Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Qupperneq 10
10 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 Saumakonur hafa nóg að gera: Islenskar konur yilja ekki Marilyn Monroe kjóla - segja Hulda Kristinsdóttir og Eva Kristjánsdóttir, kjólameistarar og klæðskerar Eva Hildur Kristjánsdóttir og Hulda Kristinsdóttir eru klæðskerar og geta kallað sig kjólameistara um áramót- in. Þær hafa nóg að gera við að búa til samkvæmisdress á konur og karla fyrir árshátiðir vetrarins. DV-mynd Brynjar Gauti Kjóll sem Hulda saumaði og var sýndur á tískusýn- Síðir samkvæmiskjólar eru mjög að ryðja sér til rúms ingu á Hótel Borg fyrir stuttu. og verða allsráðandi á árshátíðum vetrarins. „Ég fann breytingu á síðasta ári í þá veru að konur vildu láta sauma á sig síða kjóla fyrir árshátíðir og nýársfagnaði. Á tímabili vann ég dag og nótt við saumaskapinn. Nú er sams konar timabil að ganga í garð,“ segir Hulda Kristinsdóttir sem nýlega opnaði Kjóla- og klæð- skeragallerí í Listhúsinu ásamt Evu Hildi Kristjánsdóttur. Þær Hulda og Eva útskrifuðust báðar úr Iðnskólanum sl. vor. Þær eru klæðskerar og geta titlað sig kjóla- meistara um áramótin. „í nóvember er mikið um árshá- tíðir og konurnar að byrja að huga að þeim. Reyndar mættu þær vera fyrr á ferðinni því þetta endar allt- af í því að við erum að sauma langt fram á nótt á síðustu stundu," seg- ir Hulda sem var að sauma smók- ingfót á herra þegar helgarblaðið leit í heimsókn. Hulda og Eva segja að þegar kreppir að í efnhagslífi þjóða kjósi konur að ganga í fallegum og vönd- uðum kjólum. Þá velji þær fremur að láta sauma á sig enda eiga þær þá ekki á hættu að mæta annarri konu í eins kjól. „Þaö er engin hætta á siíku,“ fullyrða saumakon- urnar enda segjast þær aldrei mundu sauma tvo eins kjóla. „Gamhr klæðskerar hafa sagt mér að þegar kreppir að velti fólk mikið fyrir sér hvað það fái fyrir peninginn og þá velji það að láta sauma á sig. Meö því að láta sauma er fólk öruggt að fá þá flík sem það langar í. Yfirleitt þarf að breyta dýrum kjólum, sem keyptir eru út úr búð, eitthvað þannig að þeir passi konunni fullkomlega. Það sama gildir um karlmenn með t.d. smókingfót. Hins vegar geta fötin misst snið ef t.d. þarf að stytta bux- ur mikið, víkka mittið eða stytta ermar," segir Hulda. Lítið úrval í verslunum „Síðan er eins og verslanir séu hræddar viö að kaupa inn dýra fina kjóla þegar minni fjárráð eru í þjóðfélaginu. Þess vegna er ekki mikið úrval af glæsikjólum í versl- unum. Þetta var sérstaklega slæmt í fyrra en þá var eins og gleymst hefði að panta flna kjóla til lands- ins,“ segir Hulda. „Mjög algengt er einnig að konur kaupi efni í útlöndum og komi með þau heim enda eru góð efni dýr hér á landi,“ segir Huida. Misjafnt er hvernig efni konur velja en í fyrra voru pallíettuefni mjög vinsæl í kjóla. Slíka kjóla kostai' um tuttugu og fimm þúsund að sauma. Hulda segir að brúðarkjóll sé dýrasti kjóllinn sem hún hafi saumað en hann kostaði um eitt hundrað þús- und. Dýrasti ballkjóllinn var hins vegar um sextíu þúsund. Kjóll úr fjörutíu ára efni Konur, sem láta sauma dýra kjóla á sig, nota þá síðan yfirleitt aðeins einu sinni og fá sér nýjan á hveiju ári. „Ég er að fara að gera kjól úr fjörtíu ára gimlu efni og hugsa um það dag og nótt hvemig best sé að sníða hann,“ segir Hulda. Misjafnt er hversu miklar línur eigandi efnisins leggur fyrir saumakonuna. „Stundum koma konur með úrklippu úr blaði, jafn- vel myndband og vilja sérstakan kjól sem þær hafa séð í sjónvarps- þætti. í öðrum tiifellum er beðið um hálsmál af einum kjól, bakhluta af öðrum og ermar af þeim þriðja þannig að einn kjóll getur verið samsettur úr mörgum. Það er varla hægt að tala um eina tísku í þessu sambandi," segir Hulda ennfrem- ur. Hún