Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Blaðsíða 30
42
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
Fólkífréttum
Drífa Hjartardóttir
Drífa Hjartardóttir, bóndi og vara-
þingmaður að Keldum á Rangár-
völlum, hlaut flest atkvæðin í mið-
stjómarkjöri á landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins s.l. sunnudag.
Starfsferill
Drífa fæddist í Reykjavík 1.2.1950
pg ólst þar upp. Að loknu landsprófi
stundaði hún nám við MR en hætti
1969 er hún hóf búskap að Keldum
þar sem hún hefur búið síðan.
Drífa var formaður Sambands
sunnlenskra kvenna 1987-93 og sit-
ur í Jafnréttisráði fyrir Kvenfélaga-
samband íslands. Hún situr í
hreppsnefnd frá. 1986, situr í héraðs-
nefnd Rangárvallasýslu frá 1990, er
formaður Keldnasóknar, situr í
stjóm MENSA, menningarsamtaka
Suðurlands, hefur verið fulltrúi á
þingum Sambands sunnlenskra
sveitarfélaga, er formaður sjálf-
stæðisfélagsins Fróða í Rangár-
vallasýslu.
Fjölskylda
Eiginmaður Drífu er Skúli Lýðs-
son, f. 7.8.1947, b. á Keldum en hann
er sonur Lýðs Skúlasonar, b. á Keld-
um sem nú er látinn, og eftirlifandi
konu hans, Jónínu Jónsdóttur ljós-
móður.
Drífa og Skúh eiga þrjá syni. Þeir
eru Lýður, f. 23.6.1969, vélfræðingur
í Reykjavík; Hjörtur, f. 26.3.1973,
nemi; Skúli, f. 22.4.1980, nemi.
Hálfsystkin Drífu, sammæðra, em
Ingibjörg Hjartardóttir, f. 1951, hús-
móðir á Seltjarnarnesi; Hjörtur
Hjartarson, f. 1957, vélvirkií
Reykjavík; Anna Ásta Hjartardóttir,
f. 1959, afgreiðslustjóri hjá SPRON;
Björn Grétar Hjartarson, f. 1967,
verslunarmaður í Reykjavík; Guð-
mundur Ingi Hjartarson, f. 1968,
tölvunarfræöingur í Reykjavík.
Foreldrar Drífu em Hjörtur Hjart-
arson (kjörfaðir), f. 23.12.1929, kaup-
maður í Reykjavík, og kona hans,
Jensína Guðmundsdóttir, f. 9.9.1928,
verslunarmaður í Reykjavík.
Faðir Drífu er Magnús Brano
Norðdahl Eggertsson, f. 3.1.1909,
lengi bifreiðastjóri í Reykjavík.
Ætt
Hjörtur er bróðir Grétars bíó-
stjóra. Hjörtur er sonur Hjartar
Hjartarsonar, kaupmanns við
Bræðraborgarstíginn, ogÁstu, syst-
ur Sigríöar, móður Björns Bjarna-
sonar alþingismanns, en bróðir
Ástu var Anton, faðir Markúsar
Arnar borgarstjóra. Ásta var dóttir
Bjöms Jónssonar, skipstjóra í Ána-
naustum.
Magnús Norðdahl er sonur Egg-
erts Norðdahl, b. á Hóhni, bróður
Skúla, íöður Gríms á Úlfarsfelh.
Eggert var sonur Guðmundar, b. á
Elhðakoti Magnússonar Norödahl,
prests í Meðallandsþingum Jóns-
sonar, prests í Hvammi í Norður-
árdal Magnússonar, sýslumanns í
Búðardal Ketilssonar. Móðir Magn-
úsar sýslumanns var Guðrún
Magnúsdóttir, systir Skúla land-
fógeta.
Jensína er dóttir Guömundar, bú-
fræðings á Sæbóh á Ingjaldssandi
Guðmundssonar, b. á Seljalandi
Jónssonar, b. á Fæti Jóhannesson-
ar. Móðir Guðmundar var Gróa
Benediktsdóttir, skutlara í Vatns-
firði Bjömssonar, hagyrðings á
Laugabóh Sigurðssonar. Móðir
Benedikts var Guðný Jónsdóttir, b.
