Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Side 15

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Side 15
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 15 | s j. i I 1. 1 njí j » Musteri spillingarinnar Undangengin vika hefur um margt verið merkileg. Fréttamenn hafa stungið á kýlum þannig að gröftur- inn vellur út. Kýlunum hefur íjölg- að dag frá degi og ekkert lát virðist á. Spillingin og siðleysið, sem þrífst í efstu stigum þjóðfélagsins, er slíkt að fólki ofbýður. Skattgreiðendur, sem borga brúsann, setur hljóða. Æ oftar heyrast samlíkingar við spilhngu sem viðgengist hefur á Ítalíu og gegnsýrt samfélagið þar. Aðrir líkja ástandinu hér við það sem tíðkast í einræðisríkjum þar sem spillt yfirstéttin sópar að sér auði meðan alþýða manna lepur dauðann úr skel. Hæstiréttur skammtar sér laun Hver fréttin hefur rekið aðra. Tömin hófst með fréttum af sjálf- tekt hæstaréttardómara á launum. Þeir hreinlega bættu við sig á ann- að hundrað þúsund krónum á mán- uöi án þess að. spyrja kóng eða prest. Skynsamlegt hlýtur að telj- ast að dómarar við Hæstarétt séu vel launaðir svo þeir þurfi ekki að hafa efnahagslegar áhyggjur í vandasömu starfi. Þaö breytir þó ekki því að þau laun verða aðrir að ákvarða en dómararnir sjálflr. Þetta var þó aðeins byrjunin á máh hæstaréttardómaranna. í ut- andagskrárumræðu um máhð kom fram að dómaramir halda launum sínum til æviloka, jafnvel eftir að- eins um tíu ára starf við dóminn. Það em óneitanlega hlunnindi sem eru nokkurs virði. DV bætti svo um betur í frétt í vikunni þar sem fram kom að fimm fyrrverandi hæstaréttardómarar hafa þegið í laun og lífeyrisgreiðslur á bihnu 4 mihjónir til 5,4 mihjónir á ári frá því að þeir létu af störfum um 65 ára aldur. Þessir dómarar hafa fengið um 300 mihjónir í laun og lífeyri frá því aö þeir létu af störf- um. Sá sem lengst hefur notið þessa hlunninda fær hæstar mánaðar- greiðslur eða nær 450 þúsund krón- ur á mánuði. Alls hefur hann feng- iö um 110 mihjónir króna frá því að hann lét af störfum árið 1972. Fyrrverandi hæstaréttardómari hefur nú stefnt ríkinu og krefst þess að fá sömu launauppbót og núverandi hæstaréttardómarar hafa tekið sér með yfirvinnu- greiðslum. Fjármálaráðherra hef- ur lýst þvi yfir að ríkið muni hafna kröfu dómararans fyrrverandi og segir jafnframt að óeðhlegt sé að dómaramir haldi fuhrnn launum til dauðadags. Fróðlegt verður að fylgjast með þessu máh í dómskerfinu og ekki síst því hvernig Hæstiréttur tekur á launakröfum hæstaréttardómar- ans fyrrverandi. Fyrir leikmann er ekki annað að sjá en Hæstiréttur í hehd sé vanhæfur í máhnu. Þar eru menn í raun að dæma í eigin sök. Milljónajeppi Jóns En leikurinn æstist fyrst veru- lega þegar kom að jeppamálum seðlabankastjóra. Það gekk fram af mönnum þegar það spurðist að Jón Sigurðsson, nýráðinn seðla- bankastjóri, hefði pantað sér nær fimm mihjóna króna jeppa. Þegar seðlabankastjórinn nýráðni fann fyrir þrýstingi almenningsáhtsins gaf hann eftir og hætti við að kaupa glæsivagninn. En það var of seint í rassinn gripið hjá seðlabanka- mönnum. Boltinn hafði verið gef- inn upp og