Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 8
8
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Vísnaþáttur
Gælir hönd
við
gulnuð blöð
„í landi minninganna eru helgir
reitir, þar enginn fær komið nema
hugurinn einn. Þangað er honum
kært aö reika, þegar önn og erill
dagsins leyfir, nema staðar og litast
um, rekja gullna þræði góöra
minninga um hina ágætustu menn
og konur, sem verið hafa forunaut-
ar manns um lengri eða skemmri
kafla á genginni götu.“
Þessi orð eru upphaf minningar-
greinar sem Aöalsteinn Jónsson,
sonarsonur Sigríðar Jónsdóttur á
Halldórsstöðum í Reykjadaí í S-
Þing., skrifaði um hana en Pétur
Sigfússon, sonur Sigríðar, hefur
tekiö upp í bók sína „Enginn ræður
sínum næturstað“ sem kom út á
Akureyri 1962. Og víst er þaö að
minningar hafa orðið mörgu skáld-
inu að yrkisefni.
Frímann Ágúst Jónasson frá
Fremri-Kotum í Skagafirði, síöast
skólastjóri í Kópavogi, var höfund-
ur nokkurra bamabóka auk ann-
arra rita og spjall hagyrðingur.
Eitt sinn, er hann var að rifja upp
og rita minningar sínar, kvað
hann:
Gælir hönd við gulnuö blöð,
gömul lifnar saga.
Andar frá þeim ung og glöð
angan fyrri daga.
Halla Lovísa Loftsdóttir var fædd
12. júní 1886 í Stóra-Kollabæ í
Fljótshlíð og ólst þar upp til ferm-
ingaraldurs. Áriö 1911 giftist hún
Ámunda Guðmundssyni, bónda á
Sandlæk í Gnúpverjahreppi, og þar
bjuggu þau þar til hann lést 1918,
og hún síðan ein til ársins 1931. Þá
fluttist hún til Reykjavíkur og átti
þar heima síðan. Ljóð hennar sem
fer hér á eftir nefnir hún Gamla
bréfið:
Máist letur, bliknát blað,
bifast flest úr skorðum,
en þetta kann ég utanað,
oft ég las það forðum.
Sést það ekki sjónum manns -
sérhver stafur máður,
það sem blessuð höndin hans
hefur skrifað áður.
Lifi ég aftur liðna tíð,
er lít ég rithönd þína,
þá í svipinn sólin blíö
sálu vermir mína.
Hér eru ástarorðin þín
í annarri hverri línu,
enn þau hvísla inn til mín
yl frá hjarta þínu.
Vekur bæði bros og tár
blik af hverri minning.
Þetta lýsir öll mín ár
frá okkar fyrstu kynning.
Jón Þorsteinsson frá
Amarvatni -
Minning:
Frá mér horfin auðnan er, -
einar gefast bætur:
Þú hefur yljað minning mér
mest um hjartarætur.
Hvíslað ástaorð og ljóð
áttu í hjarta bundið.
Geymir öll í gildum sjóð-
gull, sem ég hef fundið.
Sjái ég aðeins sorta og nótt,
setjist kul að hjarta,
þú hefur strax í sjóð þinn sótt
sólskinsdaga bjarta.
Hjá þér alltaf á ég skjól
er minn hugur grætur.
Ég er vafinn sumri og sól
svartar vetramætur.
Sigríöur Jóhannsdóttir (f. 27. júlí
1929):
Mörg ein skýrist mynd sem svaf
í muna hulin skugga,
er strýk ég móðu áranna af
eigin sálarglugga.
Jón Böðvarsson (frá Kirkjubóli í
Hvítarsíðu) bóndi í Grafardal:
Þegar sundur liggur leið
lítið mundi saka
gleðja limd, að líta um skeið
litla stund til baka.
Grímur Sigurösson frá Jökulsá,
síðast á Akureyri:
Þegar burt þig bar í vor
bærinn fannst mér snauður,
en þú lést eftir þúsund spor
og það var mikill auður.
