Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1993, Blaðsíða 4
4
MÁNUÐAGUR 6. SEPTEMBER 1993
Fréttir
Saksóknari vísar frá kæru á hendur Akureyrarbæ:
Alveg Ijóst að þessu
máli er ekki lokið
- segir formaður Trésmiðafélags Akureyrar
Gylfi Kristjánssan, DV.'Akureyri;
„Þaö kemur auðvitaö á óvart þegar
embættismenn færast undan því að
taka á lögum og tryggja mönnum
rétt sem þeir eiga vemdaðan sam-
kvæmt lögum," segir Guðmundur
Ómar Guðmundsson, formaður Tré-
smiðafélags Akureyrar, um þá
ákvörðun ríkissaksóknara að vísa
frá kæra félagsins á hendur Akur-
eyrarbæ og Akureyrarhöfn fyrir að
nota ófaglærða menn við trésmíöa-
vinnu vegna hafnarframkvæmda.
„Það er alveg ljóst að þessu máli
er ekki lokið. Mér finnst verst viö
niöurstöðu saksóknara að hann
blandar saman tvennum lögum sem
aðeins að hluta til fara saman, bygg-
ingarlögum og iðnaðarlögum. Iðnað-
arlög eru miklu víðtækari og ná yfir
ákvæði í byggingarlögum og það eru
ótal iðngreinar sem standa utan
byggingarlaga og eiga að ujóta
vemdar.
Það er merkilegt að það skuli ekki
talinn iðnrekstur í atvinnuskyni sem
Akureyrarbær og höfnin eru aö gera.
í mínum huga er það Ijóst að þama
er um beina samkeppni að ræöa viö
iðnaöinn í landinu. Nær allar verk-
legar framkvæmdir á vegum Akur-
eyrarbæjar em boðnar út en það
hefur ekki verið gert hjá Akureyrar-
höfn. Þar hafa hins vegar verið
fengnir verktakar á stundum til að
vinna ákveðna verkþætti. En í um
10 ár höfum við staðið í þæfingum
við Akureyrarhöfn á þessu sviði. Við
mimum skoða þetta mál vel og at-
huga um framhald þess en ég tel all-
ar líkur á því að við látiun reyna á
rétt okkar í þessu máli,“ segir Guð-
mundur Ómar.
Leiksvæði við Miklubraut:
Gróðurbelti
skýli ffyrir
umferðinni
Framkvæmdir em hafnar við lítið
íþrótta- og leiksvæöi á grasfletinum
við Stigahlíð og Bogahlíö og er gert
ráð fyrir að þeim ljúki síðar í þessum
mánuði. Fyrirhugaö er að gera lítinn
körfuboltavöll með einni körfu, auk
þess sem sett verður upp átthymd
klifurgrind og bekkur og borð.
Körfuboltagrindin og klifurgrindin
verða settar upp í þessum mánuði
en plöntur umhverfis leiksvæðið
veröa ekki gróðursettar fyrr en
næsta vor.
Ingibjörg Kristjánsdóttir, deildar-
stjóri umhverfismála hjá Borgar-
skipulagi, segir að mikið gróðurbelti
verði gróðursett umhverfis leik-
svæðið og því ætti krökkum þar ekki
að stafa hætta af umferöinni á Miklu-
braut og í Stakkahlíö. Hún segir að
ekki sé um hefðbundinn leikvöll fyr-
ir yngstu krakkana að ræða. Svæðið
sé heldur hugsað fyrir krakka í eldri
kantinum. -GHS
-ramkvæmdir eru hafnar við lítinn körfuboltavöll og leiksvæði á grasvellinum við Bogahlíð og Stakkahlíð í Reykja-
/ik. ingibjörg Kristjánsdóttir hjá Borgarskipulagi segir að svæðiö sé hugsað fyrir krakka í eldri kantinum. Heilmik-
ð gróðurbelti verði umhverfis svæðið þannig að krökkunum stafi ekki hætta af umferðinnl á Miklubraut.
