Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Davíð Oddsson og dular-
fulli kynblendingurinn
Haraldur Briem, faðir Valgerðar.
Ýmsir hafa grennslast fyrir um það
hjá ættfræðideild DV hvað hæft sé í
þeirri kenningu sem nú gengur fjöll-
unum hærra að Davíð Oddsson for-
sætisráðherra sé aíkomandi Hans
Jónatans, kynblendings frá einni af
Jómfrúreyjum Danaveldis. Kenning
þessi hefur vakið mikla athygli en
umræður um hana snúast að vonum
um flest annað en kjarna málsins.
Þekktar ættir
- engin vísbending
Ættir Davíðs, og þá einkum ættir
Valgerðar Briem, ömmu hans, eru
vel þekktar og heimildir um þær
skilmerkilegar. Ekkert í þeim heim-
ildum gefur minnstu vísbendingu
um að Davíð sé einn af niðjum þessa
merka manns.
Eins og „kynblendingskenningin"
hefur verið sett fram á prenti (í bók
Stefáns Jónssonar, Að breyta fjalli,
bls. 32, útg. í Rvk 1987, og í Morgun-
blaðsgrein Elínar Pálmadóttur,
Þrælaeyjar, sunnudaginn 9.1. sl.) er
því einungis slegið fóstu að Davíð sé
afkomandi Hans Jónatans en ekkert
um það sagt hvernig tengslunum sé
háttað.
Tveir möguleikar
Ugglaust flnnst flestum líklegt að
Hans Jónatan, sem kom til landsins
árið 1816, geti á margvíslegan hátt
verið forfaðir Davíðs sem fæddist
hundrað þrjátíu og tveimur árum
síðar. Staðreyndin er hins vegar sú
að möguleikar í þeim efnum, sem
byggðir eru á lágmarks raunhæfni,
eru varla fleiri en tveir.
a) Að amma Valgerðar Briem,
Guðný Benediktsdóttir, sem var eig-
inkona Þórarins Erlendssonar, pró-
fasts á Hofi í Álftafirði, og dóttir
Benedikts Þorsteinssonar, prests á
Skorrastöðum, hafi átt Þrúði, dóttur
sína, fram hjá eiginmanni sínum en
með syni Hans Jónatans, Lúðvík
Jónatan Jónatanssyni, bónda á Hálsi
í Hamarsfirði.
b) Að móðir Valgerðar Briem,
Þrúður Þórarinsdóttir, sem var eig-
inkona Haralds Briem, hreppstjóra á
Rannveigarstöðum í Álftafirði og síð-
ar á Búlandsnesi við Djúpavog, hafi
Þrúður Þórarinsdóttir, móðir Val-
gerðar.
Valgerður Haraldsdóttir Briem,
móðir Odds læknis.
Guðný Haraldsdóttir Briem, systir
Valgerðar.
Ólafur Haraldsson Briem, bróðir
Valgerðar.
Dómhildur Briem, systir Valgerðar.
átt Valgerði fram hjá eiginmanni sín-
um en með öðrum hvorum sona Lúð-
víks Jónatans Jónatanssonar, Hans,
bátasmið á Strýtu við Hamarsfjörð
og síðar í Sjólyst á Djúpavogi, eða
Lúðvik, bónda á Karlsstöðum.
Pater est quem
numptiae
demonstrant
Hér er þaö ekki ætlunin að útiloka
þessa möguleika með afgerandi rök-
um enda er þaö að öllu jöfnu sann-
gimiskrafa að hin fræga Pater est-
regla gildi í ættfræði ekki síöur en
sifjarétti: Að sá beri sönnunarbyrð-
Oddur Olafsson læknir, faðir Davíðs.
ina sem staðhæfir að barn eiginkonu
sé ekki bam hennar og eiginmanns-
ins heldur launbam annars manns.
Engin rök.
Sögusagnir um slíkt eru auðvitað
mýmargar með þessari málglöðu og
lauslátu þjóð. En í tiltölulega fáum
tilfellum eiga slíkar sögusagnir við
haldbær líkindi að styðjast og í und-
antekningartilfellum byggjast þær á
nánast óhrekjanlegum rökum.
Blaðamönnum ættfræðideildar DV
er ekki kunnugt um neinar slíkar
röksemdir í þessu máh ef undan er
skihn visbending um hárprýði for-
sætisráðherrans.
...og engar sogusagmr
í nánast undantekningartilfellum
byggjast framhjáhaldstilgátur af
þessu tagi á sögusögnum - ef ekki
almannarómi - sem kvikna og viö-
gangast samtímis eða skömmu eftir
aö þeir atburðir eiga sér stað sem
tilgátan vísar til. Blaðamenn ætt-
fræðideildar DV hafa haft samband
viö marga niðja Hans Jónatans sem
lagt hafa sig eftir heimildum um lífs-
hlaup hans, ættir og niðja. Allir þess-
ir aðilar hafa staðfastlega neitað því
að hafa nokkurn tíma heyrt sögu-
sagnir um ættartengsl við forsætis-
ráðherrann áður en bók Stefáns
Jónssonar kom á prent. Sömu sögu
er að segja um þá sem gleggst þekkja
til Valgerðar.Briem, föreldra hennar
og móðurforeldra. Reyndar hefur
okkur ekki tekist að rekja söguburð-
inn aftur fyrir ummæli Stefáns Jóns-
sonar frá 1987.
