Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 17
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 17 18 ára ballettdansari og f slandsmeistari í golfi: Golf og ballett passa vel saman - segir Tryggvi Pétursson sem auk þess stundar nám í MR „Þaö var upphaflega mamma sem sendi mig í ballett. Ég var þá átta ára og hlýddi því. Fannst að minnsta kosti allt i lagi að prófa. Síðan eru liðin tiu ár og ég er enn í ballettinum,“ segir Tryggvi Pét- ursson, ballettdansari og Islands- meistari unglinga í golfi. Mörgum finnst merkilegt að Tryggvi skub hafa náð góðum árangri á tveimur sviðum sem þar að auki teljast mjög ólík. Að auki er Tryggvi á þriðja ári í Menntaskólanum í Reykjavík, á eðlisfræðibraut. „Það fer vel saman að æfa golf og ballett," segir Tryggvi. „Vissar hreyfingar, sem ég hef lært í ball- ettinum, koma sér vel í golfinu. Ég vil einmitt þakka ballettinum hversu góðum árangri ég hef náð með kylfuna," segir hann ennfrem- ur. Mjög sjaldgæft er að íslenskir strákar fari í ballettnám, jafnvel þótt íslendingar eigi einn helsta ballettdansara heims, Helga Tóm- asson. Tryggvi hóf sitt nám í ball- ettskóla Sigríðar Ármann og er þar ennþá. Hann viðurkennir að stund- um, sérstaklega á unglingsárum, hafi komið upp togstreita hjá hon- um þar sem það þótti ekki karl- mannlegt að vera í ballett. „Ég fékk létt skot á mig,“ segir hann en síðan hef ég ekkert fundið fyrir því. „Á fyrstu árum mínum í ballettinum voru tveir strákar með mér en þeir hættu báðir. Ég hef verið einn síðan með tiu til fimmtán stelpum," segir Tryggvi og segir að þetta sé mjög skemmtilegt. „Ég hef fengið hug- dettur að hætta í ballettinum en sem betur fer hef ég ekki gert það. Að undanfömu hefur verið mjög gaman enda er námið farið að skila mér árangri," segir hann. Tryggvi útskrifaðist í sumar úr ballettnáminu en heldur áfram í vetur til að öðlast atvinnuréttindi. Lítill hraði - En af hverju fara svona fáir strákar í ballett? „Það er ekki mikill hraði í ballett- inum. ímyndin er heldur ekki mjög góð, tónlistin er ekki sú tónlist sem ungt fólk hlustar á daglega, og yfir- leitt virðist sem karlmenn séu allt- af í aukahlutverki í ballettsýning- um þar sem ballerínumar, nettar og fínlegar, vekja miklu meiri at- hygli." Tryggvi segist ekki vita hvort hann ætli að ljúka kennaraprófi þar sem það taki mikinn tíma. Þá þurfi hann að fylgjast með kennslutímum og lesa margar bækur. Þar sem hann sé á fullu í menntaskólanáminu vilji hann að minnsta kosti bíða með slíkar ákvarðanir. Tryggvi hefur lítið lát- ið á sér bera (3g hefur ekki kynnt sér starfsemi íslenska dansflokks- ins. Hann segir þó að ef hann fengi tilboð um að dansa myndi hann skoða það. „Ég hef ekkert kannaö hvaða möguleika ég á,“ segir hann en bætir við að það væri gaman að gera það. Tryggvi segir að þrír yngri strák- ar séu núna í skólanum þannig að lítil breyting hefur orðið á áhuga karlkynsins á þessari listgrein. Golfmeistarinn og ballettdansarinn Tryggvi Pétursson við heimanámið en hann er á þriðja ári i Menntaskólanum í Reykjavik. DV-mynd ÞÖK Ballettdansarinn Tryggvi Pétursson á útskriftardegi í ballettskóla Sigrið- ar Ármann. Með honum á myndinni eru Ásta Björnsdóttir kennari, til vinstri. Síðan eru þrjár ballerínur sem allar luku kennaraprófi, Rakel Pálsdóttir, Alma Guðjónsdóttir og Pálína Björnsdóttir. Auk þess er próf- dómarinn Beryl Morina og loks Sigriður Ármann. Svipað er upp á teningnum í öðrum ballettskólum. í golfið afkrafti Þegar Tryggvi flutti ásamt fjöl- skyldu sinni í Grafarvog árið 1985 fékk hann áhuga á golfi enda er stutt að fara á golfvöllinn. „Ég byij- aði strax í golfinu þegar við fluttum og hef æft af krafti síðan. Reyndar þekkti ég engan í golfinu þannig að ég tók það bara upp hjá sjálfum mér. Ég finn mér alltaf tíma til að gera það sem mig langar til þó auð- vitað geti þetta stundum rekist saman eins og í sumar þegar ég var að æfa ballettinn fyrir lokapróf og var einnig á fullu í golfinu." Tryggvi hefur hug á að fara til útlanda eftir menntaskólanámið og fara í háskóla annaðhvort í Svíþjóð eða Bandaríkjunum. „Ég vil geta spiiað golf með náminu,“ segir hann. Tryggvi á tvo bræður, yngri og eldri, en þeir hafa ekki haft mikinn áhuga á sporti. Hins vegar æfði Tryggvi lengi fótbolta, einnig borð- tennis og líkamsrækt. Hann segist hafa'mikinn áhuga á öllum íþrótt- um. Hins vegar er ekki æskilegt að ballettdansari sé mikið vöðvabúnt. „Það má bara alls ekki,“ segir Tryggvi. Hann ætlar að halda áfram að dansa og spila golf og lætur sér fátt um finnast þó að ein- hverjum þyki ballettinn ekki viö karla hæfi en segir þó: „Það er frek- ar erfitt að vera karlmaður í bal- lett á íslandi." -ELA RÉTTVERÐ 132.727 með 30% afslætti 92.900 VERSLUNIN m II II II I/í HVERFISGOTU 103 - SIMI: 625999 Af sérstökum ástœóum getum vió í Versluninni HLJÓMBÆ boóió fullkomió 28" SHARR sjónvarp meó ótrúlegum afslœtti 39.827 • NICAM • VÍÐÓMA • TEXTAVARP® 21 PINNA SKARTENGI • • FLATUR • „BLACK LINE" SKJÁR • ÍSLENSKAR LEIÐBEININGAR •

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.