Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Side 3
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
3
Fréttir
Formaður Alþýðuflokksfélags Hafnarflarðar um ályktun um stjómarslit:
Viðbrögð fólks um allt
land eru með ólíkindum
Matreiðslubók
35 ára afmæli
smjörsölunnar sf,
I þessa bók höfum við
valið úrvai uppskrifta,
sem hafa verið marg-
reyndar í tilraunaeldhúsi
Osta- og smjörsölunnar.
Það er von okkar,
að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi
OSTA- OG SMJÖRSALAN SF
„Viðbrögð fólks, ekki bara krata í
Hafnarfirði, heldur af öllu landinu
eru með ólíkindum. Síminn hjá mér
hefur verið rauðglóandi og alhr lýsa
yfir stuðningi við ályktun okkar. Það
er greinilegt að þær skoðanir, sem
koma fram í ályktun okkar, hafa
meðbyr hjá grasrótinni í flokknum,"
sagði Erhngur Kristensson, formað-
m- Alþýðuflokksfélags Hafnarfjarð-
ar, í samtali við DV.
Sem kunnugt er ályktaði stjóm fé-
lagsins í síðustu viku á þá leið að
Alþýðuflokkurinn ætti að ganga úr
núverandi stjórnarsamstarfi og snúa
sér að því að framfylgja markmiðum
jafnaðarstefnunnar.
Erlingur sagði að í næstu viku yrði
haldinn félagsfundur hjá Alþýðu-
flokksfélagi Hafnarfjarðar. Þar yrði
þetta mál rætt ásamt öðrum málum.
Árásarmáliö:
Réttaðfyrir
luktum dyrum
Mál Heiðu Bjarkar Hjaltadóttur, 16
ára stúlku sem sparkaði í höfuð jafn-
öldru sinnar í miðbæ Reykjavíkur
2. október síðasthðinn, var þingfest
fyrir héraðsdómi Reykjavíkur í
fyrradag.
Þingfestingin fór fram fyrir luktum
dyrum, sökum aldurs sakbomings,
og fór verjandi Heiðu Bjarkar fram
á að réttarhaldið yfir henni yrði
einnig lokað.
Búast má við að dómur í máh stúlk-
unnar gangi innan þriggja vikna.
Stúlkan sem ráðist var á hggur enn
meðvitundarlaus á gjörgæsludeild
Borgarspítala. Að sögn lækna er þó
hægtaðgreinabatamerki. -pp
Akureyringar
fá Bónusverslun
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Jóhannes Jónsson, kaupmaður í
Bónusi, hefur ákveðið að opna versl-
un á Akureyri. „Við ætlum að opna
þar með pompi og prakt 6. nóvember
næst komandi," sagði Jóhannes við
DV.
Bónusverslunin á Akureyri verður
í húsnæði Rúmfatalagersins á Norð-
urtanga, örskammt frá þeim tveimur
verslunum sem boðið hafa lægst
vöruverð í bænum að undanfomu,
KEA-NETTÓ og Hagkaup. Sam-
keppnin á markaðnum nyrðra eykst
því enn en Bónus hyggst bjóða sínar
vörur á Akureyri á svipuðu verði og
í Reykjavík.
Hafnarflörður:
Höfuðborgar-
svæðiðeinn
vinnumarkaður
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur
samþykkt tillögu forsvarsmanna
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu um að höfuðborgarsvæðið
sé allt sameiginlegur vinnumarkað-
ur.
Með samþykktinni er sú megin-
stefna áréttuð að jafnan verði leitað
hagkvæmustu niðurstöðu við útboð
og verksamninga en skráð heimilis-
festi fyrirtækis ráði ekki vah á verk-
taka. í tillögunni segir að þannig
verði hagsmunir allra best tryggöir
enda sé eðlilegast að líta á landiö allt
semeinnmarkað. -GHS
„Eg á nú ekki sæti í flokksstjóm
Alþýðuflokksins. En ég ætla rétt að
vona að ályktun okkar komi til um-
ræðu á flokksstjómarfundi flokksins
næstkomandi laugardag," sagði Erl-
ingur.
Hann sagði að allir stjórnarmenn,
bæði í aðal- og varastjórn félagsins í
Hafnarfirði, hefðu staðið að og sam-
þykkt ályktunina, enda þótt ráðherr-
ar hafi látið eins og svo væri ekki.
Og að stjómin stæði og félh með þess-
ari ályktun.
„Við sem sitjum í stjóm félagsins
emm öll venjulegt launafólk úr gras-
rótinni, sem vitum hvað heitast
brennur á fólki sem verður að kom-
ast af með um 60 þúsund krónur á
mánuði. Það sem ríkisstjómin er að
gera um þessar mundir er ekki fyrir
þetta fólk. Þess vegna var ályktunin
samþykkt," sagði Erhngur.
-S.dór
N Y
HANDBOK FYRIR SÆLKERA
\