Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 20
20 Kvikmyndir Tvær af sögupersónum Short Cuts. RobertAItman - aldrei betri Nýlega lauk kvikmyndahátíðinni í Feneyjum sem er ein virtasta kvik- myndahátíðin í heiminum. Að þessu sinni hlaut Robert Altman æðstu verðlaun hátíðarinnar, gullijónið, fyrir mynd sína Short Cuts. Þetta er mikil viðurkenning fyrir þennan sjálfstæða, þrjóska kvikmyndagerö- armann sem fer sínar eigin leiöir. Raunar hafði hann fengiö uppreisn æru með síðustu mynd sinni The Player sem hlaut á sínum tíma gull- pálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes eftir langt tímabil gleymsku og þagnar. Short Cuts er talin vera ein besta mynd Altmans og slá jafnvel út eldri myndir hans eins og Nashville og M*A*S*H. Hann byggir mynd sína á smásögum eftir Raymond Carver sem lést úr krabbameini árið 1988, ungur að árum. „Ég las ekki þessar smásögur fyrr en 1990,“ hefur veriö haft eftir Altman. „Ég var aö fljúga frá Evrópu til Bandaríkjanna og byijaði að lesa smásögurnar á leið- inni. Ég las tvær til þrjár sögur og sofnaði síðan og las svo fleiri þegar ég vaknaði. Þegar ég kom út úr vél- inni laust því niður í huga mér að hægt væri að gera góða kvikmynd eftir sögunum. Þær blönduðust sam- an í eina heild í huga mínum. Þetta var munstur sem ég haíði verið að velta fyrir mér í ein 30—40 ár. Það er að segja margar sögur samtímis. Með því móti færðu áhorfendur til að lifa sig betur inn í efni myndarinnar." Óvæntir atburðir Það er einmitt þetta sem Altman geröi. Þótt hann fylgdi eftir sögum Carvers að mestu bætti hann inn nýjum persónum a.m.k. í einni sögu með handritahöfundi sínum. í mynd- inni fáum við að kynnast einum 22 persónum á þeim þremur tímum sem sýning hennar tekur. Líf þessa fólks er samofið ýmsum atburðum, bæði sorglegum'Dg fyndnum. Einstakhng- arnir eru flestir venjulegt fólk sem allt í einu stendur frammi fyrir óvæntum aðstæðum sem breyta lífi þeirra. Við fylgjumst með ungum Umsjón Baldur Hjaltason hjónum, Bruce Davison og Andie MacDoweli, sem verða fyrir því að sonur þeirra verður fyrir bíl sem er ekið af Lily ThomUn. Hún er gift bíl- stjóra, sem er leikinn af Tom Waits, sem hefur lent í erfiðleikum í lífinu. Mathew Modine leikur síöan læknir- inn sem er fenginn til að sinna slas- aða barninu en hann hefur áhyggjur af því hvort konan hans hafi haldið fram hjá honum. Svona gengur þetta koll af kolU og áhorfendur dragast inn í flókið samspil margra einstakl- inga. Einn á móti öllum Altman notar í þessari mynd eins og The Player mikinn fjölda þekktra leikara í stór jafnt sem Util hlutverk. Leikarar keppast um að fá að koma fram í myndum hans og það virðist vera orðin upphefð að fá að taka þátt í gerð mynda sem Altman leik- stýrir. Hér hefur oröið mikU breyting á síðan Robert Altman var áUtinn vandræðabam Hollywood. í eldri myndum hans kom vel fram sá stíll sem hefur einkennt Altman sem leik- stjóra, þ.e. að hafa efnisþráðinn sem lauslegastan og spinna síðan út frá honum í ýmsar áttir. Það sem hefur gerst er að Altman hefur náð betri tökum á þessu frásagnarformi og er Short Cuts gott dæmi um hve skemmtileg útkoman getur orðiö ef menn hafa vald á efninu. En Altman stendur enn að mörgu leyti úti í kuldanum því stóru kvik- myndafyrirtækin hafa ekki viljað vinna með honum eftir að hann gerði Popeye árið 1980. Hvort sem það er við Altman að sakast eða ekki var myndin algerlega misheppnuð. Hann fór því aö vinna í auknum mæU fyr- ir sjónvarp og gerði þar góða hluti eins og Come Back to the Five and Dime, Jimmy Dean, Jimmy Dean og svo Vincient & Theo. En þótt Altman hafi nú gert tvær stórgóöar myndir í röð er ólíklegt að hann verði tekinn í sátt af kvikmyndaframleiðendum í HoUywood. Hann setur það sem al- gert skflyrði um samstarf að hann fái að ráða þvi hvernig myndin Utur út