Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Page 30
42
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
íþróttir
Keppni í bandarísku NBA-deildinni í körfuknattleik hefst í byrjun nóvember:
Flestir búast vid
sigri Phoenix Suns
- eftir að Michael Jordan sagði skilið við Chicago, meistara þriggja síðustu ára
Klemens Amaison, DV, Phoenix:
Það er heldur betur farið að stytt-
ast í keppnistímabilið í bandaríska
körfuboltanum og eru nú spekingar
hver um annan þveran að spá í spil-
in um komandi keppnistímabil. Liðin
hafa á undanfornum vikum keppst
við að bæta mannskapinn, annað-
hvort með því að kaupa reynda leik-
menn úr deildinni eða geía ungum
nýliðum úr háskólum tækifæri til að
spreyta sig. Það hefur kastað tölu-
verðum skugga á deildina að Michael
Jordan skuli hafa dregið sig í hlé og
hengt upp Nike skóna sína, en það
er nóg af frambærilegum leikmönn-
um sem geta látið ljós sitt skína og
skarað fram úr. Menn eru á einu
máli um það að deildin verði sjaldan
eins jöfn og einmitt núna. Öll liðin
koma til með að reyta stig hvert af
öðru og ólíklegt er að eitthvert hð
komi til með að stinga gjöramlega
af. Eins og venja er til eru sum hðin
hklegri en önnur th að komast í úr-
shtaleikinn. Liðin sem nefnd eru hér
á eftir eru þau sem flestir veðja á að
komist aha leið og kemur þar ekki
margt á óvart.
Austurströndin
Chicago Bulls:
Það er ekki nóg með að leikmenn-
irnir séu af allt öðrum gæðaflokki
en leikmenn sem spha t.d. á Spáni
eða ítaJíu, heldur er harkan mun
meiri, keppnistímahiUö sjö mánuðir
fyrir utan úrslitakeppnina og press-
an á leikmönnum og þjálfurum
mannskemmandi. Blaðamenn og
körfuboltaspekúlantar eru á einu
máh um það að þetta keppnistímabil
verði Chicago Buls þungt í skauti
vegna íjarveru Michaels Jordans og
að Uðið eigi enga möguleika að vinna
titilinn fjórða árið í röð.
NY Knicks: \
New York Knicks, með Patrick
Ewing í broddi fylkingar, er spáð
austurstrandartithnum og kemur
það fáum á óvart. Á síðasta keppnis-
tímabUi var hðið nálægt því að
hreppa austurstrandartitilinn en
heimsmeistarar Chicago Bulls sáu til
þess í sex leikjum að svo yrði ekki.
Pat Railey, þjálfari, hefur ekki séð
neina ástæðu tU þess að taka upp
veskið og fjárfesta í nýjum leikmönn-
um enn sem komið er, hvað svo sem
verður þegar líða tekur á keppnis-
tímabihð. Patrick Ewing, kjölfesta
Uðsins á undanfómum árum, er far-
inn að nálgast endalok ferils síns og
hallast menn aö því að hann hafi
aldrei átt eins góða möguleika og
núna tíl þess að komast í úrshtaleik-
inn. Það er jú enginn Michael Jordan
sem stendur í veginum í þetta skiptið
eins og á undanfomum árum.
Orlando Magic:
Það er hreint með ólíkindum hvað
Orlando Magic hafa verið heppnir
undanfarin tvö ár í sambandi við val
á leikmönnum úr háskóla. Því er
nefnUega þannig farið að Uðin sem
komast ekki í úrshtakeppnina taka
þátt í sérstöku happdrætti um val á
leikmönnum.
Orlando fékk í fyrra fyrsta valrétt
á leikmanni og valdi Shaquhie One-
al, það sama gerðist svo í sumar, því
liðið fékk aftur fyrsta valrétt og valdi
nú Anfernee Hardaway. Hann er
leikstjórandi sem tahnn er hafa svip-
aða hæfUeika og Magic Johnson
hafði á sínum tíma.
Stjórnendur Orlando búast við
miklu því þeir hafa nýlega gert
samning við Hardawy upp á 65 millj-
ónir dohara, sem er stærsti samning-
ur sem nokkum tíma hefur verið
gerður við nýhða úr háskóla. Það er
að mörgu leyri óþarft að minnast
mikið á Shaquhie O’Neal, hann hefur
þegar skapað sér svo stórt nafn að
hann er núna eitt aðalaðdráttarafhð
í NBA. NBC-sjónvarpsstöðin ætlar
að sjónvarpa níu leikjum með Or-
lando Magic í vetur á meðan þeir
sýna aðeins sjö með Phoenix Suns,
sem taldir eru með besta liðið í deild-
inni.
Charlotte:
Larry Johnson, eða langamma eins
og hann er oft kahaður, ætti að eiga
fyrir salti í grautinn á komandi árum
því Charlotte gerði nýlega samning
við hann upp á 84 milljónir dollara
til 12 ára.
