Dagblaðið Vísir - DV - 16.10.1993, Síða 31
43
4- LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
Klæðskipt-
ingur (trans-
vestíti) í leit að
sjálfum sér
Hans er 48 ára gamall, giftur og
þriggja barna faðir. Hann fann fyr-
ir mikilli kynæsingu þegar hann
fór í nærbuxur af systur sinni 13-14
ára gamall. Næstu ár hélt hann
áfram að fara í kvennærföt og fróa
sér. Hann kvæntist liðlega þrítugur
en sagði konu sinni aldrei frá þess-
ari áráttu sinni. Upp úr fertugu
jókst þessi ástríða og hann fór að
klæða sig í kvenfatnað, setti upp
hárkollu, hengdi á sig skartgripi
og málaði sig í framan. Svona bú-
inn hitti hann stundum 3-4 aðra
karlmenn sem líka höfðu gaman
af að klæða sig á þennan hátt. Þeg-
ar hann var þunglyndur eða undir
álagi jókst þörfin að klæða sig í
kvenföt. Hans fann fyrir innri ró
og öryggi þegar hann var klæddur
og kominn á kjól. Hann hafði marg-
sinnis lofað sér því að hætta þessu,
brennt eða fleygt öllu úr klæða-
skápnum sínum en jafnharðan
keypt nýtt og haldið áfram. Hann
hafði aldrei efast um kynhlutverk
sitt né heldur rennt hýru auga til
annarra karlmanna. Einhveiju
sinni um páska bar svo við að Hans
lenti í miklum átökum í vinnunni.
Hann fór heim í mikilli vanlíðan.
Fjölskyldan var ekki heima og fór
hann upp á háaloft til að klæðast
kjól, nælonsokkum og ljósri hár-
kóllu. Hann stóð fyrir framan speg-
il og málaði sig þegar kona hans
og tengdamóðir komu aðvífandi.
Þær ráku upp mikið vein þegar þær
sáu Hans svona búinn. Tengda-
móðirin fékk aðsvif og hjartakast
en konan sagðist aldrei ætla að tala
við hann framar. Eftir nokkurra
daga samningaþóf ákváðu þau að
leita til mannvinarins Tjörva lækn-
isogfágóðráð.
Um transvestíta
Þessi maður er tranvestíti eða
klæðskiptingur. Orðið er dregið af
„trans“, sem þýðir öfugt eða hin-
seginn, og „vestitus" sem þýðir
klæddur. Klæðskiptingur er ein-
staklingur sem finnur fyrir ómót-
stæðilegri löngun til að klæðast
fötum hins kynsins um lengri eða
skemmri tíma. Þessi árátta byijar
oft í bernsku. Algengast er að karl-
menn gangi í kvenmannsfötum.
Flestir lifa eðlilegu lífi að öðru leyti
en klæðast stundum kvenmanns-
fötum, kvenundirfötum, sokkum
og kjól eða pilsi, mála sig og láta á
sig hárkollu og finna þá fyrir mik-
illi kynferðislegri æsingu. Upphaf-
lega tengjast klæðskiptin sjáifsfró-
un eða öðru kynlífi en síðar innra
öryggi og vellíðan. Klæðskiptingar
eiga sér eigin skemmtistaði, sam-
tök og klúbba víða erlendis. Þeir
eru sjaldnast samkynhneigðir og
margir klæðskiptingar virðast lifa
fullkomlega eðlilegu kynlífi, eru
kvæntir með fjölda bama á fram-
færi. Stundum virðist eiginkonan
vita allt um þessa áráttu og aðstoð-
ar mann sinn við að mála sig, hag-
ræðir hárkollunni og hjálpar hon-
um að velja á sig sem fallegasta
kjóla en aðrar hafa ekki hugmynd
um þetta. Margar sagnir eru til um
klæðskiptinga á öllum tímum,
franski aðalsmaðurinn d’Éon (d.
1810) var ýmist klæddur kven- eða
karlmannsfötum við hirðina. Guð-
inn velkunni, Bakkus, skreytti sig
stundum með kvenlegum höfuð-
búnaði og skáldið Agathon gekk
„Flestir lifa eðlilegu lífi að öðru leyti en klæðast stundum kvenmannsföt-
um, kvenundirfötum, sokkum og kjól eða pilsi, mála sig og láta á sig
hárkollu og finna þá fyrir mikilli kynferðislegri æsingu."
Álæknavaktiimi
um Aþenuborg klæddur í kven-
mannsföt. Klæðskiptingar eru al-
gjörlega hættulausir öðrum. Eng-
inn veit af hvetju sumir finna fyrir
þessari löngun til að klæðast fötum
hins kynsins. Fæstir þessara ein-
staklinga leita til lækna enda hefur
engin meðferð borið umtalsverðan
árangur.
