþennandag. -HMR
Útimarkaður
í Hveragerði
Það færist stöðugt i vöxt að útimarkaðir séu haldnir - ekki aðeins á
höfuðborgarsvæðinu heldur víðs vegar um land. Sunnudaginn 22. ágúst
var útimarkaður í Hveragerði sem margir sóttu enda fjölbreytt vöruval.
Sölutjaldið var við Breiðumörk og margir voru með vörur á borðum
úti enda veður gott. DV-mynd Sigrún Lovísa, Hveragerði
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Selfossi skorar hér með á gjaldend-
ur sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru
álögð 1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjald-
daga til og með 15. ágúst 1993 og eru til innheimtu
hjá ofangreindum innheimtumanni, að greiða þau
nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu
áskorunar þessarar.
Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, sérstakur tekjuskatt-
ur, útsvar, aðstöðugjald, eignarskattur, sérstakur
eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilis-
starfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. 1. nr.
67/1971, slysatryggingagjald atvinnurekenda skv.
36. gr. 1. 67/1971, atvinnuleysistryggingagjald,
kirkjugarðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra,
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launa-
skattur, bifreiðaskattur, slysatrygging ökumanna,
þungaskattur skv. ökumælum, viðbótar- og auka-
álagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtana-
skattur og miðagjald, virðisaukaskatturaf skemmtun-
um, skipaskoðunargjald, lestagjald og vitagjald,
vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innl. framleiðslu, að-
flutningsgjöld og útflutningsgjöld og útflutnings-
ráðsgjald, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verð-
bætur á ógreitt útsvar. Einnig virðisaukaskattur ásamt
gjaldföllnum virðisaukaskattshækkunum, stað-
greiðsla opinberra gjalda og staðgreiðsla trygginga-
gjalds, ásamt vanskilafé, álagi og sektum.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum 15 dög-
um frá birtingu áskorunar þessarar, samkvæmt heim-
ild í 9. tl. 1. mgr. 1. gr„ sbr. og 8. gr. laga nr. 90/1989
um aðför.
Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur
fjárnámsgerð í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr.
10.000 fyrir hverja gerð. Þinglýsingargjald er kr.
1.000 og stimpiigjald 1,5% af heildarskuldinni, auk
útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvatt-
ir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþæg-
indi og kostnað.
Jafnframt tilkynnist að gjaldendur virðisaukaskatts,
staðgreiðslu og tryggingagjalds mega búast við því
að atvinnurekstur þeirra verði stöðvaður af lögreglu
án frekari fyrirvara.
24. ágúst 1993.
Sýslumaðurinn á Selfossi