Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Page 26
26 LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994 Davíð Oddsson og dular- fulli kynblendingurinn Haraldur Briem, faðir Valgerðar. Ýmsir hafa grennslast fyrir um það hjá ættfræðideild DV hvað hæft sé í þeirri kenningu sem nú gengur fjöll- unum hærra að Davíð Oddsson for- sætisráðherra sé aíkomandi Hans Jónatans, kynblendings frá einni af Jómfrúreyjum Danaveldis. Kenning þessi hefur vakið mikla athygli en umræður um hana snúast að vonum um flest annað en kjarna málsins. Þekktar ættir - engin vísbending Ættir Davíðs, og þá einkum ættir Valgerðar Briem, ömmu hans, eru vel þekktar og heimildir um þær skilmerkilegar. Ekkert í þeim heim- ildum gefur minnstu vísbendingu um að Davíð sé einn af niðjum þessa merka manns. Eins og „kynblendingskenningin" hefur verið sett fram á prenti (í bók Stefáns Jónssonar, Að breyta fjalli, bls. 32, útg. í Rvk 1987, og í Morgun- blaðsgrein Elínar Pálmadóttur, Þrælaeyjar, sunnudaginn 9.1. sl.) er því einungis slegið fóstu að Davíð sé afkomandi Hans Jónatans en ekkert um það sagt hvernig tengslunum sé háttað. Tveir möguleikar Ugglaust flnnst flestum líklegt að Hans Jónatan, sem kom til landsins árið 1816, geti á margvíslegan hátt verið forfaðir Davíðs sem fæddist hundrað þrjátíu og tveimur árum síðar. Staðreyndin er hins vegar sú að möguleikar í þeim efnum, sem byggðir eru á lágmarks raunhæfni, eru varla fleiri en tveir. a) Að amma Valgerðar Briem, Guðný Benediktsdóttir, sem var eig- inkona Þórarins Erlendssonar, pró- fasts á Hofi í Álftafirði, og dóttir Benedikts Þorsteinssonar, prests á Skorrastöðum, hafi átt Þrúði, dóttur sína, fram hjá eiginmanni sínum en með syni Hans Jónatans, Lúðvík Jónatan Jónatanssyni, bónda á Hálsi í Hamarsfirði. b) Að móðir Valgerðar Briem, Þrúður Þórarinsdóttir, sem var eig- inkona Haralds Briem, hreppstjóra á Rannveigarstöðum í Álftafirði og síð- ar á Búlandsnesi við Djúpavog, hafi Þrúður Þórarinsdóttir, móðir Val- gerðar. Valgerður Haraldsdóttir Briem, móðir Odds læknis. Guðný Haraldsdóttir Briem, systir Valgerðar. Ólafur Haraldsson Briem, bróðir Valgerðar. Dómhildur Briem, systir Valgerðar. átt Valgerði fram hjá eiginmanni sín- um en með öðrum hvorum sona Lúð- víks Jónatans Jónatanssonar, Hans, bátasmið á Strýtu við Hamarsfjörð og síðar í Sjólyst á Djúpavogi, eða Lúðvik, bónda á Karlsstöðum. Pater est quem numptiae demonstrant Hér er þaö ekki ætlunin að útiloka þessa möguleika með afgerandi rök- um enda er þaö að öllu jöfnu sann- gimiskrafa að hin fræga Pater est- regla gildi í ættfræði ekki síöur en sifjarétti: Að sá beri sönnunarbyrð- Oddur Olafsson læknir, faðir Davíðs. ina sem staðhæfir að barn eiginkonu sé ekki bam hennar og eiginmanns- ins heldur launbam annars manns. Engin rök. Sögusagnir um slíkt eru auðvitað mýmargar með þessari málglöðu og lauslátu þjóð. En í tiltölulega fáum tilfellum eiga slíkar sögusagnir við haldbær líkindi að styðjast og í und- antekningartilfellum byggjast þær á nánast óhrekjanlegum rökum. Blaðamönnum ættfræðideildar DV er ekki kunnugt um neinar slíkar röksemdir í þessu máh ef undan er skihn visbending um hárprýði for- sætisráðherrans. ...og engar sogusagmr í nánast undantekningartilfellum byggjast framhjáhaldstilgátur af þessu tagi á sögusögnum - ef ekki almannarómi - sem kvikna og viö- gangast samtímis eða skömmu eftir aö þeir atburðir eiga sér stað sem tilgátan vísar til. Blaðamenn ætt- fræðideildar DV hafa haft samband viö marga niðja Hans Jónatans sem lagt hafa sig eftir heimildum um lífs- hlaup hans, ættir og niðja. Allir þess- ir aðilar hafa staðfastlega neitað því að hafa nokkurn tíma heyrt sögu- sagnir um ættartengsl við forsætis- ráðherrann áður en bók Stefáns Jónssonar kom á prent. Sömu sögu er að segja um þá