Drifa Hjartardóttir.
á Laugabóli Bárðarsonar, ættfóður
Amardalsættarinnar Ihugasonar.
Móðir Guðmundar búfræðings var
Sigríður Einarsdóttir, rennismiðs í
Hvammi í Dýrafirði Magnússonar,
b. í Skáleyjum, bróður Jóhanns í
Svefneyjum, langafa Kristínar,
móður Atla Heimis Sveinssonar
tónskálds. Magnús var sonur Ey-
jólfs eyjajarls, Einarssonar, bróður
Magnúsar, langafa Maríu, móður
Einars Odds Kristjánssonar á Flat-
eyri.
Afmæli
Jón Hjörleifur Jónsson
Jón Hjörleifur Jónsson, fyrrv.
skólastjóri og prestur, Lyngrima 15,
Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Jón fæddist á Arnastöðum í Núpa-
sveit og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við Laugaskóla í Suður-Þing-
eyjarsýslu 1942-43, lauk kennara-
og söngkennaraprófi við KÍ1948,
stundaði nám við íþróttaskólann í
Ollerap í Danmörku 1948-49, lauk
BA-prófi í guðfræði frá Atlantic
Union Cohege í Bandaríkjunum
1955 og MA-prófi í guðfræði frá Po-
tomac University í Bandaríkjunum
1957.
Jón var kennari og skólastjóri við
bamaskóla aðventista í Vestmanna-
eyjum 1949-50 og síðar kennari og
skólastjóri við Hlíðardalsskóla í Ölf-
usi í nítján ár. Jón var kennari 1
Ghana 1976-80 og prestur og deildar-
stjóri aðventista í Reykjavík og á
Akureyri í fjórtán ár.
Jón var kórstjóri Kirkjukórs að-
ventista til margra ára, Kirkjukórs
Hveragerðis og Kotstrandar í fimm
ár, söngstjóri skólakórs og karla-
kvartetts Hlíðardalsskóla, stjórn-
andi Karlakórs Akureyrar 1973-76,
formaður Tónhstarfélags Akur-
eyrar í eitt ár og í stjóm þess í þijú
ár, var fmmkvöðuh að fimm ára
áætlun um námskeið til að hætta
að reykja á vegum íslenska bindind-
isfélagsins, ritari Landssambands-
ins gegn áfengisbölinu frá 1980 og
átti sæti í stjórn Átaks gegn áfengi
og var formaður þess í eitt ár. Eftir
Jón liggja fjölmargar sálmaþýðing-
ar og frumortir sálmar og ljóð.
Fjölskylda
Jón kvæntist 27.12.1954 Sólveigu
Árnadóttur Jónsson, f. 5.6.1927,
hjúkrunarfræðingi. Hún er dóttir
Árna Ásgeirssonar, sjómanns í Bos-
ton (bróður Ásgeirs forseta) og
Kristínar Jónsdóttur Ásgeirsson
húsmóður.
Böm Jóns og Sólveigar em Sól-
veig Hjördís Jónsdóttir, f. 27.11.1955,
hjúkrunarfræðingur í Reykjavík,
gift Stefáni Stefánssyni og eiga þau
þrjú böm; Kristín Guðrún Jónsdótt-
ir, f. 7.10.1958, spænskukennari og
organisti í Reykjavík, gift Jóni Thor-
oddsen og eiga þau tvær dætur; Jón
Árni Jónsson, f. 1.1.1962, fram-
kvæmdastjóri í Reykjavík, kvæntur
Lindu Dís Guðbergsdóttur og eiga
Til hamingju með afmæliö 27. október Guðriin Esther Halldórsdóttir,
85 ára Breiðvangi 16, Hafnarfirði.
HIM Kjalarlandi 14, Reykjavik.
Kolviöamesi, Eyjahreppi. Klscbcth Einnsson, Melselí 22, Reykjavík,
ou ara Guðrún Jónsdóttir, 50 ára
Hríngbraut 50, Reykjavik. Aðalstelnn Karlsson,
ÍjlglUa tiOxlðaUH, Einarsstööum, Reykdælahreppi. Untiur Sigurðardöttir,
Mai Ut VtliHtrgHuottii, 'Wngötu 7, Stöövarfirði. Erling Jóhannesson,
75 ára Hann er að heiman. .Jón Magnússnn,
Björg S. Ríkharðsdóttlr, Æsuielli 4, Reykjavik.
