Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993 37 x>V Sími 632700 Fréttir ■ Verslun 20-50 % afsláftur af hreinlætistœkjum. baðinnréttingum og sturtuklefum. A&B, Skeifunni llb, sími 681570. Gotf tilboð. Útvíðar barnabuxur 950. Mikið úrval af göllum frá 1.250, jogg- ingbuxur á börn og fullorðna, vesti á fullorðna 1.680, úrval afbolum. Send- um í póstk., fríar sendingar miðað við 5.000. Ceres, Nýbýlavegi 12, s. 44433. Stærðir 44-58. Tískufatnaður. Stóri listinn, Baldursgötu 32, s. 622335. Alvöru þjófavarnabúnaður. Slagbrand- ar, öryggislæsingar, öryggiskeðjur, öryggishespur, öryggisgrindur o.fl. Uppsetning ef óskað er. Varist inn- brotin, kynningarverð. Víkurvagnar, Síðumúla 19, sími 91-684911. ■ Hjólabarðar JEPPADEKK 30" - 15", fínmunstrað, kr. 10.807 stgr. 30" -15", grófmunstrað, kr. 10.807 stgr. 31" -15", fínmunstrað, kr. 11.432 stgr. 31" -15", grófmunstrað, kr. 11.858 stgr. 33" - 15" fínmunstrað, kr. 13.226 stgr. 33" -15", grófmunstrað, kr. 13.226 stgr. Umfelgun, ballansering, skiptingar á staðnum, raðgreiðslur. VDO hjólbarðaverkstæði, Suðurlandsbraut 16, s. 679747. ■ Ýmislegt íslensk tréleikföng! Kassabílar, vöru- bílar, sendibílar, vöggur og dúkku- rúm. Úrval gjafavara. ES Sumarhús, Bíldshöfða 16, bakhús, s. 91-683993. Góó ráö eru til aó iara eftirlieim! Eftir einn -ei aki neinn Hin umdeildu fhunvörp um breytta stjóm fiskveiða: Þarf ef laust lagni til að fá þau samþykkt - segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra Það er ekki ofsögum sagt að mikill ágreiningur sé og mörg sjónarmið á lofti varðandi frumvörp um breytta stjórn fiskveiða sem Þorsteinn Páls- son sjávarútvegsráðherra hefur lagt fram til umfjöllunar í þingflokkum stjórnarflokkanna. Reyndir alþingis- menn sögðu í samtali við DV að sjáv- arútvegsráðherra þyrfti á allri sinni lagni að halda til að koma þeim í gegnum þingiö og afar hæpið væri að hann kæmi þeim í gegn óbreytt- um. Þetta var borið undir Þorstein Pálsson í gær. „Það er ugglaust alveg rétt að það þarf að beita ítrustu lagni til að koma frumvörpunum í gegnum þingið enda þótt ég hafi gert ýmsar breyt- ingar á þeim frá upphaflegum tillög- um tvíhöfðanefndarinnar til að koma til móts við sjónarmið manna. En það er nú svo að sjónannið um einstök atriði í þessum efnum eru fleiri en svo að allir geti fengið allt sitt. Þann- ig verður það á meðan fiskiskipa- stóllinn er stærri en svo að afrakstur fiskistofnanna leyfi að honum sé beitt af fullum þunga," sagði Þor- steinn. Andstaöan í stjórnarflokkunum við afgreiðsluna á krókaveiðibátun- um er mikil. Það var ekki meirihluti fyrir henni í vor er leið og talið er víst að enn sé ekki meirihluti fyrir útfærslunni á þeirra málum í núver- andi frumvarpi. Þorsteinn segist hafa gert breytingar á frumvarpinu hvað þessu atriði viðkemur. Þar er um að ræða val manna á milli banndagakerfis annars vegar og afla- marks hins vegar. „Ég tel mig hafa með þessu komið verulega til móts við þá menn sem höföu uppi andstöðu viö frumvarpið í vor. Ég hef að sjálfsögðu gert það til að ná um það sáttum," sagði Þor- steinn Pálsson. Samkvæmt öruggum heimildum DV og eftir að hafa rætt við stjórnar- þingmenn nægir breyting Þorsteins á frumvarpinu ekki til. Menn vilja ekki una þeirri miklu skerðingu sem verður á afla smábátanna. Þingmenn segja líka að ekki komi til mála að láta þátt krókabáta í lögunum ósnertan því samkvæmt núgildandi lögum myndi aflaheimild þeirra næsta haust verða sama og engin. -S.dór