Hafi hins vegar gengið sögur á sín-
um tima um hugsanlega rangfeðrun
Valgerðar eða Þrúðar er afar óhklegt
að þær sögur hefðu ekki varðveist í
einhverri mynd því hér hefðu átt í
hlut mjög áberandi og umtalaöir
frammámenn í sínu héraði. Flest
Daviö Oddsson forsætisráðherra.
bendir því th þess aö „kynblendings-
kenningin" eigi hvorki við rök né
gamlar gróusögur að styðjast.
Tilgáta um
misskilning
Hér skal ósagt látið hvort Stefán
Jónsson er upphafsmaður kenning-
arinnar. En hafi hann eða einhver
hugsanlegur heimildarmaður hans
sett fyrstur fram kenninguna nú á
síðustu árum er ekki ólíklegt að
kenningin byggist á tilteknum mis-
skilningi: Eftir aö Hans Jónatan lést
1827 giftist Katrín, ekkja hans, Birni
nokkrum Gíslasyni og bjuggu þau
lengst af á Búlartdsnesi. Bjöm lifði
Katrínu og kvæntist aftur, nú konu
að nafni Þórann Eiríksdóttir, og bjó
á Búlandsnesi til dauðadags 1882.
Tveimur árum fyrir dauða Bjöms og
ári eftir að Valgerður fæddist fluttu
foreldrar hennar, Haraldur Briem
og Þrúður Þórarinsdóttir, að Bú-
landsnesi sem mótbýhngar Björns.
Eftir dauða Björns átti Haraldur tvo
syni fram hjá konu sinni en meö
ekkju Björns, Þórunni. Þessir hálf-
bræður Valgerðar voru því synir
Þórunnar, sem var seinni kona
Björns, en hann var seinni maður
Katrínar sem upphaflega var kona
Hans Jónatans.
Ekki er ólíklegt að Stefán eða hugs-
anlegur heimhdarmaður hans hafi
misskihð þennan gang mála á þann
veg að forsætisráöherrann sé afkom-
andi Hans Jónatans.
í ljósi framangreinds sér ættfræði-
dehd DV ekki ástæðu th að endur-
skoða það sem deildin hefur áður
birt um ættir Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra.
-KGK
Fullorðnir afkomendur
Hans Jónatans
í þ r i ð j a I i ð
HANS JÓNATAN,
f. á Þtælaeyjunni St. Ctoix í Jótnfrúreyjaklasanum
1785, sonur svartrar ambáttar og að öllum líkindum
landshöfðingjarts þar, Heinrich Ludwig Emst von
Schimmelmans. Hans Jónatan flutti með Schimmelman
og konu hans til Danmetkur og kom 1il íslands 1816.
Hann var verslunarstjóri hjá Ötum & Wulf á Djúpavogi
frá 1818, kvæntist 1820 Katn'nu Anthoníusdótturog
bjugguþaulengstaf ÍBotgargerði. Þaueignuðust
tvö böm sem komust á legg og getið er um í Ættum
Austfirðinga. í ritinu Undir Búlandstindi telur Bnkur
Sigutðsson þó að bömin hafi verið fleiri þó ekki séu af-
komendur fná fleirum en þessum tveimur. Hans Jónatan
lést 1827, hatmdauði flestra enda afar vel látinn af
sveitungum sínum.
Lúðvík (Stefán)
Jónatan
Jónatansson,
f. 1821, d. 1850,
b. á Hálsi í
Hamarsfirði,
kv. Hansínu
Jónsdóttur.
Hansína Regína
Jónatansdóttir,
f. 1825, húsfreyja
á Hálsi í Hamatsf.,
gift Briki Bríkssyni,
b. þar.
Lúðvík Hansson, hafnsm. í Sjólist, Djúpav.
Jón Hansson, skósm. á Reyöarfirói
Jóhann Hansson, stofn. Vélsm. Seyðtsfj.
Hans Lúðvíksson, bátasm. á Strýtu, f. 1844
Karl Hansson, húsasm. í Kanada
Kristján Hansson, vinnum. á Austfjörðum
Hansína Hansdóttir, húsm. á Seyðisfirði
Benjamín Hansson, vélsm. á Seyöisfirði
Jón Lúövíksson, b. á Teigarhorni
Anna M. Lúðvíksd., húsm. á Djúpavogi
Lúðvík Lúövíkss., b. á KaHsst., Jóhanna Lúðvíksd.,
Lúövík Lúövíksson, skipstj. í Vestmeyjum
Katrín Lúðvíksd., | húsm. í Reykjavík
Karl Kristjánsson. II málari í Bergen ||
J Katrín Lúðvíksdóttir 1 húsmóðir
l-" 1 1 Björg Kristjánsdóttir, I húsm. í Kaupmh.
Emelie S. Björnsd., húsm. á Reyöarf.
Hansína R. Bjömsd., húsfr. á Teigarhomi
Georg E. Bjömsson, f. 1885
1 Björn Eiríksson, 4 trésm. á Eskif., 1 f. 1847 Katrín Björnsdóttir, f. 1887
♦ Elise S. Bjömsdóttir, f. 1889
Niels RE. Weywadt, f. 1892
Björn Björnsson, f. 1894
Georg Einksson, 1 drukknaöi ókv. og bl. 1