Hjörtur Gíslason á Akureyri -
Vísnaþáttur
Torfi Jónsson
Minning:
Manstu vorsins vængjaslátt
vonir hugans eggja?
Þá var sól og sunnanátt
í sálum okkar beggja.
Þá var hlegið, hjalað, kysst,
heitin þurfti ei skrifa.
Þá var úti og inni gist,
alls staðar gott að lifa.
Ógnun vona enginn sá
í einu stjömuhrapi.
Aftans gróði gerði þá
gull úr dagsins tapi.
Meðan geymast geislar frá
gleði æskustunda,
granda enginn máttur má
minning okkar funda.
Valdimar Hólm Hallstað:
Minningar sem loga og lýsa
leiða hug úr dagsins þröng.
Þú varst lífs mins vögguvísa,
vorljóö það sem blærinn söng.
Magnús Jónsson frá Skógi -
Minningarnar milda:
Þegar svíður sorgamnd
og sýnist fátt til vamar,
sefa best og létta lund
ljúfu minningarnar.
Halla Lovísa Loftsdóttir -
Útáveginn:
Út á veginn óljós þrá
augna bendir steinum.
En að hverju er eg að gá
sem ekki á von á neinum?
Tvær síðustu stökumar em jafn-
framt lokastef ljóðabóka höfund-
anna. Torfi Jónsson
Matgæðingur vikunnar____d
Baka meö skinku
og blaðlauk
„Mér finnst. gaman að elda og
geri talsvert að því. Ég hef gaman
af að dunda mér og elda gjarnan
fiskisúpur og franska laiiksúpu svo
dæmi séu nefnd," sagði Ólafur Am-
björnsson, aðstoðarskólameistari í
Fj ölbrautaskólanum á Sauðár-
króki, sem er matgæðingur helgar-
blaðs DV að þessu sinni.
Ólafur sagði að sér hefði „ein-
hvern veginn tekist að koma því
inn hjá fólki" að hann væri góöur
kokkur.
„Ég er frekar íhaldssamur í mat-
argerð en ef ég dett niður á eitthvað
sem mér finnst gott á ég það til að
elda það og jafnvel reyna að betr-
umbæta ef mér býður svo við að
horfa. Langbesta reynslan er að
borða hjá fólki sem hefur góðan
matarsmekk og fá síöan uppskriftir
hjá því. Ég geri minna að því að
taka uppskriftir úr blöðum."
Ólafur gefur uppskriftir að
sveppapaté, sólblómakjamabrauði
og böku með skinku og blaðlauk. í
sveppapatéið fer eftirfarandi:
3 stórir laukar
3 hvitlauksrif
2 matsk. olía
1-2 tesk. timiam (gjarnan ferskt)
’/i kg sveppir
50 g salthnetur
3 þykkar brauðsneiðar
2 egg
'/< 1 ijómi
salt og pipar
smjör
Laukur og hvítlaukur skomir
fínt og steiktir í olíunni með timi-
an. Sveppir hakkaðir og steiktir í
örlitlu smjön. Hnetur og brauð
grófhakkað. Öllu blandað saman.
Eggjum og ijóma bætt út í ásamt
salti og pipar. Hellt í smurt, eldfast
mót og bakað við 200 stig í ca
klukkutíma.
Ólafur Arnbjörnsson.
Hvítlaukssósa
2 dósir jógúrt
100 g rifin agúrka (safinn látinn
leka af í kaffifilter)
2-4 rif hvitlaukur
salt
örlítið af myntulaufum
Öllu blandað saman.
Með þessum rétti er bráðgott að
hafa nýbakað brauð og er upp-
skriftin að því látin fljóta með:
Sólblómakjamabrauð
með sesamfræjum
4 dl vatn
1 dl súrmjólk
25 g ger
1 tesk. salt
1 tesk. sykur
25 g smjörlíki (eða olía)
100 g sólblómakjarnar
50 g sesamfræ
250 g rúgmjöl
500 g hveiti
Volgt vatn og súrmjólk blandað
og gerið sett út í. Öllu mjöli, ásamt
fræjum, olíu, salti og sykri blandað
saman við. Hnoðað og látið lyftast
í um það bil tvöfalda stærð. Hnoðað
í eitt stórt (eða tvö minni) brauð.