sem gleggst þekkja til Valgerðar.Briem, föreldra hennar og móðurforeldra. Reyndar hefur okkur ekki tekist að rekja söguburð- inn aftur fyrir ummæli Stefáns Jóns- sonar frá 1987. Hafi hins vegar gengið sögur á sín- um tima um hugsanlega rangfeðrun Valgerðar eða Þrúðar er afar óhklegt að þær sögur hefðu ekki varðveist í einhverri mynd því hér hefðu átt í hlut mjög áberandi og umtalaöir frammámenn í sínu héraði. Flest Daviö Oddsson forsætisráðherra. bendir því th þess aö „kynblendings- kenningin" eigi hvorki við rök né gamlar gróusögur að styðjast. Tilgáta um misskilning Hér skal ósagt látið hvort Stefán Jónsson er upphafsmaður kenning- arinnar. En hafi hann eða einhver hugsanlegur heimildarmaður hans sett fyrstur fram kenninguna nú á síðustu árum er ekki ólíklegt að kenningin byggist á tilteknum mis- skilningi: Eftir aö Hans Jónatan lést 1827 giftist Katrín, ekkja hans, Birni nokkrum Gíslasyni og bjuggu þau lengst af á Búlartdsnesi. Bjöm lifði Katrínu og kvæntist aftur, nú konu að nafni Þórann Eiríksdóttir, og bjó á Búlandsnesi til dauðadags 1882. Tveimur árum fyrir dauða Bjöms og ári eftir að Valgerður fæddist fluttu foreldrar hennar, Haraldur Briem og Þrúður Þórarinsdóttir, að Bú- landsnesi sem mótbýhngar Björns. Eftir dauða Björns átti Haraldur tvo syni fram hjá konu sinni en meö ekkju Björns, Þórunni. Þessir hálf- bræður Valgerðar voru því synir Þórunnar, sem var seinni kona Björns, en hann var seinni maður Katrínar sem upphaflega var kona Hans Jónatans. Ekki er ólíklegt að Stefán eða hugs- anlegur heimhdarmaður hans hafi misskihð þennan gang mála á þann veg að forsætisráöherrann sé afkom- andi Hans Jónatans. í ljósi framangreinds sér ættfræði- dehd DV ekki ástæðu th að endur- skoða það sem deildin hefur áður birt um ættir Davíðs Oddssonar for- sætisráðherra. -KGK Fullorðnir afkomendur Hans Jónatans í þ r i ð j a I i ð HANS JÓNATAN, f. á Þtælaeyjunni St. Ctoix í Jótnfrúreyjaklasanum 1785, sonur svartrar ambáttar og að öllum líkindum landshöfðingjarts þar, Heinrich Ludwig Emst von Schimmelmans. Hans Jónatan flutti með Schimmelman og konu hans til Danmetkur og kom 1il íslands 1816. Hann var verslunarstjóri hjá Ötum & Wulf á Djúpavogi frá 1818, kvæntist 1820 Katn'nu Anthoníusdótturog bjugguþaulengstaf ÍBotgargerði. Þaueignuðust tvö böm sem komust á legg og getið er um í Ættum Austfirðinga. í ritinu Undir Búlandstindi telur Bnkur Sigutðsson þó að bömin hafi verið fleiri þó ekki séu af- komendur fná fleirum en þessum tveimur. Hans Jónatan lést 1827, hatmdauði flestra enda afar vel látinn af sveitungum sínum. Lúðvík (Stefán) Jónatan Jónatansson, f. 1821, d. 1850, b. á Hálsi í Hamarsfirði, kv. Hansínu Jónsdóttur. Hansína Regína Jónatansdóttir, f. 1825, húsfreyja á Hálsi í Hamatsf., gift Briki Bríkssyni, b. þar. Lúðvík Hansson, hafnsm. í Sjólist, Djúpav. Jón Hansson, skósm. á Reyöarfirói Jóhann Hansson, stofn. Vélsm. Seyðtsfj. Hans Lúðvíksson, bátasm. á Strýtu, f. 1844 Karl Hansson, húsasm. í Kanada Kristján Hansson, vinnum. á Austfjörðum Hansína Hansdóttir, húsm. á Seyðisfirði Benjamín Hansson, vélsm. á Seyöisfirði Jón Lúövíksson, b. á Teigarhorni Anna M. Lúðvíksd., húsm. á Djúpavogi Lúðvík Lúövíkss., b. á KaHsst., Jóhanna Lúðvíksd., Lúövík Lúövíksson, skipstj. í Vestmeyjum Katrín Lúðvíksd., | húsm. í Reykjavík Karl Kristjánsson. II málari í Bergen || J Katrín Lúðvíksdóttir 1 húsmóðir l-" 1 1 Björg Kristjánsdóttir, I húsm. í Kaupmh. Emelie S. Björnsd., húsm. á Reyöarf. Hansína R. Bjömsd., húsfr. á Teigarhomi Georg E. Bjömsson, f. 1885 1 Björn Eiríksson, 4 trésm. á Eskif., 1 f. 1847 Katrín Björnsdóttir, f. 1887 ♦ Elise S. Bjömsdóttir, f. 1889 Niels RE. Weywadt, f. 1892 Björn Björnsson, f. 1894 Georg Einksson, 1 drukknaöi ókv. og bl. 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.