HjáTjörvalækni
Tjörvi tók þeim hjónum ákaflega
vel. Hann kvaðst skilja sjónarmið
konunnar en hún yrði að átta sig
á þeirri þráhyggju sem klæðskiptin
væru. „Best væri að þú sættir þig
við þessa ástríðu Hans og tækir
þátt í henni. Hjálpaðu honum að
hagræða hárkollunni, velja máln-
ingu og skartgripi og fallegan kjól.
Læknisfræðin getur ekki losað
Hans við þessa áráttu svo að þú átt
ekki marga kosti í þessari stöðu.
Annaðhvort er að skilja eða vera
saman og búa þá við transvestis-
mann.“ Konan hugsaði sig um
nokkra stund en ákvað síðan að
sættast við mann sinn og lifa með
honum áfram. Nokkru síðar kom
hún á fund Tjörva læknis og sagði:
„Nú lifum við saman í sátt og sam-
lyndi. Hans klæðir sig öðru hveiju
í kvenföt og við njótum ásta. Hann
er þá æstari en nokkru sintii fyrr.
Stundum velti ég því fy rir mér
hvort ég sé lesbísk þegar ég nýt
samfara við manninn minn, klædd-
an í kvenföt og kvenundirföt." Hún
horfði dreymandi út í loftið. Tjörvi
læknir sagði ekki neitt enda eru
sumar spumingar þess eðhs að
þeim er best ósvarað.
FRAMHALDSAÐALFUNDUR
Framhaldsaðalfundur Krýsuvíkursamtakanna verður
haldinn föstudaginn 22. október kl. 16.30 á 2. hæð
á Hótel Esju.
Fundarefni: Skipulagsbreytingar og stjórnarkjör.
Þátttaka tilkynnist í síma 62 35 50.
Stjórnin
Leikskólar Reykjavíkurborgar
Leikskólastjóri
Staða leikskólastjóra við nýjan leikskóla við Reyr-
engi er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til
5. nóvember nk.
Fóstrumenntun áskilin.
Nánari upplýsingar gefa Bergur Felixson fram-
kvæmdastjóri og Margrét Vallý Jóhannsdóttir deild-
arstjóri í síma 27277.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar
öldrunarþjónustudeild
Lausar eru til umsóknar eftirtald-
ar stöður forstöðumanna innan
öldrunarþjónustudeildar
Forstöðumaður við félags- og þjónustumiðstöð
og þjónustuíbúðir aldraðra við Lindargötu
Um er aö ræöa forstöóu fyrir nýrri starfsemi sem
fram fer í byggingum aldraðra sem Reykjavíkur-
borg er aö reisa við Linþargötu og þú eru á loka-
stigi.
í byggingunum er gert ráö fyrir eftirfarandi starf-
semi:
Þjónustuíbúóum, félags- og þjónustumiðstöð,
dagvist fyrir aldraða og framleiöslueldhúsi.
Starfiö er fólgiö í stjórnun félags- og tómstunda-
starfs í félags- og þjónustumiöstööinni, yfirum-
sjón meö hverfisbundinni félagslegri heima-
þjónustu í því hverfi sem stöóin tekur til svo og
yfirumsjón með annarri starfsemi sem fram fer
í húsunum, s.s. þjónustu viö íbúa í þjónustuíbúð-
unum.
Verkefnin eru fjölþætt og af ólíkum toga, s.s.
mat á þjónustuþörf einstaklinga, starfsmanna-
stjórnun, fjárhagslegur rekstur, þróun verklags
og vinnubragða o.fl. Starfið gerir kröfu til stjórn-
unar- og skipulagshæfileika og reynslu af starfi
innan öldrunarþjónustu.
Æskileg menntun á sviöi félags- og/eða heil-
brigöisþjónustu.
Forstöðumaður við félags- og þjón-
ustumiðstöðina Bólstaðarhlíð 43
Starfiö er fólgið í stjórnun félags- og tómstunda-
starfs í umræddri þjónustumiðstöð og yfirum-
sjón meó hverfisbundinni félagslegri heima-
þjónustu.
Við leitum að fjölhæfum einstaklingi sem er til-
búinn að takast á viö margbreytileg verkefni af
ólíkum toga. Um er aö ræða starfsmannastjórn-
un, fjölþættan rekstur, þróun verklags og vinnu-
bragöa o.fl.
Starfið gerir þannig kröfu til stjórnunar- og
skipulagshæfileika. Reynsla af starfi með öldr-
uðum og/eöa í félagslegri þjónustu er nauðsyn-
leg.
Laun skv. kjarasamningum Starfsmannafélags
Reykjavíkurborgar eða viðkomandi stéttarfé-
laga og Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Sigurbjörg Sigurgeirs-
dóttir, yfirmaöur öldrunarþjónustudeildar, í síma
678 500.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar, Síðumúla 39, á
umsóknareyðublöðum sem þar fást.
Umsóknarfrestur er til 29. október nk.