Lágholti 23, Mosfellsbæ. 40 ára
70 ára Guðríður Björg Guðfinnsdóttir,
Hvossahrauni 7, Grindavik.
Míklaholtsseli 2, Miklaholtshreppi. Neðstaleiti 7, Reykjavík.
María Guðmundsdóttir, Elinborg Sigurðardóttir,
Lindargötu 26b, Siglufirði. Iðu 3, Biskupstungnahreppi.
Þórólfur Helgason, Sigurður Þorkelsson,
Tungu, Skaröshreppi. Hlíðarvegi 22, Kópavogi-
Sigrún Jónsdóttir fóstra,
60 ára Jóhannes Þórlr Ingvarsson,
linnur Haraldsdóttir, Arnartanga 83, Mosfellsbæ. Hlunnavogi 4, Reykjavik. Sigriður Jóna Friðriksdóttir, 1 ..'oUinnt'mi o \.1t.slf.|Rhrt': :
Auður Sigurðardóttir, Reynihvammi 2, Hafnarlirði. Reynir Lárusson, Skipholti 40, Reykjavik.
þau einn son; Kolbrún Sif Jónsdótt-
ir Muchiutti, f. 9.3.1971, nemi í
sjúkraþjálfun í Kalifomíu í Banda-
ríkjunum en hennar maður er Ric-
ardoMuchiutti.
Systkini Jóns: Óskar Long Jóns-
son, f. 8.10.1915, d. 31.10.1991,
sjúkraþjálfari í Danmörku, en kona
hans er Nico Jónsson og em synir
þeirra þrír; Ingibjörg Rebekka Jóns-
dóttir, f. 15.10.1917, sjúkrahði í
Reykjavík, gift Guðjóni Guðjónssyni
og eiga þau eina dóttur; Bjami
Ragnar Jónsson, f. 25.7.1920, d. 8.4.
1961, húsameistari og húsgagna-
smiður í Reykjavik, var kvæntur
Kristínu Einarsdóttur og eru börn
þeirra þrjú; Rebekka Sigríður Jóns-
dóttir, f. 31.12.1921, hjúkrunarfræð-
ingur í Reykjavík, gift Jóhannesi
Magnússyni og eiga þau eina dóttur;
Tómas Jónsson, f. 28.3.1926, bifvéla-
virki í Bandaríkjunum, var kvænt-
ur Carol L. Jónsson en hún er látin
og em börn þeirra tvö; Málfríður
Bergljót Jónsdóttir, f. 12.4.1928,
verslunarmaður í Reykjavík, var
gift Jóel Blomquist Jacobsson sem
er látinn og eru synir þeirra tveir;
Þorbjörg Doróthea Jónsdóttir, f. 4.4.
1930, d. 4.1.1946.
Foreldrar Jóns voru Jón Tómas-
son, f. 13.9.1883, d. 5.3.1974, b. á
Arnastöðum, og kona hans, Guðrún
Jón Hjörleifur Jónsson.
Antonía Jónsdóttir, f. 3.4.1890, d.
1.1.1974, húsfreyja.
Jón verður að heiman á afmælis-
daginn.
Andlát
Kristín Vigfúsdóttir
Guðbjörg Kristín Vigfúsdóttir
ljósmóðir, Elliheimilinu Gmnd,
Hringbraut 50, Reykjavík, andaðist
21. október. Útfor hennar verður
gerð frá Fossvogskirkju á morgun,
fimmtudaginn 28. október, kl. 15.
Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir.
Starfsferill
Kristín var fædd 16.12.1896 í Brok-
ey á Breiðafirði. Hún var í Hús-
stjómarskóla Hólmfríðar Gísladótt-
ur í Reykjavík veturinn 1917-18 en
skóhnn var til húsa í Iðnó. Kristín
lærði karlmannafatasaum hjá Vig-
fúsi Guðbrandssyni, klæðskera í
Reykjavík, 1918-19. Hún lauk ljós-
mæðraprófi frá Ljósmæðraskóla ís-
lands30.3.1921.