Ræstingar í dómskerfmu:
Danskt-íslenskf
fyririækimeð
Fulltrúar dómsmálaráðuneyt-
isins skrifuöu í síðustu viku und-
ir samning við dansk-íslenska
fyrirtækið ISS-þjónustuna um
hreingerningar í níu stofhunum.
Stofhanimar era meðal annars
Lögreglan i Reykjavík, Héraðs-
dómur Reykjavíkur og Reykja-
ness, RLR, Landhelgisgseslan og
húsakynni sýslumanna á höfuð-
borgarsvaKlinu.
Verkið var boðið út í vor og átta
aðiiar buöu í verkið, þar á meðal
Securitas. Tilboö ISS hljóðaði upp
á tæpar 117 milljónir fyrir næstu
fimm árin, eða um 70 prósent af
kostnaðaráætlun, þannig aö
kostnaður ríkisins vegna þessá
verður um 23 milljónir á ári.
ISS-þjónustan var stofnuö í
mars á þessu ári og er að meiri-
hluta til í eigu dansks fyrirtækis
sem ber sama nafn. Það fyrirtæki
starfar í meira en 15 löndum og
hjá þvi vinna um 135 þúsund
manns. -bm
Sæf ari á sölu
ogáhöfninni
sagtupp
Hafórninn hf. á Akranesi hefur
ákveðið að selja fiskiskipiö Sæf-
ara, 200 tonna skip sem nú er á
rækju og leggur upp hjá Siguröi
Ágústssyni í Stykkishólmi. Hefur
öllum skipverjum, átta talsins,
veriö sagt upp störfum frá og með
1. september.
„Við erum með skipið á rækju
en í kvótasamdrætti verðum viö
náttúrlega aö reyna að hagræöa
sem best við getum. Því höfum
við veriö með skipiö á sölu og
vonumst til aö geta selt það fyrir
áramót," sagði Kristófer Olivers-
son, framkvæmdastjóri Hafarn-
arins, við DV.
Kristófer segir Sæfara ekki
henta útgerðarmynstri fyrirtæk-
isins, sem ekki er með rækju-
vinnslu. Skipiö hafi upphaflega
verið keypt vegna kvótans.
Haförninn gerir einnig út stór-
an togara, Höfðavík, og heldur
þviáfram. -hlh
í dag mælir Dagfari
Verðlækkun, ertu vitlaus!
Enda þótt íslendingar hafi búiö við
heimasfióm í tæplega níutíu ár og
kosið yfir sig ríkisstjómir meö
reglulegu millibili til að gæta hags-
muna sinna hefur það alveg fariö
fram hjá þjóðinni til hvers ríkis-
stjómir era. Menn halda nefnilega
að ríkisstjórnir séu settar á laggim-
ar til aö gæta allsherjarhagsmuna
meðan staðreyndin er sú að lang-
flestar ríkisstjómir hafa þann til-
gang einan að passa upp á sérhags-
muni.
Þannig var Framsókn lengi viö
völd til að tryggja hagsmuni sam-
vinnuhreyfingarinnar og tókst vel
þangað til Sambandið lagðist niður
fyrir eigin mistök. Kommamir
komust viö og við í stjóm til að
þjóna alheimskomúnismanum en
ekki íslenskum ríkisborgurum og
íhaldið sat jafnan í ríkisstjóm til
aö passa upp á hagsmuni þeirra
ríku og haga frelsinu í verslunar-
og viöskiptamálum með þeim hætti
að engir fengu þar að komast nærri
nema þeir sem sátu þar fyrir. Al-
þýðuflokkurinn hefur haft þann
pólitíska tilgang að koma sínum
mönnum aö í bitlingastöður og það
með góðum árangri.
Þessar staöreyndir era rifiaðar
hér upp vegna þess aö Hagkaup
hefur nú tekið það upp hjá sjálfu
sér að flytja inn danska skinku.
