Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 I>V Þorgeir&Ellert: Seldu dóttur- fyrirtæki Nestle flæðilínu Fréttir Sektarinnhennta hjá lögreglustjóra í Reykjavlk: Fullri hörku beitt við innheimtu sekta - segir Sigríður Stefánsdóttir, deildarlögfræðingur hjá lögreglunni í Reykjavík Aðlli semur ekki „ð. eöa borgar ekki skuid sína i Fjárnám tekið eignum skuldara Skuldari nýtur ekki lánafyrirgreiðsiu í bönkum sökum eignaleysis ..........ITiOTfe Fjámámsleið verður beitt af fullri hörku við innheimtu sekta hjá emb- ætti lögreglustjórans í Reykjavík. Embætti lögreglustjóra sér um inn- heimtu á lögreglustjórasáttum og sektum auk þess að sjá um inn- heimtu á dómum Hæstaréttar og héraösdóms fyrir Fangelsismála- stofnun ríkisins. Innheimtan er orð- in skilvirkari en áður. Lögreglustjóraembættið þarf eins og aðrar innheimtustofnanir ríkisins að beita þeim ráöum sem tiltæk og heimil eru lögum samkvæmt, segir Sigríður Stefánsdóttir, deildarlög- fræðingur hjá lögreglunni í Reykja- vík. „Það má kannski segja að þeir sem ékki hafa staðið skil á dómum og sáttum í einhveijum mæli hafi getaö komist upp með það í lengri tíma en góðu hófi gegnir að borga þetta. Það er auðvitað ekki nægilegur vamaður í því. Við erum ekki aðeins að herða sektarinnheimtuna til að ná inn pen- ingunum. Með þessu sýnum við mönnum fram á að máli þeirra er ekki lokið um leið og þeir skrifa und- ir sátt eða þegar dómur fellur," segir Sigríður. Erfiðlega hefur gengið að inn- heimta sektir, bæði vegna þess aö gjaldendur hafa ekki sinnt sektar- boði og einnig er um að kenna bágri fjárhagsstöðu. í ljósi þessa sér emb- ætti sig knúið til að taka fast á þess- um málum. Aðför verður gerð hjá þessum einstaklingum. Lögreglu- stjórasáttin eða dómurinn verður sendur sýslumanni og þess freistað að taka eignir þessara einstaklinga fjárnámi, til dæmis bifreiða- eða fast- eignir. Reynist einstakiingurinn hins vegar eignalaus er fjárnámið árang- urslaust. Fyrir þá getur það þýtt að bankar og lánastofnanir láni þeim ekki. „Ég vil hvetja alla þá sem eiga ógreiddar sektir hjá embætti lög- reglustjórans til að koma og gera hreint fyrir sínum dyrum - að greiða eða semja um greiðslu á sekt sinni. Öllu máli skiptir að aöilar sinni bréf- um okkar og komi til viðtals um skiptingu á sektargreiðslunni. Að öðrum kosti munum við senda málin lengra og eru þau málalok verst fyrir aðilann sjálfan," segir Sigríður. -PP Siguxður Sverxisson, DV, Akranesi: Norskt sjávarútvegsfyrirtæki, dötturfyrirtæki svissneska iðn- aðarrisans Nestle, hefur fyrir milligöngu Marels hf. samið við skipasmíðastöð Þorgeirs og Ell- erts á Akranesi um kaup á flæði- linu. Vilyrði eru um kaup fyrir- tækisins á 4 sambærilegum lín- um til viðbótar næstu 2 árin. Haraldur Líndal Haraldsson, framkvæmdastjóri Þ&E, sagöi í samtali við DV að ffæðilínan ætti að afhendast í næsta mánuði. Að sögn Haraldar er þetta önnur flæðilinan í nýrri kynslóð sem seld er úr landi. Fyrr á árinu var sambærileg lína seld til Arkansas í Bandaríkjunum. Lögreglan í Reykjavík varð vitni að því er ölvaður karhnaður á þrítugsaldri rak höndina í gegn- um rúðu á verslun við