Penslaö með súrmjólk og látið lyfta
sér aftur 1 15 mínútur og 20 sek.
Bakiö í klukkutíma við 225 gráður.
Bakameðskinku
ogblaðlauk
Botn
3 dl hveiti
125 g smjör
1 matsk. vatn
1 matsk. rjómi
1 eggjarauða
Kalt smjör saxað í hveitið. Vatn,
rjómi og eggjarauða sett út í. Hnoð-
að og látið standa í ísskáp í klukku-
tíma. Deigið flatt út í grunnt form
(eldfast), „pikkað" með gaffli og
bakað í 15 mín. við 225 gráður.
Fylling
1 blaðlaukur
1 matsk. smjör
1 matsk. vatn
200 g skinka
150 g rifinn ostur
3 stór egg
214 dl kaffiijómi
1 tesk. salt
pipar -á hnífsoddi
Laukur og skinka skorin í strimla
og látin krauma í smjöri og vatni.
Eggjum, rjóma, salti og pipar hrært
saman. Laukur og skinka látin á
bakaðan botninn og eggjahræru
hellt yfir. Rifinn ostur settur ofan
á. Bakið neðst í ofni í 30-35 mínútur
við 225 gráður. Borið fram með
salati.
Hinhliðin
Stefni að því að
slá Sigurð út
- segir Einar Þorvarðarson, þjálfari Selfyssinga
„í framtíðinni stefni ég að því aö
slá Sigurð Sveins út í keppninni
um kynþokkafyllsta manninn,"
segir Einar Þorvaröarson, þjálfari
knattspyrnuliös Selfoss og aðstoð-
arþjálfari landsliðsins. Einar
stendur í ströngu nú um helgina.
Þá mæta Selfyssingar ungverska
liðinu Pick Szeged í Evrópubikar-
leik hér heima. Selfyssingar töpuðu
fyrri leiknum með 12 marka mun
og þurfa því aö vinna með 13 mörk-
um til að komast áfram. Þjálfari
liðsins sýnir á sér hina hliðina í
blaðinu í dag.
Fullt nafn: Einar Örn Þorvarðar-
son.
Fæðingardagur og ár: 12.8. ’57.
Maki: Arnrún Kristinsdóttir.
Börn Margrét Rún og Þorvarður
Öm.
Bifreið: Chevrolet Monza ’87.
Starf: Þjálfari og heimavinnandi
húsfaðir.
Laun: Sæmileg.
Áhugamál: Fjölskyldan.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Þijár.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Að snæða með Davíð.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Reyna að sofna eftir tapleiki.
Einar Þorvarðarson.
Uppáhaldsmatur: Rjúpur.
Uppáhaldsdrykkur: Mjólk er góð.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Sigurður
vinur minn Sveinsson.
Uppáhaldstímarit: íþróttablaðið.
Hver er fallegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Dóttir
mín, Margrét Rún, verðandi kona.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Bæði og...
Hvaða persónu langar þig mest til
að hitta? Jack Nicholson.
Uppáhaldsleikari: Karl Guðmunds-
son.
Uppáhaldsleikkona: Demi Moore.
Uppáhaldssöngvari: Pavarotti.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Þor-
bergur Aðalsteinsson.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Bart Simpson.
Uþpáhaldssjónvarpsefni: Fréttir á
báðum rásum og íþróttaþátturinn.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Hlynnt-
ur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta mest á Bylgjuna.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eiríkur
Hjálmarsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Jafnlítið á báðar.
Uppáhaldssjónvarpsmaður? Sig-
mundur Ernir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Mér
finnst skemmtilegast heima hjá
mér.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Ung-
mennafélag Selfoss.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að slá Sigurð út í
keppninni um kynþokkafyllsta
manninn.
Hvað ætlar þú að gera í sumarfrí-
inu? Slappa af og brosa.