Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 35
HARGRÆÐSLA
REGENCY CROWN Hair Loss Advisory
Clinic er ensk hárgræðslustofa í
fremstu röð sem býður íslendingum
•uppá það allra besta: Tækni sem flytur
hársrætur þangað sem þeirra er þörf!
Minna mál en þú heldur.
„Sælir. Grímur lieiti ég. Stimir kærn sig kollóltn um luírlos. Þeir nm pnd.
Mérfinnst pað ömurlegt. Ret/ndi alls konnr vökvn og vítamín. Hafði ekkert
nð segja. Ég er ekki hégómlegri en gengur og gerist. Þettn bnrn slær mig úl
af lngiiut. Spttrning um sjrílfsön/ggi. Þnð er allt og suiitl."
ÞU FÆRÐ:
© Hárið þitt aftur
© Ábyrgðarskírteini
(ævilöng ábyrgð)
O Ókeypis ráðgjöf
Síðnr: „jxja. Hvernig lisl ykkurrí?
}újú, petta er mitt eigið hrír.
Vex xvUangt. Kaiiuski pú ættir nð prófn?"
LAUGARDAGUR 29. JANUAR 1994
Skálatúnsheimilið
40 ára
í tilefni af 40 ára afmæli Skálatúnsheimilisins
veröur opið hús í Skálatúni laugardaginn 29.
janúar nk. frá kl. 14 til 17.
Allar deildir veröa opnar ásamt vinnustofum.
Þar verður sölusýning á framleiðslu heimilis-
manna.
Allir velunnarar og eldri starfsmenn eru hjartan-
lega velkomnir.
Kaffiveitingar.
HÆFA KONU TIL FORYSTU - VELJUM
Guðrúnu Zoéga
.borgarfulltrúa
í 3. sæti
í prófkjöri 3Q. og 31. janúar nk.
Skrifstofa stuðningsmanna.er í
Síðúmúla 8, 2.,hæð. •• r
Qpið kl.'l4-22 \{irka?áaga‘
og 13-T8 uhi helgar.
Símar 684490 og 684491.
Stuðningsmenn
Fyrir karlmenn er undanskurður og sýknudómur eins og uppvakningur úr svörtustu martröðum og flækjum
sálarinnar þar sem skelfilegasti ótti verður skyndilega raunverulegur, segir Óttar Guðmundsson m.a. i grein
sinni. Á myndinni er John Wayne Bobbit, sem varð fyrir búrhníf konu sinnar.
Gamall geld-
ingarótti verð-
ur sem nýr
í margslungnum fræðum Sig-
mundar Freuds gegnir svokallaður
geldingarótti (Kastrations-
komplex) mikilvægu hlutverki.
Sigmundur kallinn er af mörgum
talinn faðir geðlæknisfræðinnar þó
aö kenningar hans hafi verið
dregnar í efa af mörgum öfundar-
mönnum. Geldingaróttann uppgöt-
vaði Freud við rannsóknir sínar á
börnum og æskuminningum
ýmissa sjúklinga sinna. Hann taldi
að ótti ungra drengja tengdist foð-
urnum og ýmsum hömlum sem
settar væru á kynferðislegar upp-
götvanir barnsins. Samkvæmt
kenningum Freuds hræðist dreng-
urinn að skorinn verði undan hon-
um limurinn í refsingarskyni fyrir
kynferðislegar hugsanir og losta
sem beinist að móðurinni. Þessi
ótti setur mark sitt á tilfmningu
drengsins gagnvart sjálfum sér
enda skiptir limurinn miklu fyrir
sjálfsmynd og sjálfsvirðingu karl-
manna á ölium aldri. Freud taldi
að geldingaróttinn lægi að baki
hræðslu margra karla við aðgerðir,
lækna, slys og áföll. Innst inni
væru allir karlmenn hræddir um
lim sinn og teldu honum ógnað
þegar á móti blési. Þessi ótti er þó
oftast ástæðulaus þar sem limur-
inn er sjaldnast í verulegri hættu.
Djúpt inni í hugarfylgsnum allra
karla á þó þessi kvíði ætt sín og
óðöl eins og sést vel í knattspyrnu-
leikjum þegar menn raða sér upp
og mynda varnarvegg og halda
dauðahaldi um hreðjar sér þeim til
vamar.
