Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Blaðsíða 17
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
17
Fréttir
Aflahæstu
30.000 t
25.000
20.000
15.000
SulSíí=
10.000
Þingmenn úr öllum flokkum ræða fiskveiðistjómun:
Vilja takmarka
framsal á kvóta
Aö sögn Jóhanns Ársælssonar al-
þingismanns hafa þingmenn úr öll-
um stjórnmálaílokkum verið aö
ræöa þann möguleika að bera fram
tillögu varöandi frumvarp um stjórn
fiskveiða um að takmarka framsal á
kvóta.
Sú hugmynd sem nefnd er í því
sambandi er aö hver bátur veröi aö
vera búinn að veiða minnst 80 pró-
sent af úthlutuðum kvóta sínum áö-
ur en útgerðarmanni hans sé heimilt
að selja kvóta.
„Ég held að þessi hugmynd sé
óraunhæf. Ég hef hins vegar sett inn
í frumvarpsdrögin ákvæði sem miða
að því að koma í veg fyrir misnotkun
þannig að menn færi ekki á hverjum
tíma meiri aflaheimildir á hvert skip
en það getur veitt í meðal góðu ár-
feröi. Einnig er um að ræða ákveðnar
gjaldtökur fyrir tiltekinn fjölda af
kvótatilfærslum. Kjarni málsins er
þó sá að framsal kvóta er forsenda
fyrir því að atvinnugreinin geti þró-
ast á eigin forsendum og lúti ekki
stöðugri miðstýringu," sagði Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
um þessa hugmynd.
-S.dór
Loðnuveiðamar:
Hafa veitt 430
þúsund tonn
- mestu landað á Siglufirði
Gylfi Krisljánsson, DV, Akureyri:
Óðum saxast nú á upphafskvótann
sem gefinn var út í byrjun loðnuver-
tíðar í sumar. Heildaraflinn á loðnu-
vertíð, sem hófst um mitt sumar, er
nú orðinn rúmlega 430 þúsund tonn
af 702 þúsund tonna kvóta sem þýðir
að eftir er að veiða um 270 þúsund
tonn.
Svo virðist sem framundan sé
hörkumikil og góð loðnuvertíð í vet-
ur því skipin hafa verið að flnna tals-
verða loðnu mjög víða úti fyrir Norð-
urlandi, allt vestur undir Hom og
austur undir Langanes. Enn á loðnan
eftir að þétta sig og þegar hún fer að
ganga austur fyrir land og með suð-
urströndinni verður án efa mokveiði.
Langmestu hefur verið landað á
Siglufirði eða tæplega 90 þúsund
tonnum, rúmlega 58 þúsund á Seyð-
isfirði og rúmlega 56 þúsund tonnum
á Raufarhöfn. Aflahæstu skipin eru
Siguröur VE með rúmlega 26 þúsund
tonn, Hólmaborg frá Eskifirði með
tæplega 26 þúsund tonn og Börkur
frá Neskaupstað og Víkingur frá
Akranesi eru með rúmlega 23 þús-
und tonn.
Hæstu löndunarstaðir
90.000 t-
á loðnu
Útgeröarfélag Akureyringa:
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Nokkuð hefur dregið úr hinni
miklu veiði togaranna hér við land
að undanfómu en afli hefur þó ver-
ið vel viðunandi.
Hjá Útgerðarfélagi Akureyringa
urðu menn að grípa til þess ráðs á
dögunum að láta einn togara landa
á Sauðárkróki vegna þess að í
frystihúsi fyrirtækisins hafðist
ekki undan við að vinna afla skip-
anna. Nú hefur það ástand breyst
en þó hefur verið næg vinna alla
daga.
Síðustu landanir hjá togurum ÚA
em 120 tonn hjá Harðbak, rúmlega
100 tonn hjá Hrímbak og Sólbakur
landaði rúmlega 100 tonnum af
unnum frosnum fiski.
