Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1994, Blaðsíða 34
42
LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 1994
Fyrr og nú
íþróttir
Valbjöm
Þorláksson
Valbjörn Þorláksson frjáls-
íþróttamaður gerði garðinn fræg-
an á sjötta og sjöunda áratugnum.
Eftir aö hafa slitið barnsskónum
norður á Siglufirði þar sem áhugi
hans kviknaði á íþróttum fluttist
hann til Keflavíkur. Þar lagði
hann stund á knattspyrnu og
varð t.d. íslandsmeistari með 2.
flokki. Árið 1952 fékk Valbjörn
svo áhuga á frjálsum íþróttum og
eftir það varð ekki aftur snúið.
Tveimur árum síðar var hann
svo kominn tii Reykjavíkur og
farinn að æfa stangarstökk af
miklum eldmóði.
Árið 1955 var Valbjörn búinn
að ná góðum tökum á stönginni
og árið 1957 bætti hann íslands-
met Torfa Bryngeirssonar. Met
Torfa var 4,35 metrar en Valbjörn
gerði sér Mtið fyrir og stökk 4,37
metra. Valbjöm bætti þetta met
jafnt og þétt og hæst stökk hann
4,50 metra árið 1961 í Laugardaln-
um.
Valbjörn var mjög fjölhæfur
íþróttamaður og því tilvalið fyrir
hann að reyna fyrir sér í tug-
þraut. Árið 1962 bætti hann ís-
landsmet Arnar Clausen og áriö
1965 varð hann Norðurlanda-
meistari í tugþraut. Þá varð Val-
- björn í 12. sæti á ólympíuleikun-
um í Tokyo 1974.
Tvívegis á keppnisferli sínum
hlaut Valbjörn hinn eftirsótta titil
að vera kosinn íþróttamaður árs-
ins; fyrra skiptið áriö 1959 og í
síðara skiptið árið 1965.
„Á innlendum vettvangi er mér
minnisstæðast þegar maður var
að vinna þetta 7-10 titla á íslands-
meistaramótum. Erlendis situr
ofarlega í huga mér þegar ég sigr-
aði í stangarstökki á Varsjárleik-
unum í Póll^ndi með því að vinna
Evrópumeistarann og ég endur-
tók leikinn í Dresden ári síðar.
Annars er af nógu að taka og sigr-
amir margir sætir. Ég hef reynt
aö halda mér við eftir að ferhnum
lauk og þá aðallega með stuttu
sprettunum og þá keppi ég í flest-
um greinum á öldungamótum.
Maður fylgist svona meö því hvað
er að gerast á frjálsíþróttavellin-
um enda hæg heimatökin þar
sem ég vinn á Laugardalsvellin-
um.“ GH
Magnús Scheving, íslands- og Norðurlandameistari í þolfimi, í viðtali:
- segir Magnús sem hefur sett stefnuna á sjálfan heimsmeistaratitilinn
íslands- og Norðurlandameistarinn i
þolfimi, Magnús Scheving, stefnir
hátt á þessu nýbyrjaða ári. í næsta
mánuði tekur hann þátt í Evrópu-
meistaramótinu sem fram fer í Ung-
verjalandi og í arpílmánuði keppir
hann á heimsmeistaramótinu sem
haldið verður í Japan. Magnús varð
í þriöja sæti á síðasta HM-móti og í
ár hefur hann tekið stefnuna á Evr-
ópumeistaratitihnn og síðan heims-
meistaratitihnn.
„Ég er hæstur í Evrópu í dag þann-
ig að maður ætti að hafa alla mögu-
leika á að verða í einu af þremur
efstu sætunum. Ég ætla að leggja allt
undir í ár enda þekki ég ekki neinn
þann keppnismann sem stefnir ekki
á fyrsta sætið í keppni. Ég er með
rútínu sem ég hef ekki farið með á
mót áður og ég veit ekki hvemig hún
fehur í kramið en ég fæ dómarana
til að segja mér hvað er að og þá hef
ég einn og hálfan mánuð til að laga
það sem betur má fara fyrir HM.
Annars skiptir dagsformið öllu í
svona mótum og ein mistök geta
kostað mann verðlaunasæti," sagði
Magnús í viðtali við DV.
Þeir eru fjölmargir sem æfa þolflmi
á hveij.um degi hér á landi og spurn-
ing vaknar hvort það sé ekki kominn
tími til að stofna sérsamband og
ganga í ÍSÍ?
