Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
5
- Fréttir
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ:
Samþykkjum hvorki heilsu-
kort né tryggingagjaldið
- við verðum að segja þessum kjarasamningum upp, segir Guðmundur J.
„Ég tel að forsendur séu fyrir því
að opna kjarasamninga ef þær tillög-
ur, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram,
verða látnar ná fram að ganga,“ sagði
Benedikt Davíðsson, forseti ASI, í
samtali við DV.
Hann sagði að ekki kæmi til greina
að samþykkja heilsukortin og 0,5
prósent tryggingagjaldið. í forsend-
um kjarasamninganna frá í vor sé
skýrt tekið fram að ekki verði um
neinar skattahækkanir að ræöa sem
komi niður á láglaunafólki.
„Við sögðumst gera okkur grein
fyrir því að afla þyrfti tekna til að
mæta kostnaöi af lækkun virðis-
aukaskattsins. Það mætti þó ekki
bitna jafn þúngt á því fólki sem verið
væri að flytja bætur til með lækkun
virðisaukaskattsins og þeim sem
hærri hefðu tekjurnar. Og það er
hægt að afla þessara tekna án þess
að snerta við fólki undir skattleysis-
mörkum. Eins er það með fjármagns-
tekjuskattinn. Hann á að koma um
áramótin samkvæmt samningum. Ef
menn ætla að fresta því verður ríkis-
stjórnin að sýna okkur fram á að hún
geti aflað tekna án þess að það komi
viö okkar fólk,“ sagði Benedikt Dav-
iðsson.
Guðmundur J. Guðmundsson,
formaður Dagsbrúnar, á sæti með
Benedikt og Ingibjörgu R. Guð-
mundsdóttir, varaforseta ASÍ, í
launanefndinni sem endurskoða á
kjarasamningana fyrir 10. nóvember
næstkomandi. Hann sagði að í sínum
huga væri enginn vafi um að segja
ætti upp kjarasamningum.
„Þetta eru það slæmir samningar
að ég er algerlega andvígur því að
láta þá gilda áfram. Forsætisráð-
herra getur engu þar um breytt þótt
hann kalli okkur til einhvers fundar
um eitthvert atriði. Þetta eru ægileg-
ir kjarasamningar, alveg hræðilegir.
Ég vil bara nýja kjarasamninga"
■
Starismenn Hitaveitu Selfoss í vinnu við borholuna sem bilaða dælan er i.
DV-mynd Kristján
Hitaveita Selfoss:
Fullur þrýstingur
kominnákerfið
Kristján Emaisson, DV, Selfossi:
Þegar djúpvátnsdæla í annarri að-
alholu hitaveitu Selfoss bilaði nýlega
vildi svo óheppilega til að hin holan
var í venjubundnu viðhaldi og því
óvirk. Grípa varð til þess ráðs að taka
vatn úr holu sem gefur minna vatn
en heitara og aðgerðimar dugðu til
þess að ekki varð alveg vatnslaust.
Endurvirkjun er nú lokið og er
kominn fullur þrýstingur á kerfið.
Að sögn Ásbjöms Blöndals veitu-
stjóra stendur til að hefja boranir
eftir heitu vatni í og við Selfoss.
„Það er verið að vinna að ýmsum
þáttum málsins og semja við landeig-
endur því að það er full þörf á að ná
í meira vatn og heitara," sagði veitu-
stjóri.
Heita vatnið hjá Selfossveitum
kemur um 75 stiga heitt úr holunum
og er sent frá veitustöð rúmlega 70
stiga heitt. Eyrarbakki, Stokkseyri
og byggðin á milli Selfoss og þessara
staða fá vatn frá Hitaveitu Selfoss.
sagði Guðmundur J.
Samkvæmt heimildum DV eru
skoðanir skiptar innan verkalýðs-
hreyfingarinnar um hvort segja eigi
kjarasamningunum upp. Margir ef-
ast um að hreyfingin hafi stöðu til
að knýja á um nýja kjarasamninga.
Þær raddir heyrast meira aö segja
meðal þingmanna stjómarflokkanna
að ekki eigi að semja neitt við verka-
lýðshreyfinguna, hún hafi ekki neina
stöðu tÚ að fara út í átök. Ljóst er
aö forsætisráðherra metur ekki stöð-
una þannig og mun hann boða launa-
nefndina á sinn fund innan tíðar
enda verður máhnu að vera lokið
fyrir 10. nóvember næstkomandi.
-S.dór
Blefu hreppar verða
þvingaðir til sameiningar
- hvað sem gerist í atkvæðagreiðslunni
Félagsmálaráðuneytið hyggst
þvinga ellefu lítil sveitarfélög til aö
sameinast öðru sveitarfélagi sam-
þykki íbúarnir ekki sameiningu í
atkvæðagreiðslunni 20. nóvember
eða í atkvæðagreiðslunni næsta
vor. Sennilegt þykir að gengið verði
aftur til atkvæðagreiöslu í mars á
næsta ári og fá íbúar í Utlu hrepp-
unum tækifæri til að samþykkja
sameiningu í þeim kosningum. Fá-
ist ekki sameining þá verða hrepp-
amir þvingaðir til sameiningar.
Bragi Guðbrandsson, aðstoðar-
maður félagsmálaráðherra, segir
að samkvæmt sveitarstjórnarlög-
um eigi félagsmálaráðuneytið aö
sameina sveitarfélög með 49 íbúa
eða færri öðrum sveitarfélögum.
Það hafi hins vegar ekki verið gert
þar sem þótt hafi sanngjarnt að
gefa íbúunum kost á að greiða um
það atkvæði hverjum þeir samein-
ist.
Eftirtaldir hreppar geta att von á
að verða þvingaðir til að sameinast
öðru sveitarfélagi: Skógarstrand-
arhreppur, Haukadalshreppur, Ög-
urhreppur, Reykjaíjarðarhreppur,
Nauteyrarhreppur, Snæfjalla-
hreppur, Öxnadalshreppur, Mjóa-
fiarðarhreppur, Fjallahreppur,
Þingvallahreppur og Grafnings-
hreppur.
-GHS
NýjaPosturepedic®dýnukerfiðfrá ^
Dýnurnar, sem laga sig að líkamanum
Fjaðrakeríið PostureTech, Stálgrind SteelSpan á Styrktir kantar EdgeGuard,
sem gefur líkamanum neðri dýnu, sem tryggir sem gefur 10% meira
mátulegan stuðning. langvarandi endingu. svefnrými.
Aðeins frá Sealy. Aöeins frá Sealy. Aðeins frá Sealy.
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugard. frá kl. 10-16.
HÚSGAGNAVERSLUN
vir*d udyd irc;
Marco
Langholtsvegi 111. sími 6S0 690.
Frí heimkeyrsla
og uppsetning á
stór-Reykjavíkursvæöinu
M 9310