þegar hún er tilbúin tU sýningar, þar með talið lengd. Það er líklegt aö mörgum hafi ekki líkaö 3 klukku- stunda sýningartími Short Cuts þar sem þá er ekki hægt að sýna mynd- ina eins oft á dag í kvikmyndahúsum. En það er gaman að gleðjast með Robert Altman með Short Cuts. Hann er dæmi um mikinn baráttu- mann sem gefst ekki upp og hefur nú uppskorið árangur sem erfiði kominn á fuUorðinsár. LAUGARDAGUR 16,'OKTÓBER 1993 Kvikmyndir: Nú er vetrardagskrá ríkissjón- varpsins hafin. Þar kennir margra grasa fyrir kvikmyndaáhugafólk því ætlunin er að sýna 5 kvikmynd- ir í hverri viku. Ríkissjónvarpið hefur ætíö sýnt kvikmyndir frá ýmsum heimshlutum og ekki ein- göngu einskorðað sig viö ensku- mælandi lönd. Inni á miUi hafa Uka veriö skemmtilegar perlur eins og nokkrar myndir japanska meistar- ans Juzo Itami sem fékk skemmti- lega umfjöUun í Time Magazine í sumar. í vetur verður íslenskum mynd- um gert hátt undir höfði og er það mjög jákvætt. Ætlunin er að sýna á mánudögum einu sinni í mánuði íslenskar myndir. Hér er bæöi um að ræða endursýningar og frurn- sýningar því sjónvarpið hefur tryggt sér sýningarrétt að myndun- Inguló og Svo á jöröu sem á himni. Af öðru forvitnilegu efni fyrir kvik- myndaáhugafólk er hin vandaða heimUdarmynd Verstööin ísland. Það er gaman að geta þess aö tvær þessara mynda tengjast 15. menn- ingarverðlaunum DV sem voru af- hent í vor. Snorri Þórisson fékk verðlaunin fyrir kvikmyndatöku sína á Svo á jörðu sem á himni og Verstöðin Island hlaut tilnefningu. Sunnudagsbíó Sjónvarpið mun einnig bjóða upp á svokallað 3. bíó á sunnudögum þar sem sýndar verða fjölskyldu- myndir af fjölbi'eyttum tóga. Þótt myndirnar eigi að höfða frekar til ungu kynslóðarinnar er ekki að efa margir hinna eldri munu hafa gam- anafað fylgjast með myndum eins Bömin í Olátagarði eftir sögu Astrid Lindgreen, American Flyers með Kevin Kostner í aöalhlutverki og svo 6 af bestu myndin Charles Chaplin. Hér bætist viö enn einn valmöguleikinn fyrir kvikmyndaá- hugafólk en þess má einnig geta að í vetur verður Stöð 2 með kvik- myndir á sama tíma á laugardögum. Þeir sem eru að leita eftir sér- stæðum og listrænum myndum, sem yfirleitt sjást ekld í kvik- myndahúsunum, verða nú að kveikja á sjónvarpinu á fimmtu- dögum í staðinn fyrir á miðviku- dögum. Hér kennir margra grasa eins og ástarmynd eftir hinn marg- verölauna spánverja Pedro Almodovar sem ber heitiö Atame eða Bittu mig, elskaðu mig, eins og hún var kölluð þegar myndin var sýnd í Háskólabíói. Viö fáum einnig að sjá þýska mynd eftir Michael Verhoeven sem ber nafnið Óstýri- láta stúlkan (Das Schreckhche Madchen) og hlaut silfurbjöminn á kvikmyndahátíðinni í Berlín 1991. Fjölbreytt úrval Af öðrum myndum má nefna bresku myndina High Hopes (1988) sem er leikstýrö af Mike Leigh. Þetta er önnur mynd hans en hann hefur aöallega unnið fyrir sjón- varp. Frá Bandaríkjunum fáum við Stand and Deliver (1986), leikstýrða af Ramon Menendez, sem fiallar um verkfræðing sem fær köllun að kenna í niðumýddum skóla í Los Angeles þar sem allt vantar til alls. Að iokum verður boöið upp á kvikmyndir á föstudags og laugar- dagskvöldum að venju. Þar gætir meira hefðbundinna spennumynda af bandarískum og breskum upp- mna ásamt sjónvarpsmyndum. Þar má nefna myndir eins og Flight of the Navigator, Wild at Heart, Pacific Heights, The Fabulous Ba- ker Brothers og frönsku myndina CamiIIe Claudel sem er ieikstýrð af Bruno Nuytten og fiallar um stormasamt samband þeirra Cam- ille og myndhöggvarans August Rodin. Flestar þessar myndir hafa veriö sýndar hérlendis og hafa gengið nokkuð lengi á myndbanda- markaönum svo að líklegt er að þeir sem horfa á kvikmyndir að staðaldri hafi séð margar þeirra. Wild at Heart er ein þeirra mynda sem sýndar verða i vetur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.