Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Side 8
8 LAUGARDAGIJR 16. OKTÓBER 1993 Vísnaþáttur Ofteru í glösum • rf fongin íin Til er enskt máltæki sem hljóðar svo: „Þúsundir drekka sig í hel á móti hverjum einum sem deyr úr þorsta." Ekki treysti ég mér til að leggja dóm á sannleiksgildi þeirra orða, en aftur á móti er ég nokkuð viss um aö Mark Twain hefur haft rétt fyrir sér þegar hann sagði: „Stundum eru of mikil drykkjar- fbng ekki nærri nóg“, því mér er Ijóst að meðalhófið er vandratað. Teitur Hartmann hefur talað af reynslu þegar hann kvað: Flaskan verður fótakefli flestum sem að hana tæma. Vín er mannsins ofurefli eftir sjálfum mér að dæma. Eiríkur Jónsson er sagður höf- undur næstu vísu, en á honum veit ég engin deih: Mikhl fjandi mér varð á manndóm sem ég týni. Óstöðvandi er mín þrá eftir brennivíni. Þá er hér staka eftir óþekktan höfund, sem hefur gert sér góða grein fyrir hættum mannlífsins og vonandi sneitt hjá þeim: Óskasteinn er strjálastur steina á mannlífs heiðum, en Alkahóh er hálastur hóla á flestra leiðum. Þórarinn Bjamason, jámsmiður í Reykjavík (1877-1966): Virða löngum vihir geð víns of löngu kynni. Verða löngum viðsjár með viti og lönguninni. Bjami Jónsson frá Gröf: Á drykkju er ég alveg bit oft þó finnist gaman. Ekki tel ég vín og vit vhji búa saman. Góðkunningi minn, Árni Helga- son í Stykkishólmi, telur Kristján Eldjárn fyrrverandi forseta okkar ahra, höfund næstu vísu: Að eyða sínum ævidögum í átveizlur og drykkjukhð er brot á guðs og lífsins lögum og hggur dauðarefsing við. Áfengið getur jafnvel orðið klerk- um skeinuhætt. Helgi Sveinsson, prestur í Hveragerði: Löngum hefur böhð bætt bragð af sterkum vínum. Þá er orðiö helzt th hætt hehagleika mínum. Ólafur Jóhann Sigurðsson er sagður höfundur eftirfarandi stöku, en ég veit ekki hvort þar er átt við rithöfundinn og ljóðskáldið sem er öllum íslendingum kunnur, eða hvort um alnafna hans er að ræða. Öllum spihir ofdrykkjan. Ástin villir hviklyndan. Gulhð vihir margan mann. Montið fylhr heimskingjann. Markús Hallgrímsson, verka- maður í Rvík (1900-1965): Mér er gleðigyðjan kunn, gleymi fomum meinum, flöskustút og meyjarmunn meðan faðma í leynum. Einhver orðhagur maður hefur kallað ofdrykkjuna sjálfsmorð í dropatah. Þaö hefur Albert á Reynistað (hver svo sem hann er) verið ljóst, þegar hann kvað: Fulla af táh faðma ég þig flaskan hála og svarta, þótt í báh brennir mig bæði í sál og hjarta. Þá kemur hér bjórvísa eftir sveitamann, aðvörun sem var ekki sinnt, því miöur: Góðir landar, okkur er ærinn vandi á höndum, ef á að blanda bjórinn hér í böli fjandans stöndum. Ókunnur höfundur lýsir áhrifum bjórsins þannig: Öhð leggur aht í rúst, ármenn sína bindur. Örfljótt verður eymdarþúst áður gæfu tindur. Oddný Guðmundsdóttir, kennari og skáldkona, hefur gert sér glögga grein fyrir hver áhrif það gæti haft að heimha innflutning og bmggun bjórs hér heima. Fyrirsögn hennar er: Guðaveigar Fróði var frægur kóngur. Fjölnir sótti hann heim. Þá var nú vegleg veizla. í viku rann ekki af þeim. Frægur var mjöður Fróða og ferlegt hans drykkjarker. Fjölnir steyptist í stampinn þann stóra, og týndi sér. Stækkar nú stampur Fróða, með stígandi mjaöarflóð. Og hvílíkur dauðans drykkur! Hann drekkir nú hehli þjóð. Torfi Jónsson Hahdóra B. Björnsson skáldkona: Oft eru í glösum föngin fin, freistingin á hvers manns vegi. Margur drykki minna vín myndi hann eftir næsta degi. Friðjón Stefánsson: Timbur þola margur má, margan hefur talsvert þyrst. En skyldu menn drekka eins þrotlaust þá ef þetta timbur kæmi fyrst? Annað og ekki minna vandamál, bundið neyslu áfengra drykkja, er lausmælgin sem henni fylgir og orðið hefur mörgum manninum dýrkeypt, því töluð orð verða ekki aftur tekin. Það er Steinn Steinarr sem á lokaorðin að þessu sinni með eftirfarandi stöku úr Hhðar-Jóns rímum: Fljúga hlkvittnust skot og skeyti, skapið hitnar ört th sanns, oft á skytning öls við teiti ahur vitnast hugur manns. Torfi Jónsson Matgæðingur vikunnar Kjúklinga- réttur - af spænskum ættum „Þetta er