hann hætti ekki að rúha þótt glæsijeppinn kæmist ekki á seðlabankastalhnn. Gægst inn í höllina Hvert máhð rak nú annað hjá Seðlabankanum þegar menn gægð- ust inn í höhina dökku en sú glæsi- bygging hefur verið leyndarhjúpi huhn. Byggingin var umdeild frá upphafi en Jóhannes Nordal seðla- bankastjóri, sem nýlega hefur látið af störfum, fór sínu fram og must- eri mammons reis. Það var raunar ekki andskotalaust fyrir frétta- mann Stöðvar 2 að fá að skoða her- legheitin eins og sjónvarpsáhorf- endur sáu fyrr í vikunni. Það hafð- ist þó með leiðindum og frekju og varð sauðsvörtum almúganum þá ljóst að vel var við starfsmenn bankans gert, bæði líkamlega og andlega. Mötuneytið var eins og á fínu hóteh, hstasafn bankans til andlegrar uppörvunar og þá var leikfimisalurinn ekki slorlegur. Stutt myndskeið sýndi bílageymslu starfsmanna og annað bílageymslu bankastjóranna. Þar sást að Jón Sigurðsson var ekki einn í bílaleik. Birgir ísleifur Gunnarsson ekur á glæsilegum Fordjeppa og Tómas Ámason á Chevroletjeppa engu minni. Jóhannes Nordal ekur víst enn á seðlabankajeppa, Range Rov- er Vogue. Von var til þess að Jón vhdi Grand Wagoneer í safnið. LaugardagspistiU Jónas Haraldsson fróttastjóri Lúxus í sveitinni Umræðan um seðlabankajepp- ana var enn heit þegar á daginn kom að Seðlabankinn á sjö sumar- hús viðs vegar um landið. DV greindi frá þvi að brunabótamat þeirra væri tæpar 54 milljónir. Að auki hefur bankinn fjárfest í landi fyrir tugi mihjóna. Nýjasti sumar- bústaðurinn var byggður í fyrra og kostaði 13,6 mihjónir króna. Óhætt er að segja að það sé glæsilegt hús sem venjulegt fólk lætur sig ekki dreyma um, ekki stéttarfélög sem þó hafa reynt að koma upp sumar- húsum fyrir sína félaga né aðrir þeir sem óbrenglaðir teljast í fjár- málum. Flottræfilshátturinn og peningaausturinn ríður ekki við einteyming. Krónur bomar saman Almúginn kyngdi tvisvar og horfði á myndimar af glæsijeppun- um og lúxushúsunum í sveitinni. Væntanlega er og hefur verið mikið þjóðhagslegt gagn að þessari stofn- un fyrst starfsmenn hennar njóta þessara sérréttinda. Vel hlaut að vera séö fyrir peningamálum þjóð- arinnar. Var það bara misskilning- ur að við værum í miðri kreppu og launafólkið með herta sultaról- ina eftir viðvarandi þjóðarsátt og kjaraskerðingu? í miðjum þessum þankagangi var sjónvarpsviðtal við Hannes Hólmstein Gissurarson háskólakennara. Hann sagði í stuttu máh áht sitt á jeppakaupum Jóns Sigurðssonar seðlabanka- stjóra. Það væri í lagi, að mati Hannesar, að bankastjórinn fengi mihjónajeppann ef sýnt væri að peningamálum þessarar þjóðar væri vel komið. Því miður er það ekki svo, sagði háskólakennarinn og tók einfalt dæmi. Þegar við sht- um sambandi okkar við Dani var íslenska krónan jafngild þeirri dönsku. Núna er sú íslenska einn þúsundasti af þeirri dönsku. Þarf frekari vitna við? Ekki áhyggjur af skattinum En seðlabankabahið var ekki búið. DV greindi frá því á fimmtu- dag að aðalfundur Verðbréfaþings íslands í Seðlabankanum hefði á síðasta ári ákvarðað þóknun til stjómarmanna þingsins þannig að tryggt væri að skattahækkanir rýrðu ekki kjör þeirra