Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 3
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 3 Fréttir Fasteignir Miklagarðs 1 Mjóddinni ganga út: Seldar á 200 milljónir Landsbankinn hefur selt jarð- hæð og hluta kjallarans í Kaup- staðarhúsinu í Mjóddinni, sem er hluti af þrotabúi Miklagarðs, til hlutafélagsins Arnarborgar fyrir um 200 milljónir króna. Kaup- samningur var undirritaður ný- lega. Arnarborg hf. er í meirihlutaeign Óttarrs A. Halldórssonar hjá ísflexi hf. sem hefur sérhæft sig í innflutn- ingi á snyrtivörum. Verslunin Kjöt og fiskur hefur haft jarðhæð húss- ins á leigu af Landsbankanum og að sögn Óttarrs verður svo áfram um ótilgreindan tíma. Hlutafélagið Amarborg var stofnað til að reka þessa fasteign í Mjóddinni. Óttarr sagði í samtali við DV að hann hefði sett tvær eignir sínar upp í kaupin en vildi ekki greina frá því um hvaða eign- ir var að ræða eða verðmæti þeirra. Eftirstöðvar eru á skuldabréfi. Gólfflötur jarðhæðarinnar, þar sem Kjöt og fiskur er til húsa, er rúmir 1990 fermetrar og Amarborg keypti um 1800 fermetra af 2200 fermetra gmnnfleti kjallarans. Öll húseignin viö Þönglabakka 1 í Mjóddinni var í eigu Miklagarðs og Landsbankinn tók hana síðan til sín á uppboði. Samkvæmt heim- ildum DV hefur Landsbankinn ver- ið að leita eftir kaupendum að allri húseigninni en ekki tekist. Eftir er að selja 2. og 3. hæð hússins og þann hluta kjallarans sem Arnar- borg keypti ekki. Önnur hæöin er núna í leigu undir útsölumarkað en þriðja hæðin hefur aldrei verið tekin í notkun nema að litlum hluta. -bjb :pSÍS» Seðlabankinn: Bankamirhafa tilefnitil frekari lækkana Seðlabankinn ákvað í gær að lækka vexti í viðskiptum við banka og sparisjóði um 1 til 1,5 prósentustig næsta vaxtabreytingadag, eða 21. október nk. Eingöngu er um að ræða vexti af skammtímaskuldbindingum. í yfirlýsingu Seðlabankans er þess vænst að vaxtalækkunin hafi á næst- unni áhrif til lækkunar á vexti óverð- tryggðra skuldbindinga banka og sparisjóða. Forráðamenn seðlabankans segja að raunar gefi lækkun verðbólgu bönkum og sparisjóðum tilefni til enn frekari vaxtalækkunar heldur en þessi 1-1,5 prósent „enda eru seðlabankavextir nú þegar í mun betra samræmi við verðbólgustig en vextir banka og sparisjóða," segir í yfirlýsingu bankans. Seðlabankinn segir að útht sé fyrir 2 til 2,5 prósenta verðbólgu á síðasta þriðjungi ársins miðað við lánskjara- vísitölu, samanborið við nærri 5% á öðrumársþriðjungi. -bjb Garðabær: Skoðanakönnun og uppstilling fyrirkosningar Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ samþykkti á fundi sínum á fimmtudaginn að láta fara fram skoðanakönnun innan fulltrúaráðs flokksins og stilla frambjóðendum upp á hsta Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor. Búist er við að skoðanakönnun- in fari ekki fram fyrr en í lok janúar á næsta ári. Nokkur ágreiningur varð á fundi fuhtrúaráðsins um hvort haldið yrði prófkjör eða gerö skoðanakönnun en ungir sjálfstæðismenn í Garðabæ kröfðust þess nýlega að haldið yrði prófkjör í bænum. Sjáífstæðismenn hafa fimm fuh- trúa í bæjarstjórn Garðabæjar en flokkurinn hlaut 67,4 prósent at- kvæða í síðustu sveitarstjórnarkosn- ingum en ekki er vitað hvort allir bæjarfulltrúar flokksins gefa kost á sérínæstukosningum. -GHS Sýning með 20 risaeðlum Fyrirhugað er að setja upp sýningu á 15 til 20 risaeðlum í húsnæði verð- andi hstaháskóla í Reykjavík á næsta ári. Risaeðlumar verða í raunveru- legri stærð og munu hreyfast og gefa frá sér ýmis hljóð, auk þess sem ljós og leikmyndir munu auka áhrif sýn- ingarinnar. Þá verður útbúin afsteypa af fót- sporum risaeðlu í fullri stærð. Ýmiss konar fræðsluefni verður á boðstól- um og verður sérstök aðstaða fyrir börn. Um er að ræða samstarfsverk- efni umhverfisráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og Háskóla ís- lands. -GHS Sævarhöfða 2 sím.i 91-674000 IMISSAIM FORSÝNING NISSAN TERRANO II Sýnum nú um helgina nýjan öflugan NISSAN jeppa ó fólksbílaverði Hann er breiöari. Hann er lengri. Opiö laugardag 14-17 Hann er sjö manna. Hann er ódýrari. sunnudag 14-17

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.