segist hafa gert marga kjóla úr chiffon-efnum, einnig hafa svartir kjólar með gylltum skreyt- ingum verið vinsæhr. „íslenskar konur eru mjög ragar við að vera áberandi. Við fórum til New York í fyrravor og heimsótt- um marga þekkta hönnuði og þar var verið að búa til glæsilega Mari- lyn Monroe kjóla sem leggjast þétt að líkamanum. íslenskar konur fara ekki í þannig kjóla og þær töluðu reyndar talsvert um að pallíettukjólarnir, sem voru mikið í fyrra, væru of mikið glamúr," segir Hulda og undirstrikar að kjól- inn verði auðvitað að hæfa líkams- vexti þeirrar konu sem á að bera hann. „Allar þær konur, sem ég hef rætt við núna, vilja látlausa kjóla en vera fínar,“ segir Hulda. Samkvæmis- dömurnar leigja ekki kjóla Konur hafa annan möguleika að skarta fallegum samkvæmiskjól á árshátíðinni en þaö er að leigja hann. Hulda telur að konur sem fara á galadansleiki oft á ári leigi sér ekki kjóla. „Ég get ekki séð að konur sem stunda nýársböll og fín- ar árshátíðir leigi sér kjóla. Hins vegar er það góður kostur fyrir konur sem fara út á fimm eða tíu ára fresti eða eru að fara í brúð- kaup. Eg býst við að það séu frekar yngri konur sem nýta sér kjólaleig- ur heldur en þær eldri. Annars er ég ekki hrifin af þessum leigum og mér finnst alveg hörmulegt þegar ég skoða brúðarmyndir í dagblöð- um og sé tvær til þrjár brúðir í sama kjólnum," segir Hulda enn- fremur. Litla saumastofan þeirra Huldu og Evu er ein af mörgum sem líta dagsins ljós um þessar mundir en það sýnir einmitt þörfina. Báðar höfðu starfað heima við áður en gefist upp á því. Hulda er með stórt heimili, fjögur börn og tengdadótt- ur, og segist ekki hafa haft nægileg- an frið inn á heimilinu til að vinna. Þær eru mjög hrifnar af Listhúsinu og segjast vera ánægðar með að vera innan um listina. Frá Afríku í iónskólann Hulda og Eva kynntust í skólan- um. Hulda var 38 ára þegar hún ákvað að fara í skólann og var þá með unga tvíbura og unglinga. Hulda hafði saumað í mörg ár, sér- staklega bamafót, þegar hún ákvað að fara í skólann. „Ég bjó ásamt fjölskyldu minni í Afríku í þrjú ár en eiginmaður minn starfaði þar fyrir danska utanríkisráðuneytið. Þegar ég kom hingað heim tók það mig tvö ár að venjast aftur hraðan- um og þá eignaðist ég tvíbura," segir Hulda. „Ég var heimavinn- andi húsmóðir í fjögur ár, fór reyndar í öldungadeild Verslunar- skóla íslands og lauk þaðan versl- unarprófi, og ákvað síðan að fara í iðnskólann og ná mér í réttindi sem kjólameistari og klæðskeri. Vinkonum mínum fannst það mjög fyndið þegar ég ákvað að setjast á skólabekk og læra að verða sauma- kona. Þær hlæja ekki lengur enda njóta þær góðs af kunnáttu minni.“ Eva hafði lengi ætlað að læra fataiðn og hafði sótt um að komast í skólann þrisvar þegar hún loks komst inn. Hún hafði saumað öll föt á sig frá þrettán ára aldri. „Það er mjög erfitt að komast inn í deild- ina enda eru alltaf miklu fleiri sem sækja um en inn komast," segir Eva. í stuttu meö lærin í skónum Þær Hulda og Eva Hildur segjast taka vel eftir hvernig konur klæða sig. „Ég á bágt þegar ég kem á skemmtistaöi og sé að það eru allt- af þessar með lærin í skónum sem ganga í stuttu pilsunum. Eða kon- umar sem eru í pilsum niður á miðja kálfa sem er algjör hallær- issídd. Ég vil að konur með fallega fætur gangi í stuttu en hinar séu í sídd sem sé fyrir neðan kálfa. Ann- ars undirstrika þær feita fótleggi," segir Hulda. Mjög mikið er um að konur saumi sjálfar heima og hefur það aukist töluvert eftir að harðna fór á daln- um. Hulda og Eva Hildur hafa orð- ið mjög varar við það enda ætla þær að halda saumanámskeið og aðstoða konur við grunnatriðin á næstunni milli þess sem þær sauma galakjóla á samkvæm- isdömurnar. -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.