Ástir ósam-
lyndra hjóna
Gamall geldingarótti varð sem
nýr í huga Nökkva læknis þegar
hann frétti af niðurstöðum amer-
ísks dómstóls í máh Lorenu Bob-
bit. Lorena þessi hafði skorið lim-
inn af manni sínum, John Wayne
(!) Bobbit, nótt eina á síðasta ári en
var fundin sýkn saka. Þau hjónin
vora ósammála um tildrög verkn-
aðarins. Lorena sagðist hafa gripið
til hnífsins í kjölfar nauðgunar sem
John Wayne sagði að aldrei hefði
átti sér stað. Verjendur Lorenu
Á læJmavaktinni
Óttar
Guðmundsson
læknir
töldu hana þjást af brjálæðisköst-
um sem rekja mætti til áralangra
misþyrminga. Nágrannar höfðu
stundum heyrt til hjónanna í tryllt-
um, átakamiklum og hávaðasöm-
um ástaleikjum en engin vitni gátu
skorið úr um sannleiksgildi fram-
burðar Bobbit-hjónanna. Mörg
amerísk kvennasamtök fögnuðu
sýknudómnum ákaflega sem þau
sögðu undirstrika rétt konunnar til
að segja nei með þessum áhrifa-
mikla hætti. En fyrir karlmenn er
undanskurður og sýknudómur
eins og uppvakningur úr svörtustu
martröðum og flækjum sálarinnar
þar sem skelfilegasti ótti verður
skyndilega raunverulegur.
Frjálstveiðileyfi
Nökkvi læknir óttaðist að nú
hefði endanlega verið gefið út veiði-
leyfi á getnaðarlim karlmannsins.
Konur gætu sér aö skaðlausu skor-
ið undan mönnum sínum, unn-
ustum og ástmönnum og borið því
við að maðurinn hefði verið að-
gangsharður og ofbeldisfullur í ból-
inu. Nökkva var hugsað til ótal við-
tala við hjón í erfiðleikum þar sem
margvísleg vandamál höfðu verið
viðruð. Oftar en ekki var einhver
ágreiningur uppi varðandi kynlíf-
ið. Karlinn taldi sig hálfsveltan í
þeim efnum en konan sagðist hafa
takmarkaðan áhuga á mökum við
mann sinn. Stundumkvörtuðu
konur undan ákefð og tillitsleysi
manna sinna og fundu þeim allt til
foráttu. í kjölfar dóms í máli Bob-
bit-hjónanna hefðu nú opnast nýjar
víddir í slíkum ágreiningsmálum.
Konur gætu þá dregið fram eggjárn
og skorið liminn af mönnum sínum
og bundið þannig enda á alla vand-
ræðalega tilburði þeirra í húmi
nætur. Þetta nýja vald kvenna hlýt-
ur að skapa hjá mönnum nýjan
geldingarótta sem á eftir að standa
mönnum fyrir svefni og hugarró.
Nútímaleg
skírlífisbelti
Á miðöldum tíðkuðust svokölluð
skírlífisbelti fyrir konur. Riddarar
og greifar létu hagleiksmenn gera
belti eða hlíf til að skýla kynfærum
eiginkonunnar svo að engir óboðn-
ir gestir álpuðust þangað meðan
eiginmaðurinn væri að berja á
Márum og öðrum villutrúarmönn-
um. Hræddir eiginmenn yfirkomn-
ir af geldingarótta eiga í raun enga
aðra leið sér til andlegrar vellíðun-
ar en að láta smíða skírlífishlíf utan
um lim sinn. Menn geta þá klætt
hminn í hlífina að kvöldi svo að
þeir vakni ei limlausir að morgni.
En Nökkvi læknir horfir fram á
betri tíma og bættar tekjur með
nýjum faraldri geldingarótta.
Upplýsingar í
síma 628748
\t 77 Allsherjar-
\ / atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs Fé-
lags járniðnaðarmanna fyrir næsta starfsár.
Tillögum um skipan stjórnar og trúnaðarmannaráðs
félagsins skal skila til kjörstjórnar félagsins, á skrif-
stofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð, ásamt
meðmælum a.m.k. 75 fullgildra félagsmanna.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn félagsins
og auk þess tillögur um 21 til viðbótar í trúnaðar-
mannaráð og 7 varamenn þeirra.
Frestur til að skila tillögum um skipan stjórnar og
trúnaðarmannaráðs rennur út kl. 18.00 fimmtudaginn
10. febrúar 1994.
Stjórn Félags járniðnaðarmanna