Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Qupperneq 30
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Sjö manna fjölskylda án atvinnu: Lífsgæðamatið hefur breyst - segja þau Elvar Berg og Elínborg Traustadóttir sem vonast eftir betri tímrnn „Viö voram bæöi að vinna hjá Rík- isskip og misstum vinnuna þegar fyrirtækið var lagt niður um ára- mótin 1991/92. Ég komst í tíma- bundna vinnu í malbiki sl. sumar og hélt henni meðan veður leyfði en síðan hefur ekkert verið að fá,“ segir Elvar Berg Hjálmtýsson, fimm barna faðir í Kópavoginum sem er einn af þúsundum Islend- inga sem „mæla göturnar" um þessar mundir. Elvar Berg og kona hans, Elín- borg Traustadóttir, segjast hafa gjörbreytt lífsstíl sínum til að kom- ast af en það hefur ekki gengið þrautalaust að fá vinnu. „Eg hef sótt um allar stöður sem hafa verið auglýstar en það er nær vonlaust aö reyna. í öllum tilfellum era svo margir sem sækja um að maður þarf varla að skrifa umsóknina," segir Elvar. Hann segist aldrei hafa látið sér detta í hug þegar hann missti vinnuna að um langvarandi atvinnuleysi yrði að ræða. „Ég var búinn að vinna í tuttugu ár og manni fannst það algjörlega óhugs- andi að vera án vinnu. Fyrst á eftir fór þetta mjög illa með mig. Maður var aUtaf að bíða og vona. Spennan var mikil og því meira óþolinmæði og ergelsi þegar ekkert svar kom,“ segir hann. Verstfyrir unglinginn Þau Elvar og Elínborg eiga fimm börn, það elsta er sautján ára en þaö yngsta fimm mánaða. Elsti sonurinn flutti um áramótin til ættingja úti á landi þar sem hann gat fengið vinnu. Næstelsta barnið er fimmtán ára stúlka og atvinnu- leysið kemur kannski verst niður á henni. „Það er mjög erfitt fyrir unghng að geta ekki farið á skemmtanir með skólafélögum og vinum, auk þess sem kröfur era miklar á þeim aldri í fatnaði. Ég sauma fót á Utlu krakkana því þau gera engar kröfur en það er verra með ungUng. Við reynum þess vegna að láta hana ganga fyrir þannig aö hún finni ekki eins mik- ið fyrir ástandinu. í staðinn förum við aldrei neitt," segir Elínborg. Þau segjast aldrei fara út aö skemmta sér, út að borða, í bíó eða þess háttar. „Við lifum mjög spart, erum hætt að fara í Kringluna og í stórmarkaði þar sem freistingar era. Verslum frekar í Bónusi,“ segja þau. Það sem bjargaði þeim í rauninni var að þegar þau misstu vinnuna vora þau skuldlaus. „Ég veit ekki hvemig þetta væri nú ef við hefð- um verið með einhveijar lausa- skuldir," segir Elvar. „Við höfum hins vegar þurft að taka bankalán undanfarið til að komast í gegnum lífið og þær skuldir eru famar að segja til sín. Þegar barnabætur eru útborgaðar getum við aðeins minnkað skuldimar en síðan safn- ast þær aftur," segir hann enn- fremur. Elínborg var á fæðingaror- lofi en er nú bótalaus og það setur strik í reikningjnn hjá þeim. „Við höfum 47 þúsund á mánuði til að lifa af núna,“ segja þau. Elvar von- ast til að fá malbikunarvinnuna aftur í sumar. Hann lifir í voninni og segist raunar geta hugsað sér hvaða vinnu sem er. Elvar Berg Hjálmtýsson og Elinborg Traustadóttir hafa verið atvinnulaus í tvö ár. Þau unnu bæði hjá Ríkisskip. Þau bíða og vonast eftir betri tið enda hafa þau safnað skuldum. Með þeim á myndinni eru fjögur af fimm börnum þeirra, Svava Halldóra, 15 ára, Elvar Berg, 7 ára, Gréta Björk, 6 ára, og Helga Katrín, 5 mánaða. Elsti sonurinn, Jón Trausti, 17 ára, fór um áramót til ættingja úti á landi. DV-mynd GVA Fór í meiraprófið Til að deyja ekki úr aðgerðaleysi og leiðindum ákvað Elvar að fara á meiraprófsnámskeið sem hann stundar núna. „Ég ætlaði að gera það í fyrra og hittifyrra en hafði ekki efni á því. Núna sá ég að varla yrði beðið lengur meö þetta enda getur námiö aukið atvinnumögu- leika mína. Ég fékk lán hjá ættingj- um og styrk frá Dagsbrún til að fara á námskeiðið og fæ síðan að borga restína í nokkram hlutum," útskýrir hann. „Það hjálpar mér mikið að hafa eitthvað að stefna að á hverjum degi. Meiraprófið er mikið nám og þess vegna hef ég nóg að hugsa um í bih. Þegar því lýkur tekur svart- nættið við aftur. Ég myndi stökkva í hvaða vinnu sem væri og hvar sem væri á landinu ef hún byöist,“ segir hann. „Þetta hefur allt redd- ast hingað til en ef Elvar fær ekki vinnu fljótlega bíður okkar ekkert nema eymdin. Við getum ekki tekið íleiri lán,“ segir Elínborg. Áður en atvinnuleysið skall á lifðu þau góðu lífi í svo til skuld- lausri eign. „Við fórum í utan- landsferöir á hverju ári og keypt- um það sem okkur langaði í. Sem betur fer er maður ekki þanmg lengur. Atvinnuleysið hefur kennt manni að dauðir hlutir skipta ekki mestu máli í þessu lífi. Við keyrum t.d. á gamalli Lödu og erum sátt við það. Fyrir mestu er að eiga heilbrigð börn,“ segir hún. „Maður veltir því frekar fyrir sér í hvert periingarnir fóru eiginlega áður,“ segir hann. Tómstundir of dýrar Elínborgu finnst þó leiðinlegt að geta ekki leyft börnum sínum aö stunda áhugamál eins og dansskóla og þess háttar þar sem það sé of dýrt. „Þetta hefur gengið ágætlega hjá okkur en ég býst við að ef þetta vari miklu lengur verði maður þreyttur á tilbreytingaleysinu í líf- inu. En við verðum að þreyja þorr- ann og sjá til,“ segir hún. - En hvemig líst þeim á framtíðar- horfurnar í atvinnumálum? „Maður vonar aö botninum sé náð og hjólin fari að snúast á nýjan leik sem fyrst. Dæmið gengur ekki upp hjá fjölskyldum með böm sem þurfa að lifa á atvinnuleysisbótum. Auk þess eru barnabætur hlægi- lega lágar. Það virðist alltaf vera skorið niður hjá barnafólki meðan embættismenn aka um á rándýrum bílum og eru stöðugt í utanlands- reisum," segir Elínborg. „Ég er þó viss um að margir hafa það miklu verra en við. Sérstaklega fólk sem er í skuldum þegar at- vinnuleysið knýr dyra. Við verðum að reyna að vera bjartsýn," segir Elvar. „Það verður að efla atvinnulífið í þessu landi. Stjómmálamenn verða að opna augu sín fyrirþessu ástandi," segja þau. „Við verðum líka að reyna að bjarga okkur. Það þýðir ekkert að breiða upp fyrir haus, maður verður að halda sjálfs- virðingunni. Svo verður maður bara aö vona að ástandið fari að batna. Ekki er heldur úr vegi að rækta fjölskylduna á ári hennar.“ -ELA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.