eins og venjulegs launafólks. Þetta mun einsdæmi í bankakerfinu enda sagði stjómarformaður Verðbréfa- þingsins, Eiríkur Guðnason, sem jafnframt er aðstoðarbankastjóri Seðlabankans, degi síðar í DV að samþykktin um laun stjómar- manna væri ekki rökræn í sjálfu sér og rétt væri að breyta henni. Þetta verður þó eingöngu tekið th endurskoðunar vegna fréttar DV og málinu flýtt en ekki beðið aðal- fundar á næsta ári. Ferðaskrifstofa á fyrsta farrými Og seðlabankamenn stigu áfram menúett við landsmenn. Almúgan- um fipaðist þó aðeins í dansinum þegar Sjónvarpið greindi frá því í fyrrakvöld að seðlabankastjórar hefðu fariö í 61 utanlandsferð frá því í ársbyijun 1991. Víðfórlasti bankastjórinn, Jóhannes Nordal, sem nýlega lét af störfum, fór á þessu tímabih tuttugu og fimm ferðir, Tómas Ámason átján, Birg- ir ísleifur Gunnarsson fimmtán og Jón Sigurðsson, sem tók við í sum- ar, hefur þegar farið þijár. I fréttinni kom fram að banka- stjórarnir nytu sérkjara á ferðalög- um. Bankinn borgar ekki aðeins gistingu og morgunverð heldur og risnu samkvæmt reikningi. Ofan á þetta fá bankastjóramir fuha eða hálfa dagpeninga sem eru 18 til 23 þúsund krónur á dag. Bankastjór- arnir geta geta og boðið eiginkon- um sínum með tvisvar á ári. Bank- inn borgar flugfar og gistingu og eiginkonurnar fá hálfa dagpeninga á dag, ehefu þúsund krónur. Vart þarf að taka fram að flogið er á fyrsta farrými. Fuhyrða má að almenningur ger- ir sér ekki grein fyrir þeim lúxus sem þetta býður upp á. Flogið er á fyrsta farrými og um leið og stigið er út úr Saga Class býður lúxushót- ehð og ahur kostnaður greiddur. Að auki fá bankastjórahjónin aht að 34 þúsund krónur í dagpeninga á hveijum degi utanlandsferðar- innar. Sér einhver fýrir sér al- múgahjónin á hinum endanum sem velta því lengi fyrir sér hvort þau eigi að leyfa sér helgarferð th Dublinar á þessu eða næsta ári fyr- ir sömu upphæð og bankastjóra- hjónin fá í dagpeninga í einn dag? Siðbótarerþörf Þetta er siðblinda sem verður að taka á. Siðbhndan er víðar í kerfinu en í Seðlabankanum. Ástandið þar er þó verst hvað utanlandsferðim- ar varðar ef marka má sjónvarps- fréttina. Þar kemur i ljós að þeir 120 starfsmenn Seðlabankans, sem vinna bankastörfin, hafa farið 350 utanlandsferðir frá því á árinu 1991. Ferðakostnaður á hvem starfsmann Seðlabanka var 316 þúsund krónur. Th samanburðar var ferðakostnaður á hvern starfs- mann Landsbanka 46 þúsund og í Búnaðarbanka 27 þúsund á sama tímabih. Það mætti halda af þess- um tölum að Seðlabankinn á Am- arhóh stjómi alheimsviðskiptun- um. Það var því ekki að undra að sjón- varpsmaðurinn sagði að Seðla- bankinn minnti fremur á ferða- skrifstofu en bankastofnun. Samfara fréttum af siöblindunni í Seðlabankanum í vikunni hafa fjölmiðlar bent á önnur dæmi um forréttindi ríkisforstjóra sem virð- ast lifa í öðrum heimi en almenn- ingur á krepputímum. Ráðherrar hafa í framhaldi af því óskað eftir upplýsingum um hlunnindi í þeim stofnunum sem undir þá heyra. Breytinga hlýtur því að mega vænta og það fyrr en seinna. Bahið er ekki búið enn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.