Banka- stræti 8 aðfaranótt laugardagsins og skarst illa. Glerbrot fór í háls mannsíns og skar í sundur slag- æð svo mannínum blæddi mikíð. Fyrir tilviljun var lögreglan á næstu grösum og kom hún hon- um undir læknishendur. Ekki mátti miklu muna að manninum blæddi út. -ingo Siglufl arðarvegur: Framkvæmdir fyrir 70-75 milljónir öxn Þóraxinsson, DV, Fljótuiru Nú er um það bil að ljúka miklum framkvæmdum á Siglufjarðarvegi um Óslandshlíð. Vinna hófst þar í júní og 8,2 km langur vegarkafli hef- ur verið byggður upp. Það er að nokkru leyti á nýju veg- arstæði þar sem blindhæðir hafa ver- ið teknar af og beygjur mildaðar frá því sem var. Áætlað er að leggja bundið slitlag á vegarkaflann næsta sumar og á því að vera lokið fyrir 1. júlí 1994. Að sögn Jónasar Snæbjömssonar hjá Vegagerðinni á Sauðárkróki er kostnaður við framkvæmdina alla áætlaður 70-75 millj. króna. Jónas sagði að verkið hefði gengiö vel og samskipti við landeigendur á svæð- inu verið mjög góö. Fjörður sf., sem er félagsskapur vörubílstjóra í Skagaflrði, var verk- taki. Fjörður átti næstlægsta tilboð í verkið, 60% af kostnaðaráætlun, þeg- ar það var boðið út í vor. Jón Sigurðsson, verkstjóri hjá Firði, sagði að þeir gerðu sér vonir um að vera ekki langt frá tímakaupi við verkið. Það teldu menn viðun- andi - mest væri um vert að halda verkinu innan héraös þannig að heimamenn fengju vinnuna. Annars hefði sumarið orðið dapurt hjá vöru- bílstjórum í héraði. DV-mynd örn Jón Sigurðsson og Rúnar Sveinsson við vinnu á Sigiufjarðarvegi fyrir skömmu. Sigrún Magnúsdóttir gagnrýnir vinnubrögð vegna framkvæmda við Barónsborg: Misnotkun sjálfstæðismanna - enginn klíkuskapur, segir forstöðumaður byggingadeildai' Sigrún Magnúsdóttir, borgarfull- trúi framsóknarmanna, segir að forráðamenn Trésmiðju Reykja- víkurborgar hafi gengið á svig við vilja borgarráðs þegar ákveðið var að fela Magnúsi Jenssyni, bygg- ingaverktaka og fufftrúa sjálfstæð- ismanna í skipulagsnefnd, lagfær- ingar við leikskólann Barónsborg við Njálsgötu fyrir 12 milljónir króna. Hún segir aö þessi vinnu- brögð séu ámælisverð. Þetta sé enn eitt dæmiö um það hvernig sjálf- stæðismenn misnoti aðstöðu sína hjá borginni. Borgarráð samþykkti á fundi sín- um nýlega að þjóða ekki út lagfær- ingar á húsnæði leikskóla við Njálsgötu heldur fela Trésmiöjunni að annast þær, eins og forráða- menn Trésmiðjunnar lögðu til. Sigrún segir að ætlast hafi verið til þess að starfsmenn Trésmiðjunnar ynnu lagfæringamar að miklu leyti sjáffir. í ljós hafi svo komið að starfsmennirnir ynnu „aðeins brotabrot af verkinu og afhenda Magnúsi Jenssyni nánast aflt verk- ið,“ segir Sigrún. „Þetta er ekki klíkuskapur. Við fagmennirnir tökum þessar ákvarðanir alveg sjálfir. Þegar við ráðum byggingameistara könnum við ekki hvort hann er sjálfstæðis- maður og hvort hann situr í ein- hverri nefnd. Við könnum hvað er mikið að gera hjá manninum og í hvaða verkefnum hann er og hvort hann hefur mannafla og getu tif að vinna verkið fyrir okkur,“ segir Guðmundur Pálmi Kristinsson, forstöðumaður byggingadeildar Reykj avíkurborgar. -GHS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.