Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1993, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 1993
39
Fréttir
Sauðárkrókur:
Bæjarfulltrúum
verður fækkað
Bæjarmálapólitíkin á Sauðárkróki
virðist hafa borið þess nokkur merki
upp á síðkastið að kosningar eru í
nánd. Innan bæjarstjórnarinnar,
sem yfirleitt hefur starfað „hávaöa-
laust“, hafa komið upp deilumál, s.s.
varðandi „Skjaldarmáhð“ svokall-
aða þegar meirihlutinn í Skildi hf.
var seldur Þormóði ramma á Siglu-
firði. FuUtrúar minnihlutans ásök;
uðu þá meirihlutann um að hafa sof-
ið á verðinum og hefðu menn haldið
vöku sinni hefði átt að vera hægt að
koma í veg fyrir söluna.
Það er aðallega Anna Kristín
Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi Al-
þýðubandalags, sem hefur verið í
sviðsljósinu en hún hefur verið óspör
á gagnrýni á meirihlutann. Það leiddi
m.a. til þess að henni var vikið úr
bæjarráði þar sem hún sat sem
áheyrnarfuhtrúi en það var af meiri-
hlutanum m.a. varið með því að um
trúnaðarbrest miUi Önnu Kristínar
og bæjarráðsmanna heíði verið að
ræða.
Meirihlutinn í bæjarstjórn á Sauð-
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
árkróki samanstendur af fulltrúum
Sjálfstæðisflokks, sem eru þrír, ein-
um krata og einum af Usta óháðra,
en sami meirihluti var einnig á
Króknum á síðasta kjörtímabiU. í
minnihluta eru því þrír fuUtrúar
Framsóknar og einn frá Alþýðu-
bandalagi
Það mun án efa setja svip á kosn-
ingabaráttuna á Króknum að tillaga
um fækkun bæjarfuUtrúa, sem lögð
var fram af Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki, var samþykkt og
fækkar bæjarfulltrúum því úr 9 í 7.
Það gæti þýtt meiri hörku í kosninga-
baráttunni en hvað sem því Uður
virðast menn vera rólegir í tíöinni
og Utið vera farnir að huga að fram-
boðsmálunum.
Enginn bæjarfulltrúanna hefur
gefið yfirlýsingu um að verða ekki í
framboði áfram en svörin sem DV
fékk er þau mál voru könnuð voru
yfirleitt þannig að nægur tími væri
til að skoða þau mál. Einn viðmæ-
landi DV sagði þó að menn væru víða
farnir að ræða framboðsmáUn í sín-
um hópi og nokkuð öruggt mætti
telja að um einhveijar breytingar
yrði að ræða á efstu sætum listanna.
En þótt menn fari sér hægt út á við
má telja nokkuð víst að kosningabar-
áttan á Króknum verði hörð þegar
hún hefst.
Mikið af gæs víða um land:
Rjúpnaveiðimenn hafa farið víða til rjúpna og árangurinn sést á svölunum um allt land.
DV-mynd Agúst
Gæsaveiði aldrei gengið betur
„Gæsaveiðin hefur aldrei gengið
betur en núna þetta árið, það hefur
verið mikið af gæs víða um landið
og er ennþá,“ sagði Sverrir Sch.
Thorsteinsson skotveiðimaður í
samtaU við DV í vikunni.
„Skotveiðimaður hefur verið með
þetta 60 fugla eftir daginn og tveir,
þrír hafa verið með 200 fugla eftir
helgina," sagði Sverrir.
Líklega er búið að skjóta á milU 12
og 15 þúsund gæsir núna og það á
eftir að bætast verulega við þá upp-
hæð áður en yfir lýkur.
„Rjúpaveiðin byrjaði vel fyrstu
dagana en það hefur dregið úr henni
eftir að hlýna tók en ég held að þetta
eigi eftir að verða gott tímabil þó það
sé stutt,“ sagði Sverrir.
Það er erfitt aö segja til um hve
margar rjúpur hafa verið skotnar en
4-5 þúsund fuglar eru nærri lagi.
-G.Bender
Landssamband stangaveiðifélaga:
Jón G. Baldvinsson næsti formaður
„Það er rétt að ég gef ekki kost á
mér áfram sem formaöur Landssam-
bands stangaveiðifélaga, ég hef verið
formaður í 4 ár og þetta er orðið
gott,“ sagði Grettir Gunnlaugsson
formaður í vikunni.