Þetta er langstærsti samningur
sem nokkum tíma hefur verið gerð-
ur í sögu NBA og ekki nóg með það
því að þetta er stærsti samningur
sém félagslið hefur gert við leik-
mann, sama í hvaða íþróttagrein það
er. Alonzo Mourning er framtíðar-
stjarna í deildinni og lykilmaður Uðs
síns.
Það hvílir á hans herðum að spila
á móti Patrick Ewing og Shaqullie
Oneal. Ef Charlotte áð að komast eitt-
hvað áfram verður hann að stoppa
þess leikmenn eins mikið og hægt er.
Spá blaðamanna
Austurströndin í hnotskurn sam-
kvæmt blaðamönnum. Lið sem geta
komið á óvart: Cleveland Cavaliers,
Miami Heat, New Jersey Nets. Sigur-
vegarar verða New York Knicks.
Besti leikmaðurinn: Shaqulhe O’Ne-
al. Besti nýliðinn: Anfemee
Hardaway, Orlando Magic. Þjálfari
ársins: Mike Fratello, Cavahers eöa
Phil Jackson, Chicago BuUs.
Vesturströndin
Phoenix Suns:
Paul Westphal, þjálfari Phoenix,
hefur verið óhræddur við að skrifa
stórar ávísanir í sumar. Joe Kleine,
sem áður spUaði með Boston Celtics,
skrifaði undir samning í sumar, svo
og A.C. Green, sem verið hefur kjöl-
festan hjá Los Angeles Lakers und-
anfarin ár.
Helsta vandamáhð sem Phoenix
Suns átti við að stríða á síðasta ári
var að ná frá fráköstum, en það ætti
að vera hðin tíð með komu þessara
leikmanna. Charles Barkley, Kevin
Johnson og Dan Majerle verða áfram
lykiUeikmenn hðsins og ef engin
meiðsh hrjá hðið ætti þetta að verða
nokkuð þægUeg sigling í gegnum
deildina í vetur.
Seattle:
Að margra mati er þetta efnilegasta
hðið í NBA og er spumingin bara sú
hvort að ungir leikmenn liðsins ná
að blómstra í vetur. Á síðasta keppn-
istímabih tapaði Uðið í hreinum úr-
shtaleik fyrir Phoenix Suns um vest-
urstrandartitilinn og em áhangend-
ur með miklar væntingar og þar af
leiðandi miklar kröfur til Uðsins.
Nýlega fékk Uðið KendaU GiU frá
Charlotte en hann er talinn einn efni-
legasti leikmaðurinn í deUdinni um
þessar mundir. Shawn Kemp er á
góðri leið meö að verða ein skærasta
stjarnan og ef hann nær að ná upp
meiri stöðugleika ætti hðið að naga
í hælana á Phoenix Suns í aUan vet-
ur.
San Antonio:
Denis Rodman er maðurinn sem á
setja punktinn yfir i-ið hjá San An-
tonio Spurs í vetur en hann kom frá
Detroit Pistons í skiptum fyrir Sean
EUiot og Avery Johnson.
Það eru ýmis andleg vandamál sem
hijáð hafa kappann á undanfómum
ámm og ef hann hefur náð tökum á
þeim ætti hann að geta sýnt sína ein-
stöku hæfileika, sem yfirburðavarn-
armaður og frákastari.
David Robinson hefur verið allt í
öllu hjá liðinu og verður þar engin
breyting á í vetur, það er helst að
hann ætti að eiga náðugri daga í
vöminni með tilkomu Dennis Rod-
man. Ef Terry Cummings og Antonie
Carr ná að fyUa upp skarðið sem
Sean Elliot skildi eftir sig ætti San
Antonio að vera í góðum málum í
vetur.
HoustonRockets:
Homsteininn hjá Houston í vetur
eins og endranær er Hakeem
Olajuwon. Ef hann sphar af svipuð-
um styrkleika og á síðasta keppnis-
tímabih eru alhr vegir færir fyrir
Houston. Mario Elie, sem áður lék
með Portland Trahblazers, kemur til
með að hjálpa liðinu töluvert ásamt
Kenny Smith og Otis Thorpe.
Samt er það tilfinning margra að
eitthvað vanti í leikmannahópinn og
spumingin er því sú hvort Rudy
Tomjanovich nái að klófesta góðan
leikmann fyrir komandi keppnistíð.
Vesturströndin í hnotskurn sam-
kvæmt blaðamönnum. Lið sem geta
komið á óvart: Golden State Warri-
ors, Portland Trailblazers, Utah Jazz.
Handhafar vesturstrandartitUsins:
Phoenix Suns. Besti leikmaðurinn:
Charles Barkley. Besti nýliðinn: Ja-
mal Mashburn, Dallas, eða Cris
Wehher, Golden State Warriors.
Besti þjálfarinn: Don Nelson, Golden
State eða George Karl, Seattle Supr-
erSonics. -GH
Charles Barkley er liklegastur til að að taka við veldissprota Michael Jordans í NBA-deildinni í vetur og
flestir spá þvi að hann leiði Phoenix Suns til sigurs þetta árið.