uppáhaldsréttur fjölskyldunnar og hefur verið það th margra ára,“ sagði ída Sveinsdóttir meina- tæknir sem er matgæðingur helgarblaðs DV þessa helgina. „Ég fann þessa uppskrift í þýsku blaði fyrir um það bil tuttugu árum. Hún ávann sér strax heiðurs- nafnbótina: Allt gott í potti eitt sem þýðir að af öhum pottréttum er þetta pottréttur númer eitt á heimilinu. Þetta er afskaplega einfaldur og þæghegur réttur." Uppskriftin er fyrir fjóra. í réttinn fer eftirfarandi: 1 kjúklingur 1 htið glas af grænum ólífum 2-3 hvítlauksrif 1 súputeningur (kjúklingakraftur) 2 tómatar salt svartur pipar paprikuduft basilikum timiam cayennepipar Aðferó Kjúklingurinn er hlutaður í sundur og kryddaður vel með salti, pipar, paprikudufti, timiam og bashik- um. Bitarnir eru síðan steiktir í olíu á pönnu og brún- aðir vel á báðum hliðum. Síðan eru þeir settir í pott og vatni heht yfir þannig að það fljóti vel yfir. Súpu- kraftinum og pressuðum hvítlauknum síðan bætt út í. Þetta er látið malla í um það bil 30 mínútur. Eftir u.þ.b. 25 mínútur er niðurskomum tómötum og ólífum bætt út í og bragðbætt með cayennepipar. Soðið not- ast síðan sem súpa. Rétturinn er borinn fram með hrísgijónum og hvít- lauksbrauði. Athugið: Látið ykkur ekki detta í hug að sleppa ólífunum þvi þær eru punkturinn yfir i-ið! ída sagðist vera nokkuð dugleg við að prófa nýja rétti. Heimihsfólkiö væri mjög iðið við að taka þátt í þeim thraunum. „Það á jafnt við um bömin og bónd- ann,“ sagði hún. „Við notum mikið pasta hér á heimil- ída Sveinsdóttir. inu og einnig heilmikið grænmeti. Svo borðum við bara þetta hefðbundna, fisk og kjöt, en minnst af stór- steikum. Ég er ekkert ofsalega hrifin af þungum kjöt- máltíðum.“ ída varpar boltanum th Katrínar Gústafsdóttur ræst- ingastjóra. „Við bjóðum hvor annarri oft í mat og hún er mikhl kokkur að mínu mati.“ Hinhliðin Horfi aldrei á sjonvarpið - segir Ámi Ibsen, leiklistar- og bókmenntaráðunautur „Ég horfi aldrei á sjónvarpið nema þá á veðurfregnirnar," segir Ámi Ibsen, leikhstar- og bók- menntaráðunautur Þjóðleikhúss- ins, sem sýnir á sér hina hliðina í dag. Nýlega var frumsýnt leikrit hans, Ehn Helena, og hefur það hlotið mjög góöa dóma. Fullt nafn: Árni R)sen Þorgeirsson. Fæðingardagur og ár: 17.5.48. Maki: Hhdur Kristjánsdóttir. Börn Þrír synir, Kári, Flóki og Teit- ur. Bifreið: Honda Civic 1989. Starf: Leikhstar- og bókmennta- ráðunautur Þjóðleikhússins. Laun: Misjöfn, en ég læt þau duga. Áhugamál: Bókmenntir, leikhús, fólk. Hvað hefur þú fengið margar réttar tölur i lottóinu? Þrjár. Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Lesa ljóð. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Setja verið utan um sæng- urnar. Uppáhaldsmatur: Harðfiskur. Uppáhaldsdrykkur: Kaffi og te. Hvaða íþróttamaður finnst þér standa fremstur í dag? Michael Jordan. Uppáhaldstímarit: Ský og Bjartur. Ámi Ibsen. Hver er fallegasta kona sem þú hefur séð fyrir utan maka? Blökku- kona sem ég sá í svip á neðanjarð- arstöð í London fyrir mörgum árum. Ertu hlynntur eða andvígur rikis- stjórninni? Andvígur. Hvaða persónu langar þig mest til að hitta? Æth þaö myndi ekki vera Róbert Creeley ljóöskáld. Uppáhaldsleikari: Leikararnir í mínum leikritum. Uppáhaldsleikkona: Sama svar. Uppáhaldssöngvari: Jose Careras. Uppáhaldsstjórnmálamaður: Eng- inn. Uppáhaldsteiknimyndapersóna: Hermann. Uppáhaldssjónvarpsefni: Veður- fréttir. Ertu hlynntur eða andvígur veru varnarliðsins hér á landi? Andvíg- ur. Hver útvarpsrásanna finnst þér best? Mér finnst gamla Gufan skást. Uppáhaldsútvarpsmaður: Hahdóra Friðjóns og Jórunn Sigurúar. Hvort horfirþú meira á Sjónvarpið eða Stöð 2? Eg horfi aldrei á sjón- varpið, nema þá á veðurfregnimar. Uppáhaldssjónvarpsmaður? Hún Unnur Ólafs veðurfréttakona. Uppáhaldsskemmtistaður: Þjóð- leikhúskjallarinn. Uppáhaldsfélag í íþróttum: ÍA og Haukar. Stefnir þú að einhveiju sérstöku i framtíðinni? Að verða svolítið skárri. Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Fór til Portúgals.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.