Viljum komast í ÍSÍ
„Við erum að vinna að því að kom-
ast í ÍSÍ. Við viljum hætta að hta á
þetta sem bara skemmtun heldur
viljum við að þessi grein verði tekin
sem alvöruíþrótt eins og erlendis. Þá
stendur til að þolfimi verði jafnvel
sýningargrein á næstu ólympíuleik-
um. Þá erum við að vinna að því að
halda Norðurlandamót hér heima á
næsta ári.“
Treður upp á
skemmtunum
Magnús hefur í nógu að snúast. Hann
flakkar á milli líkamræktarstöðva til
að kenna og sýna og þá er hann far-
inn að skemmta landanum meðal
annars á árshátíðum og þorrablót-
um.
„Þetta er mín fjáröflunarleið til að
eiga fyrir svona mótum sem ég keppi
á. Ég hef verið að troða upp á
skemmtunum og þá brugðið mér í
alls konar gervi og sagt brandara.
Ég ht þó ekki á mig sem skemmti-
kraft í orðsins fyllstu merkingu en,
ég hef gaman af þessu. Ég hef verið
að skemmta frá því ég var htih.
Það þarf að auka
áróður fyrir íþróttum
„Þá vinn ég mikið með unglingum.
Ég er með fyrirlestra í kirkjum og
félagsmiðstöðvum unglinga. Þetta er
ekki í fyrirlestraformi heldur ræði
ég við krakkana almennt eins og
maöur hugsaði sjálfur þegar maður
var yngri. Maður hafði áhyggur þeg-
ar bóla kom á nefið, að rassinn á
stelpunum væri of síður og ýmislegt
í þeim dúr. Þá hef ég rætt við krakk-
ana um einelti og þar hef ég opnað
umræðuna um það að hvernig mað-
ur lítur út skuh skipta svona miklu
máh. í öllum íþróttum þar sem þú
færð einhvern vöxt myndast einhver
ímynd og ég er að drepa þá ímynd.
Ef einhver er of þybbinn er það bara
aht í lagi. Við verðum að minnka
þessa pressu á bömunum því útht
er bara útlit.
Þá ræði ég við krakkana um áfengi
og reykingar. Ég er sjálfur bindindis-
maður og hef aldrei bragðað áfengi
eða reykt. Það þarf að auka áróður
fyrir íþróttum og mér þykja það
slæmar fréttir þegar maður heyrir
að það sé alltaf verið að skera niður
íþróttakennslu í skólunum."
Næ ekkert að fitna
Magnús er 29 ára gamall og að eigin
sögn á hann eitt ár eftir á toppnum.
„Maður er orðinn svolítið þreyttur
á þessu, maður. Ég næ ekkert að fitna
(er 68 kg). Ég borða samt mjög mikið
og þá mest af ýmiss konar pastarétt-
um. Ég borðaöi mikið af kjöti hér
áður fyrr en fyrir ári breytti ég mat-
arvenjum og fór að borða meira
pasta. Ég hreyfi mig náttúrlega ótrú-
lega mikið og það er skýringin á að
ég næ ekki að fitna.“
Eitt móterlendis
kostar300 þúsund
Unnusta Magnúsar er Ragnheiður
Melsted og segir Magnús hana vera
sinn umboðsmann. „Ég gæti ekki
verið í þessu sporti án hennar. Hún
styður mig rosalega vel. Þá hefur
faðir minn hjálpað mér íjárhagslega
hvað varðar mótin, svo og Skúh í
Tékk-Kristal. Þegar ég keppi á mót-
um erlendis fer ég einn og fiármagna
aht sjálfur og að taka þátt í einu
móti erlendis getur kostað í kringum
300 þúsund krónur fyrir utan vinn-
utap.
Magnús er lærður trésmiður en
segist ekki vinna mikið við að smíða
nema fyrir vini og kunningja. Hans
vinna fer að mestu leyti fram í lík-
amsræktarstöðvum og það fer mikill
tími í það, bæði að leiðbeina og þjálfa
sjálfan sig.
„Ertu svona lítill?"
Á dögunum var Magnús kosinn kyn-
þokkafyllsti karlmaður landsins af
hlustendum rásar 2. Hvað segir hann
um þann tith?
