Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 18
18 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Dagur í lífi Steiniinnar Sigurðardóttur rithöfundar: Endaði með samsöng „Mánudagurinn síðastliðinn hófst á venjubundinn hátt með því að farið var á fætur og skrifað í nokkra klukkutíma. í hádeginu var farið í bað. Talsvert var um símtöl þvi ég er að undirbúa langferð sem á aö standa nokkuð lengi. Það fór nokkur tími í að reyna að kanna ýmsa mögu- leika í sambandi við hana. Að því loknu fór ég niður í Útvarp. Undir öllum venjulegum kringum- stæðum fer ég fótgangandi, en gerði nú undantekningu og tók strætó. Svo vildi tíl að strætóstjórinn kannaöist eitthvað við mitt fólk og áttum við ágætis samtal á leiðinni. Ég átti svo að skila kveðju í einhveijar áttir frá þessum ágæta manni. Lestur á útvarpssögu Þessa dagana er ég að lesa útvarps- sögu sem á að flytja í maí. Niðri í Útvarpi frétti ég að gömul samstarfs- kona mín til margra ára, Sigriður Ámadóttir á fréttastofunni, hefði verið að eignast sitt fyrsta barn. Þetta voru gleðitíðindi dagsins því henni gekk svo vel. Ég hugsa mér gott til glóðarinnar að líta til hennar. Þótt ótrúlegt megi virðast tekur það heilmikið á mann að lesa inn útvarpssögu. Maður tekur ekki nema tvo lestra í einu, tuttugu mínútur í senn, en það er þó merkilega mikið puð að lesa upp í striklotu. Eftir lesturinn hélt ég í Hagkaup í Kringlunni, fótgangandi að þessu sinni. Þar varð ég mér úti um kartöfl- ur og ýsu og annað sem mig vanhag- aði um. Þetta bar ég heim í frostinu. Þegar ég paufaöist með Hagkaups- pokana í gegnum skaflana og yfir Kringlumýrarbrautina, sá ég sjálfa mig fyrir mér eins og ég væri komin aftur í gamla tímann þegar fólk var að draga björg í bú. Bók, sími og sjónvarp Klukkan var farin að ganga sex Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur. þegar ég kom heim. Ég var hálf- þreytt enda dagurinn aðeins farinn að lengjast í annan endann. Ég sett- ist inn í sófa og og hélt áfram að lesa reyfara sem ég hef verið að lesa að undanfómu. Hann heitir Fröken Smilles fomemmelse for sne eftir Peter Höeg. Þetta er sá skandinavíski rithöfundur sem hefur haft mesta frægð í hinum enskumælandi heimi nú í mjög langan tíma. Time valdi þetta bók ársins 1993. Þetta er reyf- ari, eins og áður sagði, en það er sér- stök reynsla að lesa hann. Söguhetj- an er grænlensk og bókin gerist aö hluta til á Grænlandi. Bókin er skemmtileg og afar grípandi. Brátt hringdi dóttir min sem er í Versló. Ég spurði hana hvenær hún kæmi í matinn og fékk skýr svör við því. Nokkm síöar borðuðum við eitt það besta sem hún fær, ýsu og kart- öflur, stappaðar saman með sítrónu- safa og smjöri. Þetta var afskaplega einföld máltíð, en bragðast ágætlega. Svo settumst við fyrir framan sjón- varpið. Viö horfðum meðal annars á viðtal við mig í Dagsljósi. Ég var að DV-mynd GVA tala um karlímyndina en ég hafði flutt fyrirlestur um það efni í Gerðu- bergi um helgina. Dóttir mín horfði á þetta um stund, en sagði svo: „Æi mamma, mér finnst þú vera óþarf- lega alvarleg yfir svona léttúðugu málefni." Við dæstumn í sófanum fram eftir kvöldi og héldum áfram að horfa á sjónvarpið. Ég var með Smillu í hendinni og las hana inni á milii. Öðru hvoru hljóþ ég í símann því þetta var símadagur. Mér þykir ekki gaman að tala í símann en þetta var einn af þeim dögum sem hann hringdi með stuttu millibili. Nætursöngur Við mæðgumar horfðum á Inguió sem ég hef ekki séð áður. Ég er voða- lega hrifin af leikkonunni, Sólveigu Amarsdóttur. Eggert Þorleifsson fannst mér líka frábær og Briet Héð- insdóttir var góð í hlutverki sálfræð- ingsins. Þegar liðið var á kvöldið tók ég mig til og bakaöi pönnukökur. Ég er ipjög stolt af því að hafa þá umsögn frá dóttur minni að bestu pönnukök- umar fái hún hjá mér. Ég er afar stolt yfir þessu því bakstur er ekki mín sterka hlið. Dóttir mín er í ritnefnd blaðs Versl- unarskólans og nú kom það í minn hlut að lesa prófórk að smásögum sem fengu 1. og 2. verölaun. Ég hef mjög gaman af því að sjá hvað fólk á þessum aldri er að hugsa og hvern- ig það skrifar, þannig að þessi lesning var býsna fróðleg. Síðan kláraði ég að lesa Smillu og lauk svo deginum á mjög frumlegan hátt. Húsaskiþan hér er þannig að það er stutt á milli svefnherbergja míns og dóttur minnar. Þegar við vomm skriðnar upp í, hvor í sitt ból, fór dóttir mín að kíkja í lexíurn- ar sínar. Það kom í ljós að henni hafði verið uppálagt að syngja eitt- hvaö af frönskum lögum í skólanum og eitt þeirra var Aluette. Nú átti ég að kenna henni að syngja Aluette. Klukkan var farin að ganga eitt og viö búum í blokk en við létum það ekki aftra okkur. Nú vill þannig til að ég kann þetta lag utan að. Einu sinni tíndi ég vínber í Boulogne í Frakklandi og þar var þetta sungið á ökrunum. Nú kom þetta mér til góða, þannig að dagurinn hjá okkur mæðg- unum endaöi með samsöng. Þetta er svo sannarlega í fyrsta skipti sem dagur í lífi mínu endar á slíkan hátt.“ Finnur þú funm breytingai? 242 Hvað ertu komin langt, Emelía, ertu enn að sparsla eöa ertu farin að mála? Nafn:........ Heimilisfang: Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilisfangi. Að tveimur vikum liðnum birtum við nöfn sigurvegar- anna. 1. verðlaun: Rummikub-spil- ið, eitt vinsælasta fjölskyldu- spil í heimi. Það er þroskandi, skerpir athyglisgáfú og þjálfar hugarreikning. 2. verðlaun: Fimm Úr- valsbækur. Bækumar, sem eru í verðlaun, heita: Mömmudrengur, Þrumu- hjarta, Blóðrúnir, Hetja og Banvæn þrá. Bækumar em gefnar út af Frjálsri fjölmiðlun. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 242 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík Vinningshafar fyrir tvö hundr- uö og fertugustu getraun reyndust vera: 1. Daníel Geir Sigurðsson, Hvammstangabraut 10, 530 Hvammstanga. Benedikt Kolbeinsson, Votumýri 1, 801 Selfoss. Vinningarnir verða sendir heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.