Dagblaðið Vísir - DV - 30.10.1993, Qupperneq 31
LAUGARDAGUR 30. OKTÓBER 1993
39
Verðlaunamynd World Press Photo í flokki barnamynda var tekin i Sómalíu, nærri borginni Baidoa, skömmu eftir að fjölþjóðaherinn kom þangað með hjálpargögn á síðasta ári. Ljósmyndarinn
heitir Joel Robine, franskur maður sem vinnur fyrir fréttastofuna AFP. Sýning á verðlaunamyndum World Press Photo hefst í Kringlunni þann 5. nóvember og stendur til 16. sama mánaðar.
Sýningin er öllum opin á verslunartima í Kringlunni og er aðgangur ókeypis.
Fréttamyndir lidins árs World Press Photo-sýningu í Kringlunni 5.-16. nóvember:
Augnabliki áður
en átökin hófust
- verðlaunamyndin í flokki barnamynda minnir á þverstæðurnar í átökunum í Sómalíu
„Við gefum þeim að borða, þeir
hressast og drepa okkur,“ segja kald-
hæðnir Bandaríkjamenn sem hættir
eru að sjá tilganginn í friðarför her-
manna sinna og annarra þjóða til
Sómalíu.
Aðstoðin við hungraða í þessu
langþjáða Afríkuríki hefur snúist up
í andhverfu sína; byssumar eru látn-
ar tala í öðru orðinu meðan friður
er boðaður í hinu.
Verðlaunamynd
Þessi vopnaði friður birtist ljóslif-
andi á verðlaunamynd franska ljós-
myndarans Joel Robine á World
Press Photo-sýningunni sem opnuð
verður í Kringlunni þann 5. nóvemb-
er. Þar er það ónefndur hermaður
úr frönsku útlendingaherdeildinni
sem heldur vörð yfir barni sem frétt
hefur af komu hjálparhða til þorps-
ins síns.
Myndin vann til verðlauna í flokki
barnamynda hðsins árs. Hún er ef
til vih áhrifameiri fyrir þá sök að það
er ekkert hk að sjá, ekkert blóð og
engan púðurreyk - aöeins neyð fólk-
isns.
Nú er hðið tæpt ár frá því fjölþjóða-
her gekk á land í nafni Sameinuðu
þjóðanna í Mogadishu, höfuðborg
Sómahu. Nú eru menn sammála um
að tekist hafi að koma í veg fyrir
hörmungar vegna hungurs og sjúk-
dóma í landinu en það nægir ekki til
að tryggja frið.
Börnin í Baidoa
Bandaríkjamenn hafa í sumar og
haust háð einkastríö við stríðsherra
landins. Þar fer mest orð af Aidid og
mönnum hans. Gæsluhðar eiga í
ófriði og nær daglega berast fréttir
af átökum og mannfalh. Oft eru það
böm, eins og þaö sem hleypur svo
ákveðið á verölaunamynd Robine,
sem faha í valinn en stríðsmennirnir
komast undan. Þetta er ein af þver-
stæðum allra stríða.
Þegar fjölþjóðaliðiö kom til Sómal-
íu á síðasta ári var mikh áhersla lögð
á að koma hjálpargögnum til bæja
og þorpa úti á landsbyggðinni. Ljós-
myndarinn Robine var með í för þeg-
ar herinn kom th Baidoa, bæjar
norður af Mogadishu. Þar og í ná-
grannaþorpum var neyðin einna sár-
ust.
Bamið á veðlaunamyndinni bjó
með foreldrum sínum í einu þorp-
anna. Nú vita menn ekkert hvað um
það varð. Er það enn jafn vonglatt á
svip og þá eða hafa átökin ef th vhl
kostað það lífið eins og svo mörg
önnur sómölsk böm?
Svör við spurningum sem þessum
fást aldrei. Barnið lifir í augnabliki
Ijósmyndarans og svo er það horfið
sjónum í mannhafið. Slíkt er eðh
fréttamynda. Þær birta örskotsstund
úr lífi fólks og skha um leið því hlut-
verki að vekja fólk th umhugsunar
um örlög manna í fjarlægum heims-
hlutum. Rétta augnablikið er í þessu
thviki áhrifameira en langar úrsend-
ingar.
Myndir frá Sómahu urðu th aö
hreyfa við fólki í öhum heimshorn-
um. Augnablik úr lifi fólks í fjarlægu
landi ýttu við samvisku heimsbyggö-
arinnar. Árangurinn kann aö vera
umdehdur og lokin á friðarfórinni
ekki í sjónmáh en eftir stendur að
Á átakasvæðum í 13 ár
Franski Ijós-
myndarinn Jo-
el Roblne hlýt-
ur World Press
Photo-verð-
launin i flokki
barnaljós-
mynda i ár.
Þetta eru sér-
stök verðlaun
sem veitt liafa verið frá árinu 1983.
Verðlaunamyndin er valin af sér-
stakri alþjóðlegri dómnefnd sem
annast þennan flokk mynda.
Joel Robine.
Robine er fæddur árið 1949 og
hefur unnið fyrir frönsku frétta-
stofuna Agence France Presse í 13
ár. Á ferh sínum hefur hann verið
við störf á öhum helstu átakasvæð-
um heims - í Afríku, Asíu og Aust-
ur-Evrópu.
Hörmungar og stríð eru þó ekki
eini vettvangur Robine. Hann er
einnig kunnur fýrir fþóttamyndir
og var bæði á heimsmeistaramót-
inu í knattspyrnu í Mexíkó og
ólympíuleikunum í Barcelona.
þjóðir heims hafa þó komið sínum
minnstu bræðrum til hjálpar.
World
Press Photo
Ljósmyndasýningar á vegum
World Press Photo hafa verið haldn-
ar frá árinu 1955. Aö baki stendur
sjóður sem hefur það að markmiði
að verðlauna bestu fréttamyndir
hvers árs. Höfuðstöðvamar eru í
Hollandi en verðlaunaféð kemur frá
styrktaraðhum víða um lönd.
Dómkvaddir menn velja verð-
launamyndirnar í hverjum hinna 17
flokka. Ekki eru þó ahtaf veitt verð-
laun fyrir myndir úr öhum þeirra
árlega. Árið 1983 voru fyrst veitt
verðlaun fyrir myndir af bömum.
Listasafn ASÍ heldur sýninguna
hér a landi að þessu sinni í samvinnu
við DV, Hans Petersen og Kringluna.
Undanfarin ár hefur verið sýnt í
húsnæði ASÍ við Grensásveg en nú
sýningin orðin það umfangsmikh að
ekkert minna en Kringlan dugar.
Sýningin stendur frá 5. th 16. nóv-
ember og er opin á verslunartima.
Aðgangur er ókeypis.
-GK