Kristín var ljósmóðir í Stykkis-
hólmsumdæmi 1.6.1921-54 ogí
Helgafehssveitammdæmi 1.6.
1945-54. Hún tók verkefni heim í
Stykkishólmi við að „stífa og
strauja" skyrtur og annað af því
tagi og starfaði ennfremur á sauma-
stofu Kaupfélagsins í Stykkishólmi
um árabil. Eftir komuna til höfuð-
borgarinnar starfaði Kristín m.a.
hjá fatagerð Ara og co og Kirkju-
görðum Reykjavíkur.
Kristín var heiðruð af konum í
umdæminu árið 1946 eftir aldar-
íjórðungs störf sem ljósmóðir. Hún
var aftur heiðruð þegar hún flutti
th Reykjavíkur í desember 1954.
Fjölskylda
Kristín giftist 1.2.1930 Guðmundi
Jónssyni, £.29.1.1883, d. 22.12.1943,
skipstjóra og trésmið í Stykkis-
Guðbjörg Kristín Vigfúsdóttir.
hólmi. Foreldrar hans: Jón Jónsson,
bóndi á Narfeyri á Skógarströnd, og
Málfríður Jósefsdóttir frá Vals-
hamri.
Kristín og Guðmundur eignuðust
þrjú börn: Þóra Guðmundsdóttir, f.
16.7.1930, d. 14.8.1975, iðnverkakona
í Reykjavík; Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 1.7.1931, gift Gunnari Jó-
hannessyni, f. 6.3.1927, bakara-
meistara, þau eru búsett í Reykjavík
þar sem þau hafa rekið sína eigin
brauðgerð í þrjá áratugi, Guðrún og
Gunnar eiga tvo syni, Gunnar
Gunnarsson, f. 16.11.1959, bakara,
maki Kristín Aðalheiður Emilsdótt-
ir, f. 27.10.1959, skrifstofustúlka, þau
eiga einn son, Atla Gunnarsson, f.
10.2.1990, Kristín Aðalheiður átti
son fyrir, Gunnar Þór Ragnarsson,
f. 18.1.1977, og Steinar Gunnarsson,
f. 7.3.1964, bakara, kvæntur Önnu
Rósu Kristinsdóttur, f. 16.3.1966,
skrifstofustúlku, þau eiga tvo syni,
Gunnar Reynir, f. 14.10.1986, og
Bjarka Þór, f. 15.4.1990; Ath, f. 24.10.
1932, d. 5.6.1966, Atli, sem var
heilsuhtih, bjó hjá móður sinni.
Uppeldisdóttir Kristínar og dóttur-
dóttir Guðmundar: Gerður ívars-
dóttir, gift Gesti Þorkelssyni, tré-
smíðameistara.
Systkini Kristínar: Jón Vigfússon,
búsettur í Stykkishólmi en bjó áður
í Brokey; Hildur, látin, hún var bú-
sett í Stykkishólmi og síðar í Reykja-
vík; Lára, látin, hún var búsett á
Narfeyri á Skógarströnd og síðar í
Reykjavík; Lhja, búsett í Hafnar-
firði; Vilhjálmur, búsettur í Stykkis-
hólmi en bjó áður í Brokey; Eygló,
búsett í Reykjavík; Laufey, látin,
hún var búsett í Brokey.
Foreldar Kristínar voru Vigfús
Jónsson, f. 4.10.1862, d. 3.7.1952,
bóndi, smiður, hreppsnefndarmað-
ur og oddviti, Brokey á Breiðafirði,
og Kristjana Guðbjörg Kristjáns-
dóttir, f. 10.9.1874, d. 17.2.1968.
Ætt
Vigfús var sonur Jóns Bergssonar
Hjaltahn, bónda í Brokey á Breiða-
friði, og Hildar Vigfúsdóttur frá
Geitareyjum.
Kristjana Guðbjörg var dóttir
Kristjáns Guöbrandssonar, bónda
og hreppstjóra á Gunnarsstöðum í
Hörðudal, og Guðbjargar Hákonar-
dóttur frá Gunnarsstöðum. Kristján
var sonur Guðbrands ríka í Hólm-
látri á Skógarströnd.