Bónusverslanimar fluttu nýlega
inn tvö tonn af smjörlíki og hvort
tveggja er keypt fyrir hlægilega
lágt verð. Skinkan til að mynda og
hamborgarhryggir, sem með fylgja,
fengjust afgreiddir út úr búö fyrir
70% lægra verð en sambærileg
framleiðsla hér á landi.
Eftir því sem verslunareigendur
og innflytjendur segja era þessi
innkaup gerð til að létta neytend-
um lífið og draga þannig úr kostn-
aði við matarinnkaup en sá kostn-
aðarliður hvfiir aö sjálfsögðu þungt
á heimfiunum í miöri kreppunni.
Þetta framtak verslunareigenda
mælist ekki vel fyrir hjá kjötfram-
leiðendum á íslandi og þar af leið-
andi ekki ríkisstjóminni sem hefur
tekið að gæta hagsmuna þeirra.
Tollinum var sagt að stöðva þenn-
an innflutning en því miður mun
innflutningur á soðnu og unnu
svínakjöti ekki vera bannaður og
kjötiö komst til landsins.
En hver er þaö þá sem kemur
sérhagsmunaðilum í kjötfram-
leiðslu tfi bjargar nema gamla góða
ríkisstjómin sem er trú sínu hlut-
verki. Ríkisstjóminni íslensku
koma allsherjarhagsmunir ekki
við í þessu máli. Ríkisstjómin berst
ekki fyrir lægri framfærslu eða
ódýrari matarinnkaupum. Hlut-
verk ríkisstjómarinnar, nú sem
endranær, er aö gæta hagsmuna
þeirra fómfúsu Islendinga sem
leggja það á sig að framleiöa kjöt
sem annaðhvort selst ekki eða er
of dýrt tfi almenningur hafi efhi á
að kaupa það. Og tfi að tryggja aö
framleiöslan í landinu komi að ein-
hveiju gagni fyrir þá sem standa
að framleiðslunni, borgar ríkis-
sjóður milljarða á-mfiljarða ofan í
þágu sérhagsmunanna.
Þar af leiðandi er innflutningur á
ódýrri danskri skinku bein atlaga
að þessum hagsmunum og kemur
auövitað ekki til greina að mati rík-
isstjómarinnar. Úr því hún getur
ekki bannaö innflutninginn með
lögum er ekki nema eitt ráð eftir.
Það er að leggja jöfnunargjald á
innfluttu vörana tíl að tryggja að
sauðsvartur almúginn geti ekki
hagnast á því aö kaupa ódýrar í
matinn. Þegar þing kemur saman
mun ríkisstjómin láta það verða
sitt fyrsta verk að breyta lögunum
tfi að koma í veg fyrir svona
ábyrgðarlausan innflutning. Það er
hrein ósvinna að kaupmenn getí
komist upp með að kaupa ódýrt inn
ef það stefnir hagsmunum kjöt-
framleiðenda í landinu í voða.
Með þessum hörðu viðbrögðum
mun ríkisstjómin með fjármála-
ráðherra í broddi fylkingar standa
vörð um þá heilögu skyldu sína að
sjá til þess að vöruverð lækki ekki
að óþörfu. Ríkisstjómin má ekki
hvika í þessu máli, enda er það
stóralvarlegt mál fyrir þjóðarbúið
og fyrir almenning ef vöruverði er
hleypt lausu og lækkaö í stóram
stíl. Kaupmenn skulu ekki halda
að ríkisstjómin sé svo vitlaust að
láta plata sig með innflutningi á
danskri skinku.
Það væri nú annaðhvort að vöru-
verð lækkaði! Það væri saga til
næsta bæjar ef viöskiptafrelsið yrði
misnotað til að lækka matarreikn-
ingana hjá fólkinu í landinu. Það
máaldreigerast. Dagfari