„Maður veit ekki hvernig á að taka
svona dæmi. Það ei nú létt grín í
þessu en það var ansi gott að fá yngri
mann en 30 ára inn á hstann eftir
að menn eins og Helgi Pétursson og
Stefán Jón Hafstein fengu kosningu.
Annars er ég bara ánægður með
þennan tith og vonandi að maður
standi undir honum. Það er yfirleitt
það fyrsta sem konur segja þegar þær
sjá mann: „Ertu svona lítill (er 1,73
m), ertu ekki stærri en þetta“.
-GH
Magnús Scheving fagnar íslandsmeistaratitlinum í þolfimi sem
hann vann á dögunum. Framundan er Evrópu- og heimsmeistaramót og
þar hyggur Magnús á stóra hluti og segist ætla að leggja allt undir til að
krækja í báða þessa titla. DV-mynd JAK
Legg allt undir í ár
PLÚS
Plúsinn fær KSÍ sem hefur
tryggt fiárhagslegan grund-
vöh sinn í 4 ár með öflugum
sjónvarpssamningi. Þá er það
ljóst að úrslitakeppni EM 18
ára liða fer fram á Islandi Í997
sem er viðurkenning á góöu
starfi hjá KSÍ og árangri yngri
landsliðanna.
MÍNUS
Borgaryfirvöld fá mínus fyrir
„breytingarnar" sem á að
gera á Laugardalshöhinni
fyrir HM. Breytingarnar fel-
ast eingöngu í að fiarlægja
stólana þannig að hægt verði
að troða 2200 manns í stæði.
Þarna er verið að hverfa þijá
áratugi aftur í tímann.
íþróttainaður vikurinar
Jón Arnar Magnússon bætti ís-
landsmetið i sjöþraut á dögunum.
Jón A. Magnússon
-bætti eigið íslandsmet í sjöþraut á Meistaramóti íslands
íþróttamaður vikunnar að þessu
sinni er fijálsíþróttamaðurinn Jón
Amar Magnússon. Jón setti glæsi-
legt íslandsmet í sjöþraut á Meist-
aramóti íslands sem fram fór á
dögunum. Jón fékk 5467 stig en
gamla metið átti hann sjálfur, 5142
stig, sem hann setti árið 1992.
Jón Amar er svo th nýstiginn
upp úr meiðslum en hann fótbrotn-
aði fyrir 10 mánuðum þegar hann
var á skautum. Hann er í dag
fremsti tugþrautarmaður landsins
og fróðir menn telja að hann hafi
alla buröi th að slá 11 ára gamalt
islandsmet Þráins Hafsteinssonar
landshðsþjálfara en það er 7592
stig. Jón Árnar á best 7570 stig en
þeim stigafiölda náði hann árið
1992. Jón Arnar er 24 ára gamall
íþróttakennari en stundar nú
vinnu við Loðskinn á Sauðárkróki
„Miðað við æfingaálag kom þessi
árangur minn á meistaramótinu
mér frekar á óvart. Þetta htur vel
út fyrir næstu mót sem em fram-
undan en það er íslandsmeistara-
mótið og svo mót í Berlín þar sem
ahir helstu tugþrautarmenn heims
mæta. Annars búum við frjáls-
íþróttafólk á íslandi við aðstöðu-
leysi sem sést best á því að th að
geta klárað meistaramótið þurftum
við að keyra alla leið til Laugar-
vatns og keppa þar í stangarstökki
og 1000 metra hlaupi," sagði Jón í
samtah við DV.
- Á ekki að ná tugþrautarmetinu
af Þráni landsliðsþjálfara í sumar?
„Maður verður nú að spara stóru
orðin því það fór iha síðast. Jú,
auðvitað er stefnt að því að bæta
þetta met enda kominn tími th. Ég
get bætt mig í öhum greinum þann-
ig að miðað við minn árangur á það
ekki að vera neitt mál. Ég var ekki
nema 22 stigum frá metinu fyrir
tveimur árum svo þetta hlýtur að
koma núna.“
Vonandi slepp ég
heill út úr landsmóti
Jón Arnar stefnir að því að keppa
á Evrópumeistaramótinu sem fram
fer í Helsinki í sumar og svo verður
Landsmót UMFÍ haldiö á Laugar-
vatni og þar ætlar hann sér stóra
hluti. „Ég ætla að vona að ég sleppi
hehl í gegnum heilt landsmót en
það hef ég aldrei gert. “ -GH