Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 28
40 LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 Menning_________ Ferskeytlur AB hefur nýlega sent frá sér safn ferskeytlna sem Kári Tryggvason hefur tekið saman. Þetta er endur- skoðuð útgáfa á vísnasafni hans, Vísan, sem birtist fyrir áratug. Hér eru nær 170 vísur, ein á hverri síðu, og það finnst mér óþarflega hátíðlegt. Þetta er lagleg bók í litlu broti, en þó hefðu hæglega rúmast tvær vísur á síðu, semsé tvöfalt stærra safn, án þess að útgáfan kostaði neitt meira. Og nóg er tp af smellnum vísum sem ekki hafa komist með hér. Ég held að það hefði verið kostur að hafa þetta safn mun stærra því þetta er ekki bók sem fólk les í striklotu, frekar að flett sé upp í henni af og til. Það er auðvelt, þótt ekki fylgi skrár, því vísurnar eru í stafrófsröð eftir upp- hafi. Það er einkar þægilegt og einnig er fagnaðarefni að vísunum var ekki raðað eftir efni. Það getur drepið hvert ljóðasafn því útkoman verður þá jafnan svo ein- Bókmenntir Örn Ólafsson hæf. Ekki sakna ég að ráði skrár yfir höfunda vísn- anna. Þeir eru oft ókunnir og hér er svo fátt eftir hvem hinna kunnustu að ekki getur gefið mynd af skáldskap þeirra hvort eð er. Safnið er frá löngu tímaskeiði, nokkurra alda. Það er mikill kostur við safnið og einnig hitt að hér segir aldrei frá tildrögiun vísu, eins og oft er í vísnaþáttum blaða og útvarps. Því eru hér eingöngu vísur sem standa á eigin fótum. Þannig veljast hinar veikburða frá þegar. Safnið er íjölbreytt og vel valið svo að hér er ekkert áberandi lélegt. Erfitt yrði annars að dæma um val í þetta safn því til er svo óskaplega mikið að velja úr að valið hlýtur að verða persónulegt. Mér finnst kannski í minnsta lagi af neikvæðum og neyðar- legum vísum, þetta safn er heldur góðlátiegt. Mikið af þessum vísum er alþekkt, en þá er einmitt gott að hafa greiðan aðgang að þeim því þær em stöðugt að aflagast í minni fólks. Nokkuð er hér um ferhendur eftir kunn skáld sem í rauninni eru annars eðlis en lausavísur. En þær skemma ekki bókina, heldur sýna öllu heldur áhrif þessa fyrirbæris. Það er fengur að þessu safni, aðeins þyrfti það að verða mun stærra. Það liggur í eðh slíks safns að veröa því betra sem það er fjölbreyttara. Og af nógu er að taka af góðum vísum til viðbótar. Ég nefni bara sem dæmi snjahar vísur Steingríms Thorsteinssonar, m.a.: Lastaranum Ukar ei neitt lætur hann ganga róginn flnni hann laufblað fólnað eitt fordæmir hann skóginn eða þessa eftir Stephan G.: List er það líka og vinna Utiö að tæta í minna alltaf í þynnra að þynna þynnkuna allra hinna. Enn er þess að geta að þetta safn er afar fjölbreytt hvað bragarhætti varðar. Greinilega er safnarinn fróð- ur um þá og ég held að það hefði tekið afar Utið rúm að gefa yfirUt um bragarhætti, með tilvísun til bls. hveiju sinni um dæmi. Það hefði verið verulegur feng- ur að sUkum fróðleik og hefði ugglaust glætt mjög skilning almennings og áhuga á vísnagerð. Ferskeytlan. Vísur og stef Irá ýmsum tímum. AB 1993, 174 bls. Bridge dv Bridgefélag Hafnarfjarðar SíðastUðinn mánudag, 11. október, var spiluð þriðja og síðasta lotan í minningarmóti Þórarins og Kristmundar. ÚrsUt kvöldsins urðu eftir- farandi í NS: 1. Ólafur Gíslason - Sigurður Aðalsteinsson 314 2. HaUdór Einarsson - Guðmundur Þorkelsson 310 3. Kristófer Magnússon - Guðbrandur Sigurbergsson 285 3. Júlíana Gísladóttir- Jón Gíslason 285 3. Amar Ægisson - Þorvarður Ólafsson 285 - og hæsta skor í AV: 1. Jóngeir Hlinason - Gunnar Birgisson 335 2. Trausti Finnbogason - Sigurður Sigurjónsson 322 3. Bryndís Eysteinsdóttir-Atli Hjartarson 286 Lokastaðan varð eftirfarandi: 1. Jóngeir Hlinason - Gunnar Birgisson 934 2. Gunnlaug Einarsdóttir - Hrólfur Hjaltason 906 3. Trausti Finnbogason - Sigurður Sigurjónsson 896 Næsta mánudagskvöld hefst tveggja kvölda einmenningur og geta spUar- ar því mætt án þess að hafa áhyggjur af spUafélaga. SpUað er í íþróttahús- inu v/Strandgötu og hefst spUamennskan klukkan 19.30. Paraklúbburinn Nú er lokið tveimur kvöldum af þremur í hausttvímenningi Paraklúbbs- ins. SpUað er í tveimur riðlum og hæsta skori í A-riðU náðu eftirtaldir: 1. Anna Ívarsdóttir-Jón Baldursson 194 2. Árnína Guðlaugsdóttir-Bragi Erlendsson 187 3. Erla Sigurjónsdótir-Bemharð Guðmundsson 185 Hæsta skori í B-riðU náðu: 1. Sigrún Jónsdóttir-Ingólfur LilUendahl 192 2. Anna S. Guðmundsdótir-Ámi H. Jónsson 185 3. Hjördís Eyþórsdóttir-Sigurður B. Þorsteinsson 180 Heildarstaðan er þá þessi eftir tvær lotur: 1. Hjördís Eyþórsdóttir-Sigurður B. Þorsteinsson 384 2. Sigrún Jónsdóttir-Ingólfur Lilliendahl 375 3. Gróa Eiðsdóttir-Júlíus Snorrason 372 Sigurður og Hrólfur unnu hipp-hopp Nú er lokiö hipp-hopp keppni Bridgefélags Reykjavíkur með glæsilegum sigri Sigurðar Vilhjálmssonar og Hrólfs Hjaltasonar sem leiddu mótið frá upphafi. Litiu munaði þó í lokin að Guðmundi Páh Arnarsyni og Þorláki Jónssyni tækist að ná þeim að stigum í lokin. Lokastaðan í keppninni varð þannig: 1. Sigurður Vilhjálmsson-Hrólfur Hjaltason 3094 2. Guðmundur Páll Amarson-Þorlákur Jónsson 3075 3. Hjördís Eyþórsdóttir-Ásmundur Pálsson 3001 4. ísak Öm Sigurðsson-Gylfi Baldursson 2997 Næsta miðvikudag hefst fjögurra kvölda hraðsveitakeppni og er skráning þegar hafin. Unnt er að skrá sveitir í keppnina hjá BSÍ, síma 619360, og hjáKristjániísíma 50275. -ÍS © Tlie Wali Oloriny Cninpen/ Krakkar, krakkar Frábær Aladdínleikur Fylltu út eina Aladdinbók og þú getur unniö feró fyrir tvo til Euro Disney i París með Flugleiöum. Gist veröur á Hótel Cheyenne i þrjár nætur og er hótelið í Euro Disney. Aö auki eru 10 aukavinningar sem eru pitsa, kók og Aladdinis i boöi veitinga- hússins ítaliu. Leikreglur: 1. Fylla veröur út eina Aladdínbók meö límmiðum. Ef vantar 20 myndir til aö klára bókina farió þiö eftir leiöbeining- unum hér fyrir neöan. Skilafrestur er til 1. júli 1994. Dregiö verður 8. júli 1994 og veróa nöfn vinningshafa birt í DV 9. júli 1994. 2. Í Reykjavík og nágrenni er hægt aó fara meó bókina i Sælgætis- og video- höllina í Garðabæ eöa Ísbjörninn í Breiðholti. Klippt veröur horn af bók- inni og starfsfólkið mun taka niður nafn, heimilisfang og simanúmer. Aó auki veróur gefinn is. Ef þér gefst ekki kost- ur á að koma bókinni til skila á þessum stööum getur þú sent hana merkta: Valentina P.O. Box 12176 - 132 Reykjavík. Bókin veróur send til baka eftir útdrátt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.