Mjólkurbú Flóamanna:
Fullkomin rannsóknarstofa
Kristján Einarsson, DV, Selfossi:
Framkvæmdir við nýbyggingu
hjá Mjólkurbúi Flóamanna á Sel-
fossi hafa staðið yfir undanfama
mánuði. Um er aö ræða tveggja
hæða hús sem stendur framan við
aðalbygginguna og hýsa á rann-
sóknarstofu á jarðhæð, móttökusal
og aðstöðu fyrir vöruþróun á ann-
arri hæð.
Starfsmenn rannsóknarstofunn-
ar eru fluttir í nýja húsið. Að sögn
Magnúsar Ellertssonar forstöðu-
manns er um byltingu aö ræða.
„Ég held að það sé ekki ofsagt að
þetta sé besta rannsóknarstofa
landsins í mjólkuriðnaðinum. Hér
fer fram allt eftirlit með fram-
leiðslu og hlutverk okkar er að
tryggja að framleiöslan sé sem jöfn-
ust að gæðum. Við fylgjumst einnig
með framleiðslu bændanna í sam-
vinnu við mjólkureftirlitsmenn,"
sagði Magnús Ellertsson.
Starfsmenn rannsóknarstofu MBF við hádegisbarinn þar sem smakkað
er á öllum framleiðsluvörum búsins á hádegi hvern dag. Frá vinstri
Magnús, Sigurður Ólafsson og Heimir Hjaltason. Lilla Hillers vinnur þar
einnig. DV-mynd Kristján
Greiða25%samn-
ingskrafna
Nauðasamningar Meleyrar hf. á
Hvammstanga hafa verið staðfestir
en héraðsdómur Norðurlands vestra
veitti fyrirtækinu heimild til að leita
nauðasamninga í vor. Samkvæmt
nauðasamningnum greiðist 25 pró-
sent samningskrafna eða um 25
milljónir króna, þar af 15 prósent
strax og afgangurinn á einu ári.
-GHS
Dunlop meðfólks-
bfla á Langjökli
Olgeir Helgi Ragnarsson, DV, Borgamesi:
Þessa dagana stendur yfir undir-
búningur að því aö menn frá Dun-
lop-fyrirtækinu, sem framleiðir hjól-
barða, fari á Langjökul til að sýna
fram á gæði hjólbarða sinna í snjó
og hálku. Nokkrir fólksbílar eru þeg-
ar á jöklinum og um helgina verður
gerður samanburður á hjólbörðum
frá Dunlop og öðrum.
Fréttaritari DV ræddi við Ingi-
mund Þorsteinsson í gær, en hann
var þá staddur á Langjökli ásamt 2
fulltrúum Dunlop í 11 vindstigum og
hellirigningu. Hann sagði margar ár
renna niður jökuhnn og að nýjar
væru sífellt að myndast. Vegurinn
væri orðinn mjög slæmur en allt til
reiöu til að hefja prófanir. Þama eru
snjótroðari, tæknibíll frá Dunlop og
fjórir fólksbílar. Ingimundur taldi
góða von um sæmilegt veður nk.
laugardag og þá ætti að vera mögu-
legt að prófa hjólbarðana.
BORHIN
HEIM!
ALMENN FJÁRSÖFNUN STENDUR NÚ YFIR
STONDUM SAMAN OG SYNUM VIUANNIVERKI!
Þrátt fyrir rúmlega þriggja ára þrotlausa baráttu, hefur hvorki gengiö né rekið
í því að ná börnunum Dagbjörtu og Rúnu heim frá Tyrklandi. Margir hafa lagt
málinu lið og sýnt viljann í verki, en betur má ef duga skal. Með samstilltum
stuðningi isiensku þjóðarinnar má leiða þetta erfiða mál til farsælla lykta. Við
skulum öll eiga okkar þátt íþvíað réttiætið sigri að lokum.
Hægt er að greiða framlag með greiðsiukorti. Hafið kortið við höndina þegar
þér hringið. Einnig er hægt aö greiða með gíróseðli sem sendur verður heim.
• • +
SOFNUNARSIMI:
91-684455
VIÐ ERUM VIÐ SÍMANN KL. 10-22.
Fjárgæsluaðili: Landsbanki íslands.
Samstarfshópurinn.