Bjarni Kristjánsson stendur við ofninn þar sem loðnan er brædd. Inni í ofninum er nokkur hundruð gráða hiti. Bjarni hefur unnið i verksmiðjunni í 25 ár og segist kunna vel við starfann. DV-mynd GVA Bolungarvík: Hefurverið 25árí bræðslunni „Hér er næga vinnu að fá núna. Þetta er búið að vera mjög gott und- anfarið síðan Þuríður og Osvör hófu rekstur. Svo hefur hka borist næg loðna á land eftir að þeir fóru aö veiða hér fyrir utan,“ segir Bjarni Kristjánsson, verkstjóri í loðnu- bræöslunni í Bolungarvík. Næg vinna hefur verið í loðnu- bræðslunni í Bolungarvík í haust. Loðnubátar hafa undanfarna daga verið að fá góðan afla um 70 mílur út af Vestfjörðum og er Bolungarvík næsta höfn með bræðslu. Þróarrými er fyrir um 3200 tonn og eru 350 til 400 tonn brædd í verksmiðjunni á sólarhring þannig að sjá má að um litla bræðslu er að ræða. Verksmiðj- an hefur nýverið skipt um eigendur og tækjabúnaður er kominn til ára sinna. Bræðslan var byggð á sjöunda áratugnum og segir Bjarni að líða fari að því að yngja þurfi tækjabún- aðinn upp. Bjarni hefur starfað í verksmiöj- unni í um 25 ár. Nú er unnið á tví- skiptum vöktum í loðnubræðslunni og starfa þar 13 manns. Á meðan verksmiðjan var ný var hins vegar þrædd síld í verksmiðjunni og þá var unnið á átta tíma vöktum. „Það var viðbjóður," segir Bjarni. Nú er hins vegar mest um loðnu en einnig eru bræddþarbein. -pp Meiming Blásarakvintett Reykjavíkur Tónleikar voru í gærkvöldi í húsi Félags ís- lenskra hljómlistarmanna. Blásarakvintett Reykjavíkur lék ásamt Beth Levin píanóleikara frá Bandaríkjunum. Félagar Blásarakvintetts- ins eru Bernharður Wilkinsson, flauta, Daði Kolbeinsson, óbó, Einar Jóhannesson, klarínett, Jósef Ognibene, horn, og Hafsteinn Guðmunds- son, fagott. Á efnisskránni voru Trois pieces breves eftir Jaques Ibert, Noctume í cís moll og Valse í e moll eftir Fréderic Chopin, Chac- onne fyrir blásarakvintett eftir Finn Torfa Stef- ánsson og Sextett fyrir píanó og blásarakvintett eftir Francis Poulenc. Lögin eftir Ibert eru létt og skemmtileg tónlist ‘ og skrifuð á litríkan hátt. Sextett Poulencs er meira verk að efni og umfangi en á samt ýmis- legt sameiginlegt með verkum Iberts. Má þar nefna glaðværð og hressileika og nokkuð sem kalla má franskan anda sem lýsir sér í glæsi- mennsku og tilfinningu fyrir stíl. Hendingar og Tónlist Finnur Torfi Stefánsson stef minna stundum nánast á leikræna tilburöi og gefur þaö tónlistinni yfirbragð leikhústónlist- ar. Chopin bjó eins og kunnugt er lengst af í Frakklandi og hin þokkafullu píanóverk hans hafa að sönnu glæsilegt yfirbragð og hreinan stíl sem vera má að sé franskur þáttur í verkum hans. Þar er þó annar þáttur sterkari sem sjald- an bregður fyrir í tónlist franskra tónskálda en það er þjáningin. Undirritaður gæti sagt ýmislegt um verk Finns Torfa Stefánssonar, sem flutt var þarna, en neit- ar sér um þá freistingu í nafni hlutlausrar blaða- mennsku utan að láta þess getið að.verkið var mjög vel flutt af kvintettinum. Svo var einnig um önnur verk efnisskrárinnar. Flutningurinn á sextettinum var þrunginn ferskleika og blæ- brigði og litir nutu sín mjög vel í verkum Iberts. Píanóleikur Levins var áheyrilegur. Það er hins vegar ekki með öllu þakklátt að leika þau verk Chopins sem hún valdi. Þessi verk eru öllum gjörkunnug í fínpússuöum flutningi allra helstu höfuðsnillinga sem skapa þá viðmiðun sem alit skoðast úr frá.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.