Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Qupperneq 25
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
25
Frá menntamálaráðuneytinu
Staða skólameistara við Menntaskólann í Kópa-
vogi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. nóvember nk.
Menntamálaráðuneytið
Bræðurnir Friðrik, Jónas og Gunnar Friðrikssynir. Friðrik hlaut nýlega heiðursmerki Bandaríkjahers.
Hlaut aeðstu viður-
kenningu Banda-
ríkjahers fyrir hæfni
Vikan 16/11 - 23/11
Margir litir - 387 hr. Itr.
Ungur íslendingur, Friðrik Frið-
riksson, var heiðraður og sæmdur
orðum Bandaríkjahers fyrir vask-
lega framgöngu og frábæra hæfileika
við virðulega athöfn sem fram fór 20.
ágúst sl. Friðrik, sem er 27 ára gam-
all, er sonur hjónaxma Valgerðar
Gunnarsdóttur Friðiiksson og Jón-
asar Friðrikssonar sem búa í Seattle
í Washingtonríki.
Friðrik lauk háskólaprófi í stjórn-
málafræði og gekk síðan til liðs við
sérsveitir landgönguliðs Bandaríkja-
hers. Hann hefur stundað skólanám
jafnhhða herþjálfun og er í völdum
hópi svokaliaðra undanfara, sem
jafnan starfa að baki víglínu óvina
þegar til átaka kemur.
Eftir að Friðrik gekk í landgöngu-
liðið fyrir rúmum þremur árum hef-
ur hann verið sendur víða um heim.
Hann hefur starfað í Asíu, Suður-
Ameríku og í Evrópu. Þá var hann
sendur til Sómalíu þegar Bandaríkja-
her tók þar við friðargæslustörfum.
Það var æðsti yflrmaður land-
gönguliðs Bandaríkjahers sem af-
henti Friðriki heiðursmerkin. Annað
þeirra var fyrir störf hans í Sómalíu
og hitt fyrir frábæra hæfni og árang-
ur. Þetta er æðsta heiðursmerki sem
veitt er fyrir hæfni.
Friðrik vonast til að geta haldið
áfram námi innan hersins og lokið
þvi á næsta ári. Á því geta þó orðið
tafir ef ákvörðun verður tekin um
að beita sérsveitum hans í barátt-
unni gegn eiturlyfjasmyglurunum,
eins og rætt hefur verið um að und-
anfomu.
Friðrik á tvo bræður, Jónas og
Gunnar. Jónas er háskólamenntaður
sérkennari og Gunnar verkfræðing-
ur.
Þriðji matreiðsluþáttur Sjónvarpsins:
Gufu-
soðinn
fiskur
Úlfar Finnbjörnsson matreiðslumeistari sýndi áhorf-
endum Sjónvarpsins á miðvikudagskvöldið hvemig
matreiða á gæs en veiðimenn landsins eiga sjálfsagt
töluvert af henni nú eftir að veiðitímabihð hófst. Þar
áður bauð Úlfar upp á blandaðan fisk. Á miðvikudag
verður þriðji þátturinn í þáttaröðinni meö Úlfari sem
Saga-film hefur gert. Þar verður boðið upp á gufusoð-
inn fisk. Það sem þarf í þann rétt er:
Fiskur
2 tsk. rauð paprika
1 stk. skalottlaukur
1 stk. hvítlauksgeiri
2 dl rise-soð
1 dl kampavín (má sleppa)
salt og pipar
25 g ósaltað smjör
Úlfar Finnbjörnsson sér um matreiösluna í Sjónvarp-
inu.
Skeifunni 8 - sími 81 35 00
AUKABLAÐ UM
HÚSBÚNAÐ
Miðvikudaginn 27. október mun
aukablað um húsbúnaðfylgja DV.
Blaðið verður fjölbreytt og efn-
ismikið að vanda.
Meðal annars verður fjallað um
heimilistæki, innréttingar, máln-
ingu, gólfefni, húsgögn og nýja
hönnun.
Þeim sem vilja koma á framfæri
nýjungum og efni í blaðið er bent
á að senda upplýsingar til rit-
stjórnar DV, Jóhönnu Jóhanns-
dóttur, fyrir 20. október.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga
á að auglýsa í þessu aukablaði,
vinsamlega hafi sambandi við
Björk Brynjólfsdóttur, auglýsinga-
deild DV, hið fyrsta í síma
63 27 23.
Vinsamlegast athugið að síðasti
skiladagur auglýsinga er fimmtu-
dagurinn 21. október.
Ath.! Bréfasími okkar er 632727.
Þverholti 11 - 105 Reykjavík
Sími 91 -632700 - Símbréf 91 -632727