Aðalfundur Landsambands
stangaveiðifélaga verður haldinn í
Munaðamesi í Borgarfirði um næstu
helgi. En þar mæta um 100 stanga-
veiðimenn af öllu landinu á fundinn.
„Verðlagsmálin verða aöalmál
fundíuins og svo ýmis fleiri mál sem
hafa verið ofarlega í okkar málum
þetta árið. Össur Skarphéðinsson
umhverfisráðherra mun ávarpa
fundinn á laugardaginn og talar um
umhverfis- og stangaveiðimál," sagði
Grettir.
„Þetta hefur verið orðað við mig
að taka að mér formannsstarfiö og
ég er að hugsa máhð þessa dagana.
Það kemur í ljós á fundinum hvort
ég verð næsti formaður," sagði Jón
G. Baldvinsson, fyrrverandi formað-
ur Stangaveiðifélags Reykjavíkur, í
vikunni, en hann hefur verið sterk-
lega orðaður sem næsti formaður
Landssambands stangaveiðifélaga og
ætti að eiga örugga kosningu visa.
-G.Bender
Kjörskrá
tii kosninga um sameiningu sveitarfélaga, er
fram eiga aö fara 20. nóvember nk., liggur
frammi almenningi til sýnis á bæjarskrifstofum
Mosfellsbæjar, Hlégarði, á afgreiðslutíma skrif-
stofanna, virka daga kl. 8.00-15.30, til 20. nóv-
ember nk.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist
Bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar eigi síðar en
kl. 12 á hádegi laugardaginn 6. nóvember nk.
Menn eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn
þeirra séu á kjörskránni.
Bæjarstjóri Mosfellsbæjar.
Stór
búsáhaldamarkaður
Smiðjuvegi 30,
Kópavogi
Opið
virka daga kl. 10-19
laugardaga kl. 10-17
sunnudaga kl. 13-17
Úrval búsáhalda og gjafavöru.
Ódýrar jólagjafir
Búsáhaldamarkaðurinn
sá ódýri
Photoshop
keppni
Apple-umboðsins,
Hans Petersen
og DV.
í samvinnu við Apple-umboðið
og Hans Petersen efnir DV til
svokallaðrar Photoshop
keppni, sem er samkeppni um
myndir sem unnar hafa verið í
Photoshop forritið frá Adobe.
Frestur til að skila inn myndefni
rennur út miðvikudaginn 4.
nóvember nk. og verða úrslit
kynnt í aukablaði um TÆKNI
10. nóvember.
Reglur keppninnar:
Reglur keppninnar eru þannig að
myndirnar verða að vera á Macint-
osh-sniði. Aðeins 1 mynd er á hvern
þátttakanda en ef unnið hefur verið
með einhverja frummynd ber að skila henni líka til að hægt verði að
sýna muninn á myndunum. Ef Ijósmynd er notuð verður hún að vera
tekin af þátttakanda. Sé um mynd eftir annan aðila að ræða ber að
útvega leyfi frá viðkomandi. Ef fiátttakendur senda inn mynd eftir aðra
án leyfis og hún verður birt í DV þá er ábyrgðin þeirra en ekki blaðsins.
Myndefninu ber að skila eða senda í pósti til Verslunar Hans Petersen,
Laugavegi 178, 105 Reykjavík. Upplýsingar þurfa að fylgja um tölvu-
búnað og myndefnið ásamt dulnefni sendanda. Rétt nafn sendanda
skai fylgja í lokuðu umsiagi.
Vegleg verðlaun eru í boði. Fyrstu verðlaun eru Power
CD mynd- og hljómgeislaspilari frá Apple-umboðinu sem
hægt er að tengja við tölvuna, sjónvarpið og hljómflutnings-
tæki. önnur verðlaun eru Kodak Photo CD geislaspilari frá
Hans Petersen sem bæði getur sýnt litmyndir á sjónvarps-
skjá og leikið tónlist af venjulegum geisladiskum.
jfk
fHANS PETERSEN HF
“ Apple-umboðið
Skipholti 21, Rvk. Sími: 91-624800