Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 29
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993 41 dv Trimm Léttleikinn sveif yfir vötnum hjá kvenfólkinu i jóga-leikfiminni í Heilsubót. DV-mynd SÞ Sigfríður Vilhjálmsdóttir hjá Yogastöðinni Heilsubót: Við eigum að anda djúpt og hægt nútímaðurinn andar ört og stutt Margrét Gunnars- dóttir Schram stundarjóga- leildimi hjá Heilsubót „Ég er hérna á hverjum vetri og mér fmnst þetta vera ómetan- legt og ómissandi. Mér fmnst ég fá góða alhliða hreyflngu og góð- ar teygjur og heid mér allri vel við. Það er bara allt gott um þetta að segja." Hafdís GuÖmunds - dóttir stund- ar jógaleik- flmihjá Heilsubót „Ég er búin að stunda jógaleik- fimi i 15 ár. Égfa? mikla velliðan út úr því og það er yndislegt aö vera hórna. Það er ekki spurning, ég hæli þessu alveg upp í há- stert.“ Stjömuhlaup FH: Opið almenn- ingshlaup Stjömuhlaup FH verður haldið laugardaginn 23. október og hefst það kl. 14 við íþróttahúsið í Kaplakrika í Hafnarfirði. 14 ára og yngri hlaupa 1,3 km, 15-18 ára og konur, 19-34 ára og 35 ára og eldri, hlaupa 3 km, karlar, 19-34 ára og 35 ára og eldri, hlaupa 5 km. Yogastöðin Heilsubót að Hátúni 6a hefur verið starfrækt frá 1973. í jóga- stöð þessari er lögð áhersla á líkams- æfingar, öndunaræfingar og teygjur sem byggjast á ævafornum fræðum sem nefnast hatha-jóga. í hatha- jóga-heilsufræðinni má lesa eftirfar- andi: „Hatha-jóga heilsufræðin er sú grein innan jóga-heimspekinnar sem fjallar um mannslíkamann, umönn- un hans, vellíðan, heilsu, mátt og allt sem lýtur að því að hann haldi eðlilegu ástandi, eða því sem kalláð er góð heilsa. Hatha-jógafræðin hefur að leiðar- ljósi að líkaminn sé tæki andans og musteri sálarinnar. Sigfríður og Mile hafa þetta að leiðarljósi á námskeið- um sínum en þau reka Yogastöðina og halda námskeið í hatha-jógafræö- um. Fólk sem sækir námskeiðin hingað er yfirleitt fólk á jákvæðu línunni og mikiU léttleiki svífur yfir sölum Yogastöðvarinnar. Fólk er þarna á öllum aldri, frá 20 ára og upp í 80, og eru konurnar í nokkrum meiri- hluta þó. Sigfríður Vilhjálmsdóttir, annar leiðbeinandinn, er að þessu sinni viö- mælandi trimmsíðunnar. Jóga-heilsufræðin hefur nokkur heilræði í hávegum varðandi svefn. Þau eru: 1. Þú skalt aldrei fara að sofa eftir þunga máltíð. Þú verður syfiaður en svefninn sem þú færð mun ekki endurnæra þig. 2. Klukkutíma áður en þú ferð að Undirstaða líkams- ræktar nútímans Hatha-jóga byggist á fornri vitn- eskju og er í raun og veru undirstaða líkamsræktar nútímans. Það eru 5 meginreglur sem við reynum að til- einka okkur. í fyrsta lagi er það já- kvætt hugarfar, í öðru lagi að vera hófleg í öllu, og þá t.d. í sambandi við mat, í þriöja lagi að læra að anda rétt, í fjórða lagi að stunda jógaæfing- ar og í fimmta lagi slökun. Við í Yoga- stöðinni hugsum þetta sem fyrir- byggjandi kerfi fyrir fólk áður en það fer að þjást af ýmsum nútímakvill- um. Við bætum nokkrum æfmgum, s.s. axlar- og hálsæfingum, inn í jóga- kerfið þó að þær æfingar séu ekki beinlínis inni í því kerfi. Ástæðan er sú að það eru svo margir sem þjást af bakverkjum og vöðvabólgum í hálsi og öxlum. Einnig erum við meö styrkjandi séræfingar fyrir hendurn- ar og fæturna. Hver tími varir í 1 klst. og byggist þannig upp að fyrst setjast alhr niður með krosslagða fætur, „pústa sig niður“ og slaka á. Síðan forum við í gegnum öndunar- æfingar og aö lokum eru styrktar- og teygjuæfingar og síðast slökun. Hver tími er oft frábrugðinn næsta tíma á undan. Æfingamar sem við sofa skaltu loka fyrir andlegt áreiti. Þú skalt t.a.m. ekki horfa á sjónvarp eða lesa bækur klukku- tíma fyrir svefn. 3. Reyndu að kyrra hugann þegar þú ert komin/n upp í rúm. Þú leysir ekki fjárhagsvandann uppi í rúmi. Þeim mun betur sem þér tekst að kyrra hugann þeim mun dýpri Sigfriður Vilhjálmsdóttir. förum í gegnrnn eru mjög margar og það er kannski það sem gerir þetta fjölbreytilegt og skemmtilegt. Öndun, teygjur, slökun í öndunaræfingunum leggjum við áherslu á aö anda djúpt, alveg niður í maga. Flestir eru samanfallnir og svefn færðu. Eftir því sem svefn- inn verður dýpri þarftu styttri svefn. 4. Ef þú þarft að nota vekjaraklukku skaltu láta hana hringja tíu mín- útum áður en þú þarft aö fara á fætur. Þú skalt stöðva hringing- una án þess að opna augun. Hring- ingin hefUr raskað ró þinni og anda mjög stutt. Við það að anda mjög djúpt verður viðkomandi allur miklu borubrattari og tvímælalaust reisulegri á velli. Við eigum að nota lungun, anda vel að okkur og svo tæma líka vel með útöndun - anda djúpt en hægt. Nútímamaðurinn andar hins vegar ört og stutt. Lík- amsræktarfólk ætti einnig að hyggja vel að öndun sinni og vera meðvit- aðra um öndun sína. Hatha-jógastöð- urnar (asanas) koma síðast. Þær eru rúsínan í pylsuendanum. Fyrst verð- um við að mýkja upp alla liði. Við verðum að styrkja okkur. Við verð- um að gera allt mögulegt áður en við getum gert þessar æfingar. Maður- inn eða konan af götunni geta ekki komið og byrjaö aö standa á haus. Alhr vöðvar verða þannig að vinna saman til að geta myndaö eina stell- ingu. Ekki geta allir framkvæmt þessar jógastöður vegna þess að svo margir eru illa farnir af vinnuálagi og rangri þjálfun. Allir geta þó nýtt sér þessar æfmgar til góös með því að fara eins langt í æfinguna og lík- amsástand leyfir. Slökunin sem er í lok tímans er mjög mikilvæg því þá fullvinna æfingamar sig. Líkaminn slakar algjörlega á og nær aö losa sig. Þá er reynt aö kyrra hugann og binda athyglina. þess vegna skaltu reyna að slaka á. Einbeittu þér aö því að liggja afslappaður og ekki byija að hugsa um hvað komandi dagur muni bera í skauti sér. Opnaðu fyrst annað augað, síðan hitt. Teygðu síðan vel á öllum líkaman- um. J óga-hei Isufræðin segir: Sofnaðu aldrei með kýlda vömb